Vísir - 24.09.1979, Blaðsíða 14
VÍSLR
Mánudagur 24. september 1979
vísm
Mánudagur
24. september 1979
19
1 þessari yfirbyggöu rétt sem áföst er viö sláturhúsiö er kvikféna&urinn, sem á a6 slátra, geymdur þangaö til hans tfmi er kominn.
Fylgst með slátrun í sláturhúsinu á Selfossi
GENGB IOFMN DAUBRNN
Slátrun hófst i síðustu
viku og var byrjað að
slátra í sláturhúsi Slátur-
félags Suðurlands á
Selfossi. Nú er búið að
leyfa slátrun á 1120 þús-
und dilkum og er það
nokkru meira en í fyrra
,en þá var slátrað um 1040
þúsund fjár.
Vísir var á ferðinni á
Selfossi þegar verið var
að hefja slátrun þar og
fylgdist með gangi mála.
Helgi Jóhannsson verk-
stjóri sauðf járslátrunar
sagði að öllu jöfnu væri
slátrað um 16-1800 f jár á
dag í sláturhúsinu á Sel-
fossi/ alls yrði slátrað í
kringum 62-64 þúsund
fjár í þessu húsi. Þá
fræddi hann okkur á því
að um 100 manns ynnu að
slátruninni.
Aka hinstu ferðina á
vörubílum.
Þa6 sauðfé sem leitt er til
slátrunar á Selfossi kemur frá
bændum i Arnessýslunni. Eftir
aö hver bóndi hefur dregið i sinn
dilk og fært heim, þá er féð sótt
af vörubllum og farið með það
sem á að slátra til slátur-
hússins á Selfossi.
Þar er það fært I yfirbyggða
rétt sem er áföst við sláturhúsið
þar sem það siðan bíður
slátrunar.
//Ganga fúslega upp í
opinn dauðann".
„Ég held að kindurnar verði
L
Nú er dilkurlnn hengdur upp á krók og hann sfðan fserður inn ( sjálft
sláturhúsíð...
Nú hangir kjötskrokkurinn uppi og er tilbúinn tii flutnings til
neytenda.
Eins og lambleitt til slátrunar”, segir I gamallibók. Hér eru kindurnar á leið Ibanaklefann
Hér er verið aö svfða hausana, en það er venjuiega ekki gert fyrr en sólarhring eftir að búið
er að slátra skepnunni.
ekki varar við að hverju stefnir,
þvi þær ganga fúslega upp i
opinn dauðann” sagði Helgi
þegar við spurðum hann hvort
kindurnar hefðu einhvern grun
um aö hverju stefndi. Já þær
ganga upp-(i dauðann, þvi úr
réttinni er mjó renna upp á við i
áttina að banaklefanum þar
sem þær eru aflifaðar. Sagði
hann að kindur færu frekar upp I
móti en niður á við.eins og af
einhverri eðlisávisun.
Þá er komið að sjálfri af-
lifuninni. Hún fer þannig fram
að hljóðlausri loftbyssu er
haldið upp að haus skepnunnar
og knýr loftið stand sem gengur
inn I heila og drepur hana á
stundinni.
„Það er alveg viðkvæmnis-
laust sem við vinnum þetta
verk” sagði Helgi „menn ganga
að þessu eins og hverju ööru
starfi og er þetta i rauninni
ekkert frábrugðið þvi sem sjó-
menn gera þegar þeir draga fisk
úr sjó”.
Allt unnið á færibandi
Að lokinni sjálfri slátruninni
er dilkurinn settur á færiband
og fer siðan öll vinnslan fram á
færibandi.
Fyrst er skepnan hausstýfð og
siðan hengd upp á krók, en
hausinn fer á annan staö til
sviöunar. Næst er hún flegin og
er venjulega byrjað á afturfót-
unum. Sá sem flær stendur þá
einnig á færibandi og færist á-
fram með dilknum v' um leið.
Þvi næst er hún færð yfir á aðra
braut þar sem hún er hengd upp
á fjóra fætur og þar er hún rist á
kviðinn.
A þessu stigi er búið að flá alla
gæruna af og fer dilkurinn þvi
næst þangað þar sem iðrin eru
sundurskilin og er það kallað
bakkaborð. Þar fer sérhvað á
sinn bakka eftir þvi sem viö á —
garnir, mör, lifur, hjörtu
o.s.frv.
Að þvi loknu er svo skrokkur-
inn hreinsaöur og hann færður
inn i kjötklefann og siðan settur
i poka.
Nú er kjötskrokkurinn til-
búinn til flutnings i frystihús og
innmaturinn sömuleiðis. Fara
þá liklega flestir sem ókunnugt
er um vinnubrögö I slátur-
húsum að kannast við afurðirn-
ar.
Þess má loks geta aö mestur
hluti beirra afuröa er koma frá
Selfossi er seldur til neytenda
á höfuðborgarsvæðinu. —HR.
Dauðastundin: i banaklefanum
er skepnan aflifuð með loft-
knúnum standi sem gengur inn I
heila hennar og drepur hana á
stundinni.
fgg%í
Myndu-:
Eirlkur
Jónsson
Halídór
Reynisson
skrifar