Vísir - 03.07.1979, Síða 16

Vísir - 03.07.1979, Síða 16
vism ÞriOjudagur 3. júli 1979 Um»jón: Sigurveig Jóns'jottir lAtlaus og vönduo Sf ning i þessum skáp sjást hin gömlu hefObundnu leikföng, leggur, skel, vala og heimatilbúin leikföng, s.s. hesturinn fremst á myndinni. A dögunum var opnuO sýning á leikföngum islenskra barna i Árbæjarsafni er ber heitið Fyrr- um átti ég falleg gull, og mun hún standa yfir sumarlangt. Þar eru nokkur leikföng sem skráðar heimildir eru fyrir að séu frá byrjun 19. aldar, en stærstur hluti sýningargripa er frá okkar dögum, frá byrjun aldar er eitthvað af munum og svo uppeftir og fram í timann eftir seinna strið. Ekki er grein- arhöfundi grunlaust um aö margan reki i rogastans yfir þvi hve mörg leikfanganna eru vönduð aö gerö og vel með f arin. Þarna getur m.a. að lfta brúðu- vagna, rugguhesta, dúkkustell, saumavélar, brúöur meö postu- linshöfuð, báta, bila og flugvél- ar. Trúlega mun þó mörgum landanum þykja vænna um einn sýningarskápinn öðrum fremur, en hann er sá er geymir leggi, skel og völu, hin heföbundnu leikföng Islendinga i aldanna rás. Breyttir timar, önnur áhugamál, aðrir leikir. Sýningin gefur einmitt til kynna þá gifurlega þróun sem orðiðhefur i gerð leikfanga eftir miðja siðustu öld og innsýn I stökkið frá hinu gamla bænda- samfélagi til nútima ifshátta á Islandi. Eftir því sem næst veröur komist hafa leikföng barna hér lengst framan af tekið mið af og mótast af vistfræöilegu um- hverfi barnanna m.a. þvi hvort búið var I sveit, þéttbýli eða borg, hvernig störftim foreldra og annarra var háttað, hver staöa foreldranna var o.s.frv., þ.e. leikirnir hafa verið eins konar eftiröpun af störfum full- oröinna og tengdir alvöru lifs- ins, brauðstriti til lands og Dýrindis dúkkur með postulinsandlit, dúkkurúm og dáindis fin vagga eru meðal leikfanganna á þessari mynd. sjávar. Viö vitum að börn fyrri tlma fóru almennt fyrr að vinna fyrir sér sem fullgildir starfe- láaftar og höfðu minni tima af- lögu til tómstunda en nú tiðkast ogsér þessa glögg merki á leik- föngum þeirra og leikjum. A sýningunni er t.d. talsvert um heimagerð leikföng auk hinna hefðbundnu sem áður er getið. En iönbyltingin, aukin tækni og iðnvæöing, aukiö fjármagn, verslun og viðskipti við útlönd samfara breyttu verðmætamati hafa m.a. oröið þeir vendi- punktar islensks þjóðlifs sem knúið hafa fram ákveöna þróun þess og fært I núverandi form. Þetta endurspeglast m.a. i Nanna Hermannsson, safnvörður I Arbæjarsafni og borgarminja- vörður. breyttum leikjum barna, i' öðr- um áhugamálum og annars konar leikföngum, og má lesa þessa þróun að nokkru á slikri sýningu sem þessari. Fjölda- framleidd innflutt leikföng voru þó framan af ekki eingöngu skemmtileikföng heldur einnig nytjaleikföng. Liklega skipa þroskaleikföng nútimans svip- aðan sess og hin siðarnefndu áð- ur. Hvaðan eru leikföngin og eru þau verðugir fulltrúar? Til þess að fá leikföng til sýn- ingar ásafniö var auglýst i blöð- Björg Bjarnadóttir skrifar Saumavél litillar stúlku frá þvi um aldamót sést hér, — eins konar nytjaleikfang, sömuleiðis mekkanó, eingöngu ætlað drengjum. unumog almenningur beðinn að ljá leikföng, sem haldið hefði veriö til haga, til nota á sýningu. Um 40 manns eiga muni á sýn- ingunni og hefur samstarf við þessa aðila veriö einkar ánægjulegt, að sögn safnvarðar, Nönrtu Hermannsson, og gat hún þess einnig að allar heimildir um leiki og leikföng fyrri tima væru vel þegnar. Ekki er óliklegt að sú spurn- ing vakni, þegar sýningin er skoðuð, hvort leikföngin þar gefi reglulega raunsæja mynd af daglegum leikföngum barna þess timabils, sem sýningin á að verafulltrúi fyrir, stássleg leik- föngeru t.d. áberandi. Þvi svar- ar Nanna svo til, að það séu fyrst og fremst þau sem varö- veitast, en hinu megi ekki gleyma, aö til sé fólk sem varð- veiti leikföng, þó þau séu orðin slitin. Einnigsé óvitað hve börn áttu almennt mikiö af leikföng- um um siðustu aldamót, trúlegt þyki að þau hafi átt eitt dýrindisleikfang, t.d. upptrekkt blikkleikfang, ásamt með heimagerðum leikföngum og hefðbundnum leikföngum gamla timans. Tilfinningin fyrir hinu liðna vakin? Nanna kvað það nokkurt ein- kenni á skráðri sögu margra menningarþjóða hve oft vanti raunsæjar ritaðar heimildir um daglegt llf venjulegs fólks, hversdagurinn sé mörgum svo sjálfsagt mál að oft sé hans ekki minnst að verðleikum, nema helst af skáldunum. Kannski erþað einmitt brot af angurværð liðins og rólegra timaskeiðs, sem leikfangasýn- ingunni i Arbæjarsafni I látleysi sinu, einfaldleik og af vönduðu yfirbragði, tekst að vekja hjá sýningargesti. Þau hafa ekki veriö af verra taginu þessi á sinum tlma og standa nu- tímaleikföngum fyllilega á sporöi. Visismyndir: ÞG islenskir iistamenn kynntir á Norðurlöndum Guöný Guömundsdóttir. Guðný Guðmundsdóttir og Halldór Haraldsson halda tónleika i Norræna húsinu á mið- vikudagskvöldið, 4. júli, og hefjast þeir kl. 20.30. Tónleikarnir eru haldnir á veg- um Norræna hússins, en það mun á þessu ári gera átak til að kynna islenska listamenn hinum Norð- urlöndunum. Fyrsti áfangi þeirr- ar viðleitni verður sónötukvöld i hljómlistarsalnum i Tivoli i Kaupmannahöfn 12. júli. Guðný og Halldór munu þá leika verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Jón Nordal, en auk þess verða á efnisskránni fiðlusónata nr. 1 eft- ir Carl Nielse, Kreutzer-sónatan eftir Beethoven og konsertrapsó- dian Tzigane eftir Ravel. Þessi efnisskrá verður einnig á tónleikum þeirra Guðnýjar og Halldórs i Norræna húsinu. Halldór Haraldsson. Ahugamáiari í Eden Ingvar Sigurðsson opnaöi tökur um helgina. Þegar á öör- sýningu á myndum sinum i Um degi voru margar mynd- Eden, Hveragerði á laugardag- anna seldar, en alls eru þær 22. inn. Þetta er fyrsta einkasýning Vfsismynd: EJ Ingvars og fékk hún góðar mót-

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.