Vísir - 20.11.1979, Blaðsíða 23

Vísir - 20.11.1979, Blaðsíða 23
23 VÍSIR Umsjón: Halidór Reynisson Kosningasiónvarp kl. 20.35: Það er leynd hverllr koma framl Umræður um alþingis- kosningarnar 2.-3. desember eru á dagskrá sjónvarpsins i kvöld og er það fyrri hluti umræðna þar sem talsmenn stjórninálaflokkg sem bjóða fram i öllum kjör- dæmum, koma fram. Sá háttur verður hafður á þessum umræðum að fyrra kvöldið sitja fulltrúar tveggja flokka fyrir svörum i 30 minútur hvor og verða það fiilltrúar Alþýðubandalagsins og Alþýöu- flokksins.sem sitja fyrir svörum i kvöld, en Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks annað kvöld. Spyrjendur verða hins vegar úr röðum andstöðuflokkanna. Ekki tókst að fá uppgefið hverjir sitja fyrir svörum i kvöld sem fulltrúar sinna flokka, eða hverjir væru spyrjendurnir, en rikisf jölmiölarnir viröast hafa tekið sig saman um aö þegja yfir þvi hverjir koma fram hverju sinni. Stjórnandi þáttarins I kvöld verður Ömar Ragnarssori. — HR Hvað er nú þetta? Þetta eru frambjóðendur að skrönglast um borð f gúmbát á kosningaferðalagi nú um helgina. A þessum árstfma er það ekki næstum þvi jafn-þægilegt og að sitja fyrir framan sjónvarps- vélar Utvarp kl. 22.35: ÞióDleglr lénar frá Víetnam „Þjóðleg tónlist frá ýmsum löndum” heitir þáttur, sem er á dagskrá útvarpsins i kvöld og er það Askell Másson, sem er um- sjónarmaður hans. Að þessu sinni ætlar Askell að kynna tónlist frá hinu striðs- hrjáða Vietnam og er þetta fyrri hluti þeirrar kynningar. Mun hann þar kynna hina sérstöku sönghefð þeirra Austurlandabúa, sem er mjög frábrugðin þvi sem við Vestur-Evrópumenn eigum að venjast og eflaust verða einhver austræn strengjahljóðfæri látin fljóta með. Askell hefur nú um sinn kynnt þjóðlega tónlist frá ýmsum löndum og veita þessir þættir oft skemmtilega innsýn inn i ólikan tónlistararf frá þvi sem við eigum að venjast. Áskell starfar nú hjá tónlistardeild rikisútvarpsins, en hefur að auki verið trymbill, bæði með Synfóniunni og eins komið fram á eigin vegum. — HR Askell Másson Þriðjudagur 20. nóvember 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilky nningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. A frl- vaktinni. Sigrún Siguröar- dóttir kynnir óskalög sjó- manna. 14.40 tslenskt mál. Endurtek- inn þáttur Guðrúnar Kvar- an. 15.00 Tónleikasyrpa. Létt- klassisk tónlist, lög leikin á ýmis hljóðfæri. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Ungir pennar. Harpa Jósefsdóttir Amin sér um þáttinn. 16.35 Tónhorniö. Guðrún Birna Hannesdóttir stjórn- ar. 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Vlðsjá. 19.50 Til- kynningar. 20.00 Nútimatónlist. Þorkell Sigurbjörnsson kynnir. 20.30 A hvltum reitum og svörtum. Jón Þ. Þór flytur skákþátt. 21.00 Umhverfismál í sveit- um. Magnús H. Ólafsson arkitekt sér um þáttinn. 21.20 Frá tóniistarhátiöinni i Dubrovnik I sumar Miriam Fried f,rá Israel og Garrick Ohlsson frá Bandarlkjunum leika Sónötu i a-moll fyrir fiölu og pianó op. 137 nr. 2 eftir Franz Schubert. 21.45 (Jtvarpssagan: „Mónika” eftir Jónas Guð- iaugsson. Þýðandi: JUnfus Kristinsson. Guðrún Guð- laugsdóttir les (5). 22.15 Fréttir. Veöurfregnir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Þjóðleg tónlist frá ýms- um löndum. Askell Másson kynnir tónlist frá Vietnam, — fyrri þáttur. 23.00 A hljóðbergi. Umsjón armaöur: BjörnTh. Björns- son listfræðingur. „Fra Lökke til Lukke": Norska skáldið Johan Borgen (sem lést í f.m.). les úr æsku- minningum sinum. 23.30 Harmonikulög. Grettir Björnsson leikur. 23.45 Fréttir dagskrárlok. Þriðjudagur 20. nóvember 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Setiö fyrir svörum. I kvöld og annaö kvöld veröa umræöur um alþingiskosn- ingarnar 2. og 3. desember. Talsmenn þeirra stjórn- málaflokka sem bjóöa fram i öllum kjördæmum lands- ins, takaþátti umræðunum. Talsmenn hvers flokks sitja fyrir svörum i 30 minútur, en spyrjendur verða til- nefndir af andstöðuflokkum þeirra. Fyrra kvöldið sitja fulltrúar Alþýðubandalags- ins og Alþýöuflokksins fyrir svörum en siöara kvöldið fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokksins. Fundarstjóri ómar Ragn- arsson. Stjóm upptöku Rún- ar Gunnarsson. 21.35 Saga flugsins. Franskur fræðslumyndaflokkur. Ann- ar þáttur. Lýst er einkum notkun flugvéla í heims- styrjöldinni fyrri. Þýðandi og þulur Þóröur örp Sigurösson. 22.35 Hefndin gleymir engum Franskur sakamálamynda- flokkur. Þriöji þáttur Efni annars þáttar: 22.30 Dagskrárlok Siðastliðinn laugardag efndi Tónlistarfélagið til tónleika, þar sem eingöngu voru flutt verk eftir Sigfús Halldórsson, tón- skáld og listmálara. Auk þess ber svo við um þessar mundir, að lag eftir Sigfús i útfærslu Gunnars Þórðarsonar er ofar- lega á popplistanum. Þannig koma alltaf upp aftur og aftur lög eftir Sigfús, af þvi þau nálg- ast þaö mest af allri músik sem samin hefur veriö á öldinni, að vera einskonar þjóðlög frá fæð- ingu. Jafnvel á stjórnmálafund- um, þar sem menn eru að glíma við efnahagsvandann, kemur fvrir að Birgir Isleifur eða ein- hver annar pianómaður sest niöur við hljóðfærið og biður menn að syngja Litlu fluguna. Sigfús Halldórsson veröur sextugur á næsta ári, og verður þá eflaust mikið um dýröir meöal þeirra, sem láta sér annt um Fúsa og una vel tónlist hans. Þráttfyrirmikla náðargáfu hef- ur Sigfús oröið að sinna öðrum störfum lengst af sinnar ævi, og er svo sem ekkert um þaö aö segja. Á sama tima urðu tón- skáld eins og Irving Berlin stór- rikir af músik sinni hjá hundr- aða milljóna þjóð. Þannig veld- urmannfæðin þvi aö vinsælustu listamenn njóta ekki nema aö sáralitlu leyti þeirra veraldlegu friðinda, sem fylgja slikum framgangi hjá stórþjóðum. Varla mundi gulllokkurinn detta af þessari þjóö, þótt Sigfús fengi fri frá störfum á sextfu ára afmæli sinu, ef það mætti verða til þess, aö næstu tiu árin gæti hann óskiptur helgaö sig listum sinum, okkur til yndis- auka. Jón Asgeirsson, ágætasta tón- skáld okkar af yngri kynslóö, skrifar nokkur orð um Sigfús i leikskrá Tónlistarfélagsins og tónsmiðar hans. Þar segir Jón að söngvar Sigfúsar séu slegnir þeim galdri, „er ekki verður skilgreindur, aöeins lifaður, galdri er aöeins góö tónskáld hafa á valdi sinu.” Þetta er vel og drengilega mælt af Jóni Ásgeirssyni. Og sannmæli. Það sýna áratuga langar undirtektir. Ekki ætlar leikmaður I grein- inni sér þá dul að ætía að bæta neinu við umsögn Jóns Asgeirs- sonar, sem samdi óperuna um Þrym og sýndi á þjóðhátíöarári, aðenn eru til tónskáld I landinu, sem ekki eru hrædd við hefðir. En leikmaður vill benda á, vegna þeirrar tilhneigingar tón- listar Sigfúsar að verða óðar en varir aö þjóðlagi, að stundum finnst manni að gamlar stemm- ur Hólamanna og Vatnsdælinga ómi einhvers staðar i djúpun- um, þessi sveiflulanga og klið- andi mýkt fornra gleöskapar- mála. Og i fullri vissu þess að taugin hefi ekki slitnaö i tónlist Sigfúsar, og aö hún hafi heldur ekki þrúgast af eftiröpun þess liðna, væntir maður þess aöSig- fúsi auönist að ljúka mörgum lögum enn i sinum persónulega stil. Það verður svoaö segjast eins oger, aö mikið gladdi það okkur gamla aödáendur Sigfúsar að sjá i fullu húsi Austurbæjarbiós berafyrir hina vandlátustu ein- staklinga á tónlist. Sé tónlistar- áhugi að einhverju leyti snobb, þá verður ekki með sanni sagt aötónlist Sigfúsarþrifistá slikri upphafningu. Hennar upphafn- ing býr I henni sjálfri. Og þaö er alveg óþarfi að vera með agnúa út i tónlist sem við hin almenn- ari skiljum ekki til fullnustu fyrst Olympsgoðin sjálf stiga niöur af stalli sinum til aö hlusta meö okkur á Sigfús. Það eru sættir sem rifa niður alla múra og dreifa öllum krit. Svarthöföi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.