Morgunblaðið - 21.10.2001, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 21.10.2001, Qupperneq 27
verðlaunamyndinni American Beauty. Í næstu mynd hans leikur góði gæinn Tom Hanks vondan gæja, mafíósa í hefndarhug. Ekki ómerkari menn en Jude Law, Paul Newman og Jennifer Jason-Leigh eru til taks. Hin langþráða Spider-Man, þar sem Tobey Maguire leikur hasar- blaðahetjuna Köngulóarmanninn fyrir leikstjórann flinka Sam Raimi, verður frumsýnd í maí. Þessi þykir öruggur aðsóknarsmellur og sama gildir um næstu Star Wars-mynd, Episode II – Attack Of the Clones, jafn þreytt og það dæmi er nú orðið. Þar er Anakin orðin að ungum kappa sem Hayden Christensen leikur og fer í fjörurnar við drottninguna Nat- alie Portman. Félagi George Lucas Steven Spiel- berg frumsýnir næsta sumar Minor- ity Report, eins konar framtíðar- krimma með Tom Hanks – nóg að gera hjá honum – og Colin Farrell. Lecter snýr aftur og Ryan líka Anthony Hopkins brýnir þriðja sinni hnífinn og lyftir gaffli sem mannætan og morðinginn Hannibal Lecter í Red Dragon, sem leikstjór- inn Brett Ratner (Rush Hour 1 og 2) hefur fengið að spreyta sig á, af ein- hverjum ástæðum. Myndin byggist á fyrstu bók Thomas Harris um Lect- er og þarf því að yngja Hopkins tölu- vert upp. Hvorki Jodie Foster né Julianne Moore mæta hér til leiks en Edward Norton leikur alríkislög- reglumann sem neyðist til að leita til Lecters við morðrannsókn. Red Dragon var áður kvikmynduð af Michael Mann undir nafninu Man- hunter og lék þá Brian Cox Lecter en William Petersen fór með sama hlut- verk og Norton gerir nú. Sumarið 2002 er væntanleg ný mynd um njósnarann Jack Ryan, sem Harrison Ford og Alec Baldwin hafa áður túlkað í smellum sem byggðir hafa verið á sögum Toms Clancy. Nýja myndin heitir The Sum of All Fears, Ben Affleck leikur Ryan og glímir þar við hermdarverka- menn. Mel Gibson leikur herforingjann Harold Moore í We Were Soldiers, sem er sönn saga úr Víetnamstríðinu og byggist á bók fyrrnefnds Moore. Sam Elliott, Greg Kinnear, Chris Klein og Denis Leary eru í leikhópn- um en leikstjóri er handritshöfund- urinn Randall Wallace, sem áður hef- ur unnið með Gibson að Braveheart og ber ábyrgð á handriti Pearl Har- bor. Meðal jólamynda næsta árs verða svo annar hluti Hringadróttinssögu og leikgerð Ítalans Roberto Benigni á sígildu sögunni um Gosa. Næstu tólf mánuðir vekja því nokkuð bjartar vonir, sem vonandi slokkna ekki jafnóðum. Reuters Reuters Mel Gibson: Saga frá Víetnam. Reuters Hopkins sem Lecter: Þriðja myndin á leiðinni. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 B 27 bíó ÞAÐ er kannski nokkur ósk-hyggja, en Kingsley er hvað semöðru líður tilnefndur til hinna virtu British Independent Award, BIFA sem verða afhent 24. október. Myndin, sem hefur dregið hann upp á yfirborð athyglinnar er Sexy Beast, glæpamynd af því tagi, sem Englend- ingar gera af snilld (frumsýnd hér- lendis um helgina). Ekki bara pang- pang-dauður mynd á harðsoðna amr- íska vísu, heldur hlý og mögnuð mynd undir hráu yfirborði. Myndin kom á markaðinn snemma á árinu án þess að draga að sér neina ofur- athygli og er núna komin á mynd- bandsmarkaðinn, en án efa dregur tilnefningin nú athyglina að henni aft- ur. Sagan er um tvo kumpána úr und- irheimunum, þá Gary Dove, sem Ray Winstone leikur, en hann er líka til- nefndur til BIFA og Don Logan, sem Kingsley leikur. Dove býr í dýrðlegum fögnuði á Spáni með konunni sinni, sem hann er bráðástfanginn af og nýtur nú ávaxtanna af velheppnuðum glæpaferli. Í spænsku paradísina kemur freistarinn í líki Logans og lokkar Dove til að fremja allra, allra síðasta glæpinn. Hér er engin mýkt og mannúð í fari Kingsleys eins og í Ghandi og Lista Schindlers, heldur óhefluð harkan, sem er ný og óvænt hlið á honum. Myndin, sem hefur lokkað fram há- stemmt hrós gagnrýnenda er gerð af Jonathan Glazer. Glazer er nýgræðingur í kvikmyndagerð, en hefur getið sér frægðarorð fyrir auglýsingamyndir og myndbönd með tónlistarmönnum eins og Blur, Massive Attack og Radiohead. Fyrir myndbandið Virtual Insanity með Jamiroquai vann hann fern MTV verðlaun 1997. Glazer segist vilja gera myndir, sem lokki fólki í bíó, ekki bara hálistrænar myndir, sem nokkr- ir vinir hans láti tilleiðast að sjá. Og Glazer vantar ekki metnaðinn: „Ég vil gera myndir í anda ástríðufullra kvik- myndagerðarmanna, sem bera með sér nýjar víddir.“ Keppnin um BIFA verður hörð nú eins og oft áður. Auk þess sem þeir Kingsley og Winstone eru tilnefndir til BIFA sem bestu karlleikarar keppir Sexy Beast um verðlaunin sem besta myndin, meðal annars á móti Bread and Roses. Sú mynd er frumraun hins annálaða Ken Loach í Bandaríkj- unum og fjallar um harða lífsbaráttu innflytjenda nútímans þar. Af leik- konum er Kate Winslet meðal hinna til- nefndu fyrir leik sinn í Enigma, ást- arsögu er spinnst í kringum baráttuna við að brjóta dulkóða Þjóð- verja í seinni heimstyrjöldinni. En hver sem niðurstaðan verður er ljóst að Ben Kingsley hefur hér með bætt eft- irminnilegri manngerð við glæstan feril sinn. Kingsley kemur aftur Litli maðurinn, sem 1982 lék Ghandi og Itzhak Stern í Lista Schindlers 1993 svo eftirminnilega hefur haft hægt um sig undanfarið, en í nýlegri enskri kvikmynd hefur Ben Kingsley vakið slíka hrifningu að menn eru jafnvel farnir að spá í hvort hann fái ekki bara Óskarinn á næsta ári fyrir frammistöðuna. Sigrún Davíðsdóttir LONDON Við bjóðum alla velkomna á Uppskeruhátíð Fegurri sveita 26. október 2001 á Flúðum 10.00 Mæting við félagsheimilið. Skoðunarferð um Flúðir og nágrenni. Garðyrkjustöðin Melar, Flúðasveppir og Límtré ehf. heimsótt. Leiðsögumaður verður Loftur Þorsteinsson oddviti 12.00 Léttur hádegisverður á vægu verði (1.150 kr.) fyrir þá sem það vilja á hótelinu. • Drífa Hjartardóttir, formaður landbúnaðarnefndar alþingis flytur ávarp 13.00 Setning: Níels Árni Lund, formaður stjórnar Fegurri sveita. • Ávarp oddvita Hrunamannahrepps · • Tónlistaratriði · • Ragnhildur Sigurðardóttir, verkefnisstjóri Fegurri sveita flytur skýrslu ársins. • Fegurri sveitir/Norður Hérað. Jónas Þór Jóhanns- son sveitarstjóri. • Fegurri sveitir/Kirkjubólshreppur. Matthías Lýðsson oddviti og Hafdís Sturlaugsdóttir. • Fegurri sveitir/ferðaþjónusta. Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu. • Fegurri sveitir/Ásahreppur. Jónas Jónasson oddviti. • Ríkidæmi dreifbýlisins. Anna Karlsdóttir, lektor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. • Almennar umræður. 16.00 Fundarmönnum boðið upp á kaffiveitingar. Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, flytur ræðu og veitir þátttakendum viðurkenningar. 17.00 Uppskeruhátíðinni slitið. Framkvæmdanefnd um Fegurri sveitir • Upplýsingar um átaksverkefnið Fegurri sveitir má nálgast á slóðinni www.simnet.is/umhverfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.