Morgunblaðið - 21.10.2001, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
sumum handritum væri skilin eftir
eyða fyrir upphafsstafi í annars
heilu handriti. „Mér finnst ósenni-
legt að teiknarinn skilji eftir eyðu
og þá fer maður að velta því fyrir
sér hvort það hafi verið ákveðnir
menn sem skreyttu handritin og
teiknuðu myndirnar,“ sagði hún.
„Reyndar er í einstaka tilfellum vit-
að hver það var sem skrifar og að
hann hafi náð leikni og árangri í
teikningu vegna þess að hann var
ekki hæfur til erfiðisvinnu. Ég tel
mig vita hver teiknaði nokkrar af
frumlegustu teikningunum úr nátt-
úrufræði. Hann titlaði sig Jón
bónda Bjarnason frá Þórarinstungu
í Vatnsdal og var uppi 1791–1861.
Ég hef reynt að kynna mér sögu
hans en það er ósköp lítið vitað um
hann annað en það sem stendur í
eftirmælum um hann, að hann hafi
verið fróðleiksfús en sérlunda. Svo
eru aðrir einstaklingar sem ég veit
ekki hverjir eru sem eru snillingar í
stafagerð. Sú vinna er öll í mjög
háum gæðaflokki.“
Lítið brot
Ásrún sagðist vera sannfærð um
að þegar listfræðingar og aðrir þeir,
sem stunda rannsóknir, skoðuðu
myndirnar yrði að endurskrifa sögu
myndlistarinnar. Sú saga væri aug-
ljóslega mun viðameiri en talið hefði
verið til þessa. „Ég held að listfræð-
ingar muni vilja bera myndirnar
saman við samtímamyndir annarra
þjóða og þá kemur ábyggilega ým-
islegt í ljós,“ sagði hún. „Í Lands-
bókasafninu eru um fimmtán þús-
und handrit auk handrita á
Árnastofnun í Kaupmannahöfn,
söfnum í Svíþjóð og á Bretlandi, en
þar liggur mikið af fallegum og dýr-
mætum handritum sem gætu veitt
okkur enn sterkari og skýrari yf-
irsýn. Myndir í öllum þessum hand-
ritum skipta þúsundum en lausleg
könnun leiddi í ljós að gera má ráð
fyrir að í þúsund handritum séu um
tíu þúsund myndir eða myndlist-
artengt efni. Af þessu má ráða að
einungis lítið brot er komið upp á
yfirborðið.“
Undanfarna sex mánuði hefur
Ásrún haft aðstöðu í Landsbóka-
safninu og hefur hún notið aðstoðar
handritafræðinga handritadeildar
en auk þess hefur Hákon Skúlason
bókmenntafræðinemi starfað að
verkefninu í sumar en til þess fékk
hann styrk Nýsköpunarsjóðs.
Búið er að skoða og skrá um 500
handrit og taka um 900 stafrænar
ljósmyndir og enn er mikil vinna
framundan. „Við byrjuðum á að
fletta hverri einustu síðu í handriti
númer eitt í minnsta „bókasafni“
handritadeildar, bókasafni Hins ís-
lenska bókmenntafélags, Reykja-
víkurdeild, en það telur um 370
handrit,“ sagði Ásrún. „Eftir að
þeirri vinnu var lokið mótuðum við
vinnubrögð og skrásetningu.
Ég vil líka taka fram að auk fag-
Úr galdrahandriti sem skrifað var af Lofti Sigurðssyni í Dölum um 1819.
Jón bóndi Bjarnason á einnig heiðurinn af þessum „skrýmslisdýrum“.
YOGA FYRIR ALLA
Kynningartími verður mánud. kl. 18:20
Líkamsrækt sem styrkir og nærir bæði huga og líkama.
Léttir á spennu, losar um kvíða og stuðlar að auknu jafnvægi.
Námskeiðið byggir á bæði Kripalu Yoga og Ashtanga Yoga
(Power Yoga) og er ætlað jafnt byrjendum og þeim sem
hafa reynslu af yoga. Kennt verður á mánudögum og
miðvikudögum kl. 17:30 og 19:00 á Háaleitisbraut 11.
Spennulosun - Jafnvægi - Lipurð - Styrkur
Einar B. Ísleifsson yogakennari, sími 554 5683 og 896 6005
> Windows 2000 Domain ........ 25. október
> Exchange 2000 Server ...... 22. nóvember
> SQL 2000 Server ................ 29. nóvember
> Windows XP Domain .......... 6. desember
> .NET umhverfið ................ 11. desember
Kynningarnar eru ætlaðar fagfólki eða stjórn-
endum sem vilja samþjappaðar upplýsingar
um tiltekinn hugbúnað.
Verð kr. 14.500. Hádegisverður innifalinn.
Nánari upplýsingar og skráning í síma
533 3533 eða á www.ctec.is.
Faxafeni 10, 1. hæð · 108 Reykjavík · Sími 533 3533 · Fax 533 2533 · skoli@ctec.is · www.ctec.is
> CTEC á Íslandi
býður upp á eins dags kynningar
Mikið úrval kr. 4.900 -
Nýbýlavegi 12, Kóp.,
sími 554 4433
Velúrgallar
Nú er hver að verða síðastur
að ná í barnabuxur á kr. 500
og boli á kr. 500.