Vísir - 20.11.1979, Blaðsíða 5

Vísir - 20.11.1979, Blaðsíða 5
VÍSIR Þriöjudagur 20. nóvember 1979 Guömundur Pétursson skrifar Bandarisku konurnar fjórar I sendiráöinu i Teheran á blaöamannafundinum á sendiráösióöinni i gærkvöldi, en þær segjast veröa iátnar iausar i dag. SvíÞjóð 60% allra Svia, sem handteknir hafa veriö iStokkhólmi, beraum- merki nálarstungna eftir eitur- lyf jasprautur. Prófessor Nils Bejerot hjá Karólinska institutet hefur fylgst með aðal „steininum” i Stokk- hólmi, en þar hafa árlega við- komu um 7.000 Sviar fyrir ýmsar sakir. Á árinu 1965 báru aðeins 19% hinna handteknu ummerki eitur- lyf jasprautunar. Tveim og hálfu ári siðar, eftir aö Svlþjóð haföi gert tilraun með frjálslyndi við útvegun eiturlyfja til eiturlyfja- sjúklinga, mátti sjá, að 40% báru nálarförin. Njósnarinn, Anthony Blunt, ætlar að hitta valinn hóp blaöa- manna i dag til þess að segja sína sögu af njósnamálinu, sem hann er bendlaður við. Umræður hafa verið boöaöar i breska þinginu á morgun um njósnahneyksliö, sem valdið hef- ur miklu fjaðrafoki I Bretlandi Um 700 pólitiskir öfgasinnar eru I haldi i fangelsum á Itallu, sakaðir um hin ýmsu afbrot. Meðal þeirra eru um 500 vinstrisinnar og um 180 hægri öfgamenn og eru flestir ákærðir undanfarna viku, fimmtán árum eftir að leyniþjónustan afhjúpaði njósnarann. Hefur vakið mikla gremju, að Blunt skyldu vera gefnar upp sakir og eins hneykslar það marga, að þagað var yfir málinu, svo að jafnvel forsætisráðherrann var ekki látinn vita. fyrir hryðjuverk. Samkvæmt upplýsingum italskra yfirvalda voru sextán drepnir fram að októberlokum og 76 særðir I alls 2.061 árásum og tilræðum hryðjuverkamanna. 700 ÖFGAMENN í FANGELSUM Flóðin ðætasi ofan á jarð- skjálft- ann Orhellisrigningar hafa aukið enn til muna flóðin i Júgóslaviu, og gætir þeirra nú einnig i norður- hluta Grikklands. Vegasamband hefur sumsstaðar rofnað, og vitað er að minnsta kosti um nlu manns, sem farist hafa. 1 Montenegro I Mið-Júgóslaviu féll skriða á hús við bæinn Kilasin og fórust þar hjón og eitt barn þeirra. Tvennt lét lifið, þegar beljandi flóö hreif með sér vörubil af aðalveginum milli Titograd og Kolason. 1 griska héraðinu Pelli, norð- vestur af Þessaloniku, drukknuðu tveir, þar sem rigningarnar ollu flóöum. Hundruð húsa i bænum Edhessa fóru á kaf. Raflinur hafa rofnað, hundruð nautgripa drukknað og i Júgó- slaviu hefur viða oröið að loka skólum, verksmiðjum og námum i Serbiu og Makedóniu, en marg- ar fjölskyldur hafa séð sitt óvænta og flúið heimili sin. Siðustu fréttir herma þó, að ástandið sé heldur að skána i miðri Júgóslaviu. Lestarstjóri og aðstoðarmaður hans drukknuðu i gær, þegar eim- reið þeirra rann af teinunum og út i stöðuvatn á Montenegro-svæð- inu. Þykja þetta verstu flóð, sem komið hafa á þessum slóðum I heila öld, og tjónið óskaplegt á vegum, járnbrautum, brúm, byggingum og uppskeru. Brjóst- umkennanlegast er þó fólkiö á Adriahafsströndinni, sem hefst þar enn við i tjöldum eftir jarð- skjálftann mikla á þeim slóöum i april siöasta vor. Fjögurra daga úrhellisrigningar juku ekki á þægindi tjaldbúanna. Sleppa tíu píslum I dap Búist er við þvf, að öðrum tiu gislum verði sleppt úr bandaríska sendiráðinu i Teheran i dag, en þeir eru sex blökkumenn og fjór- ar hvitar konur. Þessi tiu voru öll dregin f ram á blaðamannafundi sem haldinn var á sendiráðslóðinni I gær- kvöldi, og sögðust þau þá mega fara I dag einhvern tima. Þrír gislanna flugu frá íran I gær að fyrirmælum Khomeinis æðstaprests, sem lagði fyrir, að öllum konum og blökkumönnum skyldi slepptaf alls um 80 gislum. Hann hefur jafnframt sagt, að hinir, sem eftir sitja, verði allir dregnir fyrir rétt til þess að svara ákærum um njósnir — nema þá BandarIkjastjórn framselji keisarann sem liggur á sjúkra- húsi vegna krabbameinsmeð- ferðar i New York. Helgarleyfl geð- sjúklingsins Maður einn, sem tók 30 stúdenta fyrir gisla i verslunar- skólanum i Knoxville i Tennessee fyrir tveim mánuðum, endurtók leikinn i sömu skólastofunni i gær. Að þessu sinni tók hann þó aðeins tvo gisla en manaði lög- regluna að drepa sig. Eftir fyrra atvikið var hann sendur á geðsjúkrahús, en var veitt svonefnt helgarleyfi, þar Meírl notkun eiturlyfia I sem hann fékk að fara út af spltalanum um helgina. Sagði hann stúdentum, sem sluppu úr skólanum i gær, að fyrr mundi hann drepa sig en láta handsama sig aftur. Þegar siðast fréttist i morgun, voru lögreglumenn enn aö reyna að telja hann á að gefast upp og sleppa gislunum. 1,5 millión ára fótspor Fótspor, sem gætu verið elsta slóð eftir forföður mannsins, fundust hjá vatni einu i Kenya. Sjö fótspor um 1,5 milljón ára gömul fundust i botnlagi þarsem menn höfðu áður fundiö bein af Homo erectus, forföður mannsins. Þaö er National science foundation i USA sem skýrir frá þessum fundi, en NSF heldur þvi fram, að sporin geti einungis verið eftir aðra af tveim mann- verum, sem þá voru til: Homo erectus, sem menn eru komnir beint af eða Australopithecus, sem hafði þyngri hauskúpu og BLUNT EFNIR TIL BLABAMANNAFUNDAR minni heila en Homo erectus. Dr. Anna Behrensmeyer, annar leiðangursstjóranna, hefur látiö eftir sérhafa, að liklegraþyki, að sporin séu eftir Homo erectus vegna beinanna, sem fundust i sama botnlagi. Hún segir, að bein og tennur úr útdauðum filsteg- undum, sem fundist hafi stein- gervingar af skammt frá sporun- um, hjálpi til við að ákvarða aldur þeirra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.