Morgunblaðið - 26.02.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 17
Erum flutt að Skútuvogi 1e.
Við höldum samt áfram að sækja
og senda pakka á sama staðinn;
- upp að þínum dyrum.
Aukin þjónusta, þú græðir klukkutíma.
Með tilkomu birgðastöðvar í Keflavík hefur náðst hagræðing og tímasparnaður í flutningum sem við
skilum beint til þín.Við getum nú sótt sendingar upp að þínum dyrum til klukkan 16:30 og komið þeim
til viðtakanda erlendis fyrir hádegi næsta dag.
VIÐ STÖNDUM VIÐ SKULDBINDINGAR ÞÍNAR
DHL HRAÐFLUTNINGAR EHF
Sími 535 1100 • Fax 535 1111 • www.dhl.is
DÓTTURFYRIRTÆKI banda-
ríska bankans Wachovia Bank,
Philadelphia International Equit-
ies, hefur selt 4,25% hlut sinn í
Landsbankanum og reynir því
ekki á sölutryggingu Landsbank-
ans, en eins og fram kom í Morg-
unblaðinu á laugardag sölu-
tryggði Landsbankinn bréfin og
tók að sér að miðla þeim. Gengi
bréfanna í þessum viðskiptum var
3,25 og var söluverðið því tæpar
946 milljónir króna, en ekki hef-
ur enn verið gefið upp hverjir
kaupendur eru.
Eins og fram hefur komið jók
Landsbankinn hlut sinn í breska
bankanum Heritable Bank úr 70%
í 95% í síðustu viku þegar hann
keypti hluti tveggja dótturfélaga
Wachovia Bank, en sá banki varð
til við samruna Wachovia og
First Union National Bank í
Bandaríkjunum. Það var í
tengslum við kaup Landsbankans
á 70% í Heritable Bank árið 2000
sem dótturfélag First Union eign-
aðist þau 4,25% í Landsbankanum
sem nú hafa verið seld. Salan er í
samræmi við stefnubreytingu sem
varð við samruna Wachovia og
First Union um að selja erlenda
eignarhluti dótturfélaga bankans
í fjármálafyrirtækjum.
Morgunblaðið/Golli
4,25% hlutur í Lands-
bankanum seldur
HAGNAÐUR Landsafls hf., fast-
eignafélags sem er í eigu ÍAV hf.,
Landsbankans-fjárfestingar hf. og
Eignarhaldsfélagsins Alþýðubank-
ans hf., var á síðasta ári 51 milljón
króna að teknu tilliti til reiknaðs
tekjuskatts, en árið áður var hagn-
aðurinn 11 milljónir króna.
Rekstrartekjur félagsins námu
samtals 614 milljónum króna á síð-
asta ári samanborið við 413 milljónir
króna árið áður. Hagnaður fyrir fjár-
munatekjur og fjármagnsgjöld nam
399 milljónum króna samanborið við
237 milljónir króna árið áður.
Í tilkynningu frá Landsafli kemur
fram að samkvæmt efnahagsreikn-
ingi í árslok 2001 námu heildareignir
félagsins 5.940 milljónum króna og
bókfært eigið fé í árslok nam 1.081
milljón króna.Veltufé frá rekstri var
196 milljónir króna og handbært fé
frá rekstri var 117 milljónir króna.
Afkoma ársins er viðunandi að
mati stjórnenda Landsafls hf., sér-
staklega ef tekið er tillit til þess að
gengistap ársins nam 210 milljónum
króna. Fram kemur í tilkynningunni
að horfur í rekstri félagsins á árinu
2002 séu ágætar þrátt fyrir aukið
framboð leiguhúsnæðis. Endanleg
niðurstaða muni þó meðal annars
ráðast af skilyrðum á fjármagns-
mörkuðum og gengisskráningu ís-
lensku krónunnar.
Landsafl hf. er fasteignafélag sem
sérhæfir sig í eignarhaldi, umsýslu,
rekstri og útleigu fasteigna. Mark-
mið félagsins er að eiga og reka fast-
eignir í langtíma- og/eða skammtíma-
útleigu. Félagið hefur yfir að ráða
yfir 80 þús. fermetrum af húsnæði,
skrifstofu- og verslunarhúsnæði, iðn-
aðarhúsnæði, vörugeymslum o.s.frv.
Viðskiptavinir félagsins eru fjöl-
margir, ríki og sveitarfélög, félög
skráð á Verðbréfaþingi sem og ýmis
önnur stór og smá fyrirtæki.
Landsafl skilar 51
milljón í hagnað
FUNDUR um framtíðarsýn í
þorskeldi á Vestfjörðum er í
dag, þriðjudaginn 26. febrúar, í
fyrirlestarsal Menntaskólans á
Ísafirði, frá kl 10.30 til 16.00. Til
fundarins hafði áður verið boð-
að 13. febrúar en þeim fundi
var frestað vegna samgöngu-
erfiðleika.
„Tilraunir með áframeldi á
villtum þorski hafa nú verið
stundaðar á Vestfjörðum hátt í
áratug. Á svæðinu hefur því
byggst upp miklisverð þekking
og reynsla í fóðrun, meðferð og
hegðun eldisfisks, ásamt þekk-
ingu á búnaði. Í annan stað eru
til margvísleg gögn um um-
hverfisþætti og líffræðilegar
aðstæður í vestfirskum fjörð-
um. Þessi þekking nýtist nú við
skipulagningu tilrauna í eldi og
við frekari rannsóknir á að-
stæðum til þorskeldis á svæð-
inu. Að þeim verkefnum standa
sjávarútvegsfyrirtæki, rann-
sóknastofnanir og einstakling-
ar á Vestfjörðum,“ segir meðal
annars í fundarboðinu.
Framsögumenn verða Gísli
Jónsson, dýralæknir fisksjúk-
dóma, Keldum, Hjalti Karls-
son, Hafrannsóknastofnun,
Kristján G. Jóakimsson, Hrað-
frystihúsinu – Gunnvör hf., Sig-
urður Helgason, fisksjúkdóma-
fræðingur, Keldum, Vigfús
Jóhannsson, Stofnfiski hf. og
Þorleifur Eiríksson, Náttúru-
stofu Vestfjarða.
Að loknum fyrirlestrum
verða pallborðsumræður.
Fundur um
þorskeldi á
Vestfjörðum
TAP Hlutabréfasjóðs Íslands hf. eftir
reiknaða skatta árið 2001 nam 73
milljónum króna. Hagnaður félagsins
á árinu 2000 nam 61 milljón. Innra
virði félagsins í árslok 2001 var 2,02
og lækkaði um 14% frá fyrra ári. Eng-
inn óinnleystur gengishagnaður var
til staðar en í árslok 2000 var hann
27,7 milljónir.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
afkoman í fyrra sé í takt við aðstæður
á fjármálamarkaði. Á árinu 2001 hafi
úrvalsvísitala VÞÍ lækkað um 11,2%
og NASDAQ vísitalan um 21,1%.
Enginn starfsmaður starfaði hjá
Hlutabréfasjóðnum í árslok 2001 en
varsla sjóðsins og dagleg umsýsla er í
höndum Íslenskra verðbréfa hf.
Hluthafar félagsins voru 1.373 í
árslok 2001 og átti enginn einn hlut-
hafi meira en 10% hlut.
Stjórn Hlutabréfasjóðsins gerir að
tillögu sinni að ekki verði greiddur
arður vegna ársins 2001.
Tap Hlutabréfasjóðs
Íslands hf. 73 milljónir