Morgunblaðið - 21.10.2001, Side 20
20 B SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
FLJÓT OG ÖRUGG
SÉRPÖNTUNARÞJÓNUSTA
ÚTVEGUM NÝJA SEM NOTAÐA VARAHLUTI
Í ALLA AMERÍSKA BÍLA MEÐ HRAÐI....
- Tangarhöfða 2 - sími 567 1650 - www.bilabudrabba.is -
SÚ var tíðin að talað var í niðrandi
tón um Skoda. Þessar fornfrægu
tékknesku bílaverksmiðjur áttu
vissulega sitt niðurlægingarskeið
meðan þjóðin var undir oki Sovétríkj-
anna. En undir Volkswagen hefur
Skoda dafnað og er sú eining innan
Volkswagen-samsteypunnar sem er
að skila mestum hagnaði. Á allra vit-
orði er að bílar verksmiðjanna hafa
tekið stakkaskiptum og eru vandaðir
og með hönnun sem höfðar til nú-
tímamannsins, en um leið á hag-
kvæmu verði. Þetta á ekki síst við um
Octavia, sem fyrst kom á markað árið
1996 en í langbaksgerðinni vorið
1998. Við prófuðum á dögunum lang-
baksgerðina með fjórhjóladrifi, bein-
skiptan með tveggja lítra bensínvél í
Ambiente-útgáfu.
Vél, undirvagn og drifkerfi frá VW
Það er nánast allt í þessum bíl ætt-
að frá móðurfyrirtækinu VW. Und-
irvagninn er hinn sami og í Golf, Bora
og Audi A3; vélin er ættuð frá Wolfs-
burg og fjórhjóladrifskerfið sömu-
leiðis þótt hjá Skoda heiti það ein-
ungis 4x4 en 4Motion hjá VW. Þetta
er ávísun á gæði. Í Ambiente-útgáf-
unni er bíllinn þó fremur hrár að inn-
an. Mælaborðið er slétt og fellt og
laust við allt prjál en þó er dálítið
sportlegur svipur yfir mælum og gír-
stönginni sem er óvenjuleg í laginu
og með grænum lit í hnúðnum. Allt er
á réttum stað, nema miðstöðvarrof-
arnir, sem eru of neðarlega og stund-
um í skjóli fyrir gírstönginni. Sætin
eru sömuleiðis stíf og efnisrýr en
styðja þó vel við ökumann. Framsæt-
in eru með mjóbaksstuðningi og hæð-
arstillingu.
Milli árgerða hefur það breyst að
komið er þriggja punkta belti og
hnakkapúði fyrir miðjusæti aftur í og
staðalbúnaður er fimm loftpúðar, þ.e.
tveir fyrir framsætin og einn fyrir
hvert aftursæti. Þá er aksturstölva í
bílnum með útihitamæli og annað
sem vert er að nefna eru halogen-ljós
og þokuljós, sem er staðalbúnaður.
Þetta er því vel búinn bíll í grunninn.
Þeir sem kjósa fremur Elegance-út-
gáfu í stað Ambiente fá mikið fyrir
peningana. Í pakkanum fylgja 15
tommu álfelgur í stað stálfelgna, raf-
magn í afturrúðum, vandaðra áklæði
á sætum, átta hátalarar í stað fjög-
urra og geislaspilari í stað kassettu-
tækis, loftkæling og inniljós í aftara
farþegarými. Ekki þarf að bæta við
nema 145.000 kr. og er þá óhætt að
tala um að bíllinn sé „hlaðinn“ og
verðið samt ekki nema rétt rúmar
tvær milljónir kr.
Það er gott rými í bílnum og fer
meira að segja ágætlega um þrjá í
aftursætum. Farangursrýmið er
minna í fjórhjóladrifsútgáfunni en
framdrifna bílnum en það tekur þó
engu að síður 448 lítra af farangri og
964 lítrum betur með aftursætisbök-
in felld niður. Það er þægilegt í um-
gengni og kostur er að hafa 12 volta
rafmagnsúttak þar ásamt inniljósi.
Þyldi aflmeiri vél
Skoda framleiðir Octavia með ekki
færri en sjö bensínvélum og fjórum
dísilvélum. Tveggja lítra vélin er átta
ventla og skilar 115 hestöflum. Miðað
við slagrými hefði mátt búast við
meiri frískleika frá henni en ekki þar
fyrir; þetta er vél sem dugar bílnum
ágætlega þótt ekki sé hröðunin sport-
leg. Kjósi menn áhrifameiri takta frá
vél má benda á að bíllinn fæst einnig
með 1,8 l vélinni frá VW með for-
þjöppu sem skilar 150 hestöflum. Án
fjórhjóladrifsins kostar langbakurinn
með þeirri vél í Elegance-útgáfunni
1.950.000 kr. beinskiptur.
Bílnum er að öllu jöfnu ekið í fram-
hjóladrifi og það er ekki fyrr en nem-
ar skynja að framhjólin eru farin að
missa grip að allt að 50% af drifaflinu
er flutt til afturhjólanna. Þetta er
gert með svokallaðri Haldex-kúp-
lingu. Rafeindabúnaður fylgist með
snúningi framhjólanna og gefur boð
til vökvadælu um leið og þau missa
grip. Vökvadælan tengir inn aftur-
hjólin á augabragði. Það er því ekki
stöðug dreifing á drifaflinu til fram-
og afturhjóla líkt og t.d. í fjórhjóla-
drifi Suzuki Baleno og Subaru Im-
preza, sem eru tveir af samkeppnis-
bílunum. Þess verður því ekki vart að
bíllinn sé fjórhjóladrifinn í venjuleg-
um akstri en hann er líklega þess
mun duglegri í snjó og þyngslum,
þótt ekki hefði reynt á það í reynslu-
akstri að hausti.
Hagkvæmt verð
Engu að síður liggur bíllinn vel á
vegi og er rásfastur á möl. Hann er
líka með meiri veghæð en framhjóla-
drifna útgáfan, alls 23 cm frá lægsta
punkti sem gerir bílinn að góðum
ferðabíl. Í Ambiente-útfærslunni er
staðalbúnaður ríkulegur og í Eleg-
ance er allt til alls.
Rúsínan í pylsuendanum er síðan
verðið. Þessi rúmgóði fjórhjóladrifni
langbakur kostar 1.880.000 kr. í
Ambiente-útfærslunni. Þetta er hag-
stætt verð þegar til þess er litið að
samkeppnisbílarnir eru allir á yfir 2
milljónir kr. nema Baleno með 1,6 l,
97 hestafla vél, sem kostar 1.875.000
kr. Subaru Impreza langbakur með
125 hestafla vél kostar 2.230.000 kr.
en VW Golf Variant 4motion með
sömu vél og Skoda Octavia 4x4 kostar
2.045.000 kr. Hugsanlega má einnig
setja Passat Variant 4motion í flokk
með samkeppnisbílunum. Með sömu
tveggja lítra vélinni kostar hann
2.450.000 kr.
Frágangur er allur hinn vandaðasti.
Sætin eru fremur stíf en laglegur svipur er yfir innanrýminu.
Þrjú þriggja punkta belti og þrír
hnakkapúðar eru í aftursætum.
Tveggja lítra vélin er átta ventla og skilar 115 hestöflum.
Skoda Octavia 4x4 er vel búinn bíll.
Octavia 4x4 – vel bú-
inn á hagstæðu verði
gugu@mbl.is
Vél: Fjórir strokkar, 1.984
rsm, átta venlar.
Afl: 115 hestöfl við 5.400
sn./mín.
Tog: 170 Nm við 2.400
sn./mín.
Drifbúnaður: Sítengd
aldrif, 5 gíra handskipting.
Fjöðrun: MacPherson að
framan, fjölliða að aftan.
Hemlar: ABS, diskar.
Lengd: 4.513 mm.
Breidd: 1.731 mm.
Hæð: 1.481 mm.
Farangursrými:
448–1.412 lítrar.
Eigin þyngd:
1.375–1.485 kg.
Hröðun: 11,8 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km hraða.
Hámarkshraði:
193 km/klst.
Eyðsla: 8,8 lítrar
í blönduðum akstri.
Verð: 1.880.000 kr.
Umboð: Hekla hf.
Skoda Octavia
Combi 4x4 Ambiente