Vísir - 02.04.1980, Blaðsíða 27

Vísir - 02.04.1980, Blaðsíða 27
vísm Miðvikudagur 2. aprll 1980 31 ÞRIHJOLASTRUMPUR VAR KOSINN STRUMPUR APRÍLMÁNAÐAR Kjósið STRUMP maímánaðar Nú verða allir með og kjósa STRUMP maímánaðar Þú fyllir út seði/inn og sendir hann merktan STRUMPUR MÁNAÐARINS Box 7042 — 127 Reykjavík fyrir 20. april 1980 VINNIÐ STRUMPAHÚS Dregnir verða úr innsendum miðum fimm vinningar, i sem eru eitt stórt STRUMPAHÚS í hverjum Eg kýs Nafn__ Strump mánaðarins Heimili ÞESSIR HLUTU SETJARAKASSA: Ágústa Friðfinnsdóttir Guðbjörg Jóhannesdóttir Bröttugötu 47 Hrisbraut 10 Vestmannaeyjum. Höfn Hornafirði. Póstnúmer. Sími Lilja Þorkelsdóttir |________ Hjallabraut 11 Hafnarfirði. : J Árni St. Sigurðsson Dalalandi 7 Reykjavík Sigríður H. Gunnarsdóttir Hurðarbak, Reykholtsdal. KRAKUS sf Suðurgötu 3A — Sími 2-32-22 — Reykjavík ALASKA /'J-'o PASKABLOM i miklu úrvali 'Í7 BREIÐHOLTI 6>-í SÍMI 7 62 25 tíft <rS\Y, \ "-aA* o k>f. Fjolmiðiar elns og kýr á vordegi Fyrsti april er mikill fagnað- ardagur i fjölmiölunum. Þá verða fréttamenn eins og kýr, sem sieppt er dt á vori, hlaupa um starfsgrundir sinar og skvetta sér á ailar hliðar i und- arlegum hlykkjum og ringjum. Jafnvel einstaklingar eru lika farnir að taka þátt i grininu meö þviað boða blaðamannafundi og tilkynna um kjarakaup á bilum, einhvern þann stærsta draum sem tslendinginn getur dreymt áöur en hann hellir sér út I bensinævintýri stjórnvalda. Svo er raunar komið 1. april að al- vörufréttir geta orkað tvimæiis, enda stórhættulegt að láta yfir- leitt hafa nokkuð eftir sér i blöð- um eða útvarpi meöan vitleysan stendur sem hæst. Svarthöfði minnist tveggja frétta úr Morgunblaöinu frá fyrri tið, sem vöktu athygli, en önnur var um nýja flugvél sem liktist óvenjumikiö Iljúgandi strætisvagni. Mun Ólafur K. Magnússon hafa tekiö sig tU og fellt mynd af SVR vagni milli vængja af DC6, sem þá voru notaðar i millilandaflugi. Hin fréttin varum gull Egils Skalla- grimssonar. Þaö átti aö hafa fundist I tilnefndu lækjargili I Mosfellssveit, og gerði margur sér ferð þangað til aö lita á verksummerki og horfa á þjóö- minjamenn grafa. Þá <far mikið hlegið, enda munu einhverjir af mestu alvörumönnum landsins hafa tekið sér far þang- að upp eftir áður en ljóst var aö Morgunblaðiö haföi einungis verið með aprilfrétt. Þá er minnisstæð frétt I út- varpinu um hina skipgengu ölfusá. Þulur og höfundur minnir mig að hafi veriö Stefán Jónsson, sem gekk þá undir nafninu Stefán fréttamaður, en er nú Stefán þingmaður. Þaö hlökkti svo sem I vélinni og hundar geltu á árbökkunum, þar sem mikill mannfjöldi hafði safnast saman tii að horfa á hina mikilfenglegu sigiingu. Allt var þetta listilega gert og útbú- ið, og munu þeir ófáir, sem um stund héldu að veriö væri að lýsa raunverulegri siglingu. Og Timinn kom eitt sinn með aprfl- frétt um að fljúgandi diskur hefði lent á Mýrdalssandi. Það var áður en viðvörunarkerfið vegna Kötlu hafði verið sett upp, þvi annars hefði auövitaö veriö sagt að það hefði farið I gang, væntanlega vegna hitans frá lendingunni. Hins vegar mun þessi frétt hafa þótt merki- leg i háskólanum svona I morg- unsárið. Og önnur frétt i Timan- um um fund hinna þriggja stóru hér i Reykjavik, Eisen- hower, Churchills og Krustjoffs', kom einum þingmanni til að hringja i konu sina tii að segja henni að best væri fyrir hana að koma tii höfuöborgarinnar vegna væntanlegra veisluhalda. Þannig hafa menn leikiö sér 1. april bæði lengi og vel, þótt mis- jafn verði afraksturinn sum ár- in. t gær héldu fjölmiðlar vana sinum. Að auki kom svo Pétur Sveinbjarnarson ogbauðst til aö láta drauminn rætast um ódýr- an bil. Bensinfrétt útvarpsins kom þægilega á óvart mitt i öllu stjórnardekrinu. Hefur ekki annar eins fríttaskýringaþáttur heyrst á þvl heimili I manna- minnum, enda ekki við þvl að búastað rlkisf jölmiðilllýsi þvlá hverjum degi, aö skynsamlegt bensinverö I útlöndum jafnist aö skaða til á viö meöat Vest- mannaeyjaelda fyrir stjórnvöld og rikisbúskapinn. Og þótt Pét- ur hafi fóðrað blöðin með bila- fréttinni virðast sum ekki alls- kostar ánægð með slikt aðfengið gabb. Þjóðviljinn brá á það ráð að lýsa þvl yfir að Ólafur Jóhannesson ætlaði i forseta- framboð, nú þegar báðir kandf- datar blaðsins eru jafnir og hæstir i skoðanakönnunum. Þannig gengur þetta ár eftir ár okkur til gleði og skapraunar eftir atvikum. 1. apríl er að verða mikill dagur I alvöruleysi. Hina þrjú hundruð sextiu og fjóra daga ársins sjá stjórnvöld um að láta okkur hlaupa upp I skattana. Svarthöföi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.