Morgunblaðið - 21.10.2001, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 B 17
ferðalög
Hvaðan ertu að koma?
Ég er nýkominn úr ferðalagi
með foreldrum mínum til Denver
í Colorado í Bandaríkjunum þar
sem bróðir minn er búsettur. Við
flugum frá Keflavík til Minnea-
polis og þaðan til Denver hinn 6.
október síðastliðinn og sömu
leið tilbaka tíu dögum síðar.
Fyrst lentum við í vandaðri leit
hjá öryggiseftirlitinu í Keflavík,
þar sem fólk má búast við því að smáhlutir eins og vasahnífar séu
teknir af því, eða settir ofan í ferðatösku. Þegar við lentum í Minn-
eapolis var þaulleitað í mínum handfarangri og á mér með málm-
leitartæki en foreldrar mínir sluppu. Mun meira mál er hins vegar
að ferðast út úr Bandaríkjunum aftur. Ég hef vanist því að geta
gengið að innritunarborðinu í Denver og tékkað farangurinn minn
alla leið til Íslands í stað þess að hann sé fluttur til Minneapolis og
þaðan heim. Þegar við fórum þess á leit núna vorum við látin fara
gegnum millilandainnritun, farangurinn settur í gegnumlýsingu og
ég spurður spjörunum úr.
Foreldrar mínir tala ekki ensku og ég vildi því túlka fyrir þá. Af-
greiðslumaðurinn tók það hins vegar ekki í mál og heimilaði hvorki
mér né bróður mínum að þýða orðaskipti milli hans og þeirra.
Hann vildi finna túlk sem talaði íslensku og við tók fjöldi símhring-
inga í þeim tilgangi og fleiri gegnumlýsingar. Ætli hann hafi ekki
hringt ein átta símtöl á meðan á þessu stóð.
Faðir minn er með gerviliði í hnjám sem auðvitað gerðu vart við sig
við skoðun með málmleitartæki. Á endanum stóð hann eftir jakka-
og frakkalaus og á sokkaleistunum, og svo fór um fleiri farþega. Ég
mæli ekki með því að fólk sé með mikinn farangur við þessar kring-
umstæður, í mesta lagi eina litla tösku í handfarangri og lítið með-
ferðis að öðru leyti. Maður er látinn taka allt upp úr vösunum og
ég meina allt.
Meðan á þessu stóð þurftu aðrir farþegar fyrir aftan okkur að bíða
en starfsmaðurinn gaf sig á endanum svo við fengum að fara
áfram.
Þegar að útgönguhliðinu kom virtist hafa verið gefin melding um
aðra grandskoðun á okkur og við tók önnur umferð með málmleit-
artæki og leit í handfarangri. Fyrst að því loknu fengum við afhent
brottfararspjöld og leyfi til þess að halda áfram að hliðinu út í vél-
ina.
Hvað tók þetta ferli langan tíma?
Við vorum komin út á flugvöll í Denver um klukkan tíu árdegis og
vélin átti að fara 12.40. Ætli þetta hafi ekki tekið rúmlega tvo
klukkutíma. Það er eins gott að pakka rétt við þessar kring-
umstæður og konur geta gleymt því að taka með sér naglaþjalir.
Slíku er hreinlega hent. Maður getur líka átt von á leit hvenær og
hvar sem er og ég ráðlegg fólki að brosa alls ekki að þessum ráð-
stöfunum og taka allt sem fyrir ber mjög alvarlega. Sá sem brosir
að þessu er litinn mjög óhýru auga. Þetta ferli getur tekið mun
lengri tíma en hjá okkur. Mælt er með því að fólk komi fjórum tím-
um fyrir brottför þegar mest er að gera snemma á morgnana og
nokkuð er um að menn missi af flugi. Búið er að fella niður talsvert
af ferðum innanlands og því getur tekið langan tíma að tékka sig
inn snemma dags þegar allar vélar eru fullar. Það getur allt gerst.
Ég ráðlegg fólki líka að hafa vegabréf sitt uppi við öllum stundum.
Það er spurt um vegabréf bæði við innritun og áður en farið er inn
í vél.
Hvernig varð ykkur við?
Ég er sæmilega vanur ferðamaður sjálfur en mér fannst að maður
þyrfti að hafa sig allan við til þess að allt gengi upp. Foreldrar mín-
ir eru á áttræðisaldri og ég held að þeim hafi þótt alveg nóg um.
Allar öryggisráðstafanir eru hins vegar greinilega teknar mjög al-
varlega og allt miklu þunglamalegra en maður á að venjast.
Hvernig var ferðin að öðru leyti?
Hún var fín og veðrið gott. Umræðan er ennþá mikil um hryðju-
verkin og afleiðingar þeirra í Bandaríkjunum, sem og um milt-
isbrand allra síðustu daga. Fjallað var um það í dagblöðum og
fréttaskýringaþáttum í sjónvarpinu hvernig ætti að bregðast við.
Fólki er til dæmis ráðlagt að hreyfa sig, hafa mikið fyrir stafni og
láta líkamann erfiða til þess að vinna gegn ótta og kvíða, sem virð-
ist mikill í Bandaríkjamönnum um þessar mundir.
Hvernig er flugfarþega í innanlandsflugi í Bandaríkjunum ann-
ars innanbrjósts núna, burtséð frá öryggisráðstöfunum?
Líðan manns er kannski dálítið sérkennileg. En eftir allar þessar ör-
yggisráðstafanir vill maður telja sig nokkuð öruggan um borð. Ég
vil trúa því að meiri líkur séu á að ég verði fyrir bíl á Ísafirði en
fórnarlamb hryðjuverka. Svo hugsa ég líka með mér að svona sé
ástandið og að maður verði bara að sætta sig við það.
Fólk brosi ekki
að öryggis-
ráðstöfunum
Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Ísafirði, ráð-
leggur þeim sem hyggja á
ferðalög til Bandaríkjanna
að hafa lítinn farangur og
gefa sér góðan tíma.
Eftirminnileg ferð
Til Víetnams með ferðaskrif-
stofunni Emblu
Ferðaskrifstofan Embla efnir til 13
daga ferðar til Víetnams, lands hins
rísandi dreka, frá 11.–27. nóvember
næstkomandi. Flogið er til Kuala
Lumpur hinn 11. gegnum London með
Malaysian Airlines og lent næsta dag
um klukkan 18.30. Að morgni hins 13.
er flogið til Ho Chi Minh-borgar í suð-
urhluta landsins, áður Saigon. Þegar
þangað er komið verður meðal ann-
ars farið í Stríðsminjasafnið, á Binh
Tay-markaðinn og í dagsferð til Tay
Ninh þar sem Cao Dai-dómkirkjan er.
Einnig er farið í heilsdagsferð út í
sveit, siglt á Mekong-fljóti og bændur
heimsóttir. Fleiri viðkomustaðir eru
Hue, sem var höfuðborg Víetnams í
140 ár, Hanoi, höfuðborg sósíalíska
lýðveldisins, Sapa og Halong-flói, eitt
af náttúruundrum Asíu. Meðal þess
sem skoðað verður í ferðinni er vatns-
brúðusýning, listasafn, Bókmennta-
hofið, Þjóðarháskólinn, Kattardalur,
orkídeu-búgarður og núðluþorp.
Ferðin kostar 297.500 á mann og há-
marksfjöldi þátttakenda er 20.
Gist er á fimm stjörnu hótelum alla
ferðina og innifalið í verði auk flugs,
gistingar, flutninga til og frá flugvelli,
fullt fæði í Víetnam að undanskildum
einum kvöldverði, allar ferðir innan-
lands, skoðunarferðir, aðgangseyrir
og íslensk leiðsögn.
Flugvallarskattar, vegabréfsáritun,
drykkir, þjórfé og bólusetningar greið-
ast sérstaklega.
Valgerður
Sigurðardóttir
Inga Jóna
Þórðardóttir
Þorgerður K.
Gunnarsdóttir
Arnbjörg
Sveinsdóttir
Stjórnmálanámskeið fyrir konur
23. október til 25. nóvember, þriðjudags-
og fimmtudagskvöld kl. 20.00—22.30 í
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
LÁTTU AÐ ÞÉR KVEÐA
Stjórnmálaskólinn, Heimdallur og Hvöt.
Innritun: sími 515 1700/1777,
Netfang disa@xd.is
www.xd.is
Konur og vald
Konur í forystu
Konur og stjórnmál
Konur og áhrif
Að kveða sér hljóðs
Árangursríkur
málflutningur
Aukinn hlutur kvenna
í stjórnmálum
Listin að vera
leiðtogi
Konur og velgengni
Konur og fjölmiðlar
Konur og
Sjálfstæðisflokkurinn
Flokksstarfið
Íslenska stjórnkerfið
Horft til framtíðar
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Stefanía
Óskarsdóttir
Sólveig
Pétursdóttir
Ásta
Möller
Laufey
Jóhannsdóttir
Ásdís Halla
Bragadóttir
Katrín
Felsted
Gísli
Blöndal
Sigríður Anna
Þórðardóttir
Gréta
Ingþórsdóttir
Drífa
Hjartardóttir