Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 3
er mikið fyrir búrskápa, þar sem hægt er að loka hrærivélina og önnur tæki inni í stað þess að skreyta eldhúsborðið með þeim,“ sagði hún. Hildur sagði það smekksatriði hvaða viður yrði fyrir valinu í inn- réttingarnar hverju sinni. „Það eru auðvitað ákveðnar tískubylgjur og nú er það hlynur en áður var það kirsuberjaviður,“ sagði hún. „En svo eru aðrir, sem eru ákveðnir í að mála eldhúsið sitt svart og þá fá þeir svart eldhús.“ Morgunblaðið/Golli  Hildur Bjarnadóttir arki- tekt hannaði þetta eldhús. Tvær viðartegundir eru í skápahurðunum og ítalskt granít í borðplötunni. Elda- vélin er á miðju gólfi og eld- húsborð í beinu framhaldi. DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2001 B 3 ARKITEKTARNIR Ásdís H.Ágústsdóttir og SólveigBerg Björnsdóttir hjá Yrki segja að nýjustu eldhúsin sem þær hafa hannað séu mun opnari en áður. Fólk vilji gjarnan vinna í opnu rými og sameina þannig eldhús og borð- stofu. „Það er allt annar hugsunar- háttur núna,“ sagði Sólveig. „Áður voru eldhúsin eingöngu fyrir hús- mæður en nú er öll fjölskyldan kom- in inn í eldhúsið, börnin til dæmis læra þar og spila og svo finnst mörg- um gaman að geta jafnvel boðið gestum inn í eldhúsið meðan verið er að matbúa. Það er ekki lengur þann- ig að þegar boðið er í mat þá opnist allt í einu eldhúsið og út komi mat- ur.“ Konur viðkvæmari fyrir ryki Ásdís sagði að reyndar væri ekki alltaf hægt að stækka eldhúsin þeg- ar verið væri að breyta eldra hús- næði. „Hér áður fyrr var það oft þannig að eldhúsið var mjór gangur með innréttingum eftir endilöngum veggnum og eldhúskróki en við hlið- ina var borðstofan,“ sagði hún. „Það er erfitt að sjá tilganginn með svona skipulagi nema ef fólk vill endilega vera með aðstöðu til að gefa börn- unum að borða t.d. morgunmat í eld- húsinu. Það mætti kannski halda því fram að karlarnir hefðu opnað eld- húsið með auknum áhuga á elda- mennsku. Sennilega vegna þess að konur eru viðkvæmari fyrir um- gengninni og vilja ekki að sjáist ryk- korn.“ Illa nýttir fermetrar „Ef merkja má stefnubreytingu er það helst að fólk er hætt að sækjast eftir litlum eldhúsum með borðkróki og stórri borðstofu við hliðina sem enginn kemur inn í nema fjórum sinnum á ári. Þar eru oft illa nýttir og dýrir fermetrar,“ sagði Sólveig. Þær eru sam- mála um að engir sérstakir litir eða efni séu í tísku en við- urkenna þó að alltaf séu ákveðnir straumar ríkjandi sem enginn taki eftir fyrr en litið er til baka. Eitt er þó áberandi og það er að reynt er að fela ákveðin heimilistæki svo sem ís- skápinn og uppþvottavélina þannig að þau falli inn í innréttinguna, inni í skápum eða á bak við skáphurðir. „Þegar um breytingar á eldra hús- næði er að ræða reynum við að vinna út frá því efni sem fyrir er og nota það áfram í innréttingunum,“ sagði Ásdís. Helst sígilt í 20–30 ár „Við viljum alls ekki umturna öllu þegar við komum inn í hús með ákveðnum einkennum,“ sagði Sól- veig. „Við hengjum okkur ekki í tískubólur heldur reynum að líta á hvert hús fyrir sig. Það er heldur ekki hægt að segja að eitt sé í tísku umfram annað. Við reynum að vinna ekki með eitthvað sem er útþynnt og forðumst sterka liti. Þeir hafa þann galla að fólk þreytist fljótt á þeim. Fólk eyðir miklum peningum í eld- húsin og við viljum ekki að innrétt- ingin fari úr tísku eftir eitt til tvö ár. Við reynum að hafa þetta þannig að fólki líði vel og finnist það ekki vera í gamalli tískubúð eftir tíu ár. Innrétt- ing á helst að vera sígild í 20–30 ár nema auðvitað ef um er að ræða pip- arsveinaíbúð, sem gera má ráð fyrir að verði innréttuð aftur eftir nokkur ár.“ Eldhús fyrir alla fjölskylduna Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Ásdís H. Ágústsdóttir arkitekt og Sólveig Berg Björnsdóttir arkitekt hönnuðu nýlega þetta eldhús.Borðplatan er úr graníti með vatnshalla að vaskinum, sem er óvenjudjúpur og því auðvelt að þrífa stóra hluti, t.d. ofnskúffur. Efri skápahurðir eru úr eik, granítflísar á milli efriskápa og borðplötu og grátt harðplast í neðri skápum og skúffum. Takmarkað veggpláss en nýtt með innbyggðum skápum í kringum glugga. Skápar sem snúa að eldhús- króknum eru úr eik og þjóna hlutverki borðstofuskápa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.