Vísir - 19.10.1979, Blaðsíða 3

Vísir - 19.10.1979, Blaðsíða 3
3 VÍSIR Föstudagur 19. október 1979 Ragnar Arnalds fráfarandl ráðherra Kynnir hau mál sem unnlð var að I ráðuneytum hans: SUMARBUSTAÐALOND I HAPPDRÆTTISVBNNING „Hér eru á ferðinni mörg mál sem ekki hefur ver- ið gerð grein fyrir og önnur sem hafa komið fram en fallið i skugga stjórnarslitanna”, sagði Ragnar Arnalds, fráfarandi mennta- og samgönguráðherra, á blaðamannafundi sem hann boðaði til.til að kynna viðfangsefni sem unnið hefur verið að i ráðuneytum hans að undanförnu. Happdrættislán 1 undirbúningi er aB bjóöa út happdrættislán vegna vegagerö- ar frá Reykjavik til Akureyrar og frá Reykjavik til Egilsstaöa. Iráöi hefur veriö aö bjóða fram sumarbústaðalönd úr landi nokk- urra ríkisjaröa sem happdrættis- vinning. Ráögert er aö vinna fyrir 300 milljónir af þessu fé þegar á samgöngumálaráðherra skipaöi sl. vor. Breytt framhalds- skólafrumvarp Framhaldsskólafrumvarpiö hefur veriö endurskoöaö og lagt fram á Alþingi i breyttri mynd. Samkvæmt þvi verður allur stofnkostnaöur framhaldsskóla greiddur úr rikissjóöi, en ekki aö hluta til af sveitarfélögum eins og áöur var gert ráö fyrir. Ragnar Arnalds sagöi aö ef þessi breyting heföi veriö komin I gegn fyrir áriö 1979 heföi hún kostaö rikiö um 300 milljónir. Endurmenntun Menntamálaráöherra hefur skipaö nefnd til aö fjalla um þarf- ir fólks á vinnumarkaöi fyrir endurmenntun og aöra fræöslu. 1 erindisbréfinu er nefndinni sérstaklega falið aö kanna mögu- leika á þvi að hver launamaður fáirétt til a.m.k. hálfs árs endur- menntunar á 10 ára fresti á föst- um launum. Baldur Óskarsson fulltrúi er formaöur nefndarinnar. en sam- tök launafólks hafa tilnefnt 5 full- trúa og atvinnurekendur tvo. —KS. Ragnar Arnalds.fráfarandi menntamála- og samgöngumálaráöherra kynnti i gær fyrir blaöamönnum þau mál sem unniö var aö i ráöuneytum hans. Visismynd GVA Tæplega 750 kflómetra langt rall veröur haldiö um helgina. Þetta veröur áttunda rallkeppni Bifreiöaiþróttakldbbs Reykja- vikur og nefnist þaö Bandag-Ralliö. Rall um helgina Ralliö hefst klukkan 15 á laugardaginn og veröur lagt upp frá Loftleiöahótelinu. Þaöan er ekiö fyrir Reykjanes og siöan um Suöurlandsundir- lendiö og um miðnættiö er áætlaö aö stansa i sex tima i Asaskóla. Klukkan átta á sunnudagsmorgun veröur lagt af staö aftur og ekiö áfram um Suöurland og áætlaö aö koma aftur að Hótel Loftleiöum uppúr klukkan 17. Keppendur i Bandag-Rallinu eru þrettán og þar á meöal eru nokkrir fremstu rall-ökumenn landsins. Keppnin er meö sama sniöi og undanfarnar keppnir, þ.e. skipt i ferjuleiöir og sérleiöir og þaö er á sérleiðunum sem keppnin fer fram, en ferjuleiöirnar eru I almennri umíerö og þar eru leyföar viðgeröir og hvildir. öryggiskröfur I rall-keppni eru mjög strangar og er þar helst aö nefna veltibúr, hjálma, öryggisbelti, sjúkrakassa, slökkvitæki og fleira og er allur þessi búnaöur skoöaöur áöur en keppnin hefst, svo og allur öryggisbúnaöur bilsins. Sú skoöun hefst i dag (föstudag) klukkan 20 viö Hótel Loftleiöir. Meöan á keppni stendur veröur starfrækt upplýsinga- þjónusta á Hótel Loftleiöum og þar veröur hægt að fylgjast meö stööunni og fá ábendingar um góöa staði til þess aö horfa á. Fólk, sem vill fylgjast meö keppninni, er beðiö um aö halda sig i hæfilegri fjarlægö frá sér- leiöunum og fara eftir ábendingum starfsmanna i þvi efni. —ATA. TVEIR VINNINGAR OG TVÆR I RIR tslenska sveitin á heims- meistaramóti unglinga I skák hefur tvo vinninga og tvær biö- skákir eftir tvær umferðir I milli- riöli. Sveitin tapaöi fyrir Englend- ingum 1:3 en I gær tefldi hún viö vestur þýsku sveitina. Ei.i skák vannst, önnur tapaöist er. hinar tvær fóru i bið og ætti vinr.ingur að fást úr annarri. 1 dag verður teflt viö Hollend- inga, en heimsmeistaramótinu I Vibórg verður slitiö á sunnudag- inn. — SG þessu hausti og hefur nýlega ver- iö leitað eftir bráöabirgðaláni frá Seölabankánum til aö standa straum af þeim framkvæmdum. Sjálfvirkur simi i allar sveitir I þingbyrjun var lagt fram frumvarp sem miðar aö þvi að öll heimili i landinu eigi kost á sjálf- virkum sima innan fjögurra ára. Heildarkostnaöur er áætlaöur um 7 milljaröar en um 4,6 mill- jaröar veröi aðflutningsgjöld og söluskattur felldur niður. Um 3600 heimili á landinu búa enn viö sveitasima. Strandferðaskip Samgönguráðherra bar fram tillögu i rikisstjórninni I siðasta mánuði þess efnis, aö smiðuö yrðu 3 skip fyrir Skipaútgerö rikisins. Hér yrði um að ræöa raösmiði innanlands og yröi smiöi fyrsta skipsins lokiö á næsta ári. 32 milljónir i veður og vind Rikisstjórnin hefur nýlega samþykkt 32ja milljón króna aukafjárveitingu til þess að bæta þjónustu Veðurstofu Islands viö sjómenn. Þetta er gert sam- kvæmt tillögu starfshóps sem Heybruni Stórtjón varö á bænum Hamars- seli i Hamarsdal skammt frá Djúpavogi er eldur kom upp i hlöðu. Þar voru um 900 hestar af heyi og eyðilagöist mikið af þvi. Atburður þessi skeöi á mánu- dagskvöldiö og lauk slökkvistarfi um klukkan 3 aöfaranótt þriöju- FJÖLVA <=!b ÚTGÁFA Klapparstíg 16 Simi 2-66-59 Fjölvaútgófan boðar ÆUARMÓT AURA ÍSLENDINGA Neanderdalsmaðurinn var nokkuð hrjúfur, en með honum bærðust næmar tilfinningar og hann var undur hjarta- hlýr. Hann trúði á guð og bar blóm að leiði látinna ástvina. Vér íslendingar erum ættrækin þjóð. Vér höldum í heiðri minningu ættfeðra vorra. Á hverju ári eru haldin f jöl- menn ættarmót til að minnast frjósamra forfeðra og formæðra. Nýlega hafa verið haldin ánægjuleg ættarmót Bergs- ættar, Deildartunguættar, Guðlaugsstaðaættar. Minna má á margar f leiri f jölskipaðar og styrkar ættir Reykja- hlíðarætt, Arnardalsætt, Heiðarætt, Laxamýrarætt, Víkingslækjarætt, lllugastaðaætt. Allar hafa þær til að bera sterkan lífskjarna frá foreldrum sínum, sterkir ættstofnar, sem bera virðingu og þakklæti til forfeðra. En litumennlengra aftur í tímann. Við Islendingar erum öll komin af bændum og veiðimönnum. Kannski eigum við líkamlegt og andlegt atgervi mest að þakka frum- stæðum forfeðrum, sem uppi voru fyrir 10-45 þús. árum. Þeir voru svo framsæknir í þróuninni, að þeir lyftu okkur og öllu mannkyninu upp á æðra menningarstig. Bókaútgáfan Fjölvi boðar til einskonar Ættarmóts allra íslendinga með því að gefa út tvær bækur um forfeður okkar, Neanderdalsmanninn, sem uppi var fyrir 40 þús. árum og Krómagnon-manninn, sem uppi var fyrir 10 þús. árum. Krómagnon-maðurinn var svo eins og við, nema hann var náttúrubarn, stæltur og hress útivistar- maður, sem hafði ekki spilit lífi sínu með meng- un og bensínstybbu. Það kemur í Ijós, að þessir forfeður okkar voru bestu.karlar, sem við getum sannarlega borið ást og virðingu til. Við þurfum vissulega ekki að skammast okkur fyrir þá. Komið nú öll á ættarmót allra Islendinga. Kaupið bækurnar um hina elskulegu forfeður allra, Neanderdals- manninn og Krómagnonmanninn. Kynnist þar náið forfeðrum ykkarallra, lífsbaráttu þeirra, gleðistundum og frábærri listhneigð þeirra. Lærum öll að elska þessa ágætu forfeður okkar, upphafsmenn mannkynsins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.