Morgunblaðið - 16.09.2001, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
VW Polo var frumsýndur í nýrri gerð.
HÖRÐ samkeppni er milli bílaframleiðenda á smábíla-
markaði í Evrópu. Framleiðsla hvers bíls skilar ekki
miklum hagnaði en þarna er engu að síður eftir miklu að
slægjast þar sem salan er mikil. Einnig sjá framleið-
endur sér hag í því að framleiða smábíla í þeim tilgangi
að draga úr meðaltalsmengun frá framleiðslubílum sín-
um. Þrír framleiðendur kynntu nýja bíla í þessum flokki,
þ.e. Ford með nýjan Fiesta, VW með Polo og Citroën
með C3. Ford hefur ekki komið með nýja kynslóð af
Fiesta síðastliðin 11 ár og er nýi bíllinn greinilega hluti af
fjölskyldunni, þar sem fyrir eru Ka, Focus og Mondeo.
Þótt lítill sé rúmar hann fimm manns og farangur þeirra
einnig. Fiesta kemur á markað snemma á næsta ári.
C3 leysir af hólmi Saxo og verður mun betur búinn
og talsvert stærri en hann. Mesta athygli vekur að þak-
ið er nánast allt úr gleri og Citroën segir að farang-
ursrýmið verði það mesta í þessum flokk bíla. Polo er
154 mm lengri en fyrri gerð og verður fáanlegur bæði í
þrennra og fimm dyra gerð. Þá sýndi Honda smábílinn
Jazz í fyrsta sinn í Evrópu. Hann keppir í efsta verð-
flokki í smábílaflokknum. Hann verður aðeins fáanlegur
fimm dyra og er eins og lítill fjölnotabíll í laginu.
Nissan sýndi hugmyndabílinn mm.e, sem gefur hug-
mynd um hvernig ný Micra mun líta út.
Hörð samkeppni á smábílamarkaði
Citroën C3 er með glerþaki og rúmar fimm manns og farangur.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Ford Fiesta er stærri og rúmbetri en áður. mm.e sýnir í hvaða átt verður farið með nýjan Nissan Micra. Honda sýndi smábílinn Jazz.
PEUGEOT 406 stallbakurinn kom á
markað 1995, langbakurinn 1996 og
kúpubakurinn 1997. Kúpubakurinn
er því orðinn talsvert aldraður en
hann ber aldurinn vel, enda glæsi-
lega hannaður frá upphafi. Þar höfðu
hönd í bagga Pininfarina á Ítalíu.
Segja má að kúpubakurinn sé sjálf-
stæður bíll því yfirbyggingin er ekki
breytt mynd af yfirbyggingu stall-
baksins heldur algerlega sjálfstæð
hönnun. Hann er rennilegur og lang-
ur og með sléttum og fallegum lín-
um. Framendinn er sportlegur og
þar eru halogenlugtir. Af ljónsmerk-
inu þekkir maður tegundina en ekki
þar fyrir; hann ber fjölskyldusvipinn
þótt sportlegri sé en aðrir í þessari
bílalínu. Hann er sex sentimetrum
lengri en stallbakurinn, 4,62 m, og
fimm sentimetrum lægri.
Við prófuðum á dögunum kúpu-
bakinn með tveggja lítra, 135 hest-
afla vélinni. Þetta er tveggja dyra
bíll með fjórum sætum, 2+2. Hurð-
irnar eru stórar og gluggar karma-
lausir. Þegar bíllinn er opnaður kem-
ur rifa á gluggann sem lokast
sjálfkrafa þegar hurðinni er lokað.
Þetta kemur í veg fyrir lofthögg inni
í bílnum, sem er allur hinn þéttasti.
Þrátt fyrir laglegar ytri línur er bíll-
inn ekki jafn spennandi að innan.
Mælaborðið er ósköp hefðbundið og
margt sem minnir á fólksbílinn, eins
og stórt stýrið og gírstöngin, ásamt
svörtum skífum í mælum með hvít-
um tölum.
Sæti eru efnismikil og formuð og
skorða ökumann vel af. Þau eru með
hæðarstillingu í handvirkri sveif og
mjóbaksstuðningi. Tveir litlir vasar
eru á hurðum, glasahaldari milli
sæta og nokkuð rúmgott hanskahólf,
en aðrar hirslur er ekki að finna.
Þannig er ekkert sem kemur sér-
staklega á óvart í innanrýminu,
nema ef vera skyldi íhaldssemi.
Tveir fullorðnir komast fyrir í aft-
ursætum og er vel búið að þeim. Þar
eru mótuð sæti og armhvíla milli
sæta ásamt þriggja punkta beltum
og hnakkapúðum. Hægt er að opna
lúgu aftur í skott svo skíðin komist
fyrir í bílnum.
Góðir aksturseiginleikar
Eitt höfuðeinkenni Peugeot er
góðir aksturseiginleikar. Bílar fyrir-
tækisins eru vel einangraðir frá vegi
og með gott veggrip sem helgast af
velheppnuðum undirvagni og fjöðr-
un. Kúpubakurinn er engin undan-
tekning. Hann líður áfram áreynslu-
laust og þótt fremur lágur sé, fer
hann létt með allar venjulegar hindr-
anir innanbæjar, eins og hraðahindr-
anir og illa farna vegi. Hann er frem-
ur léttur í stýri en nákvæmur, og
bíllinn sem var prófaður er með
fimm gíra handskiptum kassa, og
leikur skiptingin í höndunum, létt og
ratvís.
Vélin er tveggja lítra og skilar að
hámarki 135 hestöflum við 6.000
snúninga á mínútu. Þetta er þokka-
lega öflug vél sem skilar bílnum í 100
km hraða úr kyrrstöðu á 8,4 sekúnd-
um. Sem sagt alveg ágætasta aflrás,
togar vel og hefur góða millihröðun,
sem hentar vel á þjóðvegunum. Upp-
takið sjálft er alveg þokkalegt en
bíllinn sjálfur, og sérstaklega und-
irvagninn, myndi alveg þola enn afl-
meiri vél. Hún er líka til, því bíllinn
er líka fáanlegur með þriggja lítra
V6 vél sem skilar 207 hestöflum.
406 kúpubakurinn hefur í raun
upp á flest það að bjóða sem sóst er
eftir í bílum sem þessum, laglegt út-
lit og góða vél ásamt rómuðum und-
irvagni Peugeot. En manni virðist
sem hressa mætti upp á innrétt-
inguna í þessum bíl og líklega verður
þess skammt að bíða því Peugeot er
meðbreytingar á 406-línunni í bígerð
og hlýtur kúpubakurinn þá að fylgja
með.
Rennilegur
406 kúpubakur
Morgunblaðið/Billi
Peugeot 406 Coupé heldur sér vel.
Stýrið er fremur stórt og „analógískir“
mælar eru á dökkum fleti.
Mælaborðið er dimmt og dálítið
þreytulegt.
Þokkalegasta farangursrými er í bílnum þótt aðgengið sé þröngt.
Vél: 1.997 rúmsentímetrar,
fjórir strokkar, 16 ventlar.
Afl: 135 hestöfl við 6.000
sn./mín., 190 Nm við 4.100
sn./mín.
Hjólhaf: 2,7 metrar.
Lengd: 4,62 m.
Breidd: 1,78 m.
Hæð: 1,36 m.
Eigin þyngd: 1.460 kg.
Hröðun: 8,4 sekúndur.
Hámarkshraði: 208 km/
klst.
Umboð: Bernhard ehf.
Peugeot 406
2.0 Coupé
gugu@mbl.is
REYNSLUAKSTUR
Peugeot 406
Guðjón Guðmundsson