Morgunblaðið - 05.02.2002, Page 22
22 C ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
FYRIR það fyrsta; ekki ervíst að allir séu með það áhreinu hvað varmaskiptirer, til þess er tæplega
hægt að ætlast. Varmaskiptir er
tæki sem notað er til að færa varma
úr einum vökva yfir í annan án þess
að bein blöndun verði.
Hérlendis eru þeir talsvert not-
aðir til að hita upp kalt vatn svo að
það verði að heitu kranavatni, þeir
eru einnig notaðir til að hita upp
frostlagarblöndu á snjóbræðslukerf-
um og til að hita upp vatn í gólf-
hitakerfum.
Þetta eru helstu notkunarsviðin
varðandi hitakerfi í og við hvers kon-
ar hús.
Sú var tíðin að varmaskiptar (sem
einnig eru kallaðir millihitarar eða
forhitarar) voru framleiddir hér inn-
anlands en það er liðin tíð. Á tímum
innflutningshafta reyndu menn að
bjarga sér og enn eru í notkun þessir
gömlu íslensku varmaskiptar í ein-
staka húsi.
Þeir voru oftast smíðaðir þannig
að búin var til langur sívalur kútur
og inni í honum voru spíralar, oftast
úr eirrörum og eftir þeim rann hita-
veituvatnið og hitaði upp vatnið sem
rann inn í hitakerfið.
Varmaskiptar nútímans
Þeir eru búnir til úr plötum úr
ryðfríu stáli. margar plötur hlið við
hlið sem eru lóðaðar saman í full-
komnum vélum, eftir það verða þeir
ekki opnaðir og þar kemur vandinn.
Eftir sumum rásunum rennur hita-
gjafinn, hjá okkur hérlendis hita-
veituvatn og um aðrar rásir vatnið
sem á að hita.
Það getur verið vatn í krana, vökvi
á snjóbræðslukerfi eða gólfhitakerfi.
En aftur að varmaskiptum nú-
tímans, þessum þrælútreiknuðu
tækjum, hannaðir af færustu verk-
fræðingum, fjöldaframleiddir við
fullkomnustu aðstæður úr úrvals-
efnum sem tryggja á geysigóða end-
ingu.
Þetta er líklega sú mynd sem
margir þeir, sem hanna hvers konar
hitakerfi hafa, eða það skyldi maður
ætla eftir því hve margir hönnuðir
drita varmaskiptum út um allt og
skapa með því, oft á tíðum, meiri
vandamál heldur en leyst eru.
Sumir hönnuðir hafa það fyrir
slæman sið að fyrirskipa og teikna
varmaskipta á öll snjóbræðslukerfi,
án þess að hugsa út í forsendur, að
því er virðist af vana eða vanþekk-
ingu.
Þeir ættu kannski að hugsa
svolítið um það að þeir eru oft að
leggja óþarfa kostnað á þann
sem þjónustu hans kaupir svo
skiptir tugum þúsunda, stundum
hundruðum þúsunda. Eftir situr
húseigandinn með sárt ennið, fer
auðvitað eftir þeim ráðlegg-
ingum sem hann fær frá sér-
fræðingi.
Hvað er á móti notkun
varmaskipta?
Stundum verður ekki komist
hjá því að nota varmaskipta en
það er ekki sama til hvers og við
hvaða skilyrði á að nota þá. Þeir
skila sínu hlutverki nokkuð vel
þegar þeir eiga að hita upp krana-
vatn en sumir mega ekki til þess
hugsa að fá hitaveituvatn úr sínum
fallegu blöndunartækjum.
Þá er verið að hita vatn upp í 60–
70°C með vatni sem er um 70°C heitt
en það er algengur hiti á hitaveitu-
vatni. Við slíka hitun er álíka vatns-
magn að streyma eftir báðum rásum
varmaskiptisins, vatnshraði hita-
veituvatnsins minnkar hættu á út-
fellingum, en útfellingar kallast það
þegar efni í hitaveituvatninu ein-
angrast, setjast á plötur varmaskipt-
isins og minnka færni hans til að
flytja varma úr heita vatninu í það
kalda.
Það eru allt aðrar forsendur þegar
varmaskiptar eru notaðir fyrir snjó-
bræðslukerfi. Þá er verið að nota
70°C heitt vatn til að hita vatn upp í
35°C og þá verður mikill munur á
rennsli í hólfunum og hætta á útfell-
ingum hitaveitumegin eykst stór-
lega.
Og það er einmitt að gerast í snjó-
bræðslukerfum með varmaskiptum,
þetta getur gengið svo langt að nán-
ast enginn varmi berist á milli hólfa,
úr einum vökva í annan.
Það þyrfti því að hanna og smíða
allt öðruvísi varmaskipta fyrir snjó-
bræðslukerfi, en því miður; það hef-
ur ekki verið gert ennþá.
Það er því áleitin spurning hvort
gömlu íslensku varmaskiptarnir séu
ekki heppilegri fyrir snjóbræðslu-
kerfi heldur en þessir fullkomnu,
innfluttu plötuvarmaskiptar. Þá
mætti jafnvel hanna og smíða þann-
ig að vatnsganga hitaveituvatnsins
mætti hreinsa.
Vandi fylgir varmaskiptum
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is
Varmaskiptar og plötur úr þeim.
EINBÝLI
LANGAFIT Einbýlishús með bílskúr ágóðum stað í Garðabæ. Húsið er
160 fm, ris er ekki talið með, og 27 fm
bílskúr. Vel skipulagt og huggulegt hús
með 8 herbergjum. Húsið er með sér-
íbúð í kjallara. V. 21,9 m. 1213
RAÐ-/PARHÚS
ENGJASEL Erum með í sölu 206 fmraðhús á góðum stað. Húsið er á
pöllum með 8 herbergjum, 3 svefnher-
bergjum. Parket og flísar á gólfum. Fal-
legar innréttingar. Stæði í bílskýli. V.
17,9 m. 1158
ESJUGRUND Erum með í sölu 113 fmendaraðhús með byggingarrétti
fyrir 29 fm bílskúr. Húsið er rúmgott
með þremur svefnherbergjum. Teppi
og dúkur á gólfum. Gengið er út í garð
úr stofu. Eldhús er með fallegri ljósri
eldhúsinnréttingu. Ákv. 7,6 m. V.
14,0 m. 1040
HULDUBRAUT - KÓPAVOGI Vorum aðfá í sölu mjög gott 210 fm parhús á
tveimur h. með innbyggðum bílskúr á
einum vinsælasta stað í Kópavogi.
Vandaðar innrétt., parket, flísar og dúk-
ur á gólfum. Fallegt útsýni. Eign sem
er vert að skoða. V. 23,0 m. 1164
HÆÐIR
ÁLFASKEIÐ - HAFNARF. - AUKAÍBÚÐ.Við vorum að fá í sölu mjög góða
sérhæð ásamt bílskúr og aukaíbúð í
kjallara. Falleg kirsuberjainnrétting í
eldhúsi, 4-5 svefnhebergi. NÁNARI
UPPLÝSINGAR GEFUR JÓNAS Á
SKRIFSTOFU. VERÐ 23 MILLJ. 1165
LAUFBREKKA - KÓPAVOGUR - LAUSFLJÓTLEGA Erum með til sölu glæsi-
legt 216 fm einbýlishús ásamt 25 fm
sólskála með heitum potti á hlýlegum
stað í Kópavoginum. Húsið er búið
góðum tækjum, innréttingum og gólf-
efnum. Sv-svalir. Verð 21,5 millj.
Áhvílandi 9,2 millj. 1220
ÞINGHOLTSSTRÆTI Glæsileg neðrisérhæð í tvíbýlishúsi í miðbænum.
Íbúðin er með sérinngangi, öll parket-
lögð fyrir utan baðherbergi sem er flí-
salagt. Tvær stofur, þrjú svefnh., borð-
stofa og eldhús með fallegum innrétt-
ingum. Lóðin tilheyrir íbúðinni. Falleg
eign á góðum stað. V. 15,2 m. 1219
BÁSBRYGGJA Stórglæsileg íbúð átveimur hæðum á þessum frábæra
stað í Bryggjuhverfinu. Eldhús með
glæsilegum innréttingum. 3-4 svefn-
herbergi, parket og flísar á öllum gólf-
um. Eign sem vert er að skoða. V.
18,9 m. 1055
FUNALIND Virkilega glæsileg 151 fmíbúð á tveimur hæðum í litlu fjöl-
býli. Vandaðar mahóní-innréttingar og
parket. Rúmgóðar stofur. Tvennar sval-
ir. Tvö baðherbergi, flísalögð í hólf og
gólf. 3-4 svefnherbergi. Skipti möguleg
á sérbýli í Rvík, t.d. hæð eða raðhús.
Áhv. 9,1 m. Ekkert greiðslumat. V.
17,9 m. 1093
4-6 HERBERGI
ENGJASEL - RVÍK Vorum að fá í sölumjög glæsilega og mikið endurnýj-
aða 4ra-5 herbergja íbúð í vinsælu
hverfi. V. 13,9 m. 1169
LAUGATEIGUR - BÍLSKÚR Erum með ísölu mjög góða 107 fm efri sérhæð
ásamt 26 fm bílskúr á fallegum stað í
þessu vinsæla hverfi. Skiptist niður í 2
svefnherbergi og 2 stofur. Mikið endur-
nýjaðar innréttingar og gólfefni. S-
svalir. Sérinngangur. Áhv. 5,9 m. V.
15,9 m. 1137
LJÓSHEIMAR - LYFTUHÚS Erum meðtil sölu 100 fm íbúð á 8. hæð með
góðu útsýni. Skiptist niður í 2 svefnher-
bergi og 2 stofur. S-svalir, sér- inn-
gangur af n-svölum. V. 10,9 m. 1141
3JA HERBERGJA
ÁLFTAMÝRI Vorum að fá í sölu 3jaherb. íbúð á 1. hæð í þessu vin-
sæla hverfi. Íbúðin er öll hin snyrtileg-
asta, dúkar og teppi á gólfum. Rúmgóð
herbergi, gott skápapláss. Áhv. 3
millj. V. 9,0 millj. 1229
HAMRAHLÍÐ Vorum að fá í einkasölu80.0 fm 3ja herbergja íbúð í lítið
niðurgröfnum kjallara á vinsælum stað.
Íbúðin er með gömlum innréttingum
og teppi á gólfum. Íbúð sem hægt er
að gera mikið úr. V. 8,7 m. 1109
ÁLFTAMÝRI - REYKJAVÍK Vorum að fáí einkasölu 68 fm íbúð á 3. hæð
með góðu útsýni út á Fram-völlinn.
Íbúðin skiptist í tvö rúmgóð svefnher-
bergi og eina stofu. Verð 9,0 millj.
Ekkert áhvílandi! 1215
HRAFNHÓLAR 3ja herbergja mikiðendurnýjuð íbúð á annarri hæð í
lyftublokk. Ný gólfefni ný eldhús-inn-
rétting. Húsið er nýlega klætt að utan.
Laus fljótlega. V. 9,9 m. 1221
BERGSTAÐASTRÆTI Erum með í sölu3ja herbergja íbúð í góðu ástandi.
Herbergi eru rúmgóð með góðu skápa-
plássi, teppi og dúkur á gólfum. V.
10,2 m. 1071
LANGHOLTSVEGUR + BÍLSKÚR Erummeð í einkasölu 3ja herb. 78 fm ris-
íbúð með sérinngangi. Íbúðin er mikið
endurnýjuð. V. 12,8 m. 1170
HRAUNBÆR Rúmgóð 92 fm 3ja herb.íbúð í fjölbýlishúsi. Parket á gólf-
um og góðir skápar. Góð eign. V. 10,5
m. 1175
GNOÐARVOGUR Í einkasölu mjögskemmtileg og sérstök 90 fm íbúð
með suðursvölum. Áhv. 6,4 m.
Bbmat 14 m. Laus strax. V. 9,8 m.
1111
SELJAVEGUR Vorum að fá í sölu 3jaherb. 61 fm íbúð á 2. hæð í vestur-
bænum. Skiptist í 2 svefn-herbergi og
eina stofu, spónaparket á gólfum. V.
8,5 m. 1144
2JA HERBERGJA
VALLARTRÖÐ - KÓP. - SÉRINNGANG-UR. Vorum að fá í einkasölu rúm-
góða og bjarta 60 fm kjallaraíbúð með
sérinngangi og sér- þvottahúsi EIGN
SEM VERT ER AÐ SKOÐA. 1214
LAUFÁS
fasteignasala
sími 533 1111
Digranesvegi 10 - Kópavogi
Fyrir ofan
Sparisjóð Kópavogs.
Hjá okkur er ávallt mikil umferð
viðskiptavina í leit að fasteignum.
Opið frá kl. 9-17 virka daga
fax 533 1115
Andres Pétur Rúnarsson
lögg. fasteignasali,
Einar Harðarson
sölustjóri,
Jónas Jónasson
sölumaður,
Hinrik Olsen
sölumaður
HVERFISGATA - REYKJAVÍK - GOTTBRUNABÓTAMAT Erum með til sölu
50 fm íbúð í steinhúsi í gamla miðbæn-
um - var klætt að utan fyrir 3 árum.
Parket á gólfum og ágætar innrétting-
ar. Verð 6,9 millj. Áhvílandi 2,4
millj. 1222
NJÁLSGATA - LÍTIÐ EINBÝLI - ÓSAM-ÞYKKT Erum með til sölu 40 fm vel
skipulagt kósý einbýli í miðbænum.
Skiptist niður í stofu, eldhús og svefn-
herbergi. Flísar og parket á gólfum -
góðar innréttingar. Verð 5,5 millj.
Áhvílandi ca 2,3 millj. 1112
RAUÐARÁRSTÍGUR - BÍLAGEYMSLA -EKKERT GREIÐSLUMAT Vorum að fá
í einksaölu rúmgóða og bjarta 64 fm
íbúð ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin
er vel skipulögð, með góðum inn-rétt-
ingum og gólfefnum. Sérþvottahús í
íbúð. Sv-svalir. Áhv. Byggsj. rík. 5,6 m.
Nú er að vera snögg/ur! V. 10,5 m.
1198
MIÐVANGUR - HAFN. Vorum að fá ísölu 56 fm 2ja herbergja íbúð á 2.
hæð í lyftublokk. Nýtt Pergo-parket á
gólfum. Ný eldhúsinnrétting. Suður-
svalir. Áhv. 5 m. V. 7,9 m. 1148
SNORRABRAUT Vorum að fá í sölugóða 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í
litlu fjölbýlishúsi. Íbúðin er um 55 fm og
öll hin snyrtilegasta. Nánari upp-lýsing-
ar á skrifstofu. Áhv. 3,6 m. V. 7,3 m.
1098
ATVINNUHÚSNÆÐI
MIÐHRAUN - GARÐABÆ Erum með tilsölu 200 fm húsnæði á tveimur
hæðum sem skiptist niður í 140 fm á
jarðhæð með stórum innkeyrsludyrum
og mikilli lofthæð - 60 fm skrifstofuloft.
Verð 15,5 millj. Áhvílandi 10,5
millj. 1217
SUMARHÚS
SUMARHÚS Á SPÁNI Glæsilegt raðhús70 fm rétt við Toreveja. Húsið er 2
hæðir og mjög vel búið húsgögnum.
Stutt í alla þjónustu og einungis um 45
mín. akstur frá Alicante-flugvelli. Stór-
glæsilegir golfvellir í nágreninu. Tilvalin
eign fyrir golfara. Nánari upplýsingar
veitir Hinrik á skrifstofu. 1224
Laufás fasteignasala í 29 ár
ÓSKALISTI LAUFÁSS!
• VANTAR – VANTAR * Sigga Hall vantar fokhelt ca 180 fm
einbýli eða raðhús í Víkurhverfi í Grafarvogi.
• Hæð, rað- eða parhús á svæði 105, 101, 107. V. allt að 21 m.
• Lítið parhús eða raðhús, 100 til 150 fm, fyrir ákv. kaupanda.
• 1.000-1.500 fm atvinnuhúsnæði á einni hæð til leigu eða
kaups.
KÓRSALIR - LYFTUBLOKK
Erum með til sölu 2ja, 3ja, 4ra og
„penthouse“-íbúðir á besta út-
sýnisstað í Salahverfi Kópavogs.
Íbúðirnar skilast fullbúnar en án
gólfefna, ásamt stæði í bíla-
geymslu. Nánari upplýsingar
gefur Jónas á skrifstofu. 1115
BLÁSALIR
Vorum að fá í sölu vandaðar og glæsilegar 2ja, 3ja og 4ra her-bergja íbúðir í 12 hæða blokk. Útsýni er vægast sagt stórkost-
legt úr öllum íbúðunum yfir Suðurnes, Reykjavík og víðar. Íbúðun-
um er skilað fullbúnum en án gólfefna, í öllum herbergjum eru
sjónvarps- og símatenglar og sérhljóðeinangrun. Öll sameign
verður fullbúin og lóð fullbúin með tveimur leiksvæðum. Upphit-
að bílskýli er í kjallara og fylgir íbúðunum. V. 12,5-19,3 m. 1228