Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ „Þetta er sjálfsævisöguleg mynd og fjallar um æsku mína. Ég hef kynnst því mjög vel hvaða áhrif alkóhól hefur á fjölskyldur og skilur þær eftir sundurtættar og í sárum. Ég mála þann heim sem ég þekki á raunsæjan og táknrænan hátt. Sviðið er stofan á æskuheimili mínu. Ég stend á miðju gólfinu með sjálfan mig sem lítinn dreng á herðunum og við reynum í sameiningu að halda loftinu uppi, svo það falli ekki á börnin mín, sem eru með lokuð augun í forgrunninum.“ Sigurður Örlygsson Fjórum íslenskum lista-mönnum hefur verið boðiðað sýna verk á sýningusem haldin verður í Kaup-mannahöfn í byrjun næsta árs. Yfirskrift hennar er: „Hin mörgu andlit Alkóhóls konungs (Kong Alkohols ansigter). Sýningin verður haldin í Sívalaturninum sem er í elsta hluta Kaupmannahafnar. Fyrir rúmum tíu árum var innrétt- aður þar stór sýningarsalur. Má geta þess líka að í þessum turni voru handritin okkar varðveitt eftir brunann mikla í Kaupmannahöfn árið 1728. 65 norrænir listamenn taka þátt í sýningunni Danska listfyrirtækið IN-ART stendur fyrir sýningunni í Sívala- turninum. Að sögn stofnanda þess og aðalhvatamanns, Aage Büchert, hafa sextíu og fimm listamenn, flestir frá Danmörku en einnig frá Noregi, Svíþjóð og Íslandi staðfest þátttöku sína í sýningunni. Þar á meðal nokkrir þekktustu listamenn viðkomandi landa. Íslensku mynd- listarmennirnir sem sýna verk á sýningunni eru Eyjólfur Einarsson, Gunnar Örn Gunnarsson, Magnús Kjartansson og Sigurður Örlygs- son. Að sögn Buchert er IN-ART ekki rekið með gróðasjónarmið í huga heldur til að vekja skilning á ýms- um mannúðarmálum. „Hin mörgu andlit Alkóhóls kon- ungs er fyrsta þemað sem fyrirtæk- ið fer af stað með í þessum anda,“ segir hann. „Yfirskrift sýningarinn- ar á rætur að rekja til skrifa Jack Londons sem leitaðist við að sigrast á ofdrykkju sinni með því að fjalla opinskátt um reynslu sína í bók sem hann nefndi King Alcohol. Til- raun Londons misheppnaðist því miður. Hann féll fyrir eigin hendi árið 1916 þegar hann tók of stóran skammt af morfíni,“ útskýrir Büc- hert. Vilja stuðla að hreinskilinni umræðu um áfengi Hver er tilgangur sýningar með þessari yfirskrift? „Hugmyndin á bak við hana er sú staðreynd að mynd getur oft sagt meira en þúsund orð. Heilbrigðisyf- irvöld nota mikla fjármuni, að minnsta kosti í Danmörku, til að fræða fólk um áfengisvandann. Slíkar upplýsingar fara oft fyrir of- an garð og neðan hjá því fólki sem á við áfengisvanda að stríða. Við sem stöndum að sýningunni teljum að hún geti stuðlað að hreinskilnari umræðu á þessu sviði, því ennþá einkennist hún töluvert af hræsni og því að menn vilja ekki tala op- inskátt um vandann, þannig er það að minnsta kosti í Danmörku. Til að breyta þessu er nauðsynlegt að ræða ofneysluna á breiðum grund- velli. Áfengi hefur haft mikil áhrif ef litið er til evrópskrar menningar- sögu. Sýningunni er meðal annars ætlað að varpa ljósi á það og einnig hve viðhorfin til áfengis geta verið tvíbent. Menn hafa gjarnan lof- sungið vínguðinn fyrir að hafa veitt sér andagift en á hinn bóginn hefur Bakkus reynst mörgum listamann- inum afar illa. Við sjáum líka að yfirvöld hafa hræsnisfulla afstöðu til áfengis. Þau fordæma neyslu þess og beita sér fyrir alls kyns boðum og bönnum gegn áfengi. Á hinn bóginn hagnast ríkið á sölu áfengis. Þessi sannindi eru ekki ný en eru enn í fullu gildi.“ Ekki skilyrði að hafa ánetjast Bakkusi Það kemur fram í máli Bücherts að á sýningunni verða ekki aðeins sýnd málverk heldur einnig högg- myndir, ljósmyndir og myndbanda- list. Þá er í bígerð að sýna brot úr þekktum listrænum kvikmyndum (film collage) sem fjalla um of- drykkju. „Við vorum að hugsa um að tvinna tónlist inn í myndlist- arsýninguna því margir tónlistar- menn hafa farið flatt á kunnnings- skapnum við Bakkus en þá sagði starfsfólk sýningarsalarins, sem er með skrifstofu í turninum, að há- vaðinn myndi æra þau, svo við hættum við,“ segir Büchert og hlær. Er það skilyrði að þeir listamenn Mynd segir oft meira en mörg orð Snemma á næsta ári verður opnuð norræn myndlistarsýning í Kaupmannahöfn sem á að veita innsýn inn í huga þeirra sem hafa kynnst dekkri hliðum áfengisins. Hildur Einarsdóttir ræddi við Aage Büchert aðal- hvatamann þessarar óvenjulegu sýningar. Morgunsár í Laugardal, 1998–2001 Kristján Pétur Guðnason. Myndin er í eigu Kjarvalsstaða. „Ég varast að útskýra inntak mynda minna og vona að þær geti staðið óstuddar. Þessi mynd sýnir mann í einsemd og varpar það eflaust ljósi á hugarheim skap- andans. Ef til vill er eitthvað í henni sem höfðar til annarra því hlýtur viðfangsefni hennar að snerta samkennd manna. Magnús Kjartansson. Mementó, 1993 180x240 cm, olía. 3.74x180 cm, olía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.