Morgunblaðið - 15.11.2001, Síða 26
NEYTENDUR
26 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÓNUS
Gildir til 21. nóv. eða á m. birgðir endast nú kr. áður kr. mælie.
Ferskur svínabógur m/beini .................... 350 649 350 kg
Ungnautahakk 8-12% fita ...................... 699 799 699 kg
Bónus brauð ......................................... 99 159 99 kg
Gold kaffi, 250 g ................................... 129 nýtt 516 kg
Jarðarber í dós, 400 g............................ 89 nýtt 222 kg
Skyr.is, 500 g........................................ 169 179 338 kg
Skyr.is, 200 g........................................ 65 69 325 kg
Mackintosh, 1,3 kg................................ 1.599 nýtt 1.230 kg
ESSÓ-stöðvarnar
Gildir 1.–30. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
Nói Tröllatópas, saltlakkrís, 60 g ............. 99 115 1.650 kg
Nói Risa Tópas, 60 g .............................. 99 115 1.650 kg
Nói Eitt sett, 23 g .................................. 49 65 2.140 kg
Nói Tromp innpakkað, 20 g..................... 25 35 1.250 kg
Kexsmiðjan, vínarbrauð, 300 g ............... 329 380 1.100 kg
Trópi appelsínu, 330 ml plastflaska ........ 95 110 288 ltr
UPPGRIP-verslanir OLÍS
Nóvember tilboð nú kr áður kr. mælie.
Egils orka 0,5 ltr. ................................... 129 150 258 ltr
Kaffi Gevalia, 250 g............................... 165 195 660 kg
Läkerol, 3 teg. ....................................... 65 85 65 pk.
11-11-búðirnar
Gildir frá 15.–21. nóv nú kr. áður kr. mælie.
SS forst. nautaschnitz. í raspi, 20% afsl. .. 1.038. 1.298 1.038 kg
SS beikonbollur steiktar, 20% afsl........... 799 999 799 kg
SS pylsur 10 st. + myndband ................. 799 nýtt
SS birkireyktur hangiframp., 25% afsl. ..... 1.042 1.389 1.042 kg
Kjörís sprengipinnar heimilspakkning ...... 239 398 30 st.
Kjörís súperflaug heimilispakkning .......... 239 388 30 st.
Freyju hrís, 120 g .................................. 169 206 710 kg
Orangina appelsínusafi, 250 ml.............. 49 66 196 ltr
FJARÐARKAUP
Gildir 15.–17. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
Brauðskinka frá Kjarnafæði .................... 599 1.098 599 kg
Skinkubúðingur frá Kjarnafæði................ 499 725 725 kg
Hangiframpartur, úrb., frá Kjarnafæði ...... 1.198 1.635 1.198 kg
Hangilæri, úrbeinað, frá Kjarnafæði......... 1.499 1.998 1.499 kg
Saltað hrossakjöt frá Kjarnafæði ............. 349 598 349 kg
10-11-búðirnar
Gildir 16.–18. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
Græn epli ............................................... 149 229 149 kg
Oetker Pizza Salami + Pepsi 2 l................. 499 653
Oetker Pizza Hawaii + Pepsi 2 l ................. 499 653
Oetker Pizza Speciale + Pepsi 2 l .............. 499 653
Bayonne-skinka ...................................... 899 1.259 899 kg
NETTÓ
Gildir frá 15. nóv. (meðan birgðir endast) nú kr. áður kr. mælie.
Kalkúnn, 1. fl. ....................................... 599 nýtt 599 kg
Ferskur kjúklingur 1/1 ........................... 399 665 399 kg
Jólamalt, 500 ml ................................... 69 nýtt 138 ltr
Nettó nautahakk ................................... 809 899 809 kg
Hríspoki „flóð“, 200 g ............................ 279 293 1.395 kg
Búrfells hamborgarhryggur ..................... 998 1.248 998 kg
Rúbín, rauður, 500 g.............................. 339 369 678 kg
Freyju Villiköttur, salthnetu, 50 g............. 59 74 1.380 kg
SELECT-verslanir
Gildir 1.–28. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
Freyju lakkrís draumur stór ..................... 79 110
Toms súkkulaðistykki, 28 g, 4 teg............ 49 65
Pingvin lakkrísstangir, 27 g..................... 35 45
Findus pan buff m/lauk, 400 g............... 229 435
Findus schnitz. cordon bleu, 400 g ......... 239 449
HAGKAUP
Gildir 15.–21. nóv. nú kr. áður kr. mælie.
Gæðagrís, hamborgarhryggur ................. 999 1.398 999 kg
Goði, gourmet lambaofnsteik.................. 999 1.395 999 kg
Goði, gourmet hunangsofnsteik .............. 999 1.395 999 kg
Óðals ungnautapiparsteik ...................... 1.599 2.067 1.599 kg
Kjarnafæði, lambalærisneiðar í raspi ....... 899 1.489 899 kg
Kjarnafæði, lambakótilettur í raspi .......... 899 1.249 899 kg
Kjörís, mjúkís ........................................ 298 378 298 ltr
Elitesse súkkulaði, 3+1 frítt .................... 119 159
Mávastellskaffi, 500 g ........................... 298 359 596 kg
ÞÍN VERSLUN
Gildir 15.–21. nóv. nú kr. áður kr. mælie
Frönsk ofnsteik...................................... 1.116 1.395 1.116 kg
Svissnesk ofnsteik ................................. 1.038 1.298 1.038 kg
Freschetta pítsur, 380 g ......................... 439 487 1.133 kg
Hvítlauksbrauð, 175 g ........................... 99 138 564 kg
Marabou rúllur, 4 teg., 73 g.................... 89 99 1.210 kg
Ajax gluggaúði, 500 ml .......................... 269 299 538 ltr
Ajax hreingerningarlögur, 750 ml ............ 209 276 271 ltr
Helgartilboð
Verðupplýsingar sendar frá verslunum
Afsláttur af eplum. Hangikjöt víða á tilboðsverði
ATHYGLI lesenda er vakin á því
að helgartilboð verslana taka ým-
ist gildi á fimmtudögum eða föstu-
dögum og standa jafnframt mis-
lengi, í sumum tilvikum meðan
birgðir endast.
Gildistími
tilboða er
mismunandi
„Mánaðarskammtur af matvörum
kostaði 15.487 kr. á mann í meðal-
körfu en 14.049 kr. í hollustukörfu.
Hollustukarfan reyndist því 9,3%
ódýrari. Einstakir liðir voru þó
hærri í hollustukörfunni, ekki síst
grænmeti og ávextir, sem vega mjög
þungt þar. Grænmeti kostaði 2.025
kr. á mann í hollustukörfu en 1.007
kr. í meðalkörfu. Samtals var kostn-
aður vegna grænmetis, ávaxta og
kartaflna 30% af verði hollustukörfu
en 16% af meðalkörfu,“ segir enn-
fremur í niðurstöðum.
Heildarkostnaður við
matarkaup sagður mjög hár
Aðrir liðir voru lægri í hollustu-
körfu, segir ennfremur, og munaði
mest um minni útgjöld vegna syk-
urs, sælgætis og gosdrykkja sem
voru 1% af hollustukörfu en 16% af
meðalkörfu. Einnig var minna af
kjöti í hollustukörfu og hafði það
áhrif á heildarverðið.
Í hvorugri körfunni voru tilbúin
matvæli, krydd eða áfengir drykkir.
Eins var ekki gert ráð fyrir að matur
færi til spillis eða væri hent. „Í ljósi
þessa er heildarkostnaður við mat-
arkaup mjög hár, eða 61.948 kr fyrir
fjögurra manna fjölskyldu með með-
alkörfu og 56.196 kr með hollustu-
körfu.“
Báðar körfurnar innihalda jafn-
margar hitaeiningar, eða um 2.000 á
dag, sem er nokkurn veginn meðal-
þörf allra aldurshópa. „Flestir karlar
og ungt fólk þurfa að borða töluvert
MÁNAÐARSKAMMTUR úr mat-
arkörfu sem sett er saman sam-
kvæmt skilgreindum hollustumark-
miðum kostar að meðaltali rúmum
9% minna en matarkarfa sem miðuð
er við meðalneyslu, samkvæmt at-
hugun Manneldisráðs og ASÍ. Könn-
unin var gerð í átta helstu matvöru-
verslunum á höfuðborgarsvæðinu,
sem samtals hafa 94% markaðshlut-
deild, hinn 15. október síðastliðinn.
Reiknað var vegið meðalverð hverr-
ar vöru í samræmi við markaðshlut-
deild verslana og valin ódýrasta teg-
und hverrar vöru í öllum verslunum.
Í niðurstöðunum segir að það
kosti 4.068 kr. á mánuði að fylgja
ráðleggingum um 500 g af grænmeti,
ávöxtum og kartöflum á dag og 2.025
kr. á mánuði, eða 72 kr. á dag, að
fylgja ráðleggingum um 200 g af
grænmeti á dag. „Grænmeti, ávextir
og kartöflur eru 16% af heildarverði
meðalkörfu en 30% af verði hollustu-
körfu,“ segir einnig.
Um tilurð könnunarinnar segir að
nokkur umræða hafi verið um hátt
verð á ýmsum hollustuvörum og því
hafi Manneldisráð og ASÍ afráðið að
kanna kostnað við að fylgja ráðlegg-
ingum um hollt mataræði með fyrr-
greindum hætti.
meira en sem þessu nemur, en marg-
ar konur og börn þurfa heldur
minna. Í hollustukörfunni er magn
allra bætiefna, fitu, próteina, sykurs
og trefjaefna í samræmi við mann-
eldismarkmið og ráðleggingar. Með-
alkarfan endurspeglar hins vegar
meðalneyslu samkvæmt könnunum
Manneldisráðs og fæðuframboði.
Magn sykurs og fitu, einkum mett-
aðrar fitu, er því mun minna í holl-
ustukörfunni, en þess í stað er held-
ur meira af próteinum og heildar-
kolvetnum. Hollustukarfan er
þyngri og vegur um 46 kg á mann
fyrir utan drykki en meðalkarfan
35,5 kg. Með drykkjarföngum eru
aðföng til heimilis um 200 kg á mán-
uði fyrir fjögurra manna fjölskyldu.“
Ekki gert ráð fyrir sælgæti
og gosdrykkjum
Ríflega 500 grömm af grænmeti,
ávöxtum og kartöflum lenda í holl-
ustukörfu á dag, þar af um 200 g af
grænmeti, 200 g af ávöxtum og 100 g
af kartöflum. „Gert er ráð fyrir að
fisk- og kjötmáltíðir séu hvor um sig
tíu sinnum í mánuði og grænmetis-,
pasta eða baunaréttir átta sinnum.
Þessi skipan mála þarf þó ekki að
vera neitt náttúrulögmál, til dæmis
er hægt að fá öll nauðsynleg nær-
ingarefni með því að borða mun
minna kjöt, en þá þarf að auka aðrar
prótein- og járnríkar vörur í staðinn.
Um 600 g af mjólk og mjólkurvörum
eru í hollustukörfunni á dag en
mjólkin er að mestu leyti fitulítil.
Fyrir þá sem ekki þola mjólk er valin
sojamjólk en hún er hins vegar mun
dýrari en venjuleg mjólk og er ekki
gert ráð fyrir þeim kostnaði hér.
Kornmaturinn er fyrirferðarmikill,
gert er ráð fyrir 5 brauðsneiðum á
dag, auk morgunkorns, múslís, hrís-
grjóna og pasta. Mesti munurinn á
körfunum tveimur er að í hollustu-
körfu er ekkert sælgæti eða gos en
þess í stað meira af grænmeti, ávöxt-
um, mögrum mjólkurvörum og korn-
mat. Þeir sem borða grænmeti og
ávexti samkvæmt ráðleggingum en
leyfa sér jafnframt að borða einhver
sætindi, borga því væntanlega enn
hærri matarreikning,“ segir að síð-
ustu í könnun ASÍ og Manneldis-
ráðs.
Hollustufæði
um 9% ódýrara
en meðalfæði
Töflur birtar með leyfi Manneldisráðs og ASÍ
Magn í hvorri matarkörfu um sig í mánuð mælt í kílóum á mann.
STARFSFÓLK Nettó-verslananna
kveðst komið í jólaskap og nú í dag
hefjast tilboð á matvörum sem tengj-
ast jólahaldi, samkvæmt upplýsing-
um frá Nettó. „Boðið er upp á kalkún
og hamborgarhrygg á hreint ótrú-
legu verði, auk þess sem afsláttur er
veittur af jólamalti. Nú borgar sig
svo sannarlega að frysta,“ segir El-
ías Þór Þorvarðarson innkaupastjóri
hjá Nettó.
Aðrar tilboðsvörur um helgina hjá
Nettó eru heill, ferskur kjúklingur
frá Íslandsfugli með 40% afslætti og
Nettó-nautahakk með 10% afslætti.
Morgunblaðið/Þorkell
Nettó býður afslátt af heilum kalkúni, hamborgarhrygg og jólamalti.
Ýmis jólamat-
ur á tilboðs-
verði í Nettó