Vísir - 21.03.1980, Qupperneq 5
Katalonía:
Þjóðernisslnn-
ar sigruðu
Frjálslyndari þjóöernissinnar
fóru meö sigur af hólmi i kosning-
um til héraösþings Katalónlu á
Spáni I gær, en miöflokkastjórn
Spánar beiö þar sinn þriöja ósigur
á tæpum mánuöi.
Sósfalistar hafa venjulega átt
öruggufylgi aö fagna i Katalóniu,
en þjóöernissinnar Katalóniu,
undir forystu Jordi Pujol banka-
stjóra, fengu flestá fulltrúa
kjörna aö þessu sinni. Milli 43 og
45fulltríia eftir þvi sem menn spá
af kosningatölunum, en talningu
var ekki lokiö i morgun, þótt langt
væri komiö.
Sósialistar munu fá 33 til 34
fulltrúa, og kommúnistar veröa
þriöji stærsti flokkurinn á Kata-
lóniuþingi, meöan UCD-flokkur
Suarez-forsætisráöherra, fékk
fæsta fulltrúa.
Enginn flokkanna fékk þó
hreinan meirihluta, og er allt 1
óvissu um hverjir myndi saman
heimastjórn fyrir Katalóniu.
Þaö eltir oliuskipin ólániö. Liöur ekki svo áriö, aö þaö farist ekki eitthvert þeirra. NU hafa tvö fariö
forgöröum meö stuttu millikili. Oliuskip frá Madagaskar fórst undan norövesturströnd Frakklands og
brotnaöii tvennt, en afturhelmingnum var bjargaö I iand og meö honum 13 þús. smálestum af oliu. —
Sést skuturinn hér á myndinni á leiö til Le Havre. — 122 þúsund tonna spánskt olíUskip fórst viö vestur-
strönd Afriku eftir mikiar sprengingar um borö, en aöeins 7 af 43 manna áhöfn var bjargaö.
Moskvustjórnin hefur visaö á
bug öllum orörómi um fjölda
dauösfalla I sovéska bænum
Sverdlovsk vegna slyss viö til-
raunir syklavopna.
Talsmaður utanrikisráöu-
neytisins i Kreml haföi simasam-
band viö vestræna fréttamenn i
Moskvu i gær og fordæmdi þaö,
sem hann kallaöi tilraunir
Washingtonstjórnarinnar til þess
aö sverta álit Sovétrikjanna og
varpa rýrð á orðheldni þeirra i
samningunum frá þvi 1972 um
bann við framleiöslu efna tii
skýklahernaðar.
Ekkert var hinsvegar sagt viö
fjölmiðla um fréttir frá Washing-
ton þess efnis, aö Rússarnir heföu
skýrt dauösföllin dularfullu i
Sverdlovsk i april i fyrra þannig,
aö brotis heföi út „anthrax"
smitun, og hundruð veikst af þvi.
Eftir þvi sem utanrikisráöuneytið
i Washington sagöi, höföu Sovét-
menn sagt, að smitunin heföi
breiöst út vegna vondrar meö-
feröar á kjötvörum. Sovétmenn
segja, að kjötverksmiöja sé i
Sverdlovsk, sem veikin hafi kom-
ið upp i. Anthrax-smit finnst i
dýrum og hræjum af þeim.
Þessari skýringu mun hafa verið
komiö á framfæri viö bandaríska
sendiherrann i Moskvu vegna
eftirgrennslana Bandarikja-
stjórnar varöandi oröróminn.
Sovétmenn segjast hafa farið
nákvæmlega aö skilmálum
samningsins frá 1972, en hann tók
ekki gildi fyrr en 1975. 1 honum er
ekki aðeins bönnuö framleiðsla á
sýklavopnum, heldur og rann-
sóknir og tilraunir á efnum til
eiturefnahemaðar.
Tass-fréttastofan sovéska hefur
haldið þvi fram i kjölfar frétta-
skrifa á vesturlöndum um Sverd-
lovskmáliö, aö NATO heföihaldiö
áfram tilraunum meö sýklavopn
og ætti birgöir slikra, þ.á.m.
anthrax-sýkil.
El Salvador:
Enn óeirðaástanú
Þrettán létu lifið i átökum milli
öryggissveita og herskárra
vinstrisinna i E1 Salvador i gær,
þar sem jaðrar orðiö viö borgara-
styrjöld. — Hafa alls um 140
manns fallið i átökum þar i þess-
um mánuöi.
Niu vinstrisinnar féllu i árás 50
vel vopnaðra manna á varöstöö
hersins I Tecoluca i San Vicente,
sem er 75 km suðaustur af höfuö-
borginni, San Salvador. Nokkrir
hermenn særöust.
I Coyolito, skammt frá, réöust
60 skæruliöar á varðflokk á eftir-
litsför, en árásinni var hrundið og
einn skæruliðanna felldur.
Þá kom til bardaga i þorpinu
Perical I San Vicente, þótt mann-
tjón yröi ekki.
Óeiröirnar hafa brotist út, eftir
að stjórn landsins hóf að hrinda 1
framkvæmd endurbótum i land-
búnaöar- og bankamálum, en
öfgamenn á báöa bóga, hægri og
vinstri sætta sig ekki við þær.
Þeir siöarnefndu segja þæi ekki
ganga nógu langt. Hinir fyrr-
nefndu kviöa þvi, að þær grafi
undan stöðu þeirra i efnahagslifi
E1 Salvador.
Vopnaður vöröur og öflugt hliö fyrir framan sendiráö USA í Nýju Delhi,
og þykir naumast nógu traust.
Sendiráðin
vígvirki
el tryggja á öryggi diplómata
Ken Taylor, kanadiski sendi-
herrann, sem hjálpaöi sex
Bandarikjamönnum aö flýja frá
Teheran, sagöi i gær, aö vonlitiö
sé aö tryggja öryggi diplómata
fyrirárásum hryöjuverkamanna,
nema breyta sendiráöunum i vig-
girt virki.
Taylor er I heimsókn i Banda-
rikjunum og er heiðursgestur New
York, þar sem honum hefur veriö
fagnaö sem þjóöhetju og fær
borgarlykilinn afhentan i dag
við hátiölega athöfn.
„Piparsveinninn er núna eftir-
sóttasti diplómatinn”, segir
Taylor. ,,Sá hefur aöeins eina
feröatösku og engin fjölskyldu-
bönd, sem heft geta ferðir hans.
Rússar Dornir Dungum sökum:
Bera af sér ásakanlr
um sýklavopnatliraunir
Herætlngar
i Noregt
Umfangsmiklum heræfingum
sjö NATO-rikja á norsku yfir-
ráöasvæöi lauk i fyrradag. Rúm-
lega 18.000 hermenn tóku þátt i
æfingunum, sem fóru aö mestu
fram viö Troms og nágrenni (um
500 km frá sovésku landamærun-
um).
Þessar æfingar voru kallaðar
„Anorak-hraðlestin” og voru i
sambandi viö áætlanir um hversu
fljótt Norömönnum gæti borist
liðsauki frá bandamönnunum, ef
á þá yröi ráöist. — Voru æfing-
arnar harðlega gagnrýndar i
sovéskum fjölmiölum i siöasta
mánuöi.
HtiDner vann
Driöju skákina
Eftir tvö jafntefli sigraði
Hubner I þriöju einvigisskák sinni
við Adorjan i áskorendakeppn-
inni. Hafði Hubner hvitt, en
Adorjan gaf eftir 35 leiki.
Adorjan tefldi afbrigði af Sikil-
eyjarvörn, en Hubner náði undir-
tökunum i 19 leik, þegar hann
kom meö endurbót á þvi, sem
venjulega er teflt i stöðunni. —
Þótti þriöja skákin hvassar tefld
en hinar tvær, og lenti Adorjan I
bullandi timahraki.
KOka KOia hætttr
við Moskvusöiu
Kóka kóla-fyrirtækiö i Banda-
rikjunum hefur nú tilkynnt, að
það muni veröa viö áskorun
Carters forseta til bandariskra
fyrirtækja um aö leggja ekki hönd
að verki á Ólympíuleikunum i
Moskvu.
Kóka Kóla haföi tryggt sér
einkasölu á gosdrykkjum á
Moskvuleikunum, og átti
einhverjar smávægilegar birgöir
af Kóka kóla-blöndunni i
Sovétrikjunum frá fyrri iþrótta-
mótum, en hefur ekki flutt meira
þangað.
Kvikmvndaverðiaun
Jane Fonda og Jack Lemmon
voru i gær valin „besta leikkona”
og „besti leikari” af kvikmynda-
verðlaunaakademiunni bresku
fyrir leik þeirra i myndinni „The
China Syndrome”.
„Manhattan”, mynd Woody
Allens, var valin besta myndin,
en „Apocalypse Now" fékk viður-
kenningu fyrir bestu leikstjórn.
Henni var leikstýrt af Francis
Ford Coppola. Robert Duval fékk
viöurkenningu fyrir bestu túlkun
á aukahlutverki, og sömuleiðis
breska leikkonan, Rachel Ro-
berts.
oiymplueidurinn
Spretthlauparinn, Valery Bor-
zov, fyrrum ólympfumeistari —
og um 5.000 aörir minna þekktir
hlaupagarpar — munu koma
ólympiukyndiinum áleiöis frá
Grikklandi til Moskvu i sumar.
Koval, varaformaöur sovésku
ólympíunefndarinnar, skýröi frá
þvi i fyrradag, aö um hálf milijón
manna heföi veriö látin keppa um
heiöurinn tii þess aö hiaupa meö
óly mpfueldinn.
Hlaupiö veröur meö óiympfu-
eidinn 4,981 km leiö frá Ólympfu I
Grikklandi I gegnum BUlgariu og
Rúmenfu og til Moskvu. Hann
verður kveiktur I ólympiu þann
19. júnf (aö venju meö sólargeisl-
unum og speglum) og aö koma til
Moskvu 18. júli, eöa daginn áöur
en setningarathöfn Moskvuleik-
ana veröur. — Aö iokinni athöfn-
inni i Moskvu veröa logandi
kyndlar fluttir meö lestum til
Olympiuleikvanga i Leningrad,
Kiev, Minsk og Tallin.
Flóttafólk tll USA
Walter Mondale, varaforseti
USA, sagði i gær, að Bandarikin
væru reiðubúin til þess að veita
rúmlega 300 þúsund flóttamönn-
um frá Indókina hæli á næstu
tveim árum.
1 viðurkenningarathöfn, þar
sem heiðraðir voru hópar, sem
unnið hafa að þvi að hjálpa Indó-
kinverjum, sagði Mondale, aö
rúmlega 110 þúsund flóttamenn
frá Indókina hefðu komiö til
Bandarikjanna á siöasta ári.
Sagði hann, aö USA-stjórn
mundi standa viö loforð sin um aö
leyfa árlega næstu tvö árin tæp-
lega 170þúsund flóttamönnum frá
Indókina aö setjast aö i Banda-
rikjunum.