Morgunblaðið - 26.02.2002, Qupperneq 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 25
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Aðeins 20 sæti í boði
Síðustu sætin til
Prag
frá kr. 19.900
10. mars
Verð kr. 19.900
Flugsæti til Prag, út 10. mars, heim
14. mars.
Almennt verð kr. 20.895.
Skattar kr. 3.550, ekki innifaldir.
Verð kr. 3.900
Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi,
Quality, per nótt með morgunmat.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð til Prag
þann 10. mars í 4 nætur, en nú getur þú kynnst
þessari einstöku borg á ótrúlegu tilboðsverði. Þú
bókar flugsæti á aðeins 19.900 kr. og getur valið
um góð hótel Heimsferða í hjarta Prag. Og að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu Heims-
ferða í Prag allan tímann.
TALIÐ er að um
1000 íslenskar konur
séu með sjúkdóm, sem
veldur slæmum blæð-
ingaverkjum, blæð-
ingatruflunum og minni
frjósemi. Sjúkdómur-
inn nefnist legslímu-
flakk („endometriosis“
á erlendum málum).
Hann lýsir sér í blóð-
hlaupnum vefja-
skemmdum í grindar-
holi og á eggjastokkum
þar sem slímhúð eins
og sú sem þekur legið
að innan festist á líf-
himnuna eða á eggja-
stokkana („fer á
flakk“). Þetta veldur blæðingum inn í
þessa vefi og þar verða bólgur og
vefjaskemmdir. Einkennin geta ver-
ið allt frá vægum og upp í mjög
slæma verki í grindarholi og baki.
Við tíðablæðingar berast örlitlir
slímhúðarflákar upp í gegnum eggja-
leiðarana og inn í kviðarholið hjá
flestöllum konum. Yfirleitt hreinsast
þeir burt af lífhimnunni, en í sumum
konum ná þeir bólfestu og vaxa.
Blóðfylltar blöðrur geta myndast á
eggjastokkunum og þegar blætt hef-
ur inn í kviðarholið myndast bólgur
og samgróningar. Þetta truflar blæð-
ingar og egglos. Erfðir eða umhverf-
isþættir ráða miklu um þetta.
Algengt er að konur, sem eru með
legslímuflakk, viti ekki sjálfar mikið
um sjúkdóminn og jafnvel ekki að
þær séu með hann. Erfitt er að út-
skýra tilurð hans og framvindu, en
áður voru veikindi þessara kvenna
oft skýrð með því að þær væru með
,,blöðrur á eggjastokkunum“. Sam-
fara framförum í læknavísindum og
með aukinni þekkingu kvenna á eigin
líkama, greinist sjúkdómurinn nú
betur en áður. Konur, sem hafa
þjáðst af miklum blæðingaverkjum,
hafa oft reynst vera með legslímu-
flakk. Við læknisskoðun má finna
merki um sjúkdóminn, en eina
örugga greiningin fæst með kviðar-
holsspeglun eða opinni skurðaðgerð.
Ómskoðun kemur að takmörkuðu
gagni, og þá helst til að greina blóð-
fylltar blöðrur á eggjastokkum.
Það skiptir máli að konur séu með-
vitaðar um tilvist sjúkdómsins í fjöl-
skyldu sinni. Ef konur eiga systur,
mæður eða systkinadætur sem þjást
af legslímuflakki aukast líkur þeirra
sjálfra á að fá hann. Rannsóknir, sem
gerðar hafa verið á Íslandi undanfar-
in 6–7 ár, hafa sýnt þetta og vakið at-
hygli á erlendum vettvangi. Konur
með legslímuflakk eru talsvert skyld-
ari heldur en tilviljunarkennt úrtak
kvenna í þjóðfélaginu. Arfgengi get-
ur líka verið gegnum karllegg frá
föðurömmu til sonardóttur. Það er
þess vegna líklegt að hjá konum með
legslímuflakk hafi eitt eða fleiri gen
breyst, og að slíkar stökkbreytingar
auki hættuna á að sjúkdómurinn geri
vart við sig eða versni. Verið er að
leita að og skilgreina áhrif þessara
erfðavísa í frumum úr legslímhúðinni
og í blóðfrumum kvenna með leg-
slímuflakk.
Á síðasta ári hófst nýtt átak í rann-
sóknum á þessum sjúkdómi hér á Ís-
landi. Óvenjugóðar forsendur eru til
slíkra rannsókna hérlendis. Við fáum
upplýsingar frá sjúkrahúsum lands-
ins um hvaða konur hafa greinst með
sjúkdóminn. Þessum konum er síðan
sent bréf og leitað eftir samþykki
þeirra til þátttöku. Allt er þetta gert
samkvæmt reglum vísindasiðanefnd-
ar og Persónuverndar. Konur hafa
hingað til brugðist vel við beiðni okk-
ar um þátttöku. Rannsóknin hófst
1994 með samstarfi kvennadeildar
Landspítalans og Oxfordháskóla í
Bretlandi. Frá árinu 1997 hefur meg-
insamvinnan verið við Íslenska
erfðagreiningu. Hin mikla tækniað-
staða, sem þar er til staðar, skapar
góð skilyrði fyrir fjölþættar rann-
sóknir á sjúkdómnum. Sú þekking
sem þannig fæst getur leitt til þess að
orsakir sjúkdómsins finnist, nýjar og
einfaldari greiningaraðferðir verði
þróaðar (t.d. með einni blóðprufu) og
ný meðferðarúrræði verði til. Slíkt
yrði ómetanlegt fyrir hundruð þús-
unda kvenna um allan heim. Það er
von okkar að konur sem fá sent bréf
frá okkur vegna þessarar rannsókn-
ar leggi okkur lið. Framlag íslenskra
kvenna til rannsóknar sem þessarar
er ákaflega mikilvægt.
Erfiður sjúkdómur
fyrir margar konur
Jón Torfi
Gylfason
Legslímuflakk
Einkennin, segja
Reynir Tómas Geirsson
og Jón Torfi Gylfason,
geta verið vægir eða
slæmir verkir í
grindarholi og baki.
Reynir Tómas er forstöðulæknir
á Kvennadeild Landspítala og
Jón Torfi er lífefnafræðingur og
læknanemi.
Reynir Tómas
Geirsson
TILKOMA Hval-
fjarðarganga var mikið
framfaraspor í sam-
göngumálum fyrir
Vestlendinga og
reyndar flesta lands-
menn. Það merkilega
við þá framkvæmd var
að þar tóku framsýnir
einkaaðilar sig saman
þar sem fyrirséð var að
samgönguyfirvöld
treystu sér ekki til að
hrinda verkefninu í
framkvæmd þrátt fyrir
augljósa þjóðhagslega
hagkvæmni.
Vaxandi þungi hefur
verið í þeirri umræðu á
Vesturlandi að það sé óeðlilegt að
Vestlendingar og aðrir sem nota
mikið Hvalfjarðargöng skuli einir
landsmanna borga með vegtollum
slíkt umferðarmannvirki. Fram hef-
ur komið í fjölmiðlum að samgöngu-
ráðherra vilji láta endurskoða stöðu
og rekstur Hvalfjarðarganganna í
tengslum við afgreiðslu samgöngu-
áætlunar næsta haust. Ástæða er til
að fagna því og hvetja til endurmats
á núverandi fyrirkomulagi.
Í tengslum við umfjöllun af þessu
máli hefur komið fram að Hvalfjarð-
argöngin færi ríkinu um 100 mkr á
ári í virðisaukaskatt. Auk þess fela
Hvalfjarðargöngin í sér milljóna
sparnað á ári fyrir Vegagerðina í
viðhaldi og snjómokstri vegar um
Hvalfjörð, fyrir utan þjóðhagslegan
ávinning af styttingu leiðarinnar.
Það segir sig sjálft að það er óvið-
unandi staða fyrir Vestlendinga og
aðra sem nota Hvalfjarðargöngin í
einhverjum mæli að ríkisvaldið sé
beinlínis að hagnast á gerð slíkra
mannvirkja.
Nú er í umræðunni
tillaga að byggðaáætl-
un 2002–2005. Þar er
að finna ýmsar hug-
myndir sem eru góðra
gjalda verðar.
Ég held það megi þó
fullyrða að góðar sam-
göngur standi hvað
fremst varðandi ávinn-
ing af aðgerðum
stjórnvalda til að bæta
búsetuskilyrði utan
höfuðborgarsvæðisins.
Þannig er hægt að full-
yrða að niðurfelling
eða a.m.k. veruleg
lækkun vegtolla um
Hvalfjarðargöngin
mundi skipta verulegu máli til að
bæta búsetuskilyrði á Vesturlandi,
sem mundi jafnframt koma til góða
fyrir þann stóra hluta þjóðarinnar
sem um göngin fara. Slíka tillögu er
þó ekki að finna í nýrri byggðaáætl-
un en ég held að hún ætti fullan rétt
á sér.
Ríkið græðir á göngunum
Stefán
Kalmansson
Höfundur er bæjarstjóri
í Borgarbyggð.
Vegatollar
Afnám eða lækkun veg-
tolla um Hvalfjarðar-
göngin, segir Stefán
Kalmansson, mundi
skipta verulegu máli.
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.