Morgunblaðið - 26.02.2002, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 49
4
1/2
Kvikmyndir.isDV
Frá leikstjóra
Blue Streak
Hasarstuð frá
byrjun til enda
Sýnd kl. 10.
B.I. 14 ára. Vit 340
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8. Vit 332
DV Rás 2
Sýnd kl. 3.50.
Ísl. tal. Vit 320
Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Ísl. tal. Vit 338Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
Ævintýramynd af
bestu gerð sem byggð
er á hinni þekktu sögu
um Greifann af Monte
Cristo. Guy Pearce fer
á kostum í frábærri
mynd um svik, hefndir
og heitar ástríður.
„Búið ykkur undir
ævintýrið!“
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.I. 12 ára. Vit 347.
Sýnd kl. 3.40. Vit 328
HJ MBL
ÓHT Rás 2
DV
Tilnefningar til Óskarsverðlauna2
Kvikmyndir.com
Byggt á sögu Stephen King
Sýnd kl. 9.
B.i. 12. Vit 339.
4
Sýnd kl. 7 og 9.
B.i 16. Vit 339.
1/2
Kvikmyndir.is
Frá leikstjóra Enemy of the State og Crimson Tide. Brad Pitt sýnir magnaða
takta í myndinni ásamt Óskarsverðlaunahafanum, Robert Redford.
Adrenalínhlaðin spenna út í gegn.
Robert Readford
Brad Pitt
Ó.H.T Rás2
Það er ekki
spurning hvernig
þú spilar leikinn.
Heldur hvernig
leikurinn spilar
með þig.
Sýnd kl. 6.40 og 9. B.i. 12 ára. Vit nr. 341.
Sýnd kl. 7. Ísl. Vit 338.
tilnefningar til
HK DV
DV
23. 02. 2002
1
7 0 5 6 0
1 2 0 9 4
6 9 34 38
37Tvöfaldur1. vinningur
í næstu viku
20. 02. 2002
2 8 17
25 32 41
30 31
1. vinningur för
til Noregs.
Hverfisgötu 551 9000
Spennutryllir
ársins
Sýnd kl. 5.40, 8 og
10.20. B. i. 16.
Stórverslun á netinu www.skifan.is
Sýnd kl. 5.30.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
DV
1/2
Radío-X
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14 ára.
SV Mbl
DV
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Gwyneth Paltrow Jack Black
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16 ára.
Eina vopn hans er
viljinn til að lifa.
Stanslaus spenna frá
upphafi til enda. Með
stórleikaranum Gene
Hackman
og hinum frábæra
Owen Wilson.
KYNNING
Frábær viðbót í Bourjois litalínunni
Við kynnum nýjan og betrumbættan farða fyrir allar
húðgerðir og allan aldur
Fluid Foundation • Compact powder • Stick Foundation • Concealer
Kynning í dag þriðjudag LYFJU SETBERGI, HAFNARFIRÐI,
miðvikudag LYFJU GARÐATORGI,
fimmtudag LYFJU SPÖNGINNI,
föstudag LYFJU SMÁRALIND.
Allar kynningar eru kl. 13-17.
Gjöf fylgir kaupum.
MYNDIN gerist á heima-vistarskóla fyrir stúlk-ur þar sem hinni ný-byrjuðu Mouse (Mischa
Barton, The Sixth Sense) er komið
fyrir í herbergi með Paulie (Piper
Perabo, Coyote Ugly) og Tory (Jess-
ica Paré, Stardom) sem hafa deilt
herberginu um skeið. Myndin fjallar
um samband Paulie og Tory séð frá
sjónarhóli Mouse sem uppgötvar
smám saman að samband herberg-
isfélaga hennar er meira en vinátta.
Þegar hinar stelpurnar á heimavist-
inni komast að leyndarmálinu, lætur
Tory undan þrýstingi skólasystra og
fjölskyldu, og ákveður að fórna sam-
bandinu á meðan Paulie berst fyrir
ástinni með kjafti og klóm. Harm-
leikur virðist í uppsiglingu.
Ég hitti hina viðkunnanlegu Pool í
fyrra á Berlinale-hótelinu. Ég sagði
henni að mér þætti Lost and Del-
irious með betri myndum sem ég
hefði séð á hátíðinni til þessa, en á
sama tíma hafi ég heyrt annan blaða-
mann segja félaga sínum að hann
hefði farið út í miðri sýningunni. Ég
spurði Pool hvort hún gæti ímyndað
sér til hvaða áhorfenda myndin höfð-
aði. „Þetta er mynd um óskynsemi
og ástríður, og það er ekki víst að
mynd fyrir hjartað hitti í mark ef
maður horfir á hana frá sjónarhóli
skynseminnar. Unglingsárin eru
handan skynseminnar, ruglingsleg,
uppfull af tilfinningum og einkenn-
ast af stjórnleysi. Fullorðinn áhorf-
andi sem er ófær um að setja sig inn í
tilfinningaflóð unglingsáranna gæti
átt erfitt með að tengjast myndinni.
Þetta á sérstaklega við um kvik-
myndagagnrýndur sem gleyma
stundum að vera áhorfendur þar
sem þeir eru of uppteknir af því að
lesa eitthvað skynsamlegt út úr
myndinni. Áður en ég hófst handa
spurði ég sjálfa mig hvort ég væri
nógu hugrökk til að gera svona til-
finningahlaðna mynd. Mér var hugs-
að til myndar eftir Taviani-bræður
þar sem spurningunni „Af hverju
skelfurðu?“ er svarað „Ég skelf af
kulda vegna þess að ég elska þig“.
Bíógestir hlógu að þessu atriði sem
þeim fannst heimskuleg tilfinninga-
þvæla. Í fyrstu myndinni sem ég
leikstýrði, La femme de l’hôtel (sem
var á Berlinale 1985), lét ég persónur
myndarinnar horfa á fyrrnefnt atriði
úr mynd Taviani-bræðra í sjónvarp-
inu. Mér fannst mikilvægt að ein-
hver þyrði að segja þessi orð. Rit-
skoðun beinist ekki einungis að
kynlífi og ofbeldi, heldur einnig, með
ómeðvitaðri hætti, að tilfinningum.
Fólk er hrætt við óheflaðar tilfinn-
ingar. Nýjasta myndin mín fjallar
um ungt fólk sem er uppfullt af
hráum tilfinningum. Þegar maður
eldist á maður það til að gleyma
þessum tilfinningum, þessu tímabili
þar sem maður þjáðist en var á viss-
an hátt meira lifandi þar sem maður
var gagnsýrður sterkum tilfinning-
um.“
Er þessi tegund af sannri, sak-
lausri, sterkri ást sem maður upplifir
á unglingsárunum óhugsandi á full-
orðinsárunum? „Maður getur upplif-
að slíka ást allt þar til að maður er
kominn á grafarbakkann og ást full-
orðinnar menneskju getur að sjálf-
sögðu verið mjög sterk, en hún er
ófær að tjá ástina með þessum óhefl-
aða hætti. Í millitíðinni eru komnar
raddir innra með manni sem koma í
veg fyrir að maður sleppi sér að
hætti unglingsins, og maður reynir
þess í stað að ná tökum á þessum til-
finningum.“
„Sjálf er ég lítil mús“
Í myndinni fullyrðir ein persónan
að fordómar í garð samkynhneigðra
virðast ekki ætla að líða undir lok á
21. öld. Ég spurði Pool hvort hún
teldi að slíkir fordómar væru á und-
anhaldi eða hvort allt eins mætti bú-
ast við bakslagi. „Ég held að það
gæti komið bakslag, t.d. þegar mað-
ur horfir til Bush í Bandaríkjunum“,
segir Pool og hlær. „En ég gerði
þessa mynd ekki í því skyni að berj-
ast fyrir málstað heldur vegna þess
að mér fannst þetta falleg ástarsaga.
Það má þó ekki gleyma því að enn er
mikið um að ungt samkynhneigt fólk
fremji sjálfsmorð vegna forboðinnar
kynhneigðar sinnar. Foreldrar verða
að virða vilja og ákvarðanir barna
sinna. Ef ást foreldra er sönn munu
þau samþykkja samkynhneigð barna
sinna. Maður á ekki að þurfa að eyði-
leggja líf sitt út af foreldrunum.“
Árið 1975 yfirgaf hin 25 ára gamla
Pool Sviss og hóf kvikmyndanám í
Quebec í Kanada þar sem hún settist
að. Lost and Delirious er fyrsta
enskumælandi mynd hennar. Ég
spurði hana hvort hún væri þannig
að ryðja sér braut á nýjum markaði?
„Nei, það var ekki af markaðslegum
ástæðum heldur var handritið ein-
faldlega á ensku. Ég var að vinna að
öðru handriti og fékk þá þetta full-
kláraða handrit upp í hendurnar. Í
fyrstu var ég óviss hvort ég hefði tök
á öllum smáatriðum tilfinningalífsins
á ensku. En nýjungin var þó frekar
fólgin í því að taka við verkefni þar
sem allt var klappað og klárt, en
venjulega skrifa ég mín eigin hand-
rit. Fyrri myndir mínar eru frekar
innhverfar en Paulie í Lost and Del-
irious er úthverf. Ég held að ég hefði
ekki getað skrifað þessa persónu
sjálf. Þótt slík ástríða hafi verið
innra með mér á unglingsárunum
var ég of feimin til þess að varpa
henni fram með þessum hætti. Ég er
um margt líkari Mouse, og persón-
urnar í myndum mínum eru því oft
litlar mýs. Ég var óviss hvort mér
sem persónu tækist að stýra leikkon-
unni inn í þetta hlutverk, og ég lagði
því mikla áherslu á að finna leikkonu
sem réði við þessa persónu sem er
furðuleg en jafnframt dásamleg, og
heillar mig þar sem hún er óhrædd
við tilfinningar sínar og fer alla leið.“
Margar mynda Pool snerta ævi-
sögu hennar. Þannig var opnunar-
mynd Berlinale 1999, Emporte-moi,
tileinkuð móður hennar og dóttur
(sem hún ættleiddi 1995 frá Kína).
Myndin byggist á unglingsárum
leikstjórans. Faðirinn, pólskur gyð-
ingur, var árangurslítill rithöfundur,
og kaþólsk móðirin þurfti að brauð-
fæða fjölskylduna. Pool var á upp-
tökuheimili í þrjú ár sökum andlegr-
ar vanheilsu móðurinnar. „Æska
mín var erfiður tími. Mamma vann
mjög mikið og ég sá hana nánast
aldrei. Myndir mínar eru að miklu
leyti tilraun til að ná afturvirku sam-
bandi við móður mína, og eftir að ég
eignaðist dóttur eru þær jafnframt
tilraun til að miðla henni einhverju
úr fortíð minni.“
„Fólk er hrætt við
óheflaðar tilfinningar“
„Þetta er mynd um óskynsemi
og ástríður,“ segir leikstjórinn
Léa Pool um mynd sína, Lost
and Delirious.
Nýjasta mynd kanadíska leikstjórans Léa
Pool, Lost and Delirious, er komin á mynd-
band. Davíð Kristinsson tók Pool tali á
Berlinale og ræddi m.a. við hana um ástríð-
ur unglingsáranna.