Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 11
Haraldur Guðni Eiðsson, stjórnarformaður Félagsstofnunar stúdenta, afhenti Guðmundi Bergssyni styrkinn. VERKEFNASTYRKUR Fé- lagsstofnunar stúdenta var veitt- ur föstudaginn 19. október í Stúdentaheimilinu við Hring- braut. „Guðmundur Bergsson hlaut styrkinn fyrir MS-verkefni sitt í líffræði, „Örverudrepandi áhrif náttúrulegra fituefna“. Markmið verkefnisins var að rannsaka ör- verudrepandi áhrif náttúrulegra fituefna, útskýra virkni fituefn- anna gegn örverum, rannsaka eituráhrif fituefnanna og ákvarða hvort þau geti nýst í lyfjafræði- legum tilgangi. Niðurstöðurnar gefa til kynna að sum efnanna séu mjög virk gegn mörgum ör- verum sem sýkja slímhimnur lík- amans, að efnin hafi lítil eitur- áhrif í líkamanum og að með frekari rannsóknum megi þróa lyfjagrunna sem innihalda nátt- úruleg fituefni sem virk inni- haldsefni. Leiðbeinandi Guð- mundar var Halldór Þormar, prófessor emeritus,“ segir í fréttatilkynningu. Hlaut verkefna- styrk Félags- stofnunar stúdenta Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 C 11 Bjarna Felixsyni er margt til lista lagt. Hér er hann með Guðmundi Sv. Hermannssyni en þeir urðu í efstu sætunum í afmælismóti sem haldið var í tilefni 10 ára afmælis heimsmeistaratitilsins í brids. Afmælismót á Grand Hótel 11. október sl. voru 10 ár síðan Ís- land eignaðist í fyrsta og eina sinn heimsmeistara í hópíþrótt með sigri á heimsmeistaramótinu í brids. Af því tilefni var haldið lokað ein- menningsmót á Grand Hótel þar sem heimsmeistararnir spiluðu við styrktaraðila og rann ágóði mótsins til fræðslustarfs BSÍ. Þrír efstu styrktaraðilar fengu verðlaun í mótslok. Guðmundur Sv. Hermannsson/Morgunblaðinu varð efstur og skaust upp fyrir Bjarna Fel./RÚV í síðustu umferðinni sem varð annar, Stefanía Skarphéðins- dóttir/SPRON varð þriðja. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Bridsfélag Reykjavíkur Þriðjudaginn 16. október var spil- að 2. kvöldið af 3 í Board A Match sveitakeppni félagsins. 16 sveitir spiluðu 13 umferðir og hæsta skor kvöldsins náðu: 1. Guðmundur Baldursson 37 stig 2. Þrír frakkar 34 stig 3. SUBARU-sveitin 30 stig svo voru 4 sveitir með 28 stig. Efstu sveitir eftir 2 kvöld eru: 1.-2. SUBARU-sveitin 67 stig 1.-2. Þrír frakkar 67 stig 3. Guðmundur Baldursson 60 stig 4. Birkir J. Jónsson 59 stig 5. Eiður Mar Júlíusson 57 stig 6. Ógæfumennirnir 56 stig 7. Bjarni Guðnason 55 stig 8. Arngunnur Jónsdóttir 52 stig Sveitunum verður skipt í A- og B- riðla síðasta kvöldið, 8 efstu í A-riðil og næstu 8 í B-riðil. Næsta keppni félagsins er þriggja kvölda Kauphallartvímenningur. Byrjar hann 30. nóvember. Hægt er að skoða úrslit og dag- skrá vetrarins á heimasíðu BR: www.bridgefelag.is Föstudagskvöld BR er röð eins- kvölds tvímenninga á föstudags- kvöldum í húsnæði BSÍ. Spila- mennska byrjar kl. 19 og eru spilaðir tvímenningar með Mitchell og Mon- rad Barómeter formi til skiptis. Að tvímenningnum loknum er spilurum boðið upp á að taka þátt í Miðnæt- ursveitakeppni. Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 18. okt. var spilað annað kvöldið af þremur í hrað- sveitakeppni félagsins og er staðan nú þessi: Sv. Gunnlaugs Kristjánss. 1271 Sv. Gísla Steingrímss. 1254 Sv. Kebab-hússins 1245 Sv. Jens Jenssonar 1198 Fimmtudaginn 25. okt verður spil- að síðasta kvöldið í hraðsveitakeppn- inni. Fimmtudaginn 1. nóvember hefst Barometerinn og er hann að þessu sinni í boði 11-11 verslananna og verða verðlaunin í formi vöruúttekt- ar að verðmæti kr 30.000 í verslun- um 11-11. Spilað er í Þinghól í Hamraborg- inni og hefst spilamennska stundvís- lega kl. 19.30. Sveitakeppni í Gullsmára Sveitakeppni eldri borgara í brids hófst í Gullsmára 13 fimmtudaginn 18. október. Tíu sveitir eru skráðar til keppni. Spilaðar vóru tvær um- ferðir. Að þeim loknum vóru eftir- taldar sveitir í efstu sætum: 1. Sveit Þórhildar Magnúsdóttir 39. stig. 2. Sveit Kristins Guðmundssonar 37 stig. 3. Sveit Þorgerðar Sigurgeirsdóttur 36 stig. Mánudaginn 22. október verða spilaðar tvær umferðir, fimmtudag- inn 25. október tvær umferðir og loks mánudaginn 29. október ein lokaumferð. Þá verður og hugsan- lega spilaður stuttur tvímenningur. Bridsdeld FEBK í Gullsmára spilar alla mánudaga og fimmtudaga. Mæt- ing kl. 12.45. Félag eldri borgara í Kópavogi Þátttakan hjá eldri borgurum í Kópavogi er jöfn og góð. Þriðjudag- inn 9. okt mættu 24 pör og urðu úr- slit þessi í N/S: Gróa Guðnad. - Sigríður Karvelsd. 289 Lárus Hermannss. - Sigurður Lárusson 249 Magnús Oddss. - Guðjón Kristjánss. 222 Hæsta skor í A/V: Jón Andrésson - Þórður Jörundss. 267 Ragnar Björnss. - Hreinn Hjartarson 248 Hannes Ingibergss. - Magnús Halldórss. 240 Sl. föstudag mætti svo 21 par en þá urðu úrslit þessi í N/S: Lárus Hermannss. - Sigurður Karlss. 243 Rafn Kristjss. - Oliver Kristóferss. 238 Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 227 Ólafur Ingimundars. - Jón Pálmason 227 Hæsta skor í A/V: Hannes Ingibergss. - Magnús Halldórss. 251 Guðm. Magnússon - Jakob Þor- steinss. 235 Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jör- undss. 229 Meðalskor báða dagana var 216. SLYSASKRÁ Íslands, sem ný- lega er farin af stað, er grund- vallartæki til að hægt sé að vinna markvissar að forvörnum, kanna þarf vanskráningu og ónákvæmni í skráningu slysa, vinnuslys eru algeng á Íslandi og tengjast flest byggingarvinnu í víðum skilningi en flest vinnuslys eru ekki alvar- leg. Þetta var meðal þess sem fram kom á ráðstefnunni Varnir gegn vinnuslysum sem Vinnueftirlitið efndi til á fimmtudag í tengslum við evrópsku vinnuverndarvikuna sem lýkur í dag. Meðal erinda var yfirlit Kristins Tómassonar, yfirlæknis Vinnueftirlitsins, um vinnuslys á Íslandi í 20 ár. Hann sagði markmiðið með skráningu slysa að nota efniviðinn til að vinna að skipulegum forvörnum á vinnustöðum. Frá árinu 1980 hef- ur Vinnueftirlitið skráð 13.607 vinnutengd slys og þar af eru banaslys 111. Kristinn sagði 40% þeirra hafa orðið á fólki yngra en 30 ára og á móti hverri konu í vinnuslysi slasist þrír karlar. Hlutfallið segir hann þó breyti- legt eftir aldri, á aldursbilinu 20 til 40 slasast fjórir karlar á móti hverri konu en eftir fertugt tveir fyrir hverja konu. Flest banaslys hjá 20 til 30 ára Banaslys sagði Kristinn flest verða hjá fólki á aldrinum 20 til 30 ára og hæst hlutfall slysa á þessu 20 ára tímabili sagði hann hafa verið í byggingariðnaði og fiskvinnslu eða 12% í hvorum flokki. Sé litið á banaslys urðu þau flest í landbúnaði eða 27%, 20% í byggingariðnaði og 11% í flutningastarfsemi. Kristinn sagði annmarka vera á skráningu og mætti búast við að þau væru ár- lega um 3.500 hérlendis en ekki 1.200 eins og tilkynnt eru. Sigurður Guðmundsson land- læknir sagði hina nýju Slysa- skráningu Íslands gefa mögu- leika á margs konar úrvinnslu um eðli, orsakir og afleiðingar slysa. Hann sagði alla þekkingu sem þannig fengist geta gefið árangur í baráttunni við vinnuslys og því væri skráningin nauðsynleg for- senda fyrir eflingu slysavarna á þessu sviði. Sigurður sagði að íhuga yrði það misræmi sem væri í skráningu vinnuslysa og sagði að í fyrra hefði 11.371 verið skráður slasaður í vinnuslysum á slysadeild Landspítala í Fossvogi en Vinnueftirlitið fær 1.200 til- kynningar um vinnuslys árlega eins og áður var getið. Brynjólfur Mogensen, sviðs- stjóri á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi, sagði árlega 1,1 millj- ón manna deyja vegna atvinnusjúkdóma og vinnuslysa. Til samanburðar nefndi hann að 999 þúsund létu árlega lífið í um- ferðarslysum og 502 þúsund í styrjöldum. Í samantekt Brynj- ólfs um slys á þremur árum, 1998 til 2000, kom fram að slasaðir voru alls 83.990 og voru vinnuslys þar af 17.572. Í flokki vinnuslysa voru karlar 78% en konur 22%. Flesta sagði hann slasast á úlnlið eða hönd eða rúm 30%, en næst- flest voru slys á höfði eða 10%. Brynjólfur lagði að lokum til að samvinna yrði aukin milli LSH og Vinnueftirlitsins. Sigurður Helgason, upplýs- ingafulltrúi Umferðarráðs, ræddi um umferðina sem vinnustað og sagði að með minnkandi flugsam- göngum um landið og minni flutningum á sjó ykjust flutning- ar og umferð á vegum. Hann sagði banaslys í fyrra hafa verið 32 og að í 11 tilvikum tengdust atvinnubílstjórar slysunum þótt þeir væru ekki endilega valdir að þeim. Hann taldi brýnt að auka menntun atvinnubílstjóra, sagði algengt að þeir mætu um of hæfni sína og kvað brýnt að bregðast við því. Í tengslum við ráðstefnuna kynntu nokkur fyrirtæki á sviði öryggis- og heilsuverndarmála starfsemi sína. Má m.a. nefna Saga Spa sem annast ráðgjöf á sviði heilsuverndar og endurhæf- ingar- og verkfræðistofuna Eski sem sérhæfir sig m.a. á sviði ör- yggisstjórnunar og starfsmanna- heilsuverndar. Slysaskrá Íslands gefur möguleika á úrvinnslu á orsökum og eðli slysa Kanna þarf ónákvæmni og vanskráningu slysa SKIPULAGSSTOFNUN hefur fall- ist á fyrirhugaða gerð jarðganga og vegarlagningu á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum, sem birtur var í gær. Fram kemur í úrskurðinum að nið- urstaða Skipulagsstofnunar sé byggð á því að framfylgt verði þeirri fram- kvæmdatilhögun sem lýst er í fram- lögðum gögnum framkvæmdaraðila. Land sem verður fyrir raski verði grætt upp á ný Gert er ráð fyrir að lengd jarð- ganganna verði um 6 km og heild- arvegarlagning um 8 km. Fyrirhugað vegstæði liggur að hluta til um gróin svæði sem munu skerðast við vegar- lagningu en að mati Skipulagsstofn- unar má draga úr neikvæðum áhrif- um framkvæmdanna verði þess gætt að halda raski í lágmarki og gróið land sem verður fyrir raski verði grætt upp í samráði við Náttúrustofu Austurlands og fleiri. Þá telur Skipu- lagsstofnun æskilegt að framkvæmd- um í Reyðarfirði verði haldið í lág- marki yfir varptíma til að lágmarka áhrif þeirra á varpfugla á Hrúteyri. Bent er á að tvennar fornleifar muni lenda undir fyrirhuguðu veg- stæði ef ekki reynist unnt að færa veglínuna. Skipulagsstofnun telur að framkvæmdin muni þó ekki hafa veruleg áhrif á menningarminjar fari fram fornleifarannsókn í samráði við Þjóðminjasafn Íslands á tilgreindum stöðum. Þá telur stofnunin að gera verði mjög strangar kröfur um fram- kvæmdafyrirkomulag vegna varna gegn mengun vatns. „Helsta markmið með fyrirhuguð- um framkvæmdum samkvæmt mats- skýrslu er að bæta samgöngur, auka umferðaröryggi og tengja betur saman Suðurfirði Austurlands og Mið-Austurlands. Í umsögn Byggða- stofnunar kemur fram að fyrirhuguð framkvæmd hafi mikla þýðingu fyrir þróun byggðar á Austurlandi. Skipu- lagsstofnun telur að samkvæmt framlögðum gögnum sé fyrirhuguð framkvæmd líkleg til þess að auka umferðaröryggi vegfarenda á leið- inni frá Reyðarfirði til Fáskrúðs- fjarðar og hafa jákvæð samfélagsleg áhrif á byggðir Suðurfjarða í Aust- firðingafjórðungi,“ segir í fréttatil- kynningu frá Skipulagsstofnun. Fallist á jarðgöng og veg á Aust- fjörðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.