Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 18
Ungstirni með var-
anlegt stjörnublik?
Kirsten Dunst
í Virgin Suicides
og Crazy/
Beautiful
ÞEIR góðu og sérstæðu
kvikmyndagerðarmenn
Joel og Ethan Coen eru
búnir að klúðra samn-
ingum við Fox-félagið um
framleiðslu næstu myndar
þeirra bræðra To the
White Sea. Þar átti Brad
Pitt að fara með hlutverk
flugmann B-29 sprengju-
vélar sem skotinn er niður yfir Japan í heimsstyrj-
öldinni síðari. Samningarnir fóru út um þúfur vegna
þess að Coenbræður og Fox náðu ekki saman um
kostnaðaráætlun fyrir myndina. To the White Sea
er byggð á skáldsögu eftir James Dickey (Deliver-
ance) og er David Webb Peoples (Unforgiven)
skrifaður fyrir handritinu.
Coen-bræður í klandri
Coenbræður: Allt í
klemmu?
LEIKKONAN Glenn Close
segir að nýja myndin hennar,
The Safety Of Objects, sem
frumsýnd var á Toronto-
hátíðinni í vikunni, sé erfiðasta
verkefni sem hún hafi glímt
við á 30 ára ferli. Hún fjallar
um baráttu móður fyrir lífi
sonar síns en hann liggur í dái.
„Myndin snýst um mikilvægi
lífsins og ástarinnar til okkar
nánustu, um mikilvægi and-
legra og tilfinningalegra verð-
mæta í stað efnislegra,“ segir Close. Ungur leik-
stjóri The Safety Of Objects, Rose Troche, byggði
handrit sitt á sjö smásögum eftir A.M. Homes.
Erfiðasta mynd Glenn Close
Glenn Close: Móðir
með sorg í hjarta.
NICOLE Kidman hefur
gengið til liðs við George
Clooney, sem hún lék áður
með í The Peacemaker, þar
sem hann er að undirbúa
fyrsta leikstjórnarverkefni sitt,
Confessions Of a Dangerous
Mind. Það hefur gengið á
ýmsu við undirbúning þess-
arar myndar og gerð hennar
hefur oft verið blásin af. Meðal
þeirra sem tengdir hafa verið
verkefninu á einum tíma eða
öðrum eru Johnny Depp, Mike Myers, Ben Stiller,
Sean Pennog leikstjórinn Bryan Singer (The Usual
Suspects, X-Men). En nú er Miramax-fyrirtækið
komið með hana á koppinn og Clooney leikstýrir og
leikur. Myndina byggir Charlie Kaufman handrits-
höfundur (Being John Malkovich) á samnefndri
skáldsögu um sjónvarpsþáttastjóra sem í reynd er
leigumorðingi á vegum CIA.
Kidman liðsinnir Clooney
George Clooney:
Leikstýrir Nicole
Kidman.
CHRISTIAN Slater, Amanda Peet, Patricia Ar-
quette og Thomas Jane hafa tekið að sér aðal-
hlutverkin í gamanmyndinni Rain Falls, sem fjallar
um nágranna sem eiga í makaskiptum. Handrits-
höfundurinn Marlene King (If These Walls Could
Talk, Now and Then) mun leikstýra hér fyrstu
mynd sinni eftir eigin handriti.
Slater og fleiri í makaskiptum
PETER heitinn Sellers var
einn mesti gamanleikari kvik-
myndasögunnar og hæfileikar
hans fjölþættir. Það er því ekki
vandalaust að velja leikara til
að leika þennan mikla leikara
eins og framleiðendur standa
nú frammi fyrir. Handritshöf-
undurinn og leikskáldið Lee
Hall, sem samdi Billy Elliot,
hefur skrifað kvikmynda-
handrit um ævi Sellers og er
undirbúningur að tökum haf-
inn, væntanlega undir stjórn Stephens Frears.
Einkum eru þrír leikarar taldir eiga möguleika á að
hreppa hlutverkið, Bretarnir Steve Coogan og Ali
G og Hollywoodstjarnan Kevin Spacey. Coogan er
með vinsælustu grínistum Breta um þessar mundir,
einkum þekktur úr sjónvarpi fyrir túlkun á rabb-
þáttastjóranum Alan Partridge en fyrsta bíómynd
hans, The Parole Officer, var nýlega frumsýnd. Ali
G er „listamannsnafn“ Sacha Baron Cohen, sem
einnig er kunnur úr sjónvarpi en er að leika í fyrstu
bíómynd sinni, Ali G In Da House. Myndin um Sell-
ers er bresk-bandarísk samframleiðsla og vilja
Bandaríkjamennirnir Spacey en Bretarnir annan
hvorn landa sinn.
Slegist um Sellers
Kevin Spacey:
Leikur hann Peter
Sellers?
HINN 10.
október
frumsýnir
Skífan
bandarísku
gamanmynd-
ina Jay and
Silent Bob,
sem hugs-
anlega verð-
ur ein af
opn-
unarmynd-
unum í Smárabíói. Með helstu
hlutverk fara Kevin Smith, sem
jafnframt er leikstjóri og hand-
ritshöfundur, og Jason Mewes
en aðrir sem fram koma í mynd-
inni eru m.a. Jason Biggs, Ben
Affleck og Matt Damon. Myndin
segir frá því þegar titilpersón-
urnar reyna að eyðileggja fyrir
kvikmyndagerðarmönnum, sem
þeim finnst að hafi ekki verið
heiðarlegir.
Jay og
Þögli- Bob
Jason Biggs:
Leikur hjá Kevin
Smith.
HINN 28. september frumsýna
Sambíóin gamanmyndina The
Princess Diaries. Með helstu
hlutverk fara Julie Andrews og
Anne Hathaway en myndin seg-
ir frá ungri stúlku í San Franc-
isco sem kemst að því að hún
er raunverulega prinsessa í litlu
Evrópuríki. Leikstjóri er Garry
Marshall en framleiðandi er
Whitney Houston.
Dagbækur
prinsessu
Prinsessan frumsýnd: Hathaway,
Marshall og Andrews.
HINN 23.
nóvember
frumsýnir
Regnboginn
bandarísku
gamanmynd-
ina Joe Dirt
eða Jóa skít
með David
Spade í aðal-
hlutverki.
Spade leikur
vitgrannan mann sem heldur af
stað í leit að foreldrum sínum,
sem yfirgáfu hann þegar hann var
ungabarn. Leikstjóri er Dennie
Gordon en með önnur hlutverk
fara Christopher Walken, Dennis
Miller og Fred Ward.
Jói í Regn-
boganum
David Spade:
Upprunans leitað.
HINN 5. október verður frumsýnd
í Sambíóunum myndin The In
Crowd. Með helstu hlutverk fara
Susan Ward, Lori Heuring, Matt-
hew Settle og Nathan Bextonen
leikstjóri er Mary Lambert. Mynd-
in segir frá ungri konu sem útskrif-
ast frá geðsjúkrahúsi og fær vinnu
í fínum sveitaklúbbi hinna ríku þar
sem hún kynnist nýjum vinum.
Í klíkunni
Heppin með hamborgarana?
„Heppni felst að vissu leyti í því að fá
ekki það sem við héldum að við vildum
heldur það sem við höfum, því þegar við
höfum fengið það erum við vonandi nógu
greind til að skilja að það er einmitt það
sem við hefðum viljað ef við hefðum vit-
að það,“ sagði skáldjöfurinn. Og erum
við vonandi nógu greind til að skilja
hvað hann meinti.
É g treysti mér ekki til að geraágreining við þessa augljósuspeki, en leyfi mér þó að
hugleiða hvort það geti ekki líka
flokkast undir heppni að fá ekki
endilega það sem við höfum heldur
eitthvað í viðbót, jafnvel það sem við
höldum að við viljum. Í þessum
dálkum hefur oft verið fjargviðrast
yfir því sem við höfum hér á kvik-
myndamarkaðnum og óskað eftir
því sem við höfum ekki. Það sem við
höfum eru amerískir hamborgarar,
misvel matreiddir úr misgóðu hrá-
efni. Þeir berast hingað í löngum
bunum og eru flestir markaðssettir
sem væru þeir stórbrotnir sælkera-
réttir. Hamborgarar geta verið fín-
ir, en fátæklegur kostur í öll mál..
Áður en ég felli þetta þreytta lík-
ingamál vil ég segja: Ég er örugg-
lega ekki einn um að langa annað
slagið í danskt smörrebröd, norska
hreindýrasteik, sænskar kjötbollur
eða finnskt… öh… vodka.
Allt of sjaldgæft er að okkur gef-
ist kostur á að sjá kvikmyndir frá
okkar næstu grönnum og frændum,
myndir sem spretta upp úr um-
hverfi sem við skiljum best og lýsa
að öðru jöfnu lífi sem líkist okkar.
Langt er síðan norrænar myndir
hristu af sér þá fordómafullu klisju,
sem einkenndi menningarumræðu
fyrir tveimur eða þremur áratugum
og helgaðist mest af pólitískum
skylmingum hér innanlands, að þær
væru upp til hópa hrútleiðinlegar
vandamálamyndir. Við vitum að frá
Norðurlöndunum hafa að und-
anförnu komið vel gerðar, skemmti-
legar, spennandi og kannski um-
fram allt manneskjulegar myndir.
Fyrirtaks dæmi um það er sænska
myndin Tillsammans eftir þann höf-
und sem hvað mestar vonir eru
bundnar við á okkar menning-
arsvæði, Lukas Moodyson. Jafn fyr-
irsjáanlegt og það er hvimleitt er að
norrænir kvikmyndagerðarmenn
eru byrjaðir að apa eftir amerískum
markaðsmyndum. Dæmi um það er
hin norræna myndin, sem gengið
hefur í bíói hérlendis í sumar, sú
danska Blinkende lygter, sem þó er
frísklegri en venjuleg amerísk
formúlumynd.
Báðar þessar myndir hafa fengið
þokkalega aðsókn. Það sýnir að
þetta er þakklát útvíkkun á fram-
boðinu. Því er spurt: Af hverju þurf-
um við að vera á kvikmyndahátíð-
inni í Toronto í Kanada, sem lauk í
gærkvöldi, til að sjá úrval af því nýj-
asta í norrænni kvikmyndagerð?
Toronto-búar og gestir þeirrar
borgar hafa þannig verið svo
heppnir að fá ekki bara það sem
þeir hafa, heldur eitthvað annað,
sem þeir höfðu ekki en hefðu
kannski viljað ef þeir hefðu vitað
það. Til dæmis norsku smellina Ell-
ing eftir Petter Næss, sem segir frá
manni sem útskrifast af geðsjúkra-
húsi til að takast óverndaður á við
veruleikann, og Svalir og geggjaðir
eftir Knut Erik Jensen, sem er heim-
ildamynd um norskan karlakór og
hefur verið kölluð norræn Buena
Vista Social Club. Þessar myndir
hafa til þessa náð 10% af öllum seld-
um bíómiðum í Noregi á árinu.
Fleiri dæmi eru nýjustu myndir
danska leikstjórans Bille August og
sænsku leikstjóranna Jans Troell og
Colins Nutley. Af hverju þurfum við
að vera svo heppin að búa í Kanada
til að geta séð þessar myndir?
Tölur segja að norrænar myndir
hafi aukið hlut sinn á heimamarkaði
upp í 20–35%, sem er með því
hæsta í heiminum. Af hverju sjást
þær þá tæpast á þeim stóra heima-
markaði sem er Norðurlöndin öll?
Því miður dugir ekki heppnin ein
til að breyta þessu. Það þarf vilja og
markvisst starf til að amerískir
hamborgarar verði ekki að norræn-
um þjóðarétti.
SJÓNARHORN
Árni Þórarinsson
FYRSTA frumsýning á íslenskri
bíómynd á þessu ári verður
fimmtudaginn 18. október þegar
Mávahlátur eftir Ágúst Guð-
mundsson fer á tjaldið og hefjast
almennar sýningar daginn eftir.
Mávahlátur er byggð á samnefndri
skáldsögu Kristínar Marju Bald-
ursdóttur. „Þetta er besta mynd,
sem ég hef gert,“ segir leikstjórinn
í samtali við Morgunblaðið.
Ágúst er að ganga frá hljóð-
blöndun Mávahláturs í Kaup-
mannahöfn nú um helgina og held-
ur síðan til München í Þýskalandi
þar sem fram fer svokölluð „nega-
tívklipping“ og litgreining film-
unnar. Tökur stóðu yfir á Íslandi í
átta vikur og hefur vinnan að
mestu gengið eins og ráð var fyrir
gert. Kostnaðaráætlun Mávahlát-
urs nam um 160 milljónum króna
en framleiðendur eru Ísfilm, fyr-
irtæki Ágústs og Kristínar Atla-
dóttur framleiðanda, þýska fyr-
irtækið Hope and Glory, Archer
Street í Bretlandi og Alien Pro-
ductions í Danmörku.
Mávahlátur gerist í íslensku
þorpi á fyrri hluta sjötta áratugar
20. aldar og fjallar um stúlkuna
Öggu og samskipti hennar við um-
hverfið, þar sem verður nokkur
röskun þegar hin dularfulla Freyja
snýr aftur utan úr heimi. Öggu
leikur Ugla Egilsdóttir, Margrét
Vilhjálmsdóttir Freyju, Kristbjörg
Kjeld ömmuna og þýski leikarinn
Heino Ferch leikur læknissoninn
Björn Theodór, sem kvænist
Freyju. Edda Björg Eyjólfsdóttir
leikur Dódó, eins og í leiksviðsgerð
Borgarleikhússins.
Ágúst Guðmundsson skrifaði
sjálfur handrit Mávahláturs.
17. júní hátíðahöldin: Birna sýslumannsdóttir (Hall-
dóra Geirharðsdóttir) stillir sér upp í "fluguna" ásamt
stúlkum úr fimleikadeild Skautafélagsins.
„Það er fleira en kuldinn sem drepur menn“: Agga
(Ugla Egilsdóttir) kemst óþægilega nærri sannleik-
anum þegar hún á að greiða hár Freyju frænku sinn-
ar (Margrét Vilhjálmsdóttir).
Ástarfundur í skreiðarhjöllum: Freyja (Margrét Vilhjálmsdóttir) og Björn
Theodór (Heino Ferch).
Ágúst Guðmundsson frumsýnir Mávahlátur 18. október
Besta mynd sem ég hef gert