Vísir - 12.10.1979, Blaðsíða 3
VÍSIR
P™
Föstudagur 12. október 1979
i ■■ ■■ ■■ ■■ ■■ ■■ ■■ ■! wm am
Tómas Arnason
FJARLAGAFRUMVARPIS
ER ALLS EKKI ÖKÝTT”
- miðar Það við 30% verðbðlgu á næsta ári
Tryggingamál 86,8
Fræöslumál 42,8
Heilbrigðismál 23,5
Niðurgreiðslur 23,0
Vegamál 22,0
Vaxtagjöld 15,6
Búnaðarmál 14,3
Dómgæslu- og lögreglumál 14,3
Húsnæðismál 9,3
Orkumál (þar af afborganir og vextir
vegna Kröflu 3,9 milljaröar) 10,9
önnur samgöngumál en vegamál 8,4
Ctvegsmál 6,0
Annað 44,5
Samtals 321,4 milljaröar
„Þótt ríkisstjórnin sé
nú aö falla tel ég það ský-
lausa skyldu fjármála-
ráðherra að leggja fram
f járlagafrumvarp fyrir
árið 1980/" sagði Tómas
Árnason/ fjármálaráð-
herra/ á fundi með
fréttamönnum í gær, þar
sem hann kynnti frum-
varp sitt.
Hann tók fram aö þótt frum-
varpið væri í meginatriðum
verk allra ráðherra rikisstjórn-
arinnar, hefði verið ósamkomu-
lag um suma liði þess og hann
legði það þvi fram á eigin
ábyrgö.
Hannsagði einnig að sii mikla
vinna sem i frumvarpinu fælist
væri alls ekki ónýt, þvi þótt
eftirmaður hans vildi kannski
ýmsubreyta væri bráðnauðsyn-
legt að hafa þessi gögn til við-
miðunar.
Frumvarpið er byggt á þeirri
meginstefnu aö verðbólgan
verði ekki meiri en 30% frá upp-
hafi til loka ársins 1980
Ekki skatta-
staðgreiðsla
1 frumvarpinu er áætlað hlut-
fall tekna ríkissjóðs af þjóðar-
framleiðslu 28,6% á árinu 1980,
en heildarútgjöld 28,2%.
Hvað viðvíkur skattborgurun-
um sem eiga að standa undir
þessu, er gert ráð fyrir að tekju-
skattur einstaklinga hækki, sem
svarar tekjubreytingum milli
áranna 1978 og 1979 og verði að
meðaltali svipað hlutfall af
þeim tekjum sem hann er lagö-
ur á.
í nýju skattalögin sem tóku
gildi um siðustu áramót vantar
öll ákvæði um innheimtu en upp-
haflega var gert ráð fyrir að
samhliða þeim tækju gildi lög
um staðgreiöslukerfi skatta.
Þvi var hinsvegar hafnað og
verður þvi að afgreiða ný lög
fyrir áramót til að rikissjóöur
hafi skatttekjur á næsta ári.
Slikt frumvarp er nær tilbúið i
fjármá laráðuney tinu.
N i ðu r stöðutö I u r na r
Heildartekjur samkvæmt
frumvarpinu eru 330,3 milljarð-
ar króna, en heildarútgjöld eru
321,4 milljarðar króna. Tekjuaf-
gangur nemur þvi tæpum 9
milljörðum króna. Gert er ráð
fyriraö beinir skattar nemi 63,4
milljörðum króna, óbeinir
skattar 261,1 milljaröi og aörar
tekjur 5,8 milljörðum króna.
Hæstu gjaldaliðir frumvarpsins
eru:
Eyðslusamir
Tómas var dálitiö hvass i garð
samráðherra sinna, sem hann
hefði árangurslftið reynt að fá
til aö gera sparnaöaráætlanir.
Hann sagði að ef fariö heföi
verið eftir tillögum þeim sem
komu frá hinum ráðuneytunum
heföu fjárlögin orðiö um fimm-
tiu milljörðum hærri.
Þaö væri aiAvelt fyrir þá aö
láta fjármáiaráðherra um að
skera niður, ,,og hengja hann
svo á Alþingi.”
Tómas sagði vlsitölubygging-
una vera vont krabbamein I
efoahagsmálum og hefði raunar
átt að breyta henni en kratar
„klikkað” á úrslitastund.
Frekari skuldasöfnun sagði
hann algert ábyrgðarleysi enda
værum við þegar i sjálfheldu
vegna vaxtagreiðslna. —ÓT
Fjórtán tonna steypubill valt á gatnamótum Bústaðavegar og Háa-
leitisbrautar klukkan hálf eitt I gsrdag. BUlinn var á mjög litilli ferð,
þegar óhappið átti sér stað, og urðu engin slys á mönnum. Krani var
fenginn til að koma bilnum á hjólin aftur en hann var með sjö rúm-
metra af steypu. (VIsism.BG)
Sápa, sjón-
varp og sflfur
meðai bess sem verður á flóamarkaði
FEF um helgina
Félag einstæðra foreldra
heldur sinn árlega flóamarkað
um helgina, 13. og 14. október, og
hefst hann kl. 2 báða dagana.
Markaðurinn verður i húsnæði
FEF I Skeljanesi 6, en það tekur
fljótlega til starfa neyðarhúsnæði
fyrir einstæða foreldra og börn,
sem eiga i tímabundnum krögg-
um.
Á flóamarkaðinum verður úr-
val fatnaðar, búsáhalda, silfur-
muna, skrautmuna, sjónvarpa,
mat-oghreinlætisvörur, auk fjöl-
margs annars. Barnaársplatti
FEF veröur lika seldur á mark-
aðnum, en hann var gefinn út I til-
efni 10 ára afmælis félagsins.
29. október verður aöalfúndur
félagsins og þar verður afmælis-
ins minnst sérstaklega. Um svip-
að leyti kemur Ut vandað af-
mælisrit, sem hefur að geyma
greinar um starf félagsins og
fleira efni.
—SJ
Nú er ár litarins
í London og hjá okkur
á Hárskeranum
Núþarfenginnað vera gráhærður lengur.
HENNA liturognæringstyrkir
hárið, gerirþaðsveraraoghárið
fær meiri gljá.
HÁRSKERINN
—___ Skúlagötu 54 i
Simi 28141
Nýjustu
teiknisögurnar
í f jölbreyttu
safni Fjölva
Benni flugkappi er ungur djarf-
ur og drengilegur. Hann lendir I
einkennilegu ævintýri, kemst i
kast viðmisyndismenn,sem eru
á höttunum eftir mikilsveröu
hernaöarleyndarmáli.
•
Benni flugkappi er I hættuferö á
gömlum Katalinu-flugbáti, en
hann býöur öllum hættum byrg-
inn.
•
Þetta er stórskemmtileg og
spennandi njósnasaga.
Fyrir nokkrum árum voru hinar
frægu Benna-bækur vinsæiasta
skemmtilestrarefni unga fólks-
ins.
Nú gefur Fjölvi nýjar Benna-
bækur út i splunkunýrri teikni-
sögu-útgáfu.
•
Sú fyrsta er þegar komin út og
kallast TIGRISKLÓIN. Þar á
Benni i höggi viö hinn hættulega
Jón Tigriskló, sem er svo lýst,
aö hann er „hörkutól” og fant-
ur.
Og vonandi kemst Benni heill á
húfi frá þeim átökum, þvi aö
annars kæmist önnur bókin I
rööinni ekki út, en hún á aö heita
GEIMSTÖÐ HJALTA, og ef
Benni flugkappi veröur nógu fljótur aö afgreiöa Jón Tfgriskló, þá veröur þaö enn meira frægöarverk
fyrir hann aö vinna bug á hinum illviga AUÐÓLFI HJALTA. Skyldu menn kannast viö nafniö? Varla
hefur veriö til verri maöur, og ijótt er þaö, þegar sá þrjótur fer nú aö risa upp og koma sér á fót ógnandi
geimstöö.
En vonandi vinnur djörfung og drengskapur bug á öllum bellibrögöum, og þiö fáiö aö kynnast fjölda
annarra ævintýra, sem Benni flugkappi og félagar hans Aki ökugikkur og Kalli I krapinu lenda I.