Morgunblaðið - 21.02.2002, Page 12
siminn.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
•
N
M
0
5
1
7
2
/
s
ia
.i
s
n‡sköpun, flekking og flróunFyrirtækjalausnir
Nánari uppl‡singar í síma 800 4000
* Mínútuver› innan Símans GSM er lægra
en á milli GSM-kerfa. fiví er hagkvæmt a›
skipta vi› fla› kerfi sem hefur flesta vi›skiptavini.
147.000 vi›skiptavinir
hjá Símanum GSM
áhersla á
metna›arfulla n‡sköpun
ód‡rara a› hringja
innan kerfis*
""
#$$% $$
IHCHK !8; IL2MKI2<N <HOJN2C:82!I2<N I<< K #6KPN HK82!I2<N
#$ $#$ $#$
#$ $#$
<*(.1
$#$ $#$ $#$ $#$
$#
$ > +$ $ 6$;"6 3" $-
"$/ % &"- <)(.1 <+()1<()1=*(1 <.(-1 <)(1 =+(1 >(.1<*(+1
O6K# Q
TAP Skýrr hf. fyrir skatta á
árinu 2001 nam 224 milljónum
króna. Árið áður var hagnaður fyrir
skatta 314 milljónir. Að teknu tilliti
til skatta var tap ársins í fyrra 129
milljónir en hagnaður árið áður 218
milljónir.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að rekstrarafkoman sé í takt við
áætlanir en verulegt tap stafi af
niðurfærslu hlutabréfa.
Í tilkynningunni segir að rekst-
urinn hafi batnað verulega seinni
hluta ársins. Þannig hafi EBITDA
einungis verið um 66 milljónir
króna á fyrri hluta ársins en 149
milljónir seinni hlutann og hafi
þannig farið langt með að ná upp-
haflegum rekstrarmarkmiðum, um
248 milljónum EBITDA fyrir allt
árið.
Rekstraráætlun félagsins fyrir
árið 2002 gerir ráð fyrir því að
EBITDA batni milli ára og verði
um 270 milljónir króna. Hagnaður
ársins er áætlaður 75 milljónir.
Rekstrartekjur Skýrr hækkuðu
um 30% milli ára og námu alls 1.992
milljónum í fyrra. Meðal rekstrar-
tekna er söluhagnaður að fjárhæð
45 milljónir en söluhagnaður árið
áður var 198 milljónir. Án sölu-
hagnaðar nemur veltuaukningin
46%. Í tilkynningu félagsins segir
að þessi vöxtur skýrist að stórum
hluta af sölu Oracle og Workplace
hugbúnaðarleyfa, ásamt vinnu við
innleiðingu á nýjum fjárhags- og
mannauðskerfum fyrir ríkið.
Rekstrargjöld ársins, að meðtöld-
um afskriftum, hækkuðu um 52%
milli ára, námu alls 1.887 milljónum
á árinu 2001. Hagnaður fyrir af-
skriftir, þ.e. svokallað EBITDA,
nemur 215 milljónum króna en 379
milljónum á árinu 2000. Að sölu-
hagnaði frátöldum nemur EBITDA
170 milljónum 2001 en nam 181
milljón árið áður.
Gjaldfærsla vegna
eignarhluta í félögum
Heildarfjármagnsgjöld ársins nema
alls 329 milljónum en fjármagns-
tekjur árið áður námu 23 milljón-
um. Í tilkynningunni segir að
þyngst vegi að gjaldfærðar séu 263
milljónir vegna eignarhluta í öðrum
fyrirtækjum, en söluhagnaður
hlutabréfa nam hins vegar 37 millj-
ónum. Fyrr á árinu var ákveðið að
færa niður hlutabréf í eigu félags-
ins vegna þeirra miklu lækkana
sem áttu sér stað á skráðum hluta-
bréfum. Jafnframt var ákveðið að
meta bréfin reglulega m.t.t. mark-
aðsverðs á hverjum tíma og hækki
bréfin aftur færist sú hækkun til
tekna í rekstrarreikningi. Einnig er
tekið tillit til viðskiptagengis
óskráðra bréfa, ef það er lægra en
bókfært gengi. Í því sambandi voru
hlutabréf í Línu.net hf. færð á
gengi sem boðið var í hlutafjár-
útboði undir lok ársins. Sú niður-
færsla nemur 102 milljónum og
kemur nú til gjalda í rekstrarreikn-
ingi.
Hrein fjármagnsgjöld nema alls
79 milljónum en fjármagnstekjur á
árinu áður námu 109 milljónum.
Meðal fjármagnsgjalda er gengis-
tap að fjárhæð 29 milljónir vegna
lækkunar krónunnar á árinu. Áhrif
dóttur- og hlutdeildarfélaga eru
neikvæð um 24 milljónir.
Skýrr á eignarhluti í alls 16 fyr-
irtækjum, þar af eru þrjú hlutdeild-
arfélög, Skrín ehf., Vestmark ehf.
og Miðavefur ehf.
Góð verkefnastaða
Í tilkynningu Skýrr segir að verk-
efnastaða félagsins hafi verið mjög
góð. Gengið hafi verið frá fjölda
nýrra samninga og viðskiptavinum
hafi haldið áfram að fjölga á árinu.
Hæst beri undirritun samnings
milli Skýrr hf. og fjármálaráðherra,
fyrir hönd ríkissjóðs og stofnana
hans, um ný fjárhags- og mann-
auðskerfi. Um sé að ræða einn
stærsta hugbúnaðarsamning sem
gerður hafi verið á Íslandi og nemi
samningsupphæðin alls 819 millj-
ónum króna. Samningurinn taki til
kaupa á stöðluðum hugbúnaði,
Oracle e-Business Suite og Work-
place, vinnu við uppsetningu og inn-
leiðingu, kennslu og viðhaldsgjalda
fyrsta árið.
Aðalfundur Skýrr hf. verður
haldinn 28. febrúar næstkomandi.
Stjórn félagsins leggur ekki til að
greiddur verður arður af hlutafé að
þessu sinni.
Tap Skýrr hf. fyrir
skatta 224 milljónir
Rekstur félagsins batnaði á seinni hluta ársins 2001 og er
gert ráð fyrir að afkoman haldi áfram að batna á þessu ári
K K
$
%
#
#1
#
$%&-$
$%(*)
(-
.'/
),
+*&
&*'
$*&
)0-'
/$0'1
!""# !""# !""#
KINLOCH Damph Ltd. (KLD),
sem er stærsti framleiðandi laxa-
seiða í Skotlandi, og Stofnfiskur,
sem er framleiðandi laxahrogna á
Íslandi, hafa stofnað saman nýtt
fyrirtæki, Island Ova Ltd. í Skot-
landi, um framleiðslu sérvalinna
laxaseiða. Seiðin eiga að gefa
skoskum fiskeldisbændum gæða-
forskot á alþjóðlegum laxamark-
aði.
Island Ova er í jafnri eigu fyr-
irtækjanna tveggja og er ætlað að
samtvinna sérþekkingu KLD á
laxeldi og Stofnfisks á hrogna-
framleiðslu. Um nokkurs konar
kynbótaverkefni er að ræða en
stefnt er að því að þróa nýjan
skoskan stofn með sérstökum eig-
inleikum, t.d. hvað varðar fitu og
lit, úr hrognum frá Stofnfiski. Fyr-
irtækið mun hafa aðsetur hjá KLD
í Skotlandi.
Mark Pattinson, framkvæmda-
stjóri KLD, segir fyrirtæki sitt
vilja bjóða neytendum upp á
heimsins besta eldislax og nú verði
það í stakk búið til þess. Hann
segir hinar sérstæðu aðstæður
jarðvarma á Íslandi vera mjög til
bóta fyrir hrognaframleiðslu, sér-
staklega sé þar komið í veg fyrir
ýmsa sjúkdóma sem séu til staðar
í öðrum löndum.
Vigfús Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Stofnfisks, segir
Stofnfisk hafa séð KLD fyrir
hrognum undanfarin tvö ár og
samvinnan hafi gengið vel. Stofnun
Island Ova hafi því verið eðlilegt
framhald af þeirri samvinnu og
geri þeim kleift að aðlaga fram-
leiðslu sína enn frekar skoskum
aðstæðum.
KLD er sem fyrr segir stærsti
seiðaframleiðandi í Skotlandi,
framleiðir árlega um sex milljónir
seiða og er stærsti viðskiptavinur
Stofnfisks. Stofnfiskur framleiðir
um 40 milljónir laxahrogna á ári
en til samanburðar má geta þess
að skoskir laxeldisbændur fram-
leiddu 40 milljónir fiska fyrir
markaðinn árið 2001.
Island Ova stofnað
um framleiðslu sér-
valinna laxaseiða
Stofnfiskur og KLD hefja samstarf um þróun á hágæða laxastofni
Mark Pattinson og Vigfús Jóhannsson.
● GREININGADEILD Búnaðarbank-
ans Verðbréfa telur að líkur hafi
aukist á að rauða strikið haldi í
maí. Þetta kemur fram í mánaðarriti
deildarinnar, Ávöxtun og horfur, fyrir
febrúar, sem gefið var út í gær.
Í riti greiningadeildarinnar segir
að frá því Seðlabankinn birti síðast
verðbólguspá hafi gengi krónunnar
styrkst um 2%. Að mati greininga-
deildarinnar auki þetta verulega lík-
ur á að 2,5% verðbólgumarkmið
bankans náist innan tveggja ára og
því einnig líkur á að stýrivextir verði
lækkaðir. Gerir deildin ráð fyrir að
stýrivextir verði lækkaðir um miðjan
mars um 0,5–1,0%.
Í umfjöllun um skuldabréfamark-
aðinn telur greiningadeildin að ekki
sé mikið svigrúm til lækkunar á
ávöxtunarkröfu á árinu, miðað við
væntingar um framboð og eftir-
spurn á skuldabréfamarkaði. Eigi
þetta sérstaklega við um skulda-
bréf með langan líftíma.
Varðandi hlutabréfamarkaðinn
spáir greiningadeild Búnaðarbank-
ans Verðbréfa að samanlagður
væntur hagnaður þeirra 15 fyr-
irtækja sem mynda Úrvalsvísitöluna
á Verðbréfaþingi Íslands muni
nema tæplega 24 milljörðum króna
á árinu 2002, sem sé 75% aukning
milli ára.
Búnaðarbankinn telur aukn-
ar líkur á að rauð strik haldi