Morgunblaðið - 26.02.2002, Side 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Þakklæti
fyrir góða grein
ÉG vil koma á framfæri
þakklæti mínu fyrir grein
Páls Gíslasonar, læknis og
fyrrv. borgarfulltrúa, sem
birtist í Morgunblaðinu sl.
föstudag: Ábyrgðir og gam-
alt fólk. Í greininni er Páll
að hvetja lánastofnanir að
hætta að taka íbúðir af fólki
sem hefur gengið í ábyrgðir
fyrir aðra.
Jón Kjartansson,
form. leigjendasamtak.
Um hundahald
ÞAR sem ég nú nýverið er
orðinn hundagæslumaður
tímabundið fyrir son minn
sem dvalist hefur í Noregi í
nokkur ár vil ég koma eft-
irfarandi á framfæri.
Þetta eru tveir hundar af
Samojed-kyni frá Síberíu
sem þola vel hungur og
kulda, eiginlega sleða-
hundar. Mjög svo gæfir,
geðugir og skynsamir og
það er mjög svo ánægjulegt
að umgangast þá endaþótt
ég hafi aldrei umgengist
hunda áður.
Gestkomandi fólk kallar
þá gjarnan ísbirni því þeir
eru hvítir á litinn, umfangs-
miklir og stórir. Ég hefi
haft mikla ánægju af þeim
enn sem komið er en þeir
þurfa mikla umsjá. Ég
kjassa þá stundum og tala
við þá sem jafningja og þá
sleikja þeir hendur mínar
og dingla skottinu af tilfinn-
ingu. Ég fer með annan
þeirra útí veðrið en hann er
þó ennþá erfiður í taumi og
á erfitt með að skilja að ég
sé húsbóndi hans. Það væri
ekki hægt að standa í þessu
einsamall og því er eigin-
kona mín til hjálpar og veit-
ir þeim mat og drykk og
aðra umhyggju ásamt mér.
Að þessu sögðu er ég
með hundahaldi og styð það
í hvívetna því þetta eru tals-
vert mannlegar skepnur og
til ánægjuauka í lífinu.
Páll Hannesson,
Ægisíðu 86, R.
Fagmennska
og hlýtt viðmót
ÉG VIL koma á framfæri
þakklæti fyrir frábæra fag-
mennsku og hlýtt viðmót á
nuddstofu Jia Rui í Hamra-
borg í Kópavogi. Ég var
með þrálátt brak í hálslið-
unum um lengri tíma og
óþægindi sem því fylgdi.
Eftir 5 tíma í nuddi og
hnykkingu læknaðist háls-
inn ásamt ýmsum öðrum
smá stress kvillum. Svefn-
inn er betri og líkamleg og
andleg orka komin á rétta
braut.
Vilborg Ragnarsdóttir.
Gamli góði sónninn
ÉG hlustaði á Kastljós þar
sem Atli Heimir Sveinsson
minntist á að honum þætti
betra að heyra gamla góða
á tali-sóninn í símanum
þegar númerið væri á tali í
stað þess að heyra rödd
sem segði: Þetta númer er á
tali, vinsamlega reynið síð-
ar. Er ég honum innilega
sammála. Vil ég frekar
heyra á tali-sóninn og reyna
svo bara aftur síðar og vil
endilega að þessu sé hætt.
Eins hef ég verið að velta
því fyrir mér hvort þetta
kosti þann sem hringir eitt-
hvað, þ.e. að lenda á svona
símsvara.
111232-3859.
Tapað/fundið
Lyklakippa í óskilum
LYKLAKIPPA með hús-
lyklum og bíllyklum fannst í
Flúðaseli. Upplýsingar í
síma 587 8276.
Bíllykill týndist
í Smáralind
ÞRÁÐLAUS bíllykill (leð-
urkippa Ford) týndist í
Smáralind sunnudaginn 3.
febrúar. Finnandi skildi
eftir miða á bílnum og gaf
upp símanúmer sem ekki er
tengt. Er viðkomandi beð-
inn að hafa samband í síma
566 7994.
Dýrahald
Jenni er týndur
SÍAMSLITAÐUR balen-
ise-köttur týndist sl. mið-
vikudag frá Mosarima í
Grafarvogi. Hann er með
bláa demantsól og eyrna-
merktur. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 587 0447 og
698 1017.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI tekur iðulega strætóog hefur komist að því að á
þeirri leið, sem hann þarf að fara til
að komast í og úr vinnu, er hann lítið
lengur að komast á milli en færi hann
á einkabíl. Það er vitaskuld lykilat-
riði í almenningssamgöngum að al-
menningur komist hratt og örugg-
lega leiðar sinnar.
Tíðar strætisvagnaferðir Víkverja
hafa hins vegar vakið hann til um-
hugsunar um nýtingu á vögnunum.
Víkverji minnist þess að þegar hann
tók strætó utan af Seltjarnarnesi nið-
ur í bæ á menntaskólaárum sínum
var vagninn án undantekningar troð-
fullur og máttu þeir, sem ekki bjuggu
yst á Nesinu gera sér að góðu að
standa eins og sardínur í dós þar til
komið var á áfangastað. Víkverji hef-
ur ekki fundið fyrir neinni sardínu-
dósatilfinningu í strætisvögnum
borgarinnar að undanförnu. Þvert á
móti. Vagninn virkar yfirleitt hálf-
tómur. Því er iðulega haldið fram að
meðal annars eigi að leggja áherslu á
almenningssamgöngur af umhverfis-
sjónarmiðum. Það getur hins vegar
ekki verið mikill ávinningur fyrir um-
hverfið að hinir risavöxnu strætis-
vagnar bruni nánast tómir um göt-
urnar á meðan strókurinn stendur
aftur úr þeim og væri fróðlegt að vita
hvort ekki standi til að bæta sæta-
nýtinguna í vögnunum. Stundum eru
svo fáir í vagninum að einkabíll gæti
leyst strætisvagninn af hólmi.
Það er ljóst af fámenninu í stræt-
isvögnum borgarinnar að almenning-
ur lítur ekki á þá sem raunhæfan
kost í samgöngum. Þar liggur ugg-
laust margt að baki. Þeir, sem ekki
kunna á leiðakerfið og áætlun vagn-
anna, eiga á hættu að þurfa að bíða
allt að tuttugu mínútur eftir næsta
vagni og hlýtur það að fæla frá. Þeir,
sem taka strætó, þurfa hins vegar
ekki að óttast þrengsli að óbreyttu.
x x x
VINSÆLDIR almenningssam-gangna hljóta að ákvarðast af
þeirri þjónustu, sem boðið er upp á.
Sú var tíðin að strætisvagnarnir
gengu á fimmtán mínútna fresti.
Vitaskuld væri hið mesta óráð að
fjölga ferðum með tilheyrandi fjár-
festingum í bílaflota ef vagnarnir
yrðu jafn tómir eftir sem áður – og
jafnvel færri farþegar í hverjum
vagni.
Annar kostur er að sníða kerfið að
eftirspurninni og fækka ferlíkjunum.
Ef reynsla Víkverja af mannfæð í
strætisvögnum á við á flestum leið-
um strætisvagnakerfisins hlýtur að
koma til greina að skipta einfaldlega
yfir í smærri bíla. Hinir stóru stræt-
isvagnar þurfa iðulega að fara um
þröngar götur og taka krappar
beygjur þar sem er lítið svigrúm. Við
slíkar aðstæður er ekki beint hægt að
tala um að þeir séu liprir í akstri.
Minni bílar myndu falla betur inn í og
mun fremur vera í takt við umferð-
ina. Hér á landi er iðulega gert mikið
úr því að götur borgarinnar beri ekki
lengur þá miklu umferð, sem hér er.
Þetta er reyndar sjónarmið, sem ber
því vitni að viðkomandi hafi aldrei
þurft að komast leiðar sinnar á bíl á
umferðartíma í stórborgum ríkjanna
í kringum okkur. Á hinn bóginn ber
að nýta alla kosti, sem kynnu að
greiða fyrir umferð, og smærri
strætisvagnar í takt við nýtingu og
umferð gætu verið liður í því.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 vera fær um, 4 helm-
ingur, 7 andlegt atgervi,
8 afkvæmum, 9 elska, 11
skarn, 13 ilma, 14 yfir-
hafnir, 15 trjámylsna, 17
grófgerður, 20 sterk
löngun, 22 rekur í, 23
poka, 24 gyðju, 25 lofar.
LÓÐRÉTT:
1 massa, 2 spakur, 3
nytjalanda, 4 fall, 5
ósannsögul, 6 þjálfa, 10
kaldur, 12 strit, 13 rölt,
15 málmur, 16 illkvittin,
18 læsum, 19 blóms, 20
þrjóskur, 21 hæðir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 braglínan, 8 eimur, 9 ylinn, 10 lán, 11 glata, 13
dunar, 15 skæða, 18 gassi, 21 ull, 22 stirð, 23 æskan, 24
gapuxanna.
Lóðrétt: 2 remma, 3 gerla, 4 ímynd, 5 arinn, 6 berg, 7
snýr, 12 tíð, 14 una, 15 sess, 16 ævina, 17 auðnu, 18
glæða, 19 sökin, 20 inna.
K r o s s g á t a
VEGNA skrifa um geð-
heilbrigðismál vil ég
leggja nokkur orð í belg.
Árið 1954 komu fyrstu
geðlyfin á markað. Á
þeim tímapunkti gat fólk í
hrönnum útskrifast af
Kleppsspítalanum og jafn-
vel sótt vinnu. Þá var hætt
að nota spennitreyjur og
vatnsmeðferð. Síðan hafa
að mínu áliti orðið
straumhvörf í þágu þeirra
sem þjást af geðrösk-
unum. Ný og sérhæfð lyf,
ásamt viðtalsmeðferðum
og vinnustöðum fyrir ör-
yrkja. Einn þessara vinnu-
staða er Múlalundur, sem
jafnvel á að loka. Finnst
mér það afturför en mér
skilst að það eigi að gera
úttekt á þeim stað. Finnst
mér yfirbyggingin þar
óþarflega mikil. Staður
eins og Geðhjálp, Vin og
fleiri hafa sýnt mikinn ár-
angur og eru athvarf
margra þar sem þeir taka
virkan þátt í meðferðinni.
Er ég nokkuð sáttur við
mestan hluta þess sem er
að gerast í geðheilbrigð-
ismálum núna.
Guðbjörn Hjálmarsson,
Hátúni 10a.
Um geðheilbrigðismál
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss kemur og fer í
dag. Fure Star kemur í
dag. Guðrún Gísladóttir
fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, leirkera-
smíði, kl 10 boccia, kl. 10
enska, kl. 11 enska og
dans Lance, kl. 13
vinnustofa, og bað.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa.
Uppl. í síma 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–9.45 leikfimi,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
9–16 handavinna, kl. 10–
17 fótaaðgerð, kl. 10
sund, kl. 13 leirlist, kl.
14. dans.
Eldri borgarar Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl. 13–
16.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 10 samverustund,
kl.14 félagsvist.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 13 fönd-
ur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Félagsstarf
aldraðra Garðabæ. Í dag
kl. 13.30 spilað í Holts-
búð. Fimmtud. 28. feb.
kl. 19.30 bingó í Kirkju-
hvoli. Fimmtud. 7. mars
kl. 20 Borgarleikhúsið
Íslenski dansflokkurinn.
Miðapantanir í síma
565-6622 eftir hádegi.
Þriðju. 26. feb. kl. 9
vinnuh. gler, kl. 13 mál-
un, kl. 13.30 tréskurður,
kl. 13.30 spilað í Holts-
búð, kl. 16 bútasaumur
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Kl. 13.30
saumur og brids. Á
morgun myndlist kl 13
og pílukast kl 13:30.
Sæludagar á Örkinni 3.–
8 mars. Þátttakendur
láti vita ef ætla að nota
rútuna sem fer sunnud.
3. mars í s. 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Félagi eldri
borgara í Reykjavík, Ás-
garði Glæsibæ.
Þriðjud. Skák kl. 13 og
alkort kl. 13.30. Mið-
vikud: Göngu-hrólfar
fara í göngu frá Ásgarði
kl. 10. Söngfélag FEB
kóræfing kl 17. Línu-
danskennsla kl. 19.15.
Söngvaka kl. 20.45
stjórnandi Vigdís Ein-
arsdóttir, umsjón Sig-
urbjörg Hólmgríms-
dóttir. Leikfélagið
Snúður og Snælda sýnir
í Ásgarði Söng og gam-
anleikinn „Í lífsins ólgu-
sjó“ minningar frá ár-
um síldarævintýranna.
Og „Fugl í búri“ drama-
tískan gamanleik. Sýn-
ingar: Miðviku- og
föstudaga kl. 14 og
sunnud. kl. 16. Miða-
pantanir í s: 588-2111,
568-8092 og 551-2203.
Framtalsaðstoð frá
Skattstofu Reykjavíkur
verður þriðjud. 19. mars
á skrifstofu félagsins,
panta þarf tíma.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
mennska, kl. 13 boccia.
Fimmtudaginn 28. feb.
Leikhúsferð í Borg-
arleikhúsið „Boðorðin
níu“, skráning hafin.
Félagsvist verður 28.
feb. kl. 13.15 í samstarfi
við Seljaskóla, umsjón
Eiríkur Sigfússon. Allir
velkomnir, verðlaun.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575-7720
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik-
fimi, kl. 9.30 gler-
skurður, kl. 10 handa-
vinna, kl. 14
þriðjudagsganga, kl.
15.30 spænska, kl. 16.20
og kl. 17.15 kínversk
leikfimi, kl. 19 brids.
Góugleði verður
fimmtudaginn 28. feb
kl. 14. Góð skemmti-
atriði. Þema dagsins:
Þú ert það sem ofan í
þig fer.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
19 gömlu dansarnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og leikfimi, kl.
9.45 bankaþjónusta, kl.
13.30 helgistund. Fóta-
aðgerð, hár- og hand-
snyrting.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskurður og tré-
málun, kl. 10 boccia, kl.
11 leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð í Bónus,
kl. 13–17 hárgreiðsla.
Háteigskirkja eldri
borgarar á morgun mið-
vikudag, samvera, fyr-
irbænastund í kirkjunni
kl. 11, súpa í Setrinu kl.
12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla. Félagsstarfið
er opið öllum aldurs-
hópum, allir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl.9.15–16 bútasaumur,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 11 leikfimi, kl.
13 spilamennska. Höfum
laus pláss í tréútskurði.
Konur sérstaklega vel-
komnar. Nánari upplýs-
ingar í síma 562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 handmennt
og körfugerð, kl. 14 fé-
lagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Ásgarði,
Glæsibæ.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á miðvikud.
kl. 20, svarað í s.
552 6644 á fundartíma.
Reykjavíkurdeild SÍBS
félagsvist í húsnæði
Múlalundar, vinnustofu
SÍBS, í kvöld. Félagar
fjölmennið og takið með
ykkur gesti. Byrjað að
spila kl 20. Mæting kl
19.30. Húsinu lokað kl.
20.
Kvenfélag Hreyfils. Að-
alfundur í dag kl.20
venjuleg aðalfundarstörf
og félagsvist.
Öldungaráð Hauka
heldur fund á Ásvöllum
miðvikud. 27. febrúar kl.
20.
Hana-nú Kópavogi.
Skráningu lýkur 1. mars
á menningardaga Bók-
menntaklúbbsins og
Bókasafns Kópavogs í
Skálholti mánud. 18.
mars til miðvikud. 20.
mars til heiðurs Halldóri
Kiljani Laxness. Kynn-
ing á ferðinni í dag í
anddyri Gjábakka kl.
13–14 og í Gullsmára kl.
14–15. Uppl. í Gjábakka
s. 554-3400 og Gull-
smára s.564-5261. Allir
velkomnir.
Öldungaráðið. Fundur
verður í Varðskipnu Tý
kl. 12 í boði Hafsteins
Hafsteinssonar forstjóra
Landhelgisgæslu Ís-
lands. Mætum allir.
Þjóðdansafélag Reykja-
víkur Opið hús í Álfa-
bakka 14a í kvöld.
Gömlu dansarnir frá kl.
20.30–23.
Eldri borgarar í Graf-
arvogi. Miðvikud. 27.
feb. kl. er fundur í Mið-
garði, Langarima 21.
Gestur fundarins Sig-
urður Þorsteinsson, frá
nýju íþróttahöllinni í
Grafarvogi, sýnir þrí-
víddarmyndband af
íþróttahöllinni ásamt
teikningum og kynnir
fyrirhugaða starfsemi
sem m.a. er ætluð eldri
borgurum. Umræður og
fyrirspurnir að lokinni
framsögu. Heitt á könn-
unni. Allir eldri borg-
arar í Grafarvogi vel-
komnir. Uppl. gefur
Þráinn s. 5454-500.
Í dag er þriðjudagur 26. febrúar,
57. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Afbrot vor eru mörg frammi fyrir
þér og syndir vorar vitna í gegn oss,
því að afbrot vor eru oss kunn og
misgjörðir vorar þekkjum vér.
(Jes. 59, 12.)