Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 14
14 B SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Hafþór Gamli Baukur er risinn á ný undir bakkanum og er fyrir miðri mynd. Til vinstri er Litli Baukur og lengst til vinstri Skipasmiðjan. Fremst eru tveir eikarbátar Norðursiglingar og ferðamenn á leið í hvalaskoðun, en það var fyrir ást á eikarbátum sem hvalaskoðunarferðirnar komu til og fyrir þær að Gamli Baukur var reistur. ÁRIÐ 1843 var byggt áHúsavík sýslumannshús,sem síðar varð vertshús,svo aftur íbúðarhús, enskipti enn um hlutverk og var undir það síðasta geymsla og beitingaskúr. Jón Sigurðsson frá Yztafelli segir svo í Lýsingu Þingeyjarsýslu: „Sýslu- mannshús (Gamla vertshúsið). Sýslu- mannshúsið elzta stóð litlu ofar verzl- unarhúsunum, norðan við ána. Það byggði Sigfús Skúlason árið 1843. Hann sat fyrstur sýslumanna í Húsa- vík. Eftir hann bjuggu í húsi þessu sýslumennirnir Þorsteinn Jónsson kanselliráð, um 1862, og Lárus Svein- bjarnarson, 1867–1874. Sveinn Magn- ússon frá Víkingavatni keypti sýslu- mannshúsið gamla og rak þar greiðasölu og gistihús. Það var frá þeim tíma nefnt „Baukur“. Þar var meðal annars selt brennivín á staup- um allan síðasta fjórðung 19. aldar og lengur. Var þar oft glatt á hjalla.“ Geld er á básnum gamla kýrin Ástæða þess, að húsið skipti um hlutverk, var sú, að Benedikt Sveins- son, sem varð sýslumaður, vildi ekki búa á Húsavík. Þá fengu hjónin Sveinn Magnússon frá Víkingavatni, stundum nefndur Sveinn Víkingur, og Kristjana Guðný Sigurðardóttir, ljós- móðir, sýslumannshúsið leigt og fluttu þangað greiðasölu, sem þau höfðu rekið á Stangarbakka. Þau Sveinn og Kristjana keyptu svo sýslu- mannshúsið 1880 og fékk það fyrst nafnið Vertshús, en var almennt kall- að Baukur og síðar Gamli Baukur. Í þriðja bindi Sögu Húsavíkur er fjallað um Gamla Bauk eftir handriti frá Karli Kristjánssyni, sem hér er m.a. stuðzt við, og segir þar, að Bauks-nafnið sé til komið af því að Sveinn seldi brennivín í staupum, sem voru kölluð baukar. Bauks-nafnið er annars víðar þekkt á vertshúsum en á Húsavík. Í orðabók Menningarsjóðs er það sagt vera staðbundið samnafn á krám eða veitingahúsum. Hjá Orða- bók Háskólans fengust upplýsingar um dæmi frá Akureyri og Eskifirði. Í Ljóðmælum Hannesar S. Blöndal (Reykjavík 1913) er kvæðið Náung- inn á vikutúr og er undirfyrirsögn kvæðisins á Bauk um miðnætti. Neð- anmáls getur höfundurinn þess að Baukur sé norðlenzkt nafn á veitinga- húsi. Og Guðrún Borgfjörð segir í Minningum (Reykjavík 1947) að hún muni oft eftir því frá síðasta vetri fjöl- skyldunnar á Akureyri, að pabbi hennar „kom heim með kaffi á flösku sem hægt var að fá keypt á Bauk hjá Jensen gestgjafa“. Í Árbók Ferða- félags Íslands 1955 um Austfirði sunnan Gerpis nefnir Stefán Einars- son elztu hús á Eskifirði og segir að næst Gömlu búð muni ganga „Gamli Baukur, gamalt greiðasöluhús, sem hefur staðið þar síðan um 1856 a.m.k.“ Einar Bragi Sigurðsson segir í bókinni Eskifjörður í máli og mynd- um 1786–1986 (Eskifirði 1986) frá Vertshúsinu, „tvö hús sambyggð, síð- ar venjulega kölluð Gamlibaukur“. Karl Kristjánsson segir að Sveinn vert á Húsavík hafi oft neitað þeim um staup, sem ekki máttu við meiru. Hann var mikill vexti og maður sem virðing var borin fyrir. Hann var vel gefinn, glaðlyndur og skemmtinn og drengur góður. Því hlýddu menn vilja hans, að vísu sumir með semingi. Ekki mun útlendingum hafa þótt mikið koma til Bauks sem veitinga- húss eða hótels, en héraðsbúum fannst til um hann og hann var aðal- skemmtimiðstöð Þingeyinga í aldar- fjórðung. Í samantekt Karls kemur fram, að rekstur þeirra Sveins og Kristjönu hafi verið umsvifamikill. Ekki hefur þar allt verið með blautum blæ, því innflutningsskýrslur sýna að mun minna áfengi var flutt til Húsavíkur en annarra hliðstæðra staða norðan- lands. Sveinn vert lézt 8. febrúar 1894. Kristjana hélt rekstrinum áfram út á vínveitingaleyfi Sveins og byggði hús hjá Bauknum, þar sem var gistiað- staða. Þetta hús var kallað Guli skúr. Hún hélt vinnumenn sér til aðstoðar og eru tveir þeirra nefndir í Sögu Húsavíkur; Klemens Klemensson og Sigurður Sumarliðason. Í júní 1904 fékk Kristjana slag og andaðist. Féll þá vínveitingaleyfið úr gildi, en líklegt er talið að Kristjana hafi hætt áfeng- issölu frá áramótum 1904 fyrir áskor- anir frá Bindindisflokki Húsavíkur. Þorsteinn Thorarensen segir í bók sinni: Gróandi þjóðlíf, að þegar veit- ingarekstur í Bauknum lagðist af, hafi mönnum þótt staðurinn missa mikils og var þá ort: Hljóðnar ljóðaharpan mín og hrekkur vírinn. Geld er á básnum gamla kýrin. Baukur varð aftur íbúðarhús og ár- ið 1919 eru átján manns skráðir til heimilis í Gamla Bauki. Bjarni Bene- diktsson, kaupmaður, eignaðist Gamla Bauk og Gula skúr, en 1926 vék Gamli Baukur fyrir samkomu- húsinu og var fluttur niður fyrir bakka. Þar var húsið þiljað sundur undir geymslur og beituskúra. Gamli Bauk- ur var að lokum hafður í brennu á sjö- unda áratug síðustu aldar. Við glaum og sút á ég gildi tvenn Þótt undanbrögð Benedikts Sveinssonar hafi orðið til þess, að sýslumannshúsið á Húsavík varð vertshús, komst hann ekki hjá því að búa þar um skeið. Í maí 1876 fékk hann skipun í sýslumannsembættið og var þá gert að setjast að á Húsavík. Hann fær þá að öllum líkindum inni á Bauknum og þar eru þeir feðgar, Benedikt og Einar, til húsa þann vet- ur. Sýslumaður kann þó engan veginn við sig þar og tekst að sannfæra amt- mann um að það muni ekki bitna á embættinu að hann fái að búa á jörð sinni; Héðinshöfða. Í fyrsta bindi sögu Einars Bene- diktssonar segir Guðjón Friðriksson, að á Gamla Bauki hafi góðir oft átt góða brýnu saman yfir vínglösum á síðkvöldum. Hann getur þess, að haustið, sem þeir feðgar, Einar og Benedikt, búa á Bauknum, er þar líka til húsa Englendingur, Charles Lock, sem er að skrifa bók um Ísland. Lock tekur sex manns í enskunám; þ.ám. Kristjönu Sigurðardóttur og Einar Benediktsson, sem þá er tólf ára. Í bók sinni: The Home of the Eddas, segir Lock, að Einar hafi skarað fram úr öllum „að skörpum skilningi og af- burða góðu minni“. Guðjón segir sögu af Einari Bene- diktssyni á Gamla Bauki. Einar er þá að glíma við þýðinguna á Pétri Gaut. Hann skrifar til Péturs á Gautlöndum 13. febrúar 1894: „...seint gengur mér með nafna þinn „Pétur Gaut“. Ég t mér hálfs mánaðar túr inn á Húsa til þess að þýða hann þar, utan skr stofu, en allt lenti í spilum og leti. N sit ég hér enn og aftur og óþýddur Pétur.“ Og Guðjón skrifar: „Einar Ben diktsson er tíður gestur á veiting húsi Sveins Magnússonar. Mikil góð vinátta er milli Héðinshöfðahei ilisins og fjölskyldunnar á Bauknu Eitt sinn sitja þeir saman Sveinn Bauk, Ásgeir Blöndal læknir og E ar og ræða þjóðlegan fróðleik, kvæ og vísur og loks er farið að geta gát Fimmtán ára gamall piltur, Bened Sveinsson, sonur veitingamanns og alnafni sýslumannsins á Héði höfða, situr opineygur og hlust Hann dáist mjög að Einari Ben diktssyni og sú aðdáun á eftir fylgja honum langa ævi. Undir kv heldur Einar heim að Héðinshöfða eftir skamma stund kemur sendim ur á Baukinn og færir Sveini blað s á er ritað: Við glaum og sút á ég gildi tvenn, til gagns menn mig elta, en til skemmda hljóta, til reiða er ég hafður, um hálsa ég renn, til höfða ég stekk, en er bundinn til fóta. Meðan sendimaður drekkur kaf ræður Sveinn veitingamaður gátu og sendir Einari ráðninguna. Sva er bjór. Síðar breytir Einar orðal gátunnar nokkuð.“ Nokkur blaðaskrif urðu um v þessa í Morgunblaðinu 1989 eftir hún hafði birzt þar með fyrrgreindu hætti. Vildu menn hafa vísuna öð vísi og jafnvel telja aðra höfunda henni. Ólöf Benediktsdóttir se endapunktinn við þau skrif í Velva anda 23. marz 1989: Enn um bjórv Einars Benediktssonar. Þar vitnaði Ólöf til föður sí Benedikts Sveinssonar, um vísuna tilurð hennar með sama hætti og Gu jón Friðriksson rekur í bók sin Lokaorð Ólafar voru: „Um aðrar gáfur vísunnar sagði faðir min „Svona var vísan þá, en Einar kann hafa breytt henni síðar“.“ ... skála háan allir eigum ... Þorsteinn Thorarensen segir í G andi þjóðlífi frá öðru skáldi á Bau Sigurbirni Jóhannssyni frá Fó skinni. Þorsteinn segir: „Það var mikið t að og sungið á Bauk, þegar svei menn komu þar saman, hýrir y glasi af víni. Þá var hin mikla söng á Íslandi, þegar þjóðskáldin or urmul af ættjarðarljóðum og siðfá uðum ástarljóðum undir ljúfu dönskum lögum, sem allir gátu læ og sungið, og þar blómstraði kv lingalist Þingeyinga í hnyttilegu kersknislegum og dýrt kveðnum f skeytlum. Oft vaknar minningin u Bauk, þegar Þingeyingur varp fram stöku. Hirðskáldið á Bauk var Sigurbjö á Fótaskinni, – enn eitt skemmtile bæjarnafn Þingeyinga, sem nú he verið breytt og kallast því sápule nafni Helluland, og stendur í Mú torfunni í Aðaldal. Sigurbjörn va snemma alhvítur fyrir hærum og v stundum kallaður „Svanurinn“, m því hann var nú um leið eitt hel skáld sýslunnar. Einu sinni sat han Bauk yfir dýrum veigum, og vo engar hömlur á að hann fengi meir glasið, en í kring um hann var sveima nágranni hans úr Aðaldalnu sem Jónatan hét, svartur maður irlitum og svakamenni við vín, s Sveinn vert vildi ekki veita honum Bauk voru notaðar tvær stær staupa og voru þau minni nefnd „p ur“. Þar sem Jónatan var nú að vok yfir þeim og langaði svo mikið í dro ann að hann niðaði á Sveini: „E pínu, eina pínu, Sveinn,“ þá varð þessi vísa til: Vertu Sveinn við seggi jafn, sittu á skapi þínu. Hvítum svan og svörtum hrafn seldu í einni pínu. Þessi vísa varð til í samlögum, kunnasta Bauks-vísan er eftir sa Sigurbjörn. Þá var kominn lokun tími í kránni á Bauk og gestir urðu hafa sig á burt. Sigurbjörn og nokk Aðaldælingar höfðu átt þar skemm legt kvöld, en tóku nú það ráð ganga heim á leið í heiðbjartri v nóttinni. Að vísu þótti þeim leitt að þurfa slíta svo snemma þessum ágæ gleðifundi, en um leið og þeir voru Morgunblaðið/Hafþór Eitthvað er nú öðruvísi um að litast inni á Gamla Bauki nú, en þegar Sveinn og Kristjana gengu þar um beina. Á veggjum hanga skipamyndir og myndir af Gamla Bauki og svo geta gestir spreytt sig á gátuvísu Einars Benediktssonar. ... lífs þá nýt ég glaður Gamli Baukur var nafntogað veitingahús á Húsa- vík í lok nítjándu aldar og fram á þá tuttugustu. Nú er risinn nýr Baukur fyrir neðan bakka, þar sem sá gamli var á endanum notaður í brennu. Freysteinn Jóhannsson fór og fékk á Baukinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.