Morgunblaðið - 15.11.2001, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 15.11.2001, Qupperneq 56
Í KVÖLD verður mikil gleði á Ömmukaffi, sem er kaffihús í hjarta borgarinnar í Austur- stræti 20, því þangað mætir hljómsveitin Zealts. Það eru orkuríkar ungar stúlkur sem ætla að flytja kraftmikla gosp- el-tónlist fyrir gesti og gang- andi. Allir velkomnir meðan hús- rúm leyfir. Ömmukaffi verður opnað kl. 20 um kvöldið. Ömmukaffi og miðborgarstarf KFUM & K. Gospel í miðborginni Morgunblaðið/Jim Smart Langholtskirkja Þorvaldur Hall- dórsson í Lang- holtskirkju í kvöld GUÐSÞJÓNUSTA með léttri tónlist og hugvekju verður í Langholtskirkju fimmtudags- kvöldið 15. nóvember kl. 20.30. Þorvaldur Halldórsson söngvari mun leiða stundina ásamt prest- um kirkjunnar, en Þorvaldur hefur um árabil annast lof- gjörðarstundir í Laugarnes- kirkju sem og að syngja við guðsþjónustur í Kolaportinu. Allir eru að sjálfsögðu velkomn- ir til stundarinnar og á eftir verður boðið upp á kaffisopa. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14-17 í neðri safnaðarsal. Sönghóp- ur undir stjórn organista. Biblíulestur og fræðsla í safnaðarheimili Áskirkju kl. 20 í umsjá sóknarprests. Orð post- ulans, „allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir,“ höfð að leið- arljósi við íhugun orða ritningarinnar. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheim- ilinu kl. 14-16. Kaffi og með því á vægu verði. Ýmsar uppákomur. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili eft- ir stundina. Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Stúlknakór kl. 16.30 fyrir stúlkur fæddar 1989 og eldri. Stjórnandi Birna Björnsdóttir. Íhugun kl. 19. Taizé- messa kl. 20. Ath. breyttan tíma. Langholtskirkja. Foreldra- og barna- morgunn kl. 10-12. Fræðsla: Sam- skipti innan fjölskyldunnar. Þórunn Júl- íusdóttir, hjúkrunarfræðingur. Upp- lestur, söngstund, kaffispjall. Endur- minningarfundur karla kl. 14-15.30. Farið verður í heimsókn í Garðabæinn. Mætið tímanlega. Guðsþjónusta kl. 20.30. Þorvaldur Halldórsson söngvari syngur og leiðir stundina ásamt prest- um kirkjunnar. Allir velkomnir. Kaffisopi eftir stundina. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel kirkjunnar kl. 12-12.10. Léttur máls- verður í safnaðarheimili að stundinni lokinni. Samverustund eldri borgara kl. 14. Geir Jón Þórisson frá lögreglunni í Reykjavík ræðir löggæslumál borgar- innar og tekur lagið við undirleik Gunn- ars Gunnarssonar. Samvera er í hönd- um þjónustuhóps kirkjunnar, kirkju- varðar og sóknarprests. (Sjá síðu 650 í textavarpi.) Neskirkja. Nedó kl. 17. Unglingaklúbb- ur fyrir Dómkirkju og Neskirkju fyrir 8. bekk. Nedó kl. 20 fyrir 9. bekk og eldri. Umsjón Bolli og Sveinn. Félagsstarf aldraðra laugardaginn 17. nóvember kl. 14. Farin verður kynnisferð í heilsu- ræktarstöðina Planet Pulse í Austur- stræti. Eftir ferðina verður borinn fram léttur málsverður í safnaðarheimili Neskirkju. Þeir sem ætla að neyta mat- arins þurfa að tilkynna þátttöku til skrif- stofu kirkjunnar í síma 511 1560. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson. Reykjavíkurprófastsdæmi og leik- mannaskóli kirkjunnar. Boðið verður upp á biblíulestra þar sem tekin verða fyrir ákveðin þemu í Biblíunni og þau sett í samhengi við prédikunartexta kirkjuársins. Sjö dagsverk. Fjallað verð- ur um sköpun heimsins samkvæmt fyrstu Mósebók. Átta skipti í Breiðholts- kirkju kl. 20-22. Kennari dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Árbæjarkirkja. Barnakóraæfing kl. 17- 18. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstudag kl. 10-12. Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl. 12. Fyrirbænaefnum má koma til kirkjuvarða. Léttar veiting- ar eftir stundina. Fella- og Hólakirkja. Helgistund og biblíulestur í Gerðubergi kl. 10.30-12 í umsjón Lilju djákna. Starf fyrir 9-10 ára stúlkur kl. 17. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir og ýmiss konar fyrir- lestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Kirkjukrakkar í Húsa- skóla fyrir 7-9 ára börn kl. 17.30- 18.30. Æskulýðsfélag í Grafarvogs- kirkju fyrir 8.-9. bekk kl. 20-22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf með eldri borg- urum í dag kl. 14.30-16.30 í safnaðar- heimilinu Borgum. Kyrrðar- og bæna- stund kl. 17. Fyrirbænaefnum má koma til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. KFUM fundur fyrir stráka á aldrinum 9-12 ára kl. 16.30. Vídalínskirkja. Umræðu- og leshópur starfar í safnaðarheimilinu kl. 20-21. Biblíu- og trúfræðsla fyrir alla. Kyrrðar- stund í kirkjunni kl. 21. Ath. breyttan tíma. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing og fyrirbænir. Bænarefnum má koma til presta kirkjunnar og djákna. Hressing í safnaðarheimili eftir stundina. Allir vel- komnir. Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safnaðarheimili Strandbergs, kl. 10- 12. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í safn- aðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17-18.30. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 10-12 ára börn (TTT) í dag kl 17. Foreldra- stund kl. 13-15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra með ung börn að koma saman og eiga skemmtilega samveru í safnaðarheimili kirkjunnar. Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Varmárskóla á fimmtudögum frá kl. 13.15-14.30. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Landakirkja: Kl. 10 mömmumorgunn. Engar vöfflur. Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbún- ingur í Kirkjulundi kl. 14.30-15.10, 8. MK í Heiðarskóla. Kl. 15.15-15.55 8. SV í Heiðarskóla. Fundur fyrir þá sem misst hafa ástvini sína í sjálfsvígum verður haldinn í Kirkjulundi í kvöld kl. 20.30. Kvikmyndasýning og umræða um einveruna. AD KFUM, Holtavegi 28. Fundur í kvöld kl. 20. Biblíulestur í umsjá Kristjáns Búasonar. Þórður Búason hefur upp- hafsorð og syngur einsöng. Allir karl- menn velkomnir. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir velkomnir. Safnaðarstarf MINNINGAR 56 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF ✝ GuðmundurBjarnason fædd- ist 9. júlí 1927. Hann lést 6. nóvember síð- astliðinn. Hann var þriðji í röð 10 barna þeirra Bjarna Þor- leifssonar, f. 20.8. 1892, d. 23.6. 1977, og Lússíu Guð- mundsdóttur, f. 3.3. 1898, d. 1.10. 1997. Þau bjuggu lengst í Viðborðsseli á Mýr- um. Önnur börn þeirra voru: Þorleif- ur, f. 31.5. 1924, d. 26.6. 1924, Þóra, f. 28.4. 1925, Halla, f. 24.2. 1930, Sigurjón, f. 15.4. 1932, Snorri, f. 12.10. 1933, Óskar, f. 6.5. 1935, d. 30.6. 1935, Bergur, f. 4.4. 1936, Guðrún, f. 22.7. 1941, og Arnar Haukur, f. 3.7. 1947. Auk þessara barna átti Bjarni son fyrir hjónaband, Karl Ágúst, f. 18.8. 1919. Guðmundur kvæntist 16. júní 1955 Sigríði Ólafsdóttur í Holtahólum, f. 13.12. 1928. Hún er yngst átta barna hjónanna í Holtahólum, Ólafs Einarssonar, f. 26.2. 1885, d. 25.3. 1952, og Önnu Pálsdóttur, f. 16.3. 1888, d. 14.11. 1974. Börn þeirra Guðmundar og Sig- ríðar eru: Ólöf Anna, bóndi á Hala í Suðursveit, f. 15.8. 1952, óskírð dóttir f. 10.6. 1954, lést í fæð- ingu, Einar Bjarni, sjómaður á Höfn, f. 23.1. 1956, Víðir, bóndi í Holtahólum, f. 6. 6. 1959, og Lúcía, skrifstofu- maður í Reykjavík, f. 15.8. 1963. Guðmundur og Sigríður tóku við búi í Holtahólum 1952 eftir lát Ólafs, föður Sigríðar. Þar bjuggu þau þangað til þau brugðu búi 1988 og fluttu að Hólabraut 4 á Höfn. Guðmundur vann í Slátur- húsinu á Höfn meðan heilsa leyfði og Sigríður vann á Skjólgarði til starfsloka. Útför Guðmundar fer fram frá Hafnarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Jarðsett verð- ur á Brunnhóli á Mýrum. Óhætt er að segja að sveitirnar vestan Hornafjarðarfljóta hafi verið með afskekktari byggðum landsins fram yfir miðja 20. öld. Brýr yfir Fljótin og Jökulsá á Breiðamerkur- sandi rufu þá einangrunina svo um munaði. Fram að því urðu menn að treysta eigin útsjónarsemi, reyndum vatnahestum og loks bílum þegar sú öld gekk í garð. Hestar og menn lög- uðu sig hvorir tveggja að aðstæðun- um með því að læra á brot og ála í vötnunum en mannfólkið lærði auk þess að sætta sig við mislynd nátt- úruöfl og búa að sínu. Hjálpsemi var lífsnauðsyn og geðbótin fólst í þeirri fornu speki að maður er manns gam- an. Það var mikil heppni að fá að vera sumarvinnumaður í Holtahólum á Mýrum þegar þau voru að hefja bú- skap á 6. áratugnum, Guðmundur Bjarnason, sem hér er kvaddur, og Sigríður frænka mín. Enn var farið á engjar og heyjað með gamla laginu að mörgu leyti. Tæknin lét á sér kræla með dráttarvélum og öðru fjöl- múlavíli nútímans. Framleiðslan óx að vísu en tók ekki stakkaskiptum, kvóti í landbúnaði var óþekkt hug- mynd. Tækninni fylgdi bjartsýni en hún kom ekki með leiftursókn, hest- urinn var enn um sinn þarfur þjónn og kúasmalinn mesta þing ef ég man rétt. Og ef norðanrokið ætlaði að svipta þurru heyi út í buskann birt- ust hjálpsamir frændur og vinir af öðrum bæjum og söxuðu töðuna í vindþolin föng. Þegar uppbygging fór verulega af stað á bæjum með nýjum íbúðarhúsum, hlöðum og gripahúsum unnu sveitungarnir í hinum gamla anda, bjuggu til vinnu- flokka úr sjálfum sér og fóru bæ af bæ, stundum vikum saman á milli vorverka og sláttar. Sumarmaðurinn sem hér segir frá fékk stundum að taka þátt í þessum vinnuhátíðum og þóttist sjá að Guðmundur húsbóndi hans gegndi forystuhlutverki, fljót- virkur smiður og harðduglegur í öll- um verkum. Á búskaparárum Guðmundar bjuggu margir Mýramenn blönduðu búi sem kallað er, einkum fyrri árin. Flestir fengust við rófnarækt og kartöflurækt, höfðu kýr fyrir heim- ilið en einnig seldu margir mjólk þegar fram í sótti. Tvímælalaust hafði Guðmundur mest gaman af fjárbúskap og stundaði hann ein- göngu mörg síðustu árin. Hann var fjárglöggur og þekkti kind af kind, þ.e. sá með þeim ættarmót, jafnvel af löngu færi. Kaupstaðarfólki finnst ótrúlegt þegar fjármaður fer nærri um hvaða kind það er sem er varla stærri en depill í fjarlægð. En athug- ull bóndi veit hvar kindin hefur geng- ið sem lamb og hvar hverri skepnu þykir best að vera. Slík nákvæmni og nærfærni við féð skilar sér í rækt- unarstarfinu, enda varð fjárstofn Guðmundar þekktur og hrútar frá honum eftirsóttir til kynbóta. Þegar ég spurði eitt sinn heldur ófróðlega hvernig á því stæði að flestallar ær hans væru tvílembdar svaraði hann ekki í löngu máli en lækkaði röddina: „Ræktun, maður, ræktun!“ Nú munar ekki á sama hátt um mannsliðið við sveitabúskap og áður var. Helst þyrftu léttadrengir að hafa próf á þungavinnuvélar ef þeir ættu að nýtast við sveitastörfin. En það var gaman að vera undir stjórn Guðmundar í Holtahólum við bú- störfin. Varla getur neitt starf verið fjölbreyttara en sumarvinna í sveit var fyrir 40-50 árum. Guðmundur – Gummi eins og flestir kunnugir nefndu hann – gætti þess að sum- arstrákurinn fengi að prófa sitt lítið af hverju, setti honum oft fyrir ein- hver verk sem þó sá fyrir endann á. Það var varla mikill búhnykkur að því að láta það eftir mér að útbúa hæfilega stórt orf svo að ég gæti slegið í útjörð en alltaf hugsa ég hlý- lega um svæðurnar í Grænukeldu eftir þann heyskap! Það gleymist heldur ekki að hafa setið í nýhirtu heyi í hlöðunni í ágúst og hlustað á Gumma, ungan bóndann, velta fyrir sér næstu skrefum við að stækka bú- ið. Trúlega var hann aðallega að hugsa upphátt en ég lengdist um spönn við sýndan trúnað og tel að ég hafi haft jafnmikinn áhuga á við- gangi búsins og bóndinn sjálfur! Og það var ekki hversdagsleg reynsla að sitja norðan undir í Holtahólunum og láta Gumma vísa til kennileita lengst inni í fjöllum, þar sem hann var þaul- kunnugur gangnamaður. Líklega var hann að líta eftir kindum í hug- anum. Gaman væri að eiga eftir að koma inn á Flár, Sannmerkisheiði eða inn á Fossa. Eða sjá ofan í Vatns- dal þar sem almestu fjallafálurnar héldu sig. Guðmundur í Holtahólum var vel meðalmaður á hæð, holdgrannur en snar verkmaður. Hann var ekki heilsugóður síðustu árin en var alltaf harður af sér og ókvartsár. Hann hafði auga fyrir spaugi og kunni margar smáskrýtnar sögur af atvik- um og frumlegu fólki sem talsvert var af í Hornafirði. Hann gat vel brugðið fyrir sig að herma eftir rödd- um og látbragði skemmtilegra karla eða kerlinga og einstaka þeirra þekki ég aðeins í hans endurgerð. Að leiðarlokum þakka ég Guð- mundi fyrir uppeldið og samfylgdina. Sigríði frænku minni og börnum þeirra sendi ég hlýjar samúðarkveðj- ur. Bjarni Ólafsson. GUÐMUNDUR BJARNASON Úlfar Kristmunds- son kom til kennslu í Verslunarskólanum árið sem við félagarnir hófum nám í öðrum bekk haustið ’63. Við höfðum því heils árs forskot á hann í innviðum skólans og launhelgum en allt kom fyrir ekki. Úlfar Kristmundsson náði strax tökum á nemendum sín- um og hélt þeim á 38 ára kennslu- ferli. Af honum gustaði eins og stormsveip. Okkur þótti fyndið að hann skyldi vera prestlærður mað- ur en gamanið kárnaði þegar cand theól lét okkur standa upp fyrir sér í byrjun kennslustunda eins og í hernum. Í þá daga stóðu menn bara upp fyrir dr. Jóni Gíslasyni skóla- stjóra og svo forseta landsins á ÚLFAR EINAR KRISTMUNDSSON ✝ Úlfar EinarKristmundsson fæddist í Reykjavík 30. ágúst 1929. Hann lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 11. október síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 19. október. frumsýningum í Þjóð- leikhúsinu. Þarna fundum við nýjar vídd- ir hjá almættinu á Grundarstígnum við rætur Hallgríms- kirkju. Í öðrum lönd- um hefði Úlli frændi líklega orðið herprest- ur með reiknistokk að vopni. Steininn tók svo úr þegar glænýr kenn- arinn lét okkur sópa ganginn í refsingu fyr- ir að reykja í skólahús- inu. Reifir vígamenn sómdu sér ekki á morgni lífsins með sóp í hendi. Úlf- ar Kristmundsson byrjaði fljótt að taka málin í sínar hendur og hélt sínu striki fram í andlátið. Og í framhaldslífinu ræður hann eflaust sínum næturstað. Af Úlfari Kristmundssyni má gera þrjá menn hið minnsta eins og úr forvera hans Gissuri byskup Ísleifssyni og var Úlfar jafnvígur á þau hlutverk öll sömul: Kenni- maður, kennari og ekki síst kaupmaður. Hann var raunar líka bæði húsvörður skólans og til- sjónarmaður okkar nemenda ef því var að skipta. Við fundum strax bjarnarylinn sem lagði af sérhverj- um þeirra röggsömu manna sem gengu í daglegu tali undir safnheit- inu Úlfar Einar Kristmundsson eða af þeim öllum saman í einu: Kenni- maðurinn opnaði leiðina að hjarta nemandans á meðan lærifaðirinn sáði frækornum tölfræðinnar og kaupmaðurinn tengdi prósentuna við lífið á bak við búðardiskinn. Úlf- ar Kristmundsson var ekki bara venslaður nemendum sínum um Verslunarskóla Íslands heldur skuldbundinn þeim eins og hjálp- samur frændi utan úr bæ. Á kveðjustundu vitum við fé- lagarnir ekki ennþá hver þeirra úr söfnuðinum var hinn eini og sanni Úlfar Kristmundsson ef hann er þá til. Á kveðjustundu væri vel til fundið að biðja hann sjálfan að standa á fætur eins og við stóðum upp fyrir honum í gamla daga og segja deili á sér. Á kveðjustundu vitum við hinsvegar fyrir víst að ís- lensk verslunarstétt ber áfram svip af návistum við Úlfar Kristmunds- son í tæp fjörutíu ár. Ekki vitum við félagarnir þó hvort hann þjón- aði betur Guði sínum eða Mammoni en hitt er víst hann þjónaði okkur nemendunum allra best. Enginn varð fyrrverandi nemandi hjá Úlf- ari. Ástvinir hans eiga hug okkar all- an þessa dagana. Ásgeir Hannes, Gísli og Júlíus.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.