Vísir - 12.10.1979, Page 8

Vísir - 12.10.1979, Page 8
Föstudagur 12. októbcr 1979 8 Útgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davlð Guðmundsson Ritstjórar: ölafur Ragnarsson Höröur Einarsson ■Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Eiias Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guð- vinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar og skrifstofur: Síöumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 4.000 á mánuði innanlands. Verð i lausasölu 200. kr. eintakið. Prentun Blaðaprent h/f SMMMUR TIMI TIL STEFNU Ólafur Jóhannesson mun i dag formlega leggja fram lausnarbeiöni fyrir sig og ráöu- neyti sitt á ríkisráösfundi. Mikiö er I háfi, aö sem skemmstur timi liöi þar til ný rfkis- stjórn hefur tekiö viö völdum I landinu, ef takast á aö koma nýjum kosningum i kring I fyrri hluta desembermánaöar. Það ber oft við, þegar fram koma tillögur um að fara ekki troðnar slóðir varðandi meðferð brýnna mála, að andmælendur benda á, að varasamt sé að gera slíkt vegna þess að það hafi aldrei verið gert áður. Oft taka þessir menn ekki með í reikninginn breyttar aðstæður eða bráða nauðsyn slíkra að- gerða. Þetta hefur glögglega komið fram varðandi óskir Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokksins um þingrof og kosningar í fyrri hluta desembermánaðar. Hinir tveir þingflokkarnir hafa fundið þessu flest til forátta og jafnvel spáð fimbulvetri strax fyrir jól. Yfirformaður Framsóknar- flokksins og forsætisráðherra, Olafur Jóhannesson, tók mjög í þennan streng, er hann tilkynnti um afsögn sína á Alþingi í gær og gerði grein f yrir ástæðum þess að hann væri andvígur þingrofi í upphaf i þings og kosningum þeg- ar allra veðra væri von. Þótt Alþingi hafi aldrei verið rofið í október í þau 100 skipti, sem það hefur sest á rökstóla, er ekki þar með sagt, að alls ekki megi rjúfa 101. þingið í þeim mánuði ef meirihluti þingheims telur það þjóðinni fyrir bestu. Gjörbreyttar samgöngur í landinu f rá þvi sem f yrr var ættu einnig að minnka möguleikana á því að vandræði gætu skapast af vetrarveðrum á framboðsferða- lögum eða kjörfundum í hinum dreifðari byggðum landsins. Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, hefur tilkynnt að hann muni í dag formlega leggja f ram lausnarbeiðni sina á ríkisráðs- fundi. f framhaldi af ákvörðun Olafs mun forseti fslands kynna sér möguleikana á nýrri stjórnar- myndun. Forvitnilegt verður að fylgjast með því, hvort hann vill verjaeinhverjuaf þeim dýrmæta tíma sem er til stef nu, til þess að fela formönnum stjórnmála- f lokkanna að kanna möguieika á að mynda meirihlutastjórn, sem talsmenn hins nýja meirihluta Sjálfstæðismanna og Alþýðu- flokksmanna hafa lýst yfir að þeir muni ekki taka þátt í, en Framsóknarf lokkurinn og Alþýðubandalagið eru af eðli- legum ástæðum úr leik í því sam- bandi. Minnihlutastjórnir annars hvors þessara fJokka eru því fyrstu raunhæfu kostirnir, en að þeim frágengnum utanþings- stjórn. Af ummælum talsmanna Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks er svo að skilja, að þeir séu hálffeimnir hvorir við aðra, og muni eiga erfitt með að koma sér saman um, hvor flokkurinn muni veita hinum hlutleysis- stuðning. En varðandi það verður að fást botn sem allra fyrst, þannig að ný stjórn geti rofið þing og efnt til almennra þing- kosninga. Mikið er í húfi, að kosning- arnar geti farið fram í byrjun desembermánaðar fyrir jólaös og meiriháttar vetrarhörkur, og ef það á að takast, miðað við eðli- legan framboðsfrest, eru aðeins örfáir dagar til stefnu. Togvindurnar í ms. HafDóri Vegna greinar í Vísi 5. þ.m. frá Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar h f., sem var verktaki við breytingar á togvindum í m.s. Hafþór, viljum við gera eftirfarandi athuga- semdir. Vindukerfið Þaö kemur okkur einkenni- lega fyrir sjónir, aö verktakinn geti ekki rökrætt málefnalega um þau tæknilegu vandamál, sem hér eru á feröinni. Verktakinn talar um aö tog- vindurnar séu of litlar og ruglar þessu öllu saman þ.e. umbeön- um afköstum vindanna sam- kvæmt útboöslýsingu, mældu kyrrstööuátaki og svo hvaöa kyrrstööuátak heföi átt aö standa f útboðslýsingu sam- kvæmt hans mati. Verktakinn reynir aö fara i kringum kjarna vandamálsins þ.e. að vindurnar skila ekki þeim afköstum, sem við biöjum um i okkar útboðslýsingu. Hvaö heföi átt aö standa i útboöslýs- ingunni aö mati verktakans er alls ekki til umræöu hér og kem- ur þessu máli ekkert viö. Verk- takinn hannaöi vindukerfiö, og tekur hugsunarlaust þá mótora, sem viö bendum á,án þess aö reikna út hvort hans kerfi geti skapað mótorunum þau vinnu- skilyröi, sem til er ætlast. Vindurnar afkasta aöeins um M/s Hafþór viö bryggju. 60% af þvi sem um er beðið og breytir verktakinn því ekki, hversu margar blaöagreinar sem hann skrifar um máliö. Þriggja manna nefndin Verktakinn vfkur svo máli sinu aö þriggja manna nefnd- inni. Hann segir: „Undir yfir- umsjón þessarar nefndar brotn- uðu dælurnar i annaö sinn”. í þessa nefnd tilnefndi hvor aðilji einn mann og samkomulag var um aö fá dr. Geir A. Gunnlaugs- son prófessor i vélaverkfræöi viö Háskóla Islands til aö vera formann hennar. Nefndinni var faliö I upphafi aöeins aö fylgjast meö annarri reynslukeyrslu á vindunum. Allur undirbúningur undir þessa prófun og sjálf prófunin var f höndum verktakans og brotnuöu þvi dælurnar i höndum hans. Nefndin ásamt frönskum sér- fræöing frá Denison átti svo mestan þátt í þvi að vindurnar eru farnar aö snúast. Aflmælingar Varöandi þaö atriöi aö vindurnar hafi ekki veriö keyrö- ar viö fullan þrýsting I reynslu- feröinni 2.-4. maf sl. þá skal verktakanum bent á skýrslu okkar yfir umrædda reynsluferö dags. 4. maí 1979 bls. 8 tafla nr. 2, en þar er átakið viö aflesinn þrýsting umreiknað i 210 bar aö mótor. Þetta umreiknaða átak er svo notaö til aö reikna út af- köst vindanna viö 210 bar þrýsting aö mótor. Þessa skýrslu fékk verktakinn i hend- ur á fundi i Hafrannsóknastofn- uninni 7. mai sl. en hefur e.t.v. ekki kynnt sér efni hennar betur en þetta. Lokaorð Togvinduvandamálið er nú i höndum Verkfræði- og raun- vísindadeildar Háskóla Islands. Og stjórnar Dr. Geir A. Gunn- laugsson prófessor þessu verk- efni þar. Vandamáliö er þvi i góöra manna höndum. Þetta veröur ekki leyst meö siendur- teknum blaöaskrifum og sjáum viö engan tilgang f frekari opin- berum skrifum um þetta mál. Viö væntum þess að tillögur Verkfræöi-og raunvisindadeild- ar verði kynntar þeim aöiljum, sem máliö snertir þegar þar að kemur. Reykjavik 8. okt. 1979 f.h. Skipatækni h.f. Báröur Hafsteinsson ÓlafurH. Jónsson

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.