Vísir


Vísir - 18.03.1980, Qupperneq 22

Vísir - 18.03.1980, Qupperneq 22
vtsm ÞriBjudagur 18. mars 1980 //Þrátt fyrir fjörugt félagslíf er alltaf met- þátttaka á árshátíðunum og núna mættu um 140 manns"/ sagði Hermann Gunnarsson, fréttamaður og formaður skemmti- nefndar útvarpsins. ,/Við söfnuðumst saman i félagsheimili Karlakórs Reykjavíkur á Freyjugötu og þar var boðið upp á hanastél. Siðan var stormað í rútu upp á Esju. Þá fluttum við Jón örn Marinósson blandaðan innanhúsannál og send- um við samstarfsmönn- um okkar óspart pillur. Að lokum komu bræðurnir Haili og Laddi fram og voru þeir góðir eins og alltaf. — Hvað um tónlist? „Stuölatríóið lék fyrir Mannlif Nú er timi árshátiða og um hverja helgl eru fjöldamörg fyrirtæki og félagasamtök með gleð- skap. Á föstudagskvöldið voru útvarpsmenn með mikla hátið á Hótel Esju og komu þar saman margir landsfrægir menn. Klemens Jónsson, okk- ar heimsfrægi kvik- myndaleikari og for- maður starfsmanna- félagsins setti hátíöina og sagði nokkur orð. Gerður G. Bjarklind sýndi á sér alveg nýja hlið er hún söng dúett með Guðmundi Jónssyni. Þau sungu atriði úr óperum og vöktu heilmikla athygli, sérstaklega kom Gerður á óvart. Hjálmar Helgi Ragnarsson lék undir með þeim. Umsjón: Axel Ammendrup dansi enda eru þeir orðnir fastur liður hjá okkur, al- veg eldfjörugir og við viljum alls ekki án þeirra vera. Þeir eru síkáti sjóarinn hann Viðar, Helgi Hjálmarsson og Ari Jónsson söngvari og trommuleikari. Þeir ná alltaf upp sérstakri stemningu og ótrúlegasta fólk svifur um gólfið". Þá nefndi Hermann að einmitt þetta kvöld átti þulurinn góðkunni, Jó- hannes Arason, sextugs- afmæli og var hann heiðraður sérstaklega af því tilefni og flutti óskar Ingimarsson honum drápu dýra. Þá má nefna að á árs- hátíðinni kom út blaðið „Hljóðneminn", blað starfsmannafélagsins. „Mér skilst að tals- verður hluti starfsmann- anna hafi verið í ritnefnd einhvern tíma á undan- förnum þrjátíu árum, en þetta er fyrsta tölublaðið sem komið hefur út. Árshátíðin fór mjög vel fram, var skemmtileg og fólkið dansaði fram á nótt, alsælt og kátt". —ATA | i 4 I■ i . 1 .* Jóhannes Arason heiðraður sextugur. Páll Heiðar Jónsson,af mælisbarn- iðog óskar Ingimarsson sem flytur Jóhannesi drápu mikla. Visismyndir: GVA Gerður G. Bjarklind og Guðmundur Jónsson sungu dúetta úr óperum og vöktu mikla athygli fyrir góðan söng. ELDFJðRUG ARSHÁHD HJÁ ðTVARPSMONNUM

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.