Vísir - 20.11.1979, Síða 2

Vísir - 20.11.1979, Síða 2
VtSIR Þri&judagur 20. nóvember 1979 Ll Ertu fylgjandi þvi að áfengisútsala verði sett á stofn hér á Selfossi? Margrét Jónsdóttir, bensinaf- grei&sludama: Nei, ég held ekki aö það sé neinum til gó&s. Stefán I.arsen,linuma&ur: Já, ég vil endilega að riki verði sett upp hér. Sigurjón Bergsson, simvirki: Nei, ég er á móti þvi. Bár&ur Vigfússon, leigubilstjóri: Já, ég vil éndilega fá áfengisút- sölu i þorpið. Kristinn Bár&arson.kennari: Það væri svo sem ágætt, en þó eru margar hliðar á þvi máli. Spá Þjöðhagsstofnunar um hióðarbúskaninn: Þlo ðarfr amlel Dsl an vex aðelns um 1% á næsla árl Þjóðarframleiðslan i heild vex aðeins um 1% á næsta ári og þjóðartekjur verða óbreyttar. Þetta felur i sér að þjóðartekjur á mann dragast saman á árinu 1980, að þvi er fram kemur i skýrslu þjóð- hagsstofnunar um framvindu i þjóðarbúskapnum árið 1979 og horfur fyrir árið 1980. Ástæður fyrir þessum hæga hagvexti eru fyrst og fremst þær að vart er unnt að reikna með aukningu útflutningsframleiðslu á næsta ári ef draga þurfi úr þorskafla og loðnuafla frá þvi sem er i ár að mati Þjóðhagsstofnunar. Óvenjuleg óvissa „Efnahagshorfur fyrir næsta ár eru um þessar mundir óvenjulega óvissar”, segir í út- drætti stofnunarinnar úr skýrsl- unni. „Efnahagsástand i um- heiminum er nú einkar ótryggt og framvinda efnahagsmála á innlendum vettvangi óráðin, enda eru kosningar til Alþingis og stjórnarmyndun og almennir kjarasamningar á næsta leiti. Af þessum sökum hefur óviss- um og óþekktum atriðum, sem áhrif hafa á gang efnahagsmála á næsta ári, fjölgað á siðustu vikum. Skýrslan dregur óum- flýjanlega dám af þessu, að þvi er umfjöllun um horfurnar varðar. A árinu 1979 hefur efnahags- framvinda i flestum rikjum heims breytst til hins verra. Verðbólga og atvinnuleysi fær- ist samhliða i vöxt i mörgum rikjum, og gætir þar i senn áhrifa hinnar stórfelldu hækkunar oliuverðs á árinu og minnkandi hagvaxtar i Banda- rikjunum, sem jafnvel er talið, að geti snúist i alvarlegan aftur- kipp. Oliuverðshækkunin er nú þeim mun erfiðari viðfangs, að hún bætist ofan á verðbólgu- og atvinnuleysisvanda, sem ærinn var fyrir i fiestum löndum heims”. Þjóðartekjur minnka um 1% 1979 íslenski þjóðarbúskapurinn hefur orðið fyrir barðinu á öfug- þróun efnahagsmála i heimin- um á árinu 1979 á þann hátt fyrst og fremst, að oliuverðs- hækkunin kemur hér harðar niður en viðast hvar annars staðar. Talið er, að þjóðarframleiðsl- an muni aukast um 2 1/2% að raungildi á árinu 1979, en versn- andi viðskiptakjör af völdum oliuverðshækkunar valda skerðingu þjóðartekna um 3 1/2%, þjóðartekjur munu þvi minnka um tæplega 1%. Þrátt fyrir viðskiptakjara- rýrnun er búist við, að jafnvægi haldist i viðskiptum við önnur lönd á árinu. Atvinna hefur einnig verið mikil. Að þessu leyti hefur hér tekist betur en viða um lönd. Verðbólga hefur aftur á móti enn færst i aukana á árinu. Ytri aðstæður eins og oliuverðshækkun eiga hér nokkurn hlut að máli, en verð- bólgan er þó fyrst og fremst óleyst, innlent vandamál. A siðasta f jórðungi ársins 1979 er árshraði verðbreytinga á flesta mælikvar&a um eða yfir 50%. Litlar likur virðast til, að úr verðbólgunni dragi á næst- unni að óbreyttri efnahags- stefnu”. Seðlabankinn fjár- magnar rikissjóð Um rikisf jármálin og peningamálin segir Þjóðhags- stofnun: Nú er sýnt, að greiðsluafkoma rikissjóðs á árinu verður mun lakari en að var stefnt i fjárlög- um, og það sem af er árinu hef- ur verið mikill rekstrarhalli á rikissjóði, sem að miklum hluta hefur verið fjármagnaður með yfirdrætti i Seðlabanka. Þetta er ein ástæða þess, að peningamagn og útlán banka- kerfisins hafa aukist meira en samrýmist aðhaldssamri stefnu lánsfjáráætlunar. Sömu áhrif hefur innstreymi erlends gjaldeyris haft vegna mikils útflutnings framan af ár- inu. Þau cæki, sem stjórnvöld ráða yfir, hafa ekki reynst nógu öflug til þess að hamla að marki gegn svo mikilli peningaþenslu og ekki útlit fyrir, að þróun peningamála muni að óbreyttu ganga gegn áhrifum kostnaðar- þátta á verðlagið á næstu mánuðum. Þannig bendir allt til þess, að framfærsluvisitala hækki meira en 50% frá upphafi til loka árs- ins og að meðaltali um 44% frá árinu áður. Þetta er sama meðalhækkun og á árinu 1978 en hækkunin frá upphafi til loka árs var þá 38%.” Kaupmáttur kauptaxta 1-2% minni Kaupmáttur launa hefur mik- ið verið til umræðu að undan- förnu en um þau atriði segir Þjóðhagsstofnun: „Kauptaxtar launþega hækka að likindum um 42% að meðal- tali á árinu 1979 samanborið við 55% hækkun 1978. Sé miðað við, að visitala framfærslu- kostnaðar hækki um 44% að meðaltali i ár, verður kaup- máttur kauptaxta 1-2% minni I ár en i fyrra. Kauptaxtar eru hins vegar ekki einhlitur mælikvarði á af- komu launafólks. Þar koma aðrir þættir til skjalanna svo sem atvinnuástand, vinnutimi, aðrar tekjur en beinar launa- greiðslur og beinir skattar. svo eitthvað sé nefnt. Þannig munu atvinnutekjur i heild hækka meira i ár en nem- ur hækkun kauptaxta, meðal annars vegna ýmissa sér- samninga einstakra launþega- hópa”. Tekjur sjómanna hækka „Atvinnuástand hefur verið gott á árinu. Vinnutlmi virðist hafa stytst nokkuö I ár, ef marka má tölur Kjararann- sóknarnefndar um vinnutima verkafólks og iðnaöarmanna á öðrum ársfjórðungi. Tekjur sjómanna hafa hækk- að nokkru meira en kauptaxtar launþega og ýmsar tilfærslu- tekjur, svo sem bætur lifeyris- trygginga og lifeyrissjóða, hækka væntanlega nokkru meira i ár en kauptaxtar. Má þvi búast við að brúttó- tekjur einstaklinga hækki að minnsta kosti um 45-46% milli ára. Ráðstöfunartekjur hækka þó heldur minna þar sem beinir skattar eru nokkru hærra hlut- fall af tekjum i ár en i fyrra. Niðurstaðan virðist þvi sú, að kaupmáttur ráðstöfunartekna verði svipaður eða ivið meiri i ár en á siðasta ári”. Viðskiptakjör rýrna um 3-4% á næsta ári í skýrslu Þjóðhagsstofnunar eru raktar spár um útflutnings- framleiðslu og viðskiptakjör á næsta ári meðal annars um sjávarafla og oliuverð. Gert er ráð fyrir að þorskafl- inn verði um 300 þúsund tonn en sjávarafurðaframleiðslan drag- ist saman um 4-5%. Hins vegar er miðað við óbreytt oliuverð eins og það var siðari hluta óktóbermánaðar s.l. Þrátt fyrir minnkandi afla gæti útflutningsframleiðslan á næsta ári orðið svipuð og i ár vegna aukinnar framleiðslu á áli, járnblendi og öðrum iðnaðarvörum. Að óbreyttu oliuverði er útlit fyrir að viðskiptakjör rýrni um 3-4% milli áranna 1979 og 1980. Viðskiptakjörin á árinu 1980 muni ekki sist ráðast af oliu- verðsþróun i heiminum og þvi, hvernig oliuviðskiptum Is- lendinga verði hagað á næsta ári. —KS Að óbreyttu olfuverOi er útlit fyrir, a& vi&skiptakjör rýrni um 3-4% milli áranna 1979 og 1980. Þrátt fyrir minnkandi afla gæti útflutningsframlei&slan á næsta ári oröiö svipuö og I ár.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.