Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 1
Sunnudagur
21. október 2001
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
Hjúkrunarfræðingar
Í kjölfar sameiningar stóru sjúkrahúsanna í
Reykjavík hefur verkaskipting milli þeirra að
nokkru verið ákveðin. Bráðamóttaka við Hring-
braut verður snemma á næsta ári aðalbráðamóttaka
fyrir hjartasjúklinga, veik börn og sjúklinga sem
tilheyra sérgreinum á Hringbraut. Við á bráða-
móttöku erum að leita eftir hjúkrunarfræðingum
til þess að taka þátt í nýjum verkefnum með okkur.
Eftirfarandi vinnutilhögun kemur til greina: Allar
vaktir, tvenns konar vaktir þ.e. annað hvort
morgun- og næturvaktir eða kvöld- og næturvaktir,
eingöngu kvöld- eða næturvaktir, fjögurra, átta,
tíu eða tólf tíma vaktir. Að jafnaði er unnið þriðju
hverja helgi. Til greina kemur að ráða sig annað
hvort á bráðamóttöku barna eða fullorðinna.
Í boði er aðlögun og fræðsla sniðin að verkefnum
deildarinnar. Ef þú hefur áhuga á spennandi og
ögrandi verkefnum í hjúkrun bráðveikra, gætir
þú verið sá hjúkrunarfræðingur sem við leitum að.
Ef þú vilt nánari upplýsingar, hefur áhuga á að
koma til að skoða deildina og/ eða kynna þér
starfsemi hennar og fyrirhugaðar breytingar, hafðu
þá samband við Gyðu Baldursdóttur, hjúkrunar-
framkvæmdastjóra bráðamóttöku í síma 560 1010,
netfang gydabald@landspitali.is
Hjúkrunarfræðingar / Sjúkraliðar
óskast á deild K-2 Landakoti. Vinnutími
samkomulagsatriði. Meginstarf deildarinnar er
meðferð og endurhæfing aldraðra sem eru með
fjölþætt heilsufarsvandamál.
Upplýsingar veitir Guðbjörg Jóna Hermannsdóttir,
deildarstjóri í síma 525 1915, netfang
ghermansd@landspitali.is
Yfirlyfjafræðingur
Deild lyfjamála er nýstofnuð deild á Landspítala
- háskólasjúkrahúsi. Megin verkefni deildarinnar
er að móta stefnu í lyfjamálum spítalans, t.d. gerð
klínískra leiðbeininga, auka gæði og öryggi í
lyfjameðferð, kennslu og þjálfun lyfjafræðinema
og deildarlyfjafræði í samvinnu við
Sjúkrahúsapótekið ehf.
Lyfjafræðingur, sem hefur hlotið menntun í
klínískri lyfjafræði, óskast í 100% starf sem veitist
frá 01.01. 2002. Æskilegt er að umsækjandi hafi
einnig reynslu af stjórnunarstörfum. Umsóknum
skulu fylgja staðfestar upplýsingar um nám,
starfsferil og vísindastörf ásamt afriti birtra greina
umsækjenda. Allir umsækjendur verða boðaðir
í viðtal.
Upplýsingar veitir Sigurður B. Þorsteinsson,
yfirlæknir í síma 560 1243, netfang
sigbthor@landspitali.is
Fótaaðgerðarfræðingur
óskast við göngudeild sykursjúkra Hringbraut í
50% starf sem veitist frá 01.01. 2002. Æskilegt
er að viðkomandi hafi sérþekkingu og reynslu í
meðferð sykursjúkra.
Upplýsingar veitir Ástráður B. Hreiðarsson,
yfirlæknir í síma 560 2111, netfang
astradur@landspitali.is
Læknaritari
óskast á endurhæfingardeild og taugalækninga-
deild LSH Grensási. Löggilding æskileg, en ekki
skilyrði.
Upplýsingar veitir Sofía Thorarensen, í síma
525 1661, netfang sofiath@landspitali.is
Umsóknarfrestur ofangreindra starfa er til 5. nóvember n.k., nema annað sé tilgreint.
TALÞJÁLFUN REYKJAVÍKUR
Almenn skrifstofustörf
Talþjálfun Reykjavíkur óskar eftir að ráða
starfsmann í hlutastarf. Vinnutími er frá 10-14.
Starfið felur í sér almenn skrifstofustörf, mót-
töku og símsvörun. Leitað er eftirjákvæðum
einstaklingi á besta aldri.
Skriflegum umsóknum skal skilað til auglýs-
ingadeildar Morgunblaðsins fyrir 1. nóvember,
merktum: „TAL“. Öllum umsóknum svarað.
Kennsla á Þórshöfn
Kennara vantar strax til starfa vegna forfalla
við Grunnskólann á Þórshöfn. Um að ræða
kennslu yngri barna og ensku í 9. og 10. bekk.
Þjónusta á staðnum er öflug og mannlífið
blómlegt. Aðstæður fyrir barnafólk eru mjög
hentugar, t.d. er nýtt og glæsilegt íþróttahús
á staðnum og góður leikskóli.
Aðbúnaður skólans er eins og best gerist.
Húsnæðishlunnindi og flutningsstyrkur.
Umsóknarfrestur er til 24. október nk.
Nánari upplýsingar hjá skólastjóra í
símum 468 1164, 468 1465, 865 5551 og/
eða sveitarstjóra í síma 468 1275.
Vegna mikilla anna framundan óskum
við eftir að bæta í hóp okkar góða
starfsfólks:
● Framreiðslumönnum.
● Yfirframreiðslumanni.
● Þjónustufólki í veitingasal.
● Starfsfólki í uppvask.
● Starfsfólki í dyravörslu (eldri en 25 ára).
Upplýsingar gefa Jónína og Birgir á staðn-
um virka daga frá kl. 10.00—16.00.
Einnig er hægt að fylla út umsóknareyðublað
á netinu á www.broadway.is .
Broadway,
Ármúla 9, 108 Reykjavík,
sími 533 1100.
Netfang broadway@broadway.is .