Morgunblaðið - 26.02.2002, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 41
Austurstræti 3, sími 551 4566.
Rýmingarsala
Verslunin flytur 1. mars
sameinast Laugavegi 24
Allt á að seljast.
Okkar vinsælu talnámskeið
hefjast 4. mars
Innritun er hafin
Einnig bjóðum við uppá:
Umræðuhópa - Viðskiptaensku - Einkatíma
Málaskóla í Bretlandi
Stuðningsnámskeið fyrir 10. bekk
Hraðnámskeið á Akureyri (maí)
Hringdu í síma
588 0303
Faxafeni 8
enskuskolinn@isholf.is
www.enskuskolinn.is
ENSKA ER OKKAR MÁL
HELGI Áss Grétarsson er Ís-
landsmeistari í atskák 2002. Þeir
Helgi Ólafsson háðu úrslitaeinvígið í
sjónvarpssal. Tefldar voru tvær at-
skákir. Helgi Áss hafði hvítt í fyrri
skákinni og fékk vænlega stöðu og
vann peð í 28. leik. Helgi Ólafsson
var þó með mun betri tíma og nýtti
sér það ásamt góðri vörn til að halda
jafntefli.
Í síðari skákinni hafði Helgi Ólafs-
son hvítt og upp kom
afbrigði af enskum leik
sem hann hafði meðal
annars teflt gegn Vikt-
or Korchnoi á atskák-
mótinu í Kópavogi
2000 og haft betur.
Helgi Áss brá þó út af
leiðinni sem Korchnoi
kaus og náði að jafna
taflið. Aftur notaði
Helgi Ólafsson mun
minni umhugsunar-
tíma, en Helgi Áss lét
ekki slá sig út af laginu
og hvorugum hafði tek-
ist að skapa sér um-
talsverð færi þegar
jafntefli var samið í 43.
leik í hnífjafnri stöðu.
Þar sem staðan að loknum atskák-
unum var jöfn var gripið til bráða-
bana, og sá sem yrði fyrri til að vinna
skák sigraði jafnframt í einvíginu.
Það var hér sem úrslitin réðust og
taflmennskan bar þess merki að um-
hugsunartíminn var styttri en áður.
Helgi Ólafsson hafði hvítt, en eftir að
hann hafði leikið skiptamun af sér á
slysalegan hátt voru úrslitin ráðin.
Helgi Áss nýtti sér yfirburðina af ör-
yggi, þrátt fyrir að Helgi Ólafsson
gerði góða tilraun til að skapa sér
sóknarfæri á kóngsvæng. Helgi Áss
Grétarsson sigraði því í einvíginu
með tveimur vinningum gegn einum
vinningi Helga Ólafssonar. Þetta er í
annað sinn sem Helgi Áss hampar
titlinum en hann sigraði einnig 1999.
Einvígið fór fram í sjónvarpssal í
umsjón Bjarna Felixsonar. Honum
til aðstoðar voru Friðrik Ólafsson og
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Skák-
stjóri var Ríkharður Sveinsson.
Lundarskóli Íslands-
meistari barnaskóla
Íslandsmót barnaskólasveita var
haldið um helgina. Alls tefldu 23
sveitir frá 17 skólum. Keppnin var
æsispennandi og eftir níu umferðir
voru Lundarskóli frá Akureyri og
Hlíðaskóli jafnir og efstir með 27
vinninga af 36. Þeir tefldu því til úr-
slita og í þeirri viðureign sigraði
Lundarskóli 3-1 og er því Íslands-
meistari barnaskólasveita 2002. Sig-
ursveitina skipuðu: Siguróli Magni
Sigurðsson,
Jón Heiðar Sigurðsson, Eyþór
Gylfason, Aron Skúlason og vara-
maður var Aron Hjalti Björnsson.
Sveit Hlíðaskóla skipuðu Helgi
Brynjarsson, Jón Ágúst Erlingsson,
Ásta Svansdóttir, Atli Sigurðsson og
varamenn voru Bjarki Brynjarsson
og Einar Brynjarsson.
Í þriðja sæti varð Melaskóli, a-
sveit, með 25½ vinning. Sveitina
skipuðu: Dofri Snorrason, Hallgerð-
ur Þorsteinsdóttir, Haraldur Frank-
lín Magnús og Árni Snorrason. Í
fjórða sæti varð Rimaskóli, a-sveit,
með 25 vinninga og í 5.-6. sæti urðu
Breiðagerðisskóli og Lindaskóli, a-
sveit, með 19½ vinning.
Með sigrinum öðlast Lundarskóli
rétt til þátttöku á Norðurlandamóti
barnaskólasveita sem fer fram í Sví-
þjóð í haust.
Veitt voru sérstök verðlaun fyrir
bestan árangur á 1. og 2. borði. Á 1.
borði náði Gylfi Davíðsson úr
Breiðagerðisskóla bestum árangri,
fékk 8½ vinning af 9, og Jón Ágúst
Erlingsson úr Hlíðaskóla náði best-
um árangri á 2. borði
þar sem hann fékk fullt
hús, 9 vinninga.
Meistaramót Hellis
Þegar ein umferð er
eftir á Meistaramóti
Taflfélagsins Hellis eru
þeir Þorvarður F.
Ólafsson og Björn Þor-
finnsson efstir á
mótinu með 5 vinninga.
Þar sem þeir eru báðir
í Helli er ljóst að þeir
munu berjast um
meistaratitil félagsins,
auk sigurs á mótinu.
Röð efstu manna fyrir
síðustu umferð:
1.-2. Björn Þorfinns-
son og Þorvarður F. Ólafsson 5 v.
3.-6. Sigurður Daði Sigfússon,
Bragi Þorfinnsson, Björn Þorsteins-
son og Jón Árni Halldórsson 4½ v.
7.-9. Gunnar Björnsson, Kjartan
Thor Wikfeldt og Leifur I. Vilmund-
arson 4 v.
10.-14. Halldór Garðarsson, Sig-
urjón Haraldsson, Páll Sigurðsson,
Óskar Haraldsson og Halldór Páls-
son 3½ v.
15.-21. Rafn Jónsson, Haraldur
Magnússon, Aldís Rún Lárusdóttir,
Kristján Þór Sverrisson, Gylfi Dav-
íðsson, Valdimar Leifsson og Arnar
Sigurðsson 3 v.
o.s.frv.
Vasjukov sýnir klærnar
Hinn 69 ára gamli Íslandsvinur,
Evgenij Vasjukov, er enn í fullu
fjöri. Hann sigraði á Reykjavíkur-
skákmótinu 1968 ásamt landa sínum
Mark Taimanov, hálfum vinningi á
undan Friðriki Ólafssyni, sem þurfti
að fresta skák sinni í fyrstu umferð
þar sem hann hann var að ljúka loka-
prófi í lögfræði. Friðrik hafði reynd-
ar sigrað á Reykjavíkurmótinu 1966
og lagði þá m.a. Vasjukov. Friðrik
olli miklu uppnámi í annarri umferð
mótsins 1968 þegar hann mætti ekki
til leiks án nokkurra skýringa. Það
kom síðan í ljós að hann hafði lent í
umferðaróhappi úti á landi og hafði
ekki getað náð sambandi við skák-
stjóra til að láta vita af sér. Sam-
kvæmt reglum jafngilti þetta tapi, en
þrátt fyrir það samþykktu allir kepp-
endur að Friðrik fengi að tefla skák-
ina. Reykjavíkurskákmótið 1968 var
afar sögulegt, bæði hvað undirbún-
ing þess og framkvæmd varðaði.
Þess má geta að fyrstu verðlaun á
þessu stórmóti voru $500. Margir
þeirra sem tóku þátt í mótinu tefla
enn þann dag í dag og Vasjukov er í
þeim hópi. Hér sýnir hann hollenska
stórmeistaranum Loek van Wely
(2.697) í tvo heimana, en skákin var
tefld á opna Aeroflot-skákmótinu
sem nýlega lauk í Moskvu.
Hvítt: Vasjukov
Svart: Loek van Wely
Aeroflot-mótið, Moskvu, 1. um-
ferð
Sikileyjarvörn
1.e4 c5 2.Rf3 d6 3.d4 cxd4
4.Dxd4!? –
Uppáhaldsleikur hins 69 ára stór-
meistara.
4. – Rc6 5.Bb5 Bd7 6.Bxc6 Bxc6
7.Rc3 Rf6 8.Bg5 e6 9.0–0–0 –
Hvítur hefur einnig hrókað stutt í
þessari stöðu, t.d. 9.0–0 Be7
10.Had1 0–0 11.Hfe1 Da5 12.Bh4
Hfd8 13.Dd3 Dh5 14.He3 Hac8
15.Bxf6 Bxf6 16.Rd4 g6 17.Rce2 d5
18.Rg3 De5 19.c3 dxe4 20.De2 Dd6
21.Hd2 Bg5 22.Rb3 De5 og hvítur
gafst upp (Dückstein-Fischer, Zür-
ich 1959).
9. – Be7 10.Hhe1 0–0 11.Kb1 Da5
Líklega er betra að leika 11. – Dc7
í þessari stöðu.
12.Dd2 Da6!?
Van Wely fylgir þekktri uppskrift,
sem til þessa hefur verið talin besta
leiðin fyrir svart. Hugmyndin er að
undirbúa að leika fram b-peðinu.
Önnur leið er 12. – Db6, t.d.
13.Rd4 Hfd8 14.f3 Hac8 15.g4 Be8
16.h4 Hc4 17.Be3 Da6 18.g5 Rd7
19.h5 Hdc8 20.Rce2 Re5 21.c3 H4c7
22.Rc1 Ba4 23.Rcb3 Hd7 24.g6 hxg6
25.hxg6 Rxg6 26.Dh2 Bf6 27.Hh1
Kf8 28.Hhg1 Ke7 29.Bg5 Bxb3
30.axb3 Hc5 31.Bxf6+ gxf6 32.Hxg6
fxg6 33.Dh7+ Ke8 34.Dg8+ Ke7
35.Dg7+ Ke8 36.Dg8+ Ke7
37.Dxe6+ Kd8 38.Dg8+ Kc7
39.Re6+ Kb6 40.Rxc5 og hvítur á
vinningsstöðu (Vasjukov-Platonov,
Sovétríkjunum 1969).
Aðrir leikir fyrir svart í stöðunni
eru 12. – Hfd8 og 12. – Dc7 o.s.frv.
13.Rd4 Hfc8
14.f4!? –
Nýr leikur. Þekkt er 14.f3, t.d. 14.
– b5 15.g4 b4 16.Rce2 Be8 17.Rg3 h6
18.Be3 Rd7 19.Bxh6 Bf8 20.Bg5 Re5
21.Rh5 Hc5 22.b3 Ha5 23.De2 Bb5
24.Rxb5 Hxa2 25.Kc1 Hc8 26.Rd4
Haxc2+ 27.Rxc2 Da1+ 28.Kd2
Dc3+ 29.Kc1 Rxf3 30.Kb1 Dxb3+
31.Kc1 Da2 og hvítur gafst upp (Ep-
ishin-Dvoirys, Skákþingi Sovétríkj-
anna, Leningrad 1990).
14. – h6 15.h4! –
Vasjukov fórnar manni til þess að
opna h-línuna til sóknar. Hann á
varla um annað að velja, því að eftir
bæði 14. Bh4 Rxe4 og 14. Bxf6 Bxf6
stendur svartur betur.
15. – Dc4?!
Svartur hefði líklega átt að leika
15. – b5, t.d. 16.e5 dxe5 17.fxe5 b4
18.De2 Dxe2 19.Rcxe2 hxg5 20.exf6
Bxf6 og hann stendur vel.
Eftir 15. – hxg5 16.hxg5, t.d. 16. –
Re8 17.Hh1 Bd8 18.De3 Dc4 19.Dh3
Kf8 20.g6 Bb6 21.gxf7 Kxf7
22.Dh5+ g6 23.Dh7+ Rg7 24.Rxc6
Hxc6 25.Hh6 Hg8 26.Dxg6+ Kf8
27.Df6+ Ke8 28.Dg6+ Kf8 verður
skákin jafntefli.
16.g4! Kf8
Ekki gengur 16. – hxg5?! 17.hxg5
Re8 18.Hh1 Bd8 19.f5 e5? 20.Dh2
Kf8 21.f6 Bxf6 22.gxf6 Rxf6 23.Rf5
Rg8 24.Dh7 Bxe4 25. Dxg7+ Ke8 26.
Rxd6+ og hvítur á vinningsstöðu.
17.f5 hxg5 18.hxg5 Rd7
Eða 18. – Rxg4 19.fxe6 Re5
20.Hh1, sjá skákina, með þeim mun
þó, að þar lifir hvíta peðið á g4.
19.fxe6 Re5 20.Hh1 –
Einfaldara er 20.Dh2! fxe6 21.Rxc6
bxc6 22.Dh8+ Kf7 23.Hf1+ Bf6
24.Hxf6+ gxf6 25.Dh7+ Kf8 26.gxf6
Hc7 27.Dh8+ Kf7 28.Dg7+ Ke8 29.
Dxc7 og svartur á enga vörn við hót-
unum hvíts, eftir 30. Hd1-h1 o.s.frv.
20. – fxe6 21.b3! –
Nú neyðist svartur til að gefa eftir
valdið á e6.
21. – Db4 22.Hh8+ Kf7 23.Df4+
Bf6
Eða 23. – Kg6 24.Rxe6 Bxe4
25.Rxe4 Rxg4 26.Hf1 og við hótun-
unum 27. Df5+ eða 27. Df7+ er lítið
að gera.
24.Hh7! Kg8
25.gxf6! Kxh7 26.Dg5 Hc7
Eða 26. – g6 27. Hh1+ Kg8 28.
Dh6 og svartur verður mát.
27.Rxe6 --
Eftir 27. Hh1+ Kg8 28. Dh5 stytt-
ist í, að svartur verði mát.
27. – Hac8 28.fxg7 Kg8
Eða 28. – Dxc3 29. g8D+ Hxg8 30.
Hh1+ og mát í næsta leik.
29.Hh1 Bxe4 30.Hh8+ Kf7
31.Rxc7 Dxc3 32.g8D+
og svartur gafst. Hann á gjörtap-
að tafl, eftir 32. – Hxg8 33. Dxg8+
Kf6 34. Re8+ Ke7 35. Dg7+ Ke6 36.
Rc7+ Dxc7 37. Dxc7 o.s.frv.
Helgi Áss Íslands-
meistari í atskák
Helgi Áss
Grétarsson
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
SKÁK
Reykjavík
ÍSLANDSMÓTIÐ Í ATSKÁK –
ÚRSLITAEINVÍGI
24.2. 2002
mbl.isFRÉTTIR