Morgunblaðið - 21.10.2001, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.10.2001, Qupperneq 16
16 B SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ferðalög Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími 533 2020 Tilboð á hreinlætistækjum o.fl. 20%-50% afsláttur HITABELTISEYJAN Bali er fyrir löngu orðin goðsögn meðal ferða- manna. Áhugi ferðamanna á eyjunni er skiljanlegur og ekki verður deilt um hvað hún er gullfalleg. Að horfa yfir græna hrísgrjónaakra eða á eld- fjöllin og stöðuvötnin á norðanverðri eyjunni er ógleymanleg sýn. Fegurð eyjunnar felst þó ekki eingöngu í náttúru hennar. Mannfólkið er ein- staklega fallegt og sérstaklega þegar það skartar sparifötum á hátíðisdög- um. Ferðamenn sóttu upphaflega í náttúrufegurð eyjunnar sem og fjöl- breytta og litskrúðuga menningu eyj- arskeggja og með tímanum byggðist upp fjölbreytt ferðaþjónusta. Nú er hægt að nálgast upplýsingar um nán- ast alla þjónustu, panta sér hótelher- bergi og bóka sig í skoðunarferðir á Bali í gegnum Netið. Bali er þó ekki fullkomin frekar en annað í þessum heimi. Margir eru þeirrar skoðunar að fegurð eyjunnar sé ekki svipur hjá sjón miðað við feg- urð hennar áður. Ágangi ferðamanna er kennt um þá hnignun, en sl. ár hef- ur ein milljón ferðamanna sótt eyjuna heim á hverju ári eða einn þriðji íbúa- fjöldans. Þegar maður gengur um miðbæ Kuta, helsta ferðamannabæjar Bali, skilur maður samstundis hvað átt er við. Ég var stundum ekki viss hvort ég væri í Kaliforníu, Ibiza eða Indónesíu. Brimbrettabúðir eru á hverju horni í bland við netkaffi og skemmtistaði. Kuta er miðstöð skemmtanalífs á eyjunni og þar er mikið líf og fjör um leið og skyggja tekur. Bærinn er mjög ákjósanlegur að dvelja í fyrir þá sem vilja sóla sig á baðströndinni, stunda brimbretti og skemmta sér á nóttuni. Mörg ódýr gistiheimili eru rekin í bænum og þar dvelja evrópsk, bandarísk og japönsk ungmenni langdvölum við fyrrnefnda iðju. Litríkir og heillandi siðir heimamanna Allt svæðið umhverfis Kuta er und- irlagt af ferðamönnum og þeim fylgja harðsnúnir betlarar og ágengir sölu- menn. Það er sú mynd sem fólk telur hafa eyðilagt Bali. Það er þó huggun harmi gegn að enn er hægt að finna hina gömlu og heillandi Bali. Maður þarf að ferðast í litlum hópi, jafnvel einn og taka stefnuna norður í land. Þar getur maður komist í kynni við fólk sem lítur ekki á ferðamenn sem sjálfsagða uppsprettu peninga. And- rúmsloftið er afslappaðra og balískir siðir eru meira áberandi. Sem betur fer segi ég því þeir eru afar heillandi. Íbúar á Bali eru gjarnan mjög trúaðir enda hafa þeir mikla sérstöðu í trúnni því þeir eru einu hindúarnir í Indón- esíu. Aðrar eyjur ríkisins lúta ýmist íslam eða kristni. Hindúisminn á Bali hefur þróast á eigin forsendum í margar aldir og er töluvert frábrugð- inn hindúisma í Indlandi. Það er t.d.dæmigert fyrir balíska fjölskyldu að eiga fjölskyldumusteri í húsagarð- inum og taka stéttakerfi hindúismans ekki of alvarlega. Þeir ferðamenn sem vilja fjölbreytt frí geta haft í nógu að snúast á Bali. Fjallgöngur á eldfjöll eyjunnar, Gun- ung Agung eða Gunung Batur, í dög- un eru frábær upplifun, þátttaka í ein- hverri af fjölmörgum trúarhátíðum er það líka og balíska dansinn verða allir að sjá. Köfun er vinsæl afþreying meðal ferðamanna á eyjunni, en vanir kafarar segja að fjölsóttustu kóralrif- in séu mikið skemmd vegna of mikils ágangs og fjölda kafara. Á norður- hluta eyjunnar er hins vegar nóg af óspilltum kóralrifjum til að skoða. Sautján tímar í flugvél Ég sá alls ekki eftir því að kynnast þeirri Bali sem stendur utan við helstu áfangastaði ferðamanna. Fólk- ið er elskulegt og umhverfið líka. Ferðamanna-Bali er líka áhugaverð, en deila má um það hvort það sé þess virði að ferðast alla leið þangað – flug- ið tekur um 17 klukkustundir frá London – þegar maður getur fengið sólarstrandastemmninguna beint í æð á Ibiza eða Mallorca. Ég myndi ekki gera það þótt næturlífið í Kuta sé mjög líflegt og stemmningin góð. En ég myndi hiklaust sitja í 17 tíma í vél- inni til að kynnast litríkri menningu, margbreytilegum trúarbrögðum eyj- arskeggja og náttúrufegurð eyjunn- ar. Fróðleiksmolar ferðalangsins Ragna Sara Jónsdóttir rsj@mbl.is Morgunblaðið/Ragna Sara Prúðbúnar konur koma til Batur-musterisins með gjafir handa guðunum. Há- tíðahöld af þessu tagi eru mjög algeng á Bali og ógleymanleg upplifun. Tungumálið Íbúar á Bali verða mjög ánægðir þegar aðkomu- menn tala við þá á þeirra eigin tungumáli, eða „basa bali“ eins og það kallast. Indónesíska er hins vegar kennd í skólum. Þetta myndi til dæmis gleðja ýmsa: Ken ken kabare? = Hvað segir þú gott? Becik-becik = Mjög gott. Matur Suksma = Takk fyrir. Sing Ken Ken! = Ekkert mál! Hátíðir „Odalan“ nefnast tíðir frídagar og hátíðir íbúa á Bali Þá heiðra þeir guðina með gjöf- um. Hvarvetna á eyjunni má sjá konur ganga til musteranna með bakka hlaðna ávöxtum, kökum, mat og blómum á höfð- inu. Karlmenn veita hins vegar blóðfórnir með því að láta hana sína slást. Samgöngur Hentugt er að fljúga frá London til Denpasar á Bali með millilendingu í Singa- púr eða Kuala Lumpur í Malas- íu. Flugið tekur um 17 klst. Mæli með einfaldri og ódýrri gistingu við rætur virka eld- fjallsins Gunung Batur hjá fjöl- skyldunni á Arlinas. Fjölskyldu- meðlimir og vinir þeirra vilja allt fyrir mann gera. Arlinas, Toyabungkah, Lake Batur. P.O. Box 03. 80652. Sími: (+62) 0366 51165 Tenglar Ýmsar upplýsingar:  www.balimania.com  www.bali-travelnet.com  www.bali-paradise.com Bókanir á hótel:  www.indo.com Gistu þar sem fræga fólkið gistir:  www.balicelebs.com Paradís ferðamannsins Molar                    LEIÐIN til Port Lligat, þorpsins þar sem spænski listmálarinn Salvador Dali bjó um langt skeið, liggur norður frá spænsku borginni Barcelona, í gegnum Figueres þar sem safnið Teatre Museu Dali er, um kræklótta fjallvegi Krosshöfða (Cap de Creus), að þorpinu Cadaqués og loks til Port Lligat. Sjávarþorpið Cadaqués, ásamt nærliggjandi smáþorpum, ligg- ur það afskekkt að það hefur náð að halda ýmsum sérkennum sínum. Húsin eru hvítkölkuð, göturnar mjóar og óreglulegar og umlykja gotnesku kirkjuna, kirkju heilagrar Maríu, sem einnig er hvítkölkuð. Hvíta yfirbragð þorpsins stingur í stúf við dökkleitt umhverfið, ólífutrén og hleðslur út krítartöflusteinum sem gerðar voru í brekkunum á jarðræktarskeiði hér- aðsins og áttu að hindra vatn í að renna greiðlega til sjávar. Samsett úr fiskimannakofum Port Lligat liggur örfáum km norð- ar en Cadaqués. Þar eyddi Dali, f. 11. maí 1904 í Figueres, d. 23. janúar 1989, drjúgum hluta bernskuáranna og 1930 fluttist hann þangað ásamt eiginkonu sinni Galatea, sem oftast var nefnd Gala. Húsið stendur við litla höfn og er samsett úr nokkrum fiski- mannakofum sem hjónin innréttuðu að eigin smekk. Gala keypti talsvert af fornhúsgögnum til hússins. Það sem vekur þó líklega mesta athygli við húsið eru gluggarnir. Þeir vísa flestir út á fjörðinn og margir þeirra hafa sérstaka umgjörð líkt og þeir séu myndarammi. Einn er til dæmis um- kringdur þurrkuðum gulum blómum. Útsýnið er líka mjög fallegt. Dali á eitthvert sinn að hafa sagt að hann væri fyrstur manna á Spáni til að sjá sólina koma upp. Hvort sem það er rétt eður ei þá bera myndir hans þess glöggt merki að Port Lligat og umhverfi þess skipti hann miklu máli. Þar sem húsið er samsett úr mörgum litlum húsum er það líkt og völundarhús. Það var opnað almenn- ingi árið 1997 og er alsett örvum sem benda ýmist upp eða niður, til vinstri eða hægri, og ef maður villist og lend- ir á einhverju af fjölmörgum hand- riðum sem loka hluta herbergjanna af, fer viðvörunar- kerfi óðara í gang. En það er víst lítil hætta á að villast því leiðsögumaður fylgir gestum hvert fótmál og hleypt er inn í hús- ið í litlum hópum. Þegar komið er inn í anddyri tekur á móti manni ísbjörn klæddur í katal- ónska þjóðbúning- inn. Bangsi gefur tóninn fyrir það sem koma skal því vistarverur þeirra hjóna eru oft og tíðum eins og brand- ari. Þó fer heldur að kárna gamanið þegar komið er inn í fyrirsætuher- bergið en mest áberandi húsgagnið þar inni er stórt rúm. Þetta herbergi er öllu hlýlegra en svefnherbergi þeirra hjóna. Þar er mjög hátt til lofts. Rúmin eru tvö og stór og tals- verð fjarlægð á milli þeirra og maður veltir fyrir sér hvort þau Gala og Dali hafi lagt mikla áherslu á svefn því lit- irnir í herberginu eru sterkir og allt annað en róandi. Frægar veislur án bindindisfólks Sundlaugin og heiti potturinn virð- ist þó hafa verið ákjósanlegur staður til að slaka á og hvíla lúin bein. Leið- sögumaður segir frá því að hér hafi hjónin haldið frægar veislur og þar hafi bindindisfólk verið í minnihluta. Myndaalbúm þeirra hjóna er framan á skáphurðum fataherbergisins. Það má sjá mörg þekkt andlit þó svo að fá þeirra séu jafn þekkt og myndlistar- mannsins og sérvitringsins Dali. Í einu herbergi er ljósmynd sem kemur nokkuð á óvart. Aðspurður segir leið- sögumaður að Dali hafi ekki verið aðdáandi Stalíns sjálfs heldur einung- is heillast af skegginu. Eftir mynda- tökur í garðinum og eftir að hafa próf- að að setjast á kaldan og harðan sófa í formi kvenmannsvara er heimsókn- inni lokið enda er sólin sokkin í hafið við Port Lligat-flóa. Völundarhús með sófa úr vörum Spænski listmálarinn Salvador Dali bjó um langt skeið í litla þorpinu Port Lligat, norður af Barcelona. Kristín Sigurðar- dóttir og Javier Tellaeche Campamelós kíktu inn á heim- ili Dalis og sáu meðal annars fyrirsætuherbergi með rúmi og mynd af Stalín. Höfnin í Port Lligat. Dali kvaðst fyrstur Spánverja til að sjá morgunsólina úr þessu húsi. Á Netinu: http://www.dali-estate.org/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.