Morgunblaðið - 12.10.2001, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 2 . O K T Ó B E R 2 0 0 1 B L A Ð B
ELDHÚS – HJARTA HEIMILISINS/2 BÓKIN SEM HAFÐI ÁHRIF/4
SAMHLJÓMUR Í SÁLINNI/6 ALDRAÐIR UNGLINGAR/6 YO-YO
SAGÐI HANN/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
flíkum – allt frá nærfatnaði upp í
fínasta skart.
Hið ljúfa líf
Kvikmyndin gerist í París á
blómaskeiði næturklúbbsins Rauðu
myllunnar undir lok 19. ald-
arinnar. Sakleysislegt skáld
kemur til borg-
arinnar og
kemst brátt í
kynni við hið ljúfa
listamannslíf í
Montemartre hverfinu.
Eins og gefur að skilja koma þar
ýmsar skrautlegar persónur við
sögu og bar þar hæst söng-
leikjastjörnuna Satin og listmál-
arann Toulouse-Lautrec. Leik-
ararnir í myndinni
eru heldur ekki af
verri endanum því
með þrjú aðal-
hlutverkin fara
Ewan MacGregor,
Nicole Kidman og
John Leguzamo.
Ekki eru allir á
eitt sáttir um gæði mynd-
arinnar. Gagnrýnandi
Hollywood Reporter segir
hana yfirgengilegt og inn-
antómt sjónarspil. Aðrir
hæla myndinni á hvert reipi
fyrir stórkostlega sviðsetningu, hug-
myndauðgi, næmt auga fyrir smáat-
riðum og ótrúlega útsjónarsemi.
Mjótt mitti og þrýstinn barmur
Hvað svo sem því líður má sjá
greinileg líkindi með búningunum í
Rauðu myllunni og nýjustu tísku-
straumunum. Ef nota ætti eitt orð til
að lýsa línunni kemur orðið „kyn-
þokki“ fljótt upp í hugann. Hvar-
vetna er dregið fram mjótt mitti og
þrýstinn barmur í þröngu kram-
arhúsi. Mest áberandi eru svartur
og hárauður litur þótt allt sé í sjálfu
sér leyfilegt og hvert með öðru eins
og hverjum líkar best. Meira að
segja bleikt er í tísku eins og
greinilega kemur fram í nýjasta
hefti tímaritsins Vougue. Algeng-
ast er að topparnir séu hlýralaus-
ir. Svartar blúndur eru talsvert
notaðar, ýmist einar sér eða með
öðrum efnum. Reimar draga dám
af gamaldags nærfatnaði og satín
hefur yfir sér allsnægtarblæ.
Nærfatnaðurinn hefur sjaldan
verið kvenlegri, sokkabönd eru
komin í tísku og netsokkar hafa
haldið innreið sína enn á ný.
Skartið er heldur ekki af verri
endanum, glitrandi kvenlegar
hálsfestar og eyrnalokkar í stíl.
Nicole Kidman fer með hlut-
verk Satin í kvikmyndinni
Rauða myllan.
Hárauður kjólinn hefur í senn
yfir sér kvenlegan og drama-
tískan blæ.
Lífstykkið er
undursamleg
flík, sagði sjálf-
ur Christian
Dior.
Netsokkar
og pífupils.
í hávegum hafður
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
rn
i S
æ
be
rg
Tískufatnaður
kvenna eins og
t.d. fæst í
Morgan,
Olympia og
Kiss, dregur
dám af blóma-
tíma Rauðu
myllunnar um
aldamótin
1900.
Kynþokki
LÍFSTYKKIÐ er und-ursamleg flík eða sagðiekki sjálfur Dior að ánundirstöðunnar væri eng-
in tíska,“ er haft eftir Catherine
Martin, listrænum hönnuði stór-
myndarinnar Rauðu myllunnar, í
nýjasta hefti tískutímaritsins Elle.
Eftir að hafa hannað búninga í kvik-
mynd eiginmannsins Baz Luhrmann
er heldur ekki nema von að líf-
stykkið sé henni ofarlega í huga.
Hvers kyns útfærslur á lífstykkjum
eru áberandi í flestum sviðsetn-
ingum kvikmyndarinnar. Ekki þarf
heldur að vekja furðu að hátt í 80
búningameistarar lögðu hönd á
plóginn til að hægt væri að skrýða
rúmlega 350 dansara viðeigandi
Búningarnir eru
áberandi aðskornir
og skrautlegir.