Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sælkerar á sunnudegi Steingrímur Sigurgeirsson Álfheiður Hanna Friðriksdóttir Áslaug Snorradóttir FYRIR utan hvað ber erufalleg og oft og tíðummikil listasmíð, eins ogt.d. brómber og hindber,eru þau sum hver hlaðin andoxunarefnum sem vernda frum- ur gegn ótímabærri öldrun. Þetta á við um bláber, trönuber, jarðarber og hindber. Í bókinni Hættum að eldast! eftir Jean Carper segir að bláber innihaldi t.d. meira af and- oxunarefnum sem kallast antósýan- ín en nokkur önnur fæða, þrefalt meira en rauðvín og grænt tesem inniheldur næstmest. Bláber og trönuber hindra sýkingar í þvag- rás. Í bókinni segir ennfremur að í einni rannsókn hafi komið í ljós að gamalt fólk sem borðaði mest af jarðarberjum var með lægstu tíðni alls kyns krabbameins. Ber eru sérstaklega rík af C-vítamíni sem er alhliða andoxunarefni og yng- ingarlyf. Ekki skal því undra að myrta (heiti ýmissa sígrænna runna og trjáa af einni ættkvísl samnefndrar ættar, einkum haft um brúðarlauf) sem er náskyld blá- berjalyngi skuli vera helguð feg- urðargyðjunni Venus. Í myrtuskógi við Champs Élysées hitti Eneas Dido og undir myrtugreinum skyldi ekki talað um neitt nema ást. Þeim mun meiri ástæða til að borða meira af berjum, sem eru svo sannarlega nærandi bæði fyrir lík- ama og sál. Hér fylgja nokkrar hugmyndir að berjabláum morgn- um. Belgískar vöfflur (fást t.d. í Ný- kaup) með sýrðum rjóma (36%) og bláberjum, skógarberjum, rifsberj- um og möndluflögum sáldrað yfir. Berjate með aldinkjöti úr gran- atepli drukkið með. Snittur með mascarpone og berjum Snittubrauð er skorið í sneiðar og sneiðarnar steiktar upp úr smjöri og flórsykri stráð yfir. Sneiðarnar eru svo smurðar með mascarponeosti og ber sett ofan á. Drykkur með snittum: Hindber maukuð í matvinnsluvél ásamt sódavatni eða kampavíni. BERJASÚPA 1 fíkja 1 dl blönduð ber 2 dl vatn 2 msk. síróp nokkrar kardimommur 1 kanilstöng Helmingur berjanna er soðinn í 2 dl af vatni ásamt kryddi og sírópi. Hellið súpunni í djúpan disk og sáldrið restinni af berjum yfir ásamt niðursneiddri fíkjunni. Perur soðnar í ávaxtasafa 2 perur soðnar 2 dl af ávaxtasafa, t.d. appelsínu- eða ástaraldinsafa og heilum stjörnuanís. Borið fram með rjóma og sesamfræjum. Frískandi morgundrykkur er Ab mjólk með hindberjum eða bláberj- um og ferskri myntu. Sósur með ávaxtasushi Setjið saman í matvinnsluvél sætt mangóchutney og hindberja- síróp (fæst t.d. í Kaffi Tár) og maukið vel eða maukið vatnsmel- ónu í matvinnsluvél og bætið fersk- um myntublöðum út í. Álfheiður Hanna Friðriksdóttir Stílisti: Kristín Björgvinsdóttir Fylgihlutir: Moonsoon Berjabláar á bleikum náttkjólum Ávaxtarúllur með mangochutney og berjasírópi. Morgunblaðið/Áslaug Snorradóttir Vöfflur með sýrðum rjóma og berjate. Snittur með mascarpone. Soðin pera og berjasúpa. ENN og aftur skal sjónumbeint að Bordeaux-vínum áhreint út sagt frábæru verði.Vínin frá Chateau Anniche vöktu fyrst athygli á vínsýningu í Perlunni fyrir allnokkrum árum og nú nýlega komu þau í reynslusölu í fyrsta skipti, en þau hafa verið fáan- leg á sérlista um allnokkurt skeið. Chateau Anniche Blanc 2000 er hvíta útgáfan. Ferskur og aðlaðandi ilmur, græn engi, blóm og perur. Mikill og góður Sauvignon í þessu víni, ljúft og ægilega gott fyrir verðið, það er um þúsund krónur. Chateau Anniche Rouge 1999 er rauðvínið og hér eru það beiskar möndlur og dökkur rauður ávöxtur sem ráða ferðinni, vínið smákryddað. Ágætasta vín, einfalt en með góðri uppbyggingu og karakter. Bordeaux þarf ekki að vera dýrt til að vera gott. Nýtur sín frábærlega með mat. Örlitlu dýrara er rauðvín frá Friuli í norðausturhluta Ítalíu, sem nú er í reynslu. Þetta svæði er þekktast fyr- ir að vera eitthvert besta (ef ekki það besta) hvítvínssvæði Ítalíu en rauð- vínin eru oft einstaklega vel heppnuð. Það á við í þessu tilviki, því hér er um margslungið vín að ræða sem býður upp á nýja upplifun í hverjum sopa. Vínið heitir Frattina Lisone-Par- maggiore Cabernet Sauvignon 1999, mikið tóbak, jafnt vindla sem pípu, sviti, mynta og kínverskt te. Marg- breytilegt og spennandi vín. Fyrir 1.260 krónur er þetta skylduvín fyrir alla þá sem hafa gaman af að prufa eitthvað nýtt. Steingrímur Sigurgeirsson Vín vikunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.