Vísir - 03.08.1979, Síða 16

Vísir - 03.08.1979, Síða 16
- litið inn til indriða G. á góðvíðrisdegi Indriði G. Þorsteinsson er meb skáldsögu i smiðum sem kemur út i haust. Þátt fyrir annir við skriftir og undirbúning kvikmyndar gefur Indriði sér tima til að renna fyrir lax. Hér er hann með fluguboxið sem tengdafaðir hans átti á undan honum. Kvikmyndin á að gerast árið 1936. Þvi þarf að huga vel að þvi að allt umhverfi, hús, farartæki og klæðnaður sé i samræmi við ártalið. Bill af gerðinni Dixie flier frá árinu 1919 kemur nokkuð við sögu. Hann er fenginn frá Akureyri, en var dekkjalaus. Þvi þurfti að panta á hann dekk frá Bandarikjunum, sem voru sérstaklega gerð fyrir bilinn. Þetta er eitt dæmi um það hvað i mörgu er að snúast i sambandi við myndina. Laxinn og bókmennt- irnar. Þrátt fyrir að Indriði hafi i mörg horn að lita þá gefur hann sér tima að renna fyrir lax. ,,Ég geymi fluguboxin min, sem ég erfði frá tengdaföður minum Friðriki Ólafssyni skólastjóra, hér i hillunni hjá bókunum. Lax og bókmenntir fara vel saman”, sagði Indriði og tók fram tvö flugubox. „Hér áður var ég með maðk, en siðan ég fékk flugurnar er ég stein- hættur þvi”. Þegar hefur Indriði dregið fimmtán laxa á land i sumar, t.d. úr Viðidalsá, og ölfusá. Þægilegt að slúðra á Borginni A sólardögum jafnt sem aðra daga fer Indriði niður á Hótel Borg, svo fremi sem hann er I bænum. ,,Ég sit venjulega við fram til klukkan þrjú á daginn við vinnu. Þá fer ég á Borgina og fæ mér þar appelsin á sumrin, en ann- ars kaffi. Þar er þægilegt að slúðra um pólitik og mann- ganginn i þjóðfélaginu”. —KP. „Ég fer aldrei i sund eða sólbað svo veðrið hefur ekki mikil áhrif á mig”, sagði Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur i spjalli við Visi, þegar við litum inn til hans einn góðviðrisdaginn. Indriði sat við skriftir i vinnuherbergi sinu, en hann vinnur nú að skáldsögu sem kemur út hjá Almenna bókafélaginu i haust. í ritvélinni var blað með upphafi nýs kafla. „Sláturhússballið” stóð efst á siðunni. En hvað þar gerðist fáum við ekki að vita fyrr en i haust. Kvikmyndað i Svarfaðardal. Unnið er nú að fullum krafti að undirbúningi kvikmyndar sem gerð er eftir sögu Indriða „Land og synir”. „Þetta er mikið fyrirtæki og i mörgu að snúast. Ég sé um fjár- málahliðina hér i bænum og á bara við brosandi fólk i bönk- um”, sagði Indriði. Alls verða um 30 manns við störf i Svarfaðardal. Ágúst Guðmundsson er leikstjóri myndarinnar. „Ég bregð mér norður i ágúst og fylgist með hvernig fólkinu liður”, sagði Indriði. Sláturhússball heitir fyrirsögnin á kaflanum sem var i ritvél Indriða þegar Visismenn litu tii hans. Visismynd JA. „Lax og bðkmenntir fara vel saman” MYNDVERKIÐ LATH) VEBRAST ÚTII GARÐI - Guðrún Á. Þorkelsdðttir sýnír í Suðurgölu 7 „Ég vinn mikið með náttúru- efni t.d. er hér eitt verk á sýning- unni sem ég vann þannig að ég setti ofinn dúk út I garð og lét hann veðrast þar i tvo mánuði”, sagði Guðrún A. Þorkelsdóttir, i spjalli við VIsi. Hún sýnir nú verk sin i Galleri Suðurgötu 7. Guðrún stundaði nám við Myndlistar-oghandiöaskólann og lauk þaðan prófi frá textildeild- inni árið 1976. Siðan hélt hún til framhaldsn&mstil Stokkhólms og Hollands, en þar hefur hún dvalið meira og minna s.l. þrjú ár. Á sýningu Guðrúnar eru 9 verk. Þeta er fyrsta einkasýning henn- ar, en hún á verk á Samnorrænni farandsýningu sem var opnuð i Gautaborg i júni i sumar. Sú sýning kemur hingað til lands á næsta ári. Sýningin i Suðurgötu 7 er opin til 15. ágúst. —KP. Guðrún A. Þorkelsdóttir viö tvær mynda sinna. Visismynd JA.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.