Morgunblaðið - 26.02.2002, Qupperneq 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 37
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Akraneskirkja
Laus staða organista
Akraneskirkja óskar eftir organista til starfa
frá og með 1. ágúst nk. Um er að ræða fullt
starf. Mjög gott starfsumhverfi. Starfið býður
upp á mikla möguleika fyrir áhugasaman og
dugmikinn einstakling. Umsóknarfrestur er
til 24. mars nk.
Nánari upplýsingar veita Indriði Valdimarsson,
skrifstofustjóri, í síma 431 1690 eða 896 4703,
og formaður sóknarnefndar, Þjóðbjörn Hann-
esson, í síma 431 2192.
Sóknarnefnd Akraneskirkju.
Sjálfboðaliðar
óskast
Vinalína Reykjavíkurdeildar
Rauða kross Íslands
Kynningarfundur fyrir þá sem vilja starfa
sem sjálfboðaliðar hjá Vinalínunni, sem
er símaþjónusta fyrir 18 ára og eldri,
verður haldinn fimmtudaginn 28. febrú-
ar kl. 20.00 í Sjálfboðamiðstöðinni á
Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Upplýsingar í síma 551 8800.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Atvinnuhúsnæði til leigu
á Gylfaflöt 24—30. Tilvalið fyrir heild-
verslun eða léttan iðnað. Laust strax.
Formaco ehf., símar 577 2050/894 2052,
netfang Ragnar@formaco.is .
Skrifstofuhúsnæði
í Húsi verslunarinnar
Til leigu mjög gott 114 fm skrifstofuhúsnæði
í Húsi verslunarinnar. Húsnæðinu er skipt niður
í 3—4 herbergi auk afgreiðslu og sérherbergis.
Mjög góð skrifstofuhúsgögn geta fylgt á sann-
gjörnu verði. Áhugasamir hafi samband við
Ástu í síma 892 2799.
Til leigu
Byggingafélag Gylfa og Gunnars er með
eftirtalið húsnæði til leigu:
Hlíðasmári: Í nýju og fallegu húsnæði, hentar
vel fyrir skrifstofu, verslun eða þjónustu.
Stærðir frá 150—600 fm.
Síðumúli: Í nýju og glæsilegu húsnæði,
stærð ca 300 + fm.
Grandavegur: Í húsnæði fyrir eldri borgara.
Hentar vel fyrir nudd eða heilsugæslu,
stærð 103 fm.
Vegmúli: 141 fm mjög vel innréttað húsnæði
sem hentar t.d. fyrir kírópraktora eða nuddara.
Uppl. gefur Gunnar í síma 693 7310.
FÉLAGSSTARF
Sjálfstæðisflokkurinn
Fulltrúaráðsfundur
Vörður — Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík heldur
fulltrúaráðsfund í Valhöll, Háaleitisbraut
1, fimmtudaginn 28. febrúar kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Ákvörðun um skipan framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar 25. maí næstkomandi.
2. Ræða. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og forsætisráðherra.
Vörður — Fulltrúaráðið.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Náttúrufræðingar athugið
Aðalfundur Félags íslenskra náttúrufræðinga
verður haldinn í dag kl.16.00 í Háteigi á Grand
Hóteli. Fjölmennum.
Stjórnin.
Aðalfundur Skautafélags
Reykjavíkur
Fundurinn verður haldinn í Skautahöllinni í
Laugardal þriðjudaginn 5. mars kl. 20.00.
Dagskrá samkvæmt 13. grein.
Stjórnin.
Hluthafafundur í
Degasoft hf.
Stjórn Degasoft hf. boðar til almenns hluthafa-
fundar í félaginu þriðjudaginn 5. mars kl. 16.00
á Grand Hóteli, Reykjavík.
Fundarefni:
Kynning á alvarlegri fjárhagslegri stöðu Kudos
Development Group UK, og fyrirsjáanlegri aukn-
ingu hlutafjár í Kudos Development Group UK.
Stjórn Degasoft hf.
Aðalfundir FB hf. og FFB
Aðalfundur Ferðaþjónustu bænda hf. verður
haldinn á Arnarstapa Snæfellsnesi þriðjudag-
inn 12. mars 2002 kl. 10:00 árdegis. Dagskrá,
venjuleg aðalfundarstörf.
Aðalfundur Félags Ferðaþjónustubænda
verður haldinn á Arnarstapa Snæfellsnesi
þriðjudaginn 12. mars klukkan 16.00 síðdegis
og framhaldið miðvikudaginn 13. mars 2002.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
Vinsamlega hafið samband við skrifstofu
Ferðaþjónustu bænda í síma 570 2700,
fax 570 2799, og skráið ykkur á fundina.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Barcelóna
Ertu að fara til Barcelóna?
Leigi íbúð viku í senn.
Uppl. gefur Helen í síma 899 5863.
KENNSLA
Námskeið
vegna leyfis til að gera eignaskiptayfir-
lýsingar
Prófnefnd eignaskiptayfirlýsinga heldur nám-
skeið í gerð eignaskiptayfirlýsinga dagana
11.—13. og 18.—20. mars nk., kennsla fer fram
milli kl. 9.00 og 16.00 og verða próf haldin dag-
ana 5. og 6. apríl. Námskeiðið er haldið sam-
kvæmt lögum nr. 26/1994, um fjöleignarhús
og reglugerð nr. 233/1996, um leyfi til að gera
eignaskiptayfirlýsingar.
Þátttöku ber að tilkynna til Endurmenntunar-
stofnunar Háskóla Íslands, Dunhaga 7, 107
Reykjavík, sími 525 4444, fyrir 7. mars nk. Fyrir-
vari er gerður um næga þátttöku.
Prófnefnd eignaskipta-
yfirlýsinga.
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir, Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Bíbí Ólafsdótt-
ir, Erla Alexandersdóttir,
Margrét Hafsteinsdóttir og
Garðar Björgvinsson micha-
el-miðill starfa hjá félaginu og
bjóða félagsmönnum og öðrum
uppá einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—18.
Utan þess tíma er einnig hægt
að skilja eftir skilaboð á sím-
svara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavík-
ur starfar í nánum tengslum við
Sálarrannsóknarskólann á sama
stað.
SRFR.
KENNSLA
■ www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F.Rb.1 1512268—9.0*
EDDA 6002022619 III
Hamar 6002022619 I
FJÖLNIR 6002022919 I
Kjör Stm.
HLÍN 6002022619 IV/V
Innsetning Stm.
AD KFUK, Holtavegi 28.
Fundur í kvöld kl. 20.00.
Á ferð um Kenýja. Þórdís
Ágústsdóttir formaður KFUK
segir frá. Allar konur hjartanlega
velkomnar.
Hornstrandafarar FÍ
Lagt af stað frá BSÍ kl. 20.00 á
föstudagskvöldi. 3—4 klst.
ganga á laugardegi og árshátíð
um kvöldið. Nánari upplýsingar
hjá Guðmundi H. í síma 568
6114 og hjá skrifstofu FÍ í síma
568 2533.
Miðvikudagur 27. feb. kl.
20.30 í Mörkinni 6. Kvöld-
vaka, Örlygur Hálfdánarson
kynnir Viðey í máli og mynd-
um. Kaffiveitingar í hléi. Að-
gangseyrir kr. 500.
GIORGIO Baruchello heimspeking-
ur flytur fyrirlestur á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki undir
heitinu Hnattvæðingin og meinvörp
kapítalismans þriðjudaginn 26. febr-
úar kl. 20 á 3. hæð í Nýja-Garði. Fyr-
irlesturinn verður fluttur á ensku.
Í fyrirlestrinum mun Baruchello
fjalla um hugmyndir Johns Mc-
Murtry um hnattvæðingu nútímans
sem að dómi McMurtrys er afkvæmi
markaðshyggjunar.
John McMurtry er höfundur
bókarinnar The Cancer Stage of
Capitalism (Meinvörp kapítalism-
ans) sem kom út árið 1999. Hann er
jafnframt leiðbeinandi Baruchellos
við doktorsverkefni hans.
Allt áhugafólk um heimspeki er
velkomið og er aðgangur ókeypis,
segir í fréttatilkynningu.
Hnattvæðingin
og meinvörp
kapítalismans
EFTIRFARANDI ályktun flokks-
ráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs um Landssíma Íslands var
samþykkt á flokksráðsfundi 24. febr-
úar:
„Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs krefst þess að rík-
isstjórnin hverfi þegar í stað frá öll-
um áformum um frekari einkavæð-
ingu innan almannaþjónustunnar.
Ekki verði frekar aðhafst í þessum
efnum fyrr en þjóðin hefur átt þess
kost að gera upp við einkavæðingar-
stefnuna og þá sem fyrir henni
standa í næstu alþingiskosningum.
Í ljós hefur komið að spillingin
þrífst og dafnar í skjóli einkavæðing-
arstefnunnar. Í skjóli hennar raka
svokallaðir sérfræðingar ríkisstjórn-
arinnar til sín hundruðum milljóna af
almannafé. Einnig hefur komið í ljós
að fjármunir þjónustustofnana á borð
við Landssíma Íslands hafa verið not-
aðir sem áhættufé í hlutabréfabraski
erlendis. Á þennan hátt hafa tapast
mörg hundruð milljónir – jafnvel
milljarðar króna – af fé almennings í
landinu.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
hefur einn stjórnmálaflokka staðfast-
lega lagst gegn því að Landssíminn
væri einkavæddur. Fram til ársins
1996 var Póstur og sími opinber þjón-
ustustofnun undir almannaforsjá og
gegndi sínu hlutverki með mikilli
prýði. Póstur og sími var vel rekin
stofnun og hentaði vel sem þjónustu-
eining við íslenskar aðstæður. Eftir
aðskilnað Pósts og síma og hluta-
félagavæðingu starfseminnar hefur
dregið úr þjónustunni, henni hefur
hrakað á sama tíma og verðið hefur
hækkað og símstöðvum og pósthús-
um hefur verið lokað víða um land.
Í stað þess að þvinga mikilvæga al-
mannaþjónustu inn í ramma sérhags-
muna og einkagróða hefði átt að
leggja kapp á að byggja upp þjónustu
Landsímans og tryggja öllum lands-
mönnum jafnræði og greiðan aðgang
að öflugri þjónustu og tryggum
gagnaflutningum.
Flokksráðið ítrekar kröfu þing-
flokks Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs um að Ríkisendur-
skoðun geri ítarlega úttekt á störfum
einkavæðingarnefndar ríkisstjórnar-
innar með sérstöku tilliti til Lands-
síma Íslands. Þeirri vinnu verður að
hraða.
Að lokum kveða kjósendur upp
dóm yfir ríkisstjórninni og hennar
verkum í næstu alþingiskosningum.“
Krefjast úttektar á störfum
einkavæðingarnefndar
MÁLSTOFA verður haldin í
tengslum við kennslu í stjórn-
skipunarrétti í lagadeild Há-
skóla Íslands og í samstarfi
við Orator, félag laganema,
miðvikudaginn 27. febrúar kl.
12.15–13.30 í stofu L-101 í
Lögbergi.
Umræðuefnið verður: Við-
brögð alþjóðasamfélagsins við
hryðjuverkum.
Málshefjendur verða þau
Jónatan Þórmundsson pró-
fessor og Björg Thorarensen,
skrifstofustjóri.
Málstofugestum gefist
tækifæri til að koma með fyr-
irspurnir til málshefjenda.
Málstofan er opin öllu áhuga-
fólki, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Málstofa
í lagadeild