Morgunblaðið - 15.11.2001, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 57
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Vélavörður
Vélavörð vantar á Arnar Ár-55 (237 brt.).
Vélarstærð: 671kw. Skipið stundar dragnóta-
veiðar. Nánari upplýsingar gefur Örn í síma
483 3422 eða 898 3285. Kranamaður
Vanur kranamaður óskast á byggingakrana.
Vinnustaður Hafnarfjörður.
Upplýsingar í síma 897 2370, Gunnar.
Sölumaður fasteigna
Viltu vinna í spennandi og fjölbreyttu umhverfi
þar sem hæfileikar þínir geta notið sín til fulls?
Ef svo er þá leitar fasteignasala á höfuðborgar-
svæðinu eftir ungu, hressu og gefandi fólki sem
tilbúið er að vinna sjálfstætt.
Viðkomandi vinnur sjálfstætt að sölustörfum
og er starfið alfarið árangurstengt. Viðkomandi
þarf að hafa farsíma og bifreið til umráða.
Hér er um spennandi kost að ræða. Ert þú til í að
vinna á lifandi og líflegum vinnustað?
Umsóknir sendist til augl.deildar Mbl. eða á tölvu-
pósti augl@mbl.is, merktar: „Tækifæri — 0907.“
Viltu taka þátt í öflugu og framsæknu
skólastarfi?
Komast í fagurt umhverfi og gott mannlíf?
Menntaskólinn á Ísafirði
er skóli á tímamótum — þar eru nú lausar
4 kennarastöður um
næstu áramót
■ Danska ■ Raungreinar
■ Stærðfræði ■ Tölvufræði
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, þurfa að hafa borist skólanum
fyrir 20. nóvember merktar:
Menntaskólinn á Ísafirði,
pósthólf 97,
400 Ísafirði.
Upplýsingar veitirJón Reynir Sigurvinsson,
aðstoðarskólameistari, í síma 450 4402 eða
450 4400.
Skólameistari.
Sinfóníuhljómsveit
Íslands
auglýsir eftir
sellóleikara
til afleysinga frá 15. janúar
til 30. júní 2002
Skylduverkefni:
Klassískur sellókonsert, 1. þáttur m/kadensu,
J.S. Bach: Tveir þættir úr sólósvítu (hægur og hraður).
Umsóknarfrestur er til 14. desember
2001.
Hæfnispróf fer fram 14. janúar nk.
Laun skv. kjarasamningi Starfsmanna-
félags SÍ og fjármálaráðherra.
Umsókn og hæfnispróf gilda í eitt ár
(sbr. reglur um ráðningu hljóðfæraleikara, 9. gr.).
Nánari upplýsingar gefur starfsmanna-
stjóri.
Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Háskólabíói v/Hagatorg,
pósthólf 7052, 127 Reykjavík,
sími 545 2502, fax 562 4475.
tölvupóstur kristin@sinfonia.is .
Laust starf
Starf aðstoðarrannsóknarstjóra
flugslysa er laust til umsóknar
Ráðið verður í starfið frá og með 1. janúar 2002.
Tilskilið er að viðkomandi hafi menntun og/eða
starfsreynslu á sviði flugsins. Háskólapróf er
æskilegt. Gerð er krafa um góða ensku- og
tölvukunnáttu og að umsækjandi hafi hæfni
til þess að starfa sjálfstætt og í hópi.
Launakjör samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Rannsóknarnefnd flugslysa tók til starfa í lok
júní í samræmi við lög nr. 59/1996 um rann-
sókn flugslysa, en þá var flugslysarannsókna-
deild Flugmálastjórnar lögð niður, svo og
starfsemi flugslysanefndar, sem fyrst var
skipuð árið 1968 skv. þágildandi loftferðalög-
um.
Nefndin heyrir stjórnsýslulega beint undir sam-
gönguráðherra og starfar sjálfstætt og óháð
stjórnvöldum og öðrum rannsóknaraðilum,
ákæruvaldi og dómstólum.
Nánari upplýsingar veitir Halldór S. Kristjáns-
son, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu,
og Þormóður Þormóðsson, formaður rann-
sóknarnefndar flugslysa.
Umsóknum skal skila til samgönguráðuneytis-
ins, Hafnarhúsi v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík,
fyrir 23. nóvember 2001.
Reykjavík, 9. nóvember 2001.
Samgönguráðuneytið.
www.or.is
Orkuveita Reykjavíkur er
sjálfstætt þjónustufyrirtæki
í eigu Reykjavíkurborgar.
Orkuveitan dreifir rafmagni,
heitu vatni til húshitunar,
köldu vatni til brunavarna
og neysluvatni til notenda
í Reykjavík og nágrenni.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins
býr meira en helmingur
íslensku þjóðarinnar.
Fyrirtækið kappkostar að
veita viðskiptavinum sínum
bestu mögulegu þjónustu.
Orkuveita Reykjavíkur
stuðlar að nýsköpun og
aukinni eigin orkuvinnslu.
Athygli er vakin á því að
það er stefna borgaryfirvalda
að auka hlut kvenna í
stjórnunar- og ábyrgðarstöðum
á vegum borgarinnar, stofnana
hennar og fyrirtækjum
Orkuveita Reykjavíkur
Hönnunardeild
Orkuveita Reykjavíkur
óskar eftir að ráða vélaverkfræðing
eða véltæknifræðing í hönnunardeild
Starfssvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Hönnun á hita og vatnsveitudreifikerfi, þar
með talið dælustöðva, stofnæða og dreifikerfa
Verkefnastjórn í hönnunar- og framkvæmdaverkum
Menntun á sviði vélaverkfræði eða véltæknifræði
Æskileg þekking á AutoCad og landupplýsingakerfi
Gott vald á ensku og einu norðurlandamáli
Frumkvæði og hæfni í samskiptum
Nánari upplýsingar er að hafa á skrifstofu
Mannvals ehf. Hamraborg 1 Kópavogi og
á www.mannval.is
Umsóknarfrestur er til 23. nóvember n.k.
Sölustjóri
Heildsala á höfuðborgarsvæðinu, með vörur
aðallega fyrir konur, óskar eftir að ráða sölustjóra
í fullt starf. Tækifæri fyrir viðkomandi að taka
þátt í uppbyggingu og mótun.
Vinsamlega sendið svar til auglýsingadeildar
Mbl. eða á box@mbl.is í síðasta lagi laugar-
daginn 17. nóvember, merkt: „S — 110“.