Vísir - 02.04.1980, Blaðsíða 8
vtsm
MiOvikudagur 2. aprfl 1980
utgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: DavfO Guðmundsson
Ritstjórar: úlafur Ragnarsson
Ellert B. Schram
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaðamenn: Axel Ammendrup, Frlða Astvaldsdóttir, Gisli Sigurgeirsson, Hannes
Sigurðsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónlna Michaelsdóttir, Katrin
Pálsdóttir, Páll Magnússon, Sæmundur Guðvinsson.
Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson.
Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson.
Utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Auglýsingar og skrifstofur:
Slðumúla 8. Simar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur.
Askrift er kr. 4.800 á mánuði
innanlands.
Verö I lausasölu
.240 kr. eintakið.
Prentun Blaöaprent h/f.
SJÁLFSVIRÐING STJORNMÁLAMANNA
Stjórnmálamenn hafa lengi
legið undir því ámæli, að lítið
mark væri takandi á loforðum
þeirra og yfirlýsingum. Smám
saman hefur almenningur fjar-
lægst stjórnmálaf lokkana, og al-
hæfir þá reyndar flesta með
þeirri skilgreiningu, að pólitík sé
leikur trúða og loddara. Þeir
sækist eftir völdum valdanna
vegna og lítill greinamunur sé á
gerðum þeirra og stjórnarfram-
kvæmdum þegar til kastanna
kemur.
Flokkarnir sjálfir hafa
óneitanlega boðið þessu almenn-
ingsáliti heim. Allar ríkisstjórnir
áttunda áratugsins hafa lotið í
lægra haldi fyrir verðbólgunni,
allar hafa þær verið eftirgefan-
legar gagnvart þrýstihópunum
og enginn sjáanlegur munur hef-
ur verið á ríkisafskiptum og
rikisfjármálum, hvort sem við
höfum setið undir vinstri stjórn
ellegar hægri.
Reyndin hefur einnig verið sú,
að kjósendur hafa ekki veitt
stjórnmálamönnum nægjanlegt
aðhald, menn eru ekki gerðir
ábyrgir orða sinna og fólk hefur
frekar tekið mark á blekkingum
en staðreyndum í þeirri barna-
legu trú, að efnahagsvandi
þjóðarinnar verði leystur án
fórna. Stjórnmálamenn margir
hverjir hafa blekkt kjósendur
Hver og einn stjórnmálamaður gerir það upp við sjálfan sig hversu vandur hann vill
vera að virðingu sinni, en vart er við þvf aö búast að kjósendur beri virðingu fyrir
þeim, sem ber ekki virðingu fyrir sjálfum sér.
með slíku tali. Þannig komst
vinstri stjórn Ólafs Jóhannesson-
ar til valda og á sömu forsendum
er stjórnarsáttmáli núverandi
stjórnar byggður.
Það er rétt sem forsætisráð-
herra sagði við myndun stjórnar-
innar, að minna varðar hvað í
st jórnarsáttmála segir, hitt
skipti öllu hvernig samstarfið
gangi, og árangurinn verði. En
orðheldni hefur löngum verið i
heiðri höfð meðal fslendinga, og
þá kröfu verður að gera til
þeirra, sem gefa kost á sér til
trúnaðar- og forystustarfa meðal
þjóðarinnar, að þeir meini það
sem sagt er, og geri ummæli sín
gildandi.
Nú skal það tekið f ram, að eng-
in ástæða er til að fullyrða, að
ráðherrar núverandi stjórnar séu
ómerkilegri í þessum efnum en
ýmsir aðrir stjórnmálamenn. En
þeir haf a engu að síður dottið í þá
sömu gryf ju, sem svo mjög hef ur
rýrt álit og virðingu stjórnmála-
manna og flokka. Þeir hafa enn
magnað upp andúð og vantraust
fólks á pólitísku starfi, og aukið
þann trúnaðarbrest, sem ríkir
milli fólks og flokka.
Tökum þrjú nýleg dæmi.
Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra kemur á beina línu
Vísis fimmtudaginn 28. febr. og
lýsir yfir því, að skattar verði
ekki auknir. Eftir réttan mánuð
liggur það blákalt fyrir, að skatt-
ar hafa verið hækkaðir um
milljarðatugi.
Tómas Árnason viðskiptaráð-
herra endurtekur margsinnis
opinberlega, að enginn gengis-
felling sé framundan.
Mánudaginn 31. mars fullyrðir
ráðherrann í viðtali við blaða-
mann Vísis, að gengið verði ekki
fellt, og þau ummæli eru birt í
blaðinu þann sama dag. Klukku-
tíma eftir að blaðið kemur út,
berst tilkynning frá Seðla-
bankanum um 3% gengisfell-
ingu, og jafnf ramt er upplýst, að
gengið muni síga hratt um 5% til
viðbótar í þessum mánuði.
í st jórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar, sem birtur er 10.
febrúar er tekið fram að „er-
lendar lántökur verði tak-
markaðar eins og kostur er".
í dag er upplýst að erlendar
skuldir muni aukast á þessu ári
úr 50 i 95 milljarða króna og að
skuldasöfnun ríkisins tvöfaldist.
Frekari upptalning er óþörf.
Þessi dæmi tala sinu máli. Að
sjálfsögðu gerir hver og einn það
upp við sjálfan sig hversu vandur
hann vill vera að virðingu sinni,
en vart er við því að búast að
kjósendur beri virðingu fyrir
þeim, sem bera ekki virðingu
fyrir sjálfum sér.
Stffar æfingar h|á Pólýfónkórnum:
,1
HELGIMESSA ROSSINIS
frumllutt á föstudaglnn langa
Pólýfónkórinn hyggst nú um
páskana frumflytja hér á landi
Helgimessu Rossinis. Ásamt
kórnum sem skipar 130 manns
taka fjórir einsöngvarar þátt i
flutningnum og þrir undir-
leikarar. Flutningur verksins
tekur rúmar tvær klukku-
stundir.
Helgimessan er siðasta stór-
verk Rossinis og var það ekki
frumflutt fyrr en ári eftir dauða
hans 1869. Rossini var eins og
kunnugt er þekktastur fyrir að
semja óperur i léttum dúr.
Einsöngvararnir sem syngja
með Pólýfónkórnum að þessu
sinni eru Janet Price, ein þdckt-
asta sópransöngkona Bretlands
en hún hefur einu sinni áður
sungið hér á landi þegar
Pólýfónkórinn flutti Messias
eftir Handel fyrir fimm árum.
Meö bassahlutverkið fer annar
breskur söngvari David Wilson
Johnson, en Jón Þorsteinsson
sem nú er við söngnám á Italiu
syngur tenorhlutverkið. Ruth L.
Magnússon fer svo meö alto-
hlutverkið. Undirleikarar verða
Agnes Löve og Anna Málfriður
Sigurðardóttir en þær leika á
pianó og Hörður Askelsson
leikur á harmonium.
Pólýfónkórinn hefur unnið aö
æfingum messunnar i rúma tvo
mánuði og hefur hann æft stift
siöustu dagana. Stjórnandinn er
sem áöur Ingólfur Guðbrands-
son. Verkið verður flutt i
Háskólabiói á föstudaginn langa
og laugardag fyrir páska og
hefjast tónleikarnir báða dag-
ana kl. 14. Verð miöa er kr. 4000
og eru þeir seldir i titsýn,
Hljóöfærahúsi Reykjavikur og
hjá Eymundsson. — HR— HR
Pólýfónkórinn hefur sft stift sfðustu dagana og á þessari mynd sem
tekin var fyrir skemmstu á æfingu kórsins, má sjá Jón Þorsteinsson
einsöngvara veita smátilsögn I þvi hvernig á að nota röddina
rétt. Visismyndir JA