Morgunblaðið - 21.10.2001, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 B 21
bílar
NÝR Mercedes-Benz SL, sportbíll-
inn sem kynntur var á bílasýningunni í
Frankfurt í september, kemur ekki á
markað fyrr en eftir hálft ár en hann
er þegar uppseldur allt fram til ársins
2003. Ekki hefur verið gefið upp end-
anlegt verð á bílnum ennþá en engu
að síður er eftirspurnin mun meiri en
framleiðsluáætlanir. Í Bretlandi hafa
óþreyjufullir bílkaupendur greitt inn á
1.400 bíla, sem er allur kvótinn fyrir
bíla framleidda fyrir Bretlandsmarkað.
Fastlega er búist við að lífleg viðskipti
verði með bíla þessarar gerðar og bú-
ist er við að þeir seljist langt yfir lista-
verði.
Benz SL upp-
seldur til 2003
Mercedes-Benz SL er uppseldur fram til 2003.
MENGUN frá nýjum bílum hefur
farið hraðminnkandi, einkum eftir
1995. Algengur nýr fólksbíll er
með 45-50% minni útblástur gróð-
urhúsalofttegunda en sami bíll fyr-
ir 10 árum.
Þetta kemur fram í samantekt
Vina bílsins, þar sem byggt er á
heimildum frá Skráningarstofunni,
Bílgreinasambandinu og skýrslu
starfshóps samgönguráðuneytis og
Vegagerðar frá maí 2001 um losun
gróðurhúsalofttegunda frá sam-
göngum.
Algengur nýr fólksbíll losar um
190 grömm af koltvísýringi fyrir
hvern ekinn kílómetra.
Fyrir 10 árum losaði nýr fólks-
bíll 350 grömm. Þá voru bílvélar
ekki búnar jafn öflugum meng-
unarvarnarbúnaði og nú þekkist.
Þessi búnaður er sífellt að verða
öflugri og er stefnt að því að árið
2008 verði meðallosun koltvísýr-
ings komin í 140
grömm á hvern
kílómetra.
Tæplega 60%
fólksbíla hér fram-
leidd fyrir 1995
Í skýrslu starfs-
hóps samgöngu-
ráðuneytisins og
Vegagerðarinnar
kemur fram að
þrátt fyrir að um-
ferð á vegum
landsins hafi auk-
ist um 36,6% á sl.
10 árum hafi losun
koltvísýrings frá
bílum minnkað um
16%. Jafnframt er
ljóst að losun
koltvísýrings hefði minnkað mun
meira ef endurnýjun bílaflotans
væri örari.
Í samantekt Vina bílsins kemur
fram að ef allir fólksbílar lands-
manna, 150 þúsund talsins, væru
um 10 ára gamlir og meðalútblást-
ur koltvísýrings frá hverjum
þeirra væri 350 grömm á hvern
kílómetra, þá væri heildarlosun
koltvísýrings frá þeim 640 þúsund
tonn á ári. Miðað er við 12.200 km
meðalakstur fyrir hvern bíl. Ef á
hinn bóginn allir bílar landsmanna
væru þriggja ára gamlir og með-
alútblásturinn væri 190 grömm á
hvern kílómetra, væri heildarlos-
unin 290 þúsund tonn á ári, sem er
45% minni losun. Bílar sem komu
á markað 1995 og síðar eru búnir
mun öflugri mengunarvörnum en
eldri bílar. Tæplega 60% fólksbíla
hér á landi eru hins vegar fram-
leidd fyrir 1995.
45–50% minni koltví-
sýringur frá nýjum bílum
FÆREYSK heilbrigðisyfirvöld hafa
undanfarið verið að endurskoða
rekstur sjúkrabíla sinna, sem hafa
verið af ýmsum gerðum og stærðum,
en það hefur leitt af sér kostnaðar-
lega óhagkvæmni og rýrt rekstrar-
öryggi þessara mikilvægu tækja.
Þessi endurskoðun hefur orðið til
þess að ákveðið hefur verið að kaupa
eingöngu sjúkrabíla af gerðinni
Volkswagen Transporter og hafa nú
þegar verið afhentir 6 fullbúnir
sjúkrabílar af þeirri gerð til Lands-
sjúkrahússins í Þórshöfn. Hekla flyt-
ur bílana inn óinnréttaða, en semur
við undirverktaka hérlendis, sem sjá
um að innrétta sjúkrarýmið sam-
kvæmt óskum kaupanda, og setja í
bílana allan rafbúnað og fjarskipta-
tæki, sem sérhæfð eru fyrir slíkar
bifreiðir. Hér er um töluvert mikla
vinnu að ræða, m.a. er þakið hækkað
um 28 cm og gólfið í sjúkrarými
einnig hækkað lítillega.
Íslenska innréttingin
vönduðust miðað við verð
Fulltrúar Landssjúkrahússins í
Þórshöfn báru saman innréttingar í
sjúkrabíla frá ýmsum löndum, og
komust að þeirri niðurstöðu að ís-
lenska innréttingin væri vönduðust
miðað við verð. Þetta er ákveðin við-
urkenning á hugviti og handbragði
íslenskra iðnaðarmanna, en Bif-
reiðasmiðja G&Ó sf. sér um að inn-
rétta sjúkrarými bílanna og Tækni-
vélar sf. annast alla vinnu við
rafbúnað og fjarskiptabúnað.
Fulltrúar Heklu og Landssjúkrahússins í Færeyjum við sjúkrabílana.
Hekla selur fullbúna
sjúkrabíla til Færeyja
!"
*# +,-.!!!
* +/+-0!&
/
* +/+-1/+0!&
/
* +/+-1/+0!&
/
* +/+-2/
* +/+0 3/+
* +/+0,#+4,!#
* +/+4& ,5/ * +/++/4,!#
* +/+2 6.!!!+
!"#$!%#&'"
()# "*+,!%#&+-)"'"
()# "*+,!%#&+-)"'"
()# "*+,!%#&+-)"'"
()# "*+,!%#&+-)"'"
)+-)"'"./+0-"
)+-)"'"./+0-"
-!'/# 12"!'
)+-)"'"./+0-"
!"#$!%#&'"
1/ 89,! ":"0;//"89,! ":"0;//"
(/7"(,
7"<!!"/,/"2/ 6/$
8/"1/7"
"=>7"4 . ?/#/"1 .
7"4"4/7"2@
/,/ .
7"4"4/7"2@
.
7"8/"1/7"(,
7"=+7!->"
5
/"4"4/7"2@
=+7!->
5
/
4##!$ 1
9 2 -'
7