Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 18
Oktavia 4x4 vel búinn Rúsínan í pylsuendanum er verðið HEILDARINNFLUTNINGUR á þessu ári stefnir í að verða 205,9 millj- arðar króna og þar af stefnir innflutningur nýrra fólksbíla í að verða 7,4 milljarðar kr. Fólksbílainnflutningurinn yrði þar með einungis um 3,6% af heildarinnflutningnum en á undanförnum sjö árum hafa bílar að jafn- aði verið 5,8% af heildarinnflutningi landsmanna. Bílar vega minna í heildarinnflutningi                                          !" #$     % !&' #$ (  % !&'   !           )  )  )  )  ) ) )     BMW hefur náð samkomulagi við Toyota um kaup á allt að 30.000 dísilvélum á ári. Búist er við að skrifað verði undir samninga um þetta í lok mán- aðarins. Vélarnar ætlar BMW að nota í 30% af öll- um Mini bílum sem framleiddir verða. Toyota fram- leiðir eyðslugrannar dísilvélar fyrir Yaris í Japan sem kynntar verða í Evrópu í lok þessa árs. Árið 2003 hyggst Toyota síðan hefja framleiðslu á dísil- vélum í verksmiðju sinni í Frakklandi, þar á meðal fyrir BMW. Eftirspurn eftir dísilvélum hefur stórlega aukist í Evrópu. Markaðshlutdeild Toyota í Evrópu er innan við 4% en fyrirtækið ætlar að auka sinn hlut m.a. með meiri áherslu á dísilbíla. BMW kaupir dísilvélar af Toyota Toyota framleiðir dísilvélar fyrir Mini.  INGVAR Helgason, umboðsaðili Nissan, hefur pantað fyrstu Nissan X-Trail bílana og koma þeir til landsins í janúar á næsta ári. Þetta er nýr jeppi í Evrópu en hefur verið á markaði í Japan um nokk- urt skeið. Hann er 24 cm stærri en Toyota RAV4 en 7 cm styttri en Honda CR-V og er byggður á sjálf- stæða grind. Vélin verður tveggja lítra bensínvél, 150 hestafla, en einnig 2,2 lítra dísilvél. Bíllinn verð- ur með sítengdu aldrifi og ESP-stöðugleikabúnaði. Nissan X-Trail til Íslands  VINIR bílsins, sem eru regnhlífarsamtök Bíl- greinasambandsins, bílaumboða, tryggingafélaga og lánafyrirtækin, telja fátt skýra þann samdrátt sem orðið hefur í sölu nýrra bíla á þessu ári annað en almenna óvissu og neikvæða umræðu. Sam- tökin segja að allar hagtölur bendi hins vegar til þess að líklega hafi aldrei verið jafn góður tími og núna til að kaupa nýjan bíl – og aldrei jafn mikil ástæða. Ætlunin er að upplýsa almenning frekar um þessi mál og í tengslum við það verða bílaum- boðin öll að með bíladaga helgina 27.-28. október. Fátt skýrir samdrátt í bílasölu  SALA á nýjum bílum og jeppum hefur tekið mikið stökk í Bandaríkjunum í kjölfar tilboða um vaxta- laus bílakaupalán frá stærstu framleiðendunum. General Motors, Ford og Chrysler buðu vaxtalaus bílakaupalán í síðasta mánuði í kjölfar hryðjuverk- anna í Bandaríkjunum. Erlendir bílaframleiðendur, þ. á m. Toyota, hafa síðan fetað í sömu fótspor. Sölu- hraði á nýjum bílum í Bandaríkjunum það sem af er októbermánuði svipar til 18 milljóna bíla sölu á ári og hefur söluhraðinn aldrei verið meiri á þessu ári. Mikil bílasala í Bandaríkjunum  VOLKSWAGEN og Audi hafa kynnt nýja gerð bens- ínvéla sem eru aflmeiri og eyðslugrennri en fyrri vélar fram- leiðandans auk þess sem þær menga minna. Þetta eru svokall- aðar FSI-vélar (Fuel Stratified Injection), sem eru með beinni strokkinnsprautun. Með þess- ari nýju gerð innsprautunar dregur úr eldsneytiseyðslu um allt að 15%. Fyrsta vélin í þessari línu var 1,4 lítra vél í Lupo sem skilar 105 hest- öflum. Næst kemur 2,0 lítra, fjögurra strokka vél sem skilar 150 hestöflum og 200 Nm togi. Þar næst 1,6 lítra vél sem verður m.a. boðin í Golf. Inn- sprautunartæknin er svipuð og í dísilvélum með samrás- arinnsprautun (common-rail). Eldsneytið fer um eina sam- eiginlega rás áður en því er sprautað undir þrýstingi inn á strokkana. Munurinn er aðeins sá að í dísilvélum er þrýsting- urinn yfirleitt um 1.500 bör en í bensínvélunum aðeins 120 bör. Núverandi 1,6 lítra vél VW skilar 105 hestöflum og togið er 148 Nm. Nýja FSI-vélin er litlu aflmeiri, eða 110 hestöfl meðan togið er 155 Nm. Það er því aðallega eyðslan og minna af skaðlegum efnum í útblæstri sem er kosturinn við nýju vélarnar. Audi S3, sem kemur á markað snemma á næsta ári, verður einnig með FSI-vél og fær aukalega 15 hestöfl, verður því 225 hest- öfl, eða jafnaflmikill og afl- mesti TT-sportbíll. VW kynn- ir FSI- vélarnar NÝR Opel Vectra kemur á markað á næsta ári. Mikil sam- keppni er í þessum stærðar- flokki og helstu keppinautarnir, Volkswagen, Ford og Renault, hafa allir nýlega sett á markað endurbættar og mun betur bún- ar gerðir af Passat, Mondeo og Laguna. Auk þess eru þarnar bílar eins og Citroën C5 og væntanleg er ný og gerbreytt Nissan Primera. Það verður því við ramman reip að draga og spennandi að fylgjast með hvernig innkoma Opel verður með nýjum Vectra. Ný Vectra verður til sölu í Evrópu næsta sumar í fernra dyra stallbaks- og fimm dyra hlaðbaksútgáfum. Bíllinn er á nýjum undirvagni og er stærri í öllum málum en núverandi gerð. Hjólhafið eykst um 60 mm sem Opel segir að skili sér í meira fótarými fyrir farþega. Spor- víddin verður sömuleiðis meiri sem ætti að gera bílinn stöðugri og þaklínan verður 36 mm hærri, sem gerir pláss innan- dyra meira. Bíllinn verður boðinn með 122– 145 hestafla bensínvélum og 99– 123 hestafla dísilvélum. Þá verður bíllinn boðinn með fimm þrepa sjálfskiptingu með valskiptingu. Ekki hefur verið skýrt frá stað- albúnaði en búist er við að bíllinn verði með miklum þæginda- og öryggisbúnaði. Væntanlega verða hliðarbelgir og gardínubelgir staðalbúnaður ásamt spólvörn og loftkælingu. Eins og í Citroën C5 verður regnskynjari í framrúðu sem ræsir rúðuþurrkur sjálf- krafa. Opel segir að aksturseiginleik- ar bílsins batni verulega þökk sé nýja undirvagninum sem að stórum hluta er gerður úr létt- málmi og er með nýja fjölliða- fjöðrun að aftan. Meðal nýjunga er nýtt stöðug- leikakerfi sem kallast ESP Plus, búnaður sem væntanlega verður boðinn í öðrum gerðum Opel í framtíðinni. Yfirbyggingin er að hluta til úr áli og magnesíum. Ný Opel Vectra verður frum- kynnt á bílasýningunni í Genf í mars. Ný Vectra kemur á markað næsta sumar. Ný og stærri Vectra næsta sumar Bíllinn er stærri og byggður á nýjan undirvagn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.