Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 26
F ÉLAGAR í Húseigendafé- laginu eru nú um 8.000 og þeim hefur farið fjölgandi á undanförnum árum. Miðað við, að fasteignaeigendur hér á landi eru taldir vera á bilinu 80 til 100 þús- und, þá eru rétt um 10% þeirra í fé- laginu. Þetta er að sjálfsögðu álitleg- ur fjöldi, en betur má ef duga skal. – Til þess að styrkur félagsins verði sem mestur, þarf það að ná til meirihluta fasteignaeigenda hér á landi, en viðfangsefnin eru nánast ótæmandi, segir Sigurður Helgi Guð- jónsson, hæstaréttarlögmaður, en hann hefur verið formaður Húseig- endafélagsins um árabil. – Það er erf- itt fyrir 10% fasteignaeigenda að halda uppi hagsmunabaráttu fyrir heildina. Húseigendafélagið á sér langa sögu, en það var stofnað árið 1923. Félagið hefur nú aðsetur í Síðumúla 29 í Reykjavík og hjá því starfa tveir lögfræðingar, skrifstofustjóri og þjónustufulltrúi. – Félagið er almennt hagsmuna- félag fasteignaeigenda á Íslandi, hvort sem fasteignin er íbúð, ein- býlishús, atvinnuhúsnæði, land eða jörð, segir Sigurður Helgi. – Tilgang- ur félagsins hefur frá öndverðu verið að stuðla að því að fasteignir hér á landi verði ávallt tryggar eignir og haldi verðgildi sínu og að gæta í hví- vetna hagsmuna fasteignaeigenda. Félagar eru bæði einstaklingar, fyrirtæki og félög, þar með talin um 500 húsfélög í fjöleignarhúsum. Hús- félög njóta sérkjara við inngöngu og einnig öðlast hver íbúðareigandi sjálfstæð félagsréttindi og getur leit- að til félagsins með sín mál. Það er forsenda fyrir öflugra og ár- angursríkara starfi Húseigenda- félgsins, að fleiri fasteignaeigendur skipi sér undir merki félagsins og að núverandi félagsmenn séu því trygg- ir og standi í skilum með félagsgjöld- in. Félagsgjöldum er mjög í hóf stillt og sama er að segja um endurgjald fyrir lögfræðiþjónustuna, en árgjald einstaklings er 3.580 kr. en fyrir hús- félög 1.790 kr. fyrir hverja íbúð. Félagið stendur á eigin fótum fjár- hagslega og nýtur engra opinberra styrkja og heldur engra styrkja frá einkaaðilum. Félagið er því frjálst og óháð í einu og öllu, bæði í almennu hagsmunabaráttunni og annarri starfsemi. Fjölþætt starfsemi Sigurður Helgi segir, að starfsemi félagsins sé í grundvallaratriðum þrí- þætt. Í fyrsta lagi er það almenn hagsmunagæzla og barátta fyrir fé- lagsmenn og fasteignaeigendur yfir- leitt, einkum gagnvart stjórnvöldum, t.d. í löggjafar- og skattamálum. Í öðru lagi almenn fræðslustarf- semi og upplýsingamiðlun og í þriðja lagi ráðgjöf og þjónusta við einstaka félagsmenn, einkum lögfræðileg að- stoð og upplýsingagjöf af ýmsum toga. – Lögfræðiþjónustan hefur verið þungamiðjan í starfsemi félagsins síðustu áratugi, en hjá okkur hefur safnazt mikil og sérhæfð þekking og reynsla á þeim réttarsviðum, sem varða fasteignir og eigendur þeirra, segir Sigurður Helgi. Félaginu hefur einnig orðið veru- lega ágengt í baráttu sinni fyrir rétt- arbótum öllum húseigendum til hags- bóta. Þar má nefna fjöleignarhúsa- lögin og húsaleigulögin, en félagið átti frumkvæði að samningu og setn- ingu þeirra. Ennfremur hefur félagið haft veruleg áhrif á efni frumvarps til laga um fasteignakaup, sem nú ligg- ur fyrir Alþingi og verður væntan- lega lögfest innan tíðar. Það frum- varp er mikið fagnaðarefni, enda árangur áratuga baráttu félagsins. Að sögn Sigurðar Helga standa margir þeirra, sem til félagsins leita, í þeirri trú, að fólk verði sjálfkrafa fé- lagsmenn, þegar það eignast íbúð eða aðra fasteign. – Því miður er sú ekki raunin og menn verða að ganga sér- staklega í félagið til að öðlast rétt til lögfræðiþjónustu og annarra fé- lagsréttinda, segir Sigurður Helgi. – Sumir halda jafnvel, að félagið sé einhvers konar stofnun eða stofn- unarígildi, sem allir eiga aðgang að og rétt á þjónustu hjá. Sannleikurinn er sá, að það eru félagsmenn, sem standa fjárhagslega undir allri starf- semi félagsins og þess vegna er þjón- usta félagsins einskorðuð við þá. En Húseigendafélagið er eingöngu rekið með hagsmuni félagsmanna að leið- arljósi og ekki með hagnað að mark- miði. Annatími framundan Framundan er tími aðalfunda í húsfélögum, en samkvæmt lögum á að halda þá í síðasta lagi fyrir apr- íllok. Aðdragandinn að þessum fund- um er töluverður, því að þá þarf að boða með góðum fyrirvara og á rétt- an hátt. Mörg húsfélög, einkum í stærri fjöleignarhúsunum, leita því til Hús- eigendafélagsins um aðstoð við aðal- fundi jafnt sem aðra húsfundi. – Með því má koma í veg fyrir afdrifarík og dýrkeypt mistök, segir Sigurður Helgi. – Mörg húsfélög eru nú að und- irbúa viðhaldsframkvæmdir á sumri komanda. Ákvarðanir um þær þarf að taka sem fyrst, því að undirbún- ingur fyrir slíkar framkvæmdir tekur yfirleitt talsverðan tíma. Ef um stór verk er að ræða, þarf að fá úttektir og verklýsingar og leita tilboða og það getur reynzt óheppi- legt og óhagkvæmt að draga það fram á sumar. Þá eru verktakarnir gjarnan búnir að raða niður verkefn- um fyrir sumarið. Ef þeir eiga þá að bæta við sig verkefnum, vilja þau gjarnan verða dýrari. Tilboð þeirra verða ekki eins hagstæð. Hagkvæmast er sennilega að fá til- boðin sem allra fyrst og þá er hægt að hefja verkin strax með vorinu. En það er ljóst, að undirbúningur að slík- um verkefnum þarf tíma og það verð- ur að standa rétt að honum. Oft er losarabragur á fundum í húsfélögum og því hefur það komið sorglega oft fyrir, að húsfélög loga í illdeilum árum saman, vegna þess að undirbúningur að kostnaðarsömum framkvæmdum var ófullkominn og ekki rétt að ákvörðunum staðið. Fundarboðun var kannski áfátt eða dagskrá fundarins ekki réttilega til- greind. Ástæðurnar geta verið marg- ar. Aukin þjónusta við húsfélög Á döfinni er aukin þjónusta Hús- eigendafélagsins við húsfélög. Morgunblaðið/Sverrir Frá Grafarvogi. Þar er nú fjölmennasta byggð Reykjavíkur. Húseigendafélagið – hags- munafélag fasteignaeigenda Morgunblaðið/Kristinn Á skrifstofu Húseigendafélagsins í Śíðumúla 29. Frá vinstri: Hrund Krist- insdóttir lögfræðingur, Sigurður Helgi Guðjónsson hrl., formaður Húseigendafé- lagsins, Barbara Wdowiak skrifstofustjóri og Herdís Pétursdóttir þjónustu- fulltrúi. Starfsemi Húseigendafé- lagsins er öflug, enda við- fangsefnin ærin og greini- legt að félagið hefur mikinn hljómgrunn hjá fjölda hús- og íbúðareig- enda. Magnús Sigurðs- son ræddi við Sigurð Helga Guðjónsson hrl., formann félagsins. 26 C ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.