Morgunblaðið - 15.11.2001, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 15.11.2001, Qupperneq 52
MINNINGAR 52 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Smári Aðal-steinsson fæddist í Reykjavík 20. júní 1946. Hann lést á Landspítala í Foss- vogi föstudaginn 9. nóvember síðastlið- inn. Smári var elstur þriggja barna for- eldra sinna, hjón- anna Aðalsteins Metúsalemssonar verkamanns, f. 12. maí 1915, d. 25. ágúst 1985, og Járn- gerðar Einarsdóttir húsmóður, f. 5. júlí 1924. Systkini Smára eru Regína, f. 24. desember 1947, og Leifur, f. 31. janúar 1960. Hinn 27. októ- ber 1973 kvæntist Smári eftirlif- andi eiginkonu sinni, Sigrúnu Þorbjörnsdóttur. Börn þeirra eru: 1) Ásta Bára, f. 11. septem- ber 1974, sonur hennar og Magn- úsar Helgasonar, f. 27. júlí 1969, er Smári, f. 11. októ- ber 2000; 2) Aðal- steinn, f. 30. júlí 1977, unnusta hans er Hrefna Ýr Guð- jónsdóttir, f. 13. maí 1983. Fósturdóttir Smára er Sigríður B. Hreggviðsdóttir, f. 20. nóvember 1970. Eiginmaður hennar er Steinar Ö. Bergmann, f. 10. október 1970. Synir þeirra eru: Axel Hafþór, f. 6. ágúst 1995, Arnar Ingi, f. 26. maí 1998, og Daníel Sigurbjörn, f. 16. ágúst 2000. Smári vann lengst af hjá Síld- ar- og fiskimjölsverksmiðjunni á Kletti. Útför Smára verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi, stórt skarð hefur nú myndast í hjarta mitt. Hugs- unin um að sjá þig ekki oftar er svo fjarlæg. Ég trúði allt fram á hinsta dag að þú myndir sigrast á þessum erfiðu veikindum. Þú barð- ist svo hetjulega í öll þessi ár, kvartaðir aldrei fyrr en í fulla hnefana. Þú varst svo mikill höfð- ingi, kraftur þinn og dugnaður virtist oft engum takmörkum háð- ur. Elsku pabbi, þú varst alveg einstakur faðir, kenndir mér svo margt um lífið, að hugsa vel um þá sem manni þykir vænt um og koma fram við náungann eins og maður vill að komið sé fram við mann sjálfan og síðast en ekki síst að betra sé að gefa en að þiggja. Þess vegna naustu mikillar virð- ingar bæði hjá fjölskyldu þinni og þeim sem höfðu kynnst þér vel. Þú varst ekki aðeins faðir minn held- ur varstu minn besti trúnaðarvin- ur og félagi. Það var svo gott að leita til þín því þú varst svo trygg- ur og vitur enda gastu alltaf gefið mér góð ráð um hin ýmsu mál. Við áttum svo margar dýrmætar stundir saman og það er mér í fersku minni öll sumrin sem fjöl- skyldan fór saman keyrandi austur í þjóðgarðinn í Skaftafelli, þar tjölduðum við og áttum yndislegar stundir. Það eru svo margar stundir sem við áttum saman, eins og þegar ég hringdi ósjaldan í þig til að spyrja þig að einhverju sem átti nú bara að taka stutta stund en endaði svo í tveggja tíma sam- tali um fótbolta, bíla og allt mögu- legt svo þegar samtalinu lauk fatt- aði ég svo oft að ég hafði gleymt að spyrja þig um það sem ég upp- haflega ætlaði að spyrja þig um, en svona vorum við bara. Þær verða nú ekki allar taldar upp hérna stundirnar sem við áttum saman en þær mun ég geyma vel í hjarta mínu. Eftir allt sem þú hafðir gefið mér, elsku pabbi, gat ég loks gefið smá til baka því í október fyrir rúmu ári kom mikill sólargeisli inn í líf þitt þegar sonur minn og nafni þinn leit dagsins ljós. Hann veitti þér svo mikla gleði og ánægju í þínum erfiðu veikindum. Elsku pabbi, ég kveð þig með miklum söknuði og þakklæti fyrir samfylgdina. Ég hlakka til að sjá þig aftur þegar minn tími mun koma. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Megi Guð varðveita þig og styrkja okkur hin. Þín dóttir. Ásta Bára. Elsku pabbi. Sú stund sem ég hef svo lengi kviðið fyrir er nú runnin upp. Ég trúi ekki að þú sért farinn. Síðastliðnir mánuðir voru mjög erfiðir. Heilsu þinni hrakaði mjög af völdum þessa slæma sjúkdóms sem erfitt er að berjast við. Ég hefði aldrei ímyndað mér hversu erfitt það er að missa eigin föður. Við áttum svo margar góðar stundir saman. Ég er þó þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum saman, þótt stuttur væri. Við átt- um bara svo mikið eftir að gera saman. Það var svo gaman að vera með þér, þú gerðir allt svo skemmtilegt, eins og ferðalögin okkar á sumrin og þegar kom að laugardögum rúllaði enski boltinn. Það var svo gaman er við sátum og horfðum á með popp og kók. Og þú alltaf sami harði Leedsarinn. Ég gleymi því ekki hvað þú varst alltaf jafn snyrtilegur til fara. Eins og bíllinn þinn sem þú hugsaðir svo vel um eins og hann væri litla barnið þitt. Pabbi minn, núna ertu hættur að þjást og kveljast eftir öll þessi veikindi sem tóku á okkur öll. Núna ertu kominn þangað sem pabbi þinn er. Hann mun hugsa vel um þig þangað til við munum hittast aftur. Lífið er ekki alltaf eins og maður vill hafa það. Ég elska þig, sakna þín og mun aldrei gleyma þér. Ég hef svo mikið af þér lært. Guð geymi þig. Aðalsteinn. Þá er kveðjustundin komin, miklu fyrr en ég hefði haldið og langar mig að minnast föður míns í fáeinum orðum. Hann var búinn að berjast við illvígan sjúkdóm í lang- an tíma og átti maður von á því að hann fengi að fara. En nú þegar hann hefur fengið hvíldina góðu er erfitt að hugsa sér tilveruna án hans. En mín mesta huggun er að nú kvelst hann ekki lengur. Aldrei heyrði ég hann kvarta og alltaf var stutt í grínið. Hann var rólyndur og fastur fyrir á sanngjarnan hátt, en umfram allt yndislegur faðir. Ég trúi því að við eigum eftir að hittast einhvern tíma á yndislegum stað. Þá tökum við upp spjall að nýju. Bið ég guð að vaka yfir móður minni, ömmu, systkinum mínum og barnabörnum hans og styrkja þau í sorginni. Þau hafa misst mik- ið. Við Steinar kveðjum nú ástkær- an föður minn með söknuði. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sigríður. Elsku Smári minn. Við sem vorum orðin svo góðir vinir, en þú varst búinn að berjast svo lengi við þennan sjúkdóm, varst búinn að vera svo sterkur í þessari hetjulegri baráttu þinni þar sem ekki bar á voli og víli, hálfvelgju eða hiki. Þú leyst á veikindin sem verkefni sem þú þyrftir að leysa og ýttir frá þér allri vorkunnsemi. En nú er bar- áttunni lokið og þú ert kominn yfir móðuna miklu. Þótt kynni okkar yrðu ekki lengri en þetta tókst með okkur besti vinskapur. Við sátum oft saman á morgn- ana og töluðum um allt milli him- ins og jarðar, þú sast alltaf með bakið að ofninum með Elvis P boll- ann sem ég gaf þér og tókst þér góðan tíma í að velja úr mola í sykurkrúsinni, svo héldum við áfram að spekúlera í hlutunum. Ég trúi ekki að þú sért farinn, það var svo notalegt að koma heim úr skólanum og þú varst heima, stóðst við helluna að laga þér blómkálssúpu og settumst við þá niður í rólegheitunum og sötruðum hana. Að ég nú ekki tali um það þegar við vissum af stóra pottinum inni í ísskáp með kjötsúpunni hennar Sigrúnar. Við hefðum get- að lifað bara á henni og alltaf göntuðumst við með það, afhverju Alli og Ásta fengust ekki einu sinni til að smakka. En ætli við höfum ekki bara verið ánægð með það er upp var staðið, þá fengum við bara meira. Við vorum bæði sammála um það að betri mat væri vart hægt að fá. Það voru ófá kvöldin sem við sátum inni í stofu og horfðum á myndband úr sorpu einsog þú kall- aðir myndbandasafnið þitt. Þá komstu inn í herbergi, réttir mér hulstrið og sagðir að nú yrði myndbandskvöld. Ég á svo góðar minningar með þér sem ég mun aldrei gleyma. Síðustu dagana lástu svo mátt- vana á spítala og kom ég þá og sat hjá þér. Þú varst algjör Leeds-ari, það síðasta sem við Alli sögðum þér var að Leeds væri í efsta sæti og þú jánkaðir því. Elsku Smári minn, það er svo margt sem ég get rifjað upp, bíla- sölurúntinn okkar og fleira og fleira. En núna ertu kominn á betri stað og þér líður vel. Ég bið að heilsa mömmu ef að þú hittir hana þarna og Guð blessi minn- ingu þína, Smári minn. Hvíl þú í friði. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. (Vald. Briem.) Þín tengdadóttir, Hrefna Ýr. Elsku Smári minn, ég vil byrja á að þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem þú hefur gefið mér og okkur öllum. Það var yndislegt að hafa kynnst þér. Ég man ekki eftir svo rólegu og góðu barni. Að fá svo að eyða síðustu vikunum með þér, heima hjá mér, var mér ómet- anlegt. Það var mikið áfall þegar krabbameinið tók sig upp aftur en baráttan fyrir lífinu fékk nýjan til- gang þegar nafni þinn fæddist; ljós í myrkrinu. Það var alveg sama hvernig þér leið, þú gast alltaf fundið ástæðu til að gantast yfir einhverju. Nú ertu farinn til fund- ar við föður þinn og við söknum þín öll. Ég þakka Sigrúnu og krökkun- um fyrir elskulegheitin og stuðn- inginn. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pétursson.) Ég hugsa til þín. Mamma. SMÁRI AÐALSTEINSSON                          ! " !         !!   "   ! # #  $    $ #%& '%((  !") *         %  &! "  ! "   '(       % )! " !*!++! ,$ -%    "     +     # #            ,-,.#%    //      -( -   .   %    ! "    #!     !!  ) 0 1! !  )         !! 2  23  2  2  2  # #      4%&%& '%((  5+ 4! 1  6" !+0 1 ! 0 1 1  "  /! "  ,$ -%        !! ) % 1!      ! # 0 1          2     , 1+0 ""!  6" ! & 6    0( -(  3  "  /! "  ) 8  !    !!     7  !      6 !!  3  !   $   !!     !   8  8!+ !! #             2     0$7% '%(( 4  29:             2    ! "  3  0 !! 8    3  !   1. )! !!  ;3  !  <+ 4#%#0 ! '  3  !   20 !2   ! 23  !  & 4 !! 2  23 #
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.