Vísir - 25.07.1979, Page 3
f
VlSIR
Miövikudagur 25. júli 1979.
Frá þjáöhátlð I Vestmannaeyjum. Vlsismynd: Guömundur Sigfússon,
Vestmannaeyjum.
ÞJðÐHÁTÍÐ HEFST
í EYJUM 3. flGÚST
Þjóöhátiö Vestmannaeyja
hefst föstudaginn 3. ágúst næst-
komandi kl. 14 I Herjólfsdal og
stendur I þrjá sóiarhringa.
Knattspyrnufélagiö Týr sér um
framkvæmd hátlðarinnar aö
þessu sinni.
Fyrir setningu hátiöarinnar
mun Lúörasveit Vestmanna-
eyja leika undir stjórn
Hjálmars Guönasonar. Þá mun
Snorri Jónsson, formaöur Týs,
setja hátiöina og siöan mun séra
Kjartan Orn Sigurbjörnsson
Eyjaklerkur annast helgistund
og Kirkjukór Vestmannaeyja
syngur undir stjórn Guðmundar
H. Guðjónssonar. Að lokinni
helgistund verður hlaup barna
og unglinga á hlaupabrautinni I
kring um Herjólfsdalstjörnina.
Þá verður kastkeppni með
blautpúða, söngvararnir
Magnús og Jóhann syngja á 40
min. dagskrá um miðjan dag-
inn, landskunnir iþróttamenn
keppa I Dalnum og Lúðrasveitin
tekur lotu áður en bjargsigið
hefst á Fiskhellanefi, en þar
mun Óskar Svavars siga, en
Siggi minkur mun áður klifa
Fiskhellabjarg upp á brún. Þeir
eru báðir Helliseyingar. Þá
hefst og skemmtun kl. 5 og með-
al skemmtiatriða eru Halli og
Laddi, Fóstbræður og fleiri.
Kvöldvakan hefst kl. 20.30
meö leik Lúðrasveitar Vest-
mannaeyja, Halli og Laddi
skemmta með nýju efni,
Magnús og Jóhann syngja,
Jóhannes Guðmundsson eftir-
herma verður mættur frá
Brekku á Ingjaldssandi við
önundarfjörð, Brimkló kynnir
þjóðhátiðarlagið, brekkusöngur
verður, Addý og Hólmfriöur
syngja og HLH flokkurinn
skemmtir. Að lokinni kvöldvöku
hefst dansleikur á báðum
pöllum kl. 23-04, en það eru
Brimkló og Asar sem skemmta.
Hlé verður þó að sjálfsögðu gert
kl. 24, þegar kveikt veröur i bál-
kestinum á Fjósakletti af Sig-
urði Reimarssyni brennukóngi.
A laugardeginum hefst hefð-
bundin dagskrá kl. 2 með leik
lúðrarsveitarinnar, þá verður
Höfðahlaup úr Stórhöfða, reyk-
vískir og vestfirskir svifdreka-
menn sýna drekaflug af Molda,
Sigfús Halldórsson og Guð-
mundur Guðjónsson skemmta
um miðjan daginn, fimleikasýn-
ing verður, visna- og þjóðlaga-
söngur, lyftingamót, handbolta-
keppni og barnaball með
skemmtiatriöum kl. 5, en þar
koma m.a.fram Baldur og Konni.
Enginn fsbiðrn á Vestfjörðum? ■
„Hðtum engar fréttir!
fengið af birninum”!
segir Jón Gunnarsson forstððumaður Sædýrasainsins
Þessi uppstoppaöi Isbjörn stendur I Storgata I Tromsö og dregur
mjög feröamenn til bæjarins.
Ekkert hefur spurst tii
ísbjarnarins, sem sumir
telja aðgengið hafi á land
við Hornstrandir í vor.
Bæði Ferðafélagið og
útivist hafa verið með
ferðir á Hornstrandir
undanfarið, en enginn af
þeim ferðamönnum, sem
þangað hafa ferðast á
vegum þessara félaga,
hefur enn komið auga á
björninn.
„Ég veit ekki um framhald-
ið,” sagði Jón Kr. Gunnarsson
forstöðumaður Sædýrasafnsins,
i samtali við Visi, en hann ætlaði
sér að fanga björninn lifandi og
koma honum i Sædýrasafnið.
„Við höfum leyfi til þess að
veiöa hann og eins öll tæki til að
svæfa hann og flytja til Hafnar-
fjaröar. Það er að sjálfsögðu
miklu betra að ná honum lifandi
heldur en að skjóta hann. Hins
vegar höfum við engar fréttir
fengið af birninum. Þessi spor,
sem fundust, gætu alveg eins
hafa verið af manni en sólin siö-
an brætt þau svo aö þau urðu ó-
þekkjanleg,” sagði Jón.
ísbirnir hafa nú verið friðaðir
i Noregi I um 10 ár. Siðan þá
hefur eftirspurn eftir isbjarnar-
skinnum aukist mjög og verðið
rokið upp úr öllu valdi.
Nýlega tókstskinnaverslun
Paul Figenschaus I Tromsö að
komast yfir tvö isbjarnarskinn.
Þau voru höfö i útstillingar-
glugga verslunarinnar. Fyrir
skömmu braut þjófur gluggann
og haföi á brott með sér bæði
skinnin og eru þau metin á 7
millj. kr.
Lögreglan i Tromsö situr nú
uppi með marga svipaða óupp-
lýsta þjófnaði á isbjarnarskinn-
um, en svartamarkaðsbrask
með þessi skinn hefur mjög
aukist vegna aukinnar eftir-
spurnar og hækkaðs verðs. FI
• Stórkpstlegur útsöIumark^^ja
Iðnaðarhúsjinu er ha f
:• Á boðstöfúm er geysiiegt'úrvaí at
;§ nýlegum^g ::ef4ri.vj^mi^e|'ðlist-;
;:;:• Nú geta a jiij- gert reyfal^p^AHt
sérstakléga ódýrt. | &
• Markaðuririn er i IðnaðáíSósirP-ýið
:• Hallveigarstíg. s
'Æ Flest á ;ha$virði og ódýra^l&ÍBPl
•Kápur^* Kj
•Jakkar; •$!
• Mussur • B
• Pils •^Barst
o.m.ffl. ía
ifiur pj
lur
atifaður