Vísir - 18.03.1980, Blaðsíða 23

Vísir - 18.03.1980, Blaðsíða 23
i ý i • Í • ♦ ♦ ♦ vtsm Þriöjudagur 18. mars 1980 útvarp og sjónvarp Sjönvarp kl. 22.00: NYR BRESKUR MYNDAFLOKKUR Sjónvarpiömunhefja sýningu á nýjum breskum myndaflokki i tólf þáttum i kvöld, er nefnist „óvænt endalok” eftir Roald Dahl. Cr myndaflokknum „óvænt endalok.” Leikkonurnar Sandra Payne og Julie Harris. Þættimir eru geröir eftir smá- sögum Roalds, sem fjalla um ýmislegt efni, en eiga þó þaö sameiginlegt aö i þeim er vaxandi spenna þannig aö endir hvers þáttar kemur áhorfandanum i opna skjöldu. „Hefndargjöfln” nefnist fyrsti þátturinn og segir hann frá eigin- konu tannlæknis, sem á sér elsk- huga, ofursta og jafnframt pipar- sveirwá miöjum aldri einsog hún. Kona tannlæknisins fer á þriggja mánaöa fresti aö heim- sækja elskhugann undir þvi yfir- skini gagnvart manni sinum, aö hún sé aö heimsækja aldraöa frænku sina. En eitt sinn leysir ástvinurinn hana út meö gjöf, sem á eftir aö veröa henni dýrkeypt... Þýöandi er Kristmann Eiösson ogtekur hver þáttur um hálftima i sýningu. H.S. Útvarp kl. 23.05: Spennandi visindaskáldsaga „Þaö veröur flutt ein af vis- indaskáldsögum Jules Verne, sem fæddur er áriö 1828 og lifir þvi iönbyltingaröldina, þegar menn triiöu mikiö á tæknilegar framfarir og voru ákaflega upp meö sér af öllu er tæknin gat af sér leitt” sagði Björn Th. Björns- son listfræðingur, umsjónar- maöur þáttarins ,,A hljóöbergi”, þegar Visir spurði hann um sög- una „Nautilus” eftir Jules Verne, sem flutt verður i útvarpinu I kvöld og er það breski leikarinn James Mason sem les fyrri hluta enskuþýðingarinnar. ' „Nautilus” eöa tuttugu þúsund milur fyrir sjó neöan, samdi Verne áriö 1870. Þar er hann meö hugmyndina um geysilega stóran kafbát, sem áé svo fullkominn að hann þurfi ekki að koma upp á yfirboröiö, nema þegar menn vilja. Sagan gengur út á þaö, aö sjómenn eru löngu biinir aö taka eftir einhverju feikilegu skrimsli á sveimi i sjónum, miklu stærra en hval og er geröur út banda- riskur vlsindaleiöangur til þess aökomast eftir þvi hvaða skepna þetta £é. Jules Verne hefur samiö mik- inn fjölda af visindaskáldsögum, sem honum tókst aö gera mjög sennilegar, allavega i augum al- mennings á hans tima. Má þar nefna þá fyrstu, kom út árið 1863, „Fimm vikur I loft- belg” og „Leyndardómur Snæ- fellsjökuls”, sem kom út áriö 1870, en viö hana ættu flestir Is- lendingar aö kannast. Sem dæmi um vinsældir þess- arar sögu, þá var fyrsti kjarn- orkuknúni kafbáturinn, er hleypt var af stokkum i Bandarikjunum áriö 1955, skiröur í höfuöiö á þess- ari sögu og kallaöur Nautilus. H.S. Ragnar Arnalds, fjármálaráö- herra. Slónvarp kl. 21.05: Ráðherra spurðurí haula um fjárlaga- frumvarplð „Gerö veröur grein fyrir þvi i upphafi þáttarins hvernig f járlög veröa til og i tengslum viö þaö veröur meöal annars rætt viö hagsýslustjóra, Brynjólf I. Sig- urðsson, og Eiö Guönason for- mann fjárveitingarnefndar Alþingis. Aö þvi loknu verður bein útscnding, þar sem fjármálaráö- herra, Ragnar Arnalds, verður i yfirheyrslu um fjárlagafrum- varpiö”, sagöi Ingvi Hrafn Jóns- son umsjónarmaöur „Þingsjár.” Þeir sem munu spyrja Ragnar Arnalds ásamt Ingva, eru Jón Baldvin Hannibalsson ritstjóri Alþýöublaösins og Ellert B. Schram ritstjóri Visis. „Við ætlum aö ræöa viö Ragnar um fjárlagageröina almennt, pólitiska hlið þess, hvernig þessi fjárlög eru — hvort þetta eru veröbólguf járlög eöa raunveruleg fjárlög. Þetta er einfaldlega blaðamannafundur, þar sem menn spyrja um þaö sem þeim er efst i huga. Reiknaö er meö aö bein útsending þáttarins verði um 35 minútur og væntanlega veröur reynt aö ganga á ráöherra eins og timi og kostur gefst”, sagöi Ingvi. H.S. Umsjón: Hann- es Sigurðsson útvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. A fri- vaktinni. Sigrún Sigurðar- dóttir kynnir óskalóg sjó- manna. 14.40 tslenzkt mál. Endurtek- inn þáttur Gunnlaugs Ing- ólfssonar frá 15. þ.m. 15.00 Tónleikasyrpa. Tónlist úr ýmsum áttum og lög leik- in á ólik hljóöfæri. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Ungir pennar. Harpa Jósefsdóttir Amin les efni eftir böm og unglinga. 16.35 Tónhorniö.Sverrir Gauti Diego sér um þáttinn. 17.00 Siðdegistónleikar. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Víbsjá. 19.50 Til- kynningar. sjónvarp Þriðjudagur 18. mars 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Tommi og Jenni. 20.40 örtölvubyltingin Þriöji þáttur. Stjórnmálin. 21.05 Þingsjá Þáttur um störf Alþingis. Umsjónarmaöur er Ingvi Hrafn Jónsson 20.00 Nátimatónlist. Þorkell Sigurbjömsson kynnir. 20.35 A hvitum reitum og svörtum. Guðmundur Arn- laugsson rektor flytur skák- þátt. 21.05 „Sól ris, sól sezt, sól bæt- ir flest”. Þórunn Elfa Magnúsdóttir flytur siöara erindi sitt. 21.45 Utvarpssagan: „Sólon tslandus" eftir Davíö Stefánsson frá Fagraskógi. 22.15 Fréttir. Veöurfregnir. Dagskrá morgundagsins. 22.30 Lestur Passiusálma. (38). 22.40 Frá tónlistarhátiöinni Ung Nordisk Musikfest I Sviþjóö I fyrra. Þorsteinn Hannesson kynnir þriöia hluta. 23.05 A hljóöbergi. Umsjónar- maöur: Björn Th. Björns- son listfræöingur. „Nauti- lus” — eöa Tuttugu þúsund milur fyrir sjó neöan — eftir Jules Verne. James Mason leikari les enska þýöingu, — fyrri hluta. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. þingfréttamaöur og ræöir hann viö Ragnar Arnalds, fjármálaráöherra, um fjár- lagafrumvarpiö. Spyrj- endur meö honum eru rit- stjórarnir Ellert B. Schram og Jón Baldvin Hannibals- son. 22.00 óvænt endaiok Breskur myndaflokkur i tólf sjálf- stæöum þáttum, byggöur á smásögumeftir Roald Dahl. Fyrsti þáttur. Hefndargjöf- inGift kona er i ástarsam- bandi viö ofursta á eftir- launum. 22.25 Dagskrárlok Sléttmáll maður í banastuði Samúel sjálfur hefur skrifaö grein I blaö sitt Samúel, sem hann nefnir: Hver er eiginlega Gunnar Thoroddsen. Þvi er auö- svaraö: Hann er Gunnar Thor- oddsen. Aö ööru leyti koma' fram upplýsingar I þessari grein, sem mega teljast at- hygiisveröar, nú þegar Gunnar er oröinn forsætisráöherra, aö þvi er viröist á siöustu dögum sins pólitiska valdaferils, nema maöurinn taki upp á þvi aö fara aö hegöa sér eins og gamall borgarstjóri Kölnar, Adenauer aö nafni. t grein eftir sjálfan Samúel er aö nokkru rakin pólitisk sam- býlissaga Gunnars og Sjálf- stæöisflokksins, og kemur i ijós viö lestur, aö Gunnar á Sjálf- stæöisflokknum sáralitiö aö þakka og enn minna viö hann aö viröa, enda sýnist svo, aö ýmsir flokksbroddar hafi löngum reynt aö ýta Gunnari til hliöar, eöa búa til vandamál á hendur honum, sem siöar voru talin jaöra viö flokkssvik. Dæmi um þetta er nefnt I greininni, þar sem getiö er framboös Asgeirs Asgeirssonar 1952. Bent er á, aö þá hafi Gunn- ar stutt tengdafööur sinn, sem varla kom nokkrum á óvart. Hann taldi sig eöliiega frjálsan aö þessum stuöningi, þar sem ætiö hefur veriö lögö áhersla á, aö forsetaframboöin I landinu væru utan og ofan viö póiitik. Bent er á, aö varla hafi Gunnar fyrr veriö búinn aö taka þessa ákvöröun, þegar saman sigu fylkingar framsóknarmanna og Sjálfstæðisflokks um framboö séra Bjarna Jónssonar. Þótti tiöindum sæta, aö þeir Hermann Jónasson og ólafur Thors skyidu geta sameinast um eitt- hvert mál á þessum tima, en þeir voru svarnir pólitiskir fjendur. Hermann vildi meö þessu koma fram pólitiskum hefndum á Asgeiri, sem fram- sóknarmönnum haföi alltaf fundist loöinn I trúnni á flokks- legt evangelium, en Ólafur Thors vildi endilega geta sann- fært Sjálfstæöisflokkinn um, aö Gunnar heföi svikist undan merkjum. Þaö tókst sæmilega aö koma þessum svikum á Gunnar, þótt enginn mótfram- bjóöandi heföi f>i:rfundist þeg- ar hann ákvað að styöja tengda- fööur sinn. Margt fleira rekur Samúel I hinni miklu tryggöasögu milli hans og Bjarna Benediktssonar út af embætti bankastjóra viö Landsbankann, hvernig Gunnar var settur til sendiherraem- bættis I Danmörku, beint úr stóli fjármálaráöherra, hvernig nýrra forystuliö Sjálfstæöis- fiokksins kom honum fyrir I iön- aöarráöuneytinu til aö Kröflu- máliö lenti á réttum heröum o.s.frv. 1 ljósi þessarar greinar Samúels veröur ekki annaö séö en hefndir Gunnars fyrir ýmsar misgeröir hafi varla mátt seinna koma, ættu þær aö ná frani aö ganga. Þaö er nefnilega augljóst af fyrrgreindum dæm- um, aö Sjálfstæöisflokkurinn hefur alltaf setiö um aö svikja Gunnar Thoroddsen en ekki öf- ugt. Þótt Sjáifstæðisflokkurinn hafi þurft aö hefna sin á Gunn- ari Thoroddsen vegna almennra vinsælda hans, er ekki þar meö sagt, aö hann sieppi meö heilu skinni úr þeirri siöustu lotu, sem nú stendur yfir. Enginn forsæt- isráöherra siöari ára hefur haft sæmilegan vegsauka af embætti sinu. Veldur þar mestu, aö þjóö- félaginu veröur vart stjórnaö um sinn svo einhver mynd sé á. tslensk pólitik hefur aliö upp friömælendur og fyrirgreiöslu- menn, og þaö er hérum bil orðiö ómöguiegt fyrir nokkurn mann aö standa upp úr þvi friöar- og fyrirgreiöslufári. Skapgerö Gunnars viröist ekki benda til þess aö hann hafi þann hetju- skap til aö bera aö geta lokaö óhæfum stofnunum, sagt upp á- kvæöum fjárlaga um 80% bund- ins fjármagns I endurskoðunar- skyni og breytt menntakerfinu i landinu svo próf takist gild ann- ars staðar. Aftur á móti hefur hann sigrað Sjálfstæöisflokkinn, og þótti engum mikiö. Svarthöföi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.