Morgunblaðið - 07.04.2002, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 B 7
Söluaðilar Navision Attain á Íslandi eru: Element HSC Landsteinar Ísland Maritech Strengur Tölvuþjónustan á Akranesi
Einfalt að innleiða, auðvelt að aðlaga og öruggt í notkun. Á veginum til vaxtar verður þú að geta
brugðist við breytingum, nýtt þér styrkleika þína og gripið sóknartækifærin þegar þau gefast.
Sjáðu hvernig Navision getur hjálpað þér að fullnýta tækifærin á www.navision.is
Navision Attain er ný kynslóð viðskiptahugbúnaðar frá Navision, byggð á hinu vinsæla kerfi Navision Financials
VEIÐIN hefur verið fremur dræm í
þeim ám sem opnaðar hafa verið.
Skást hefur veiðin verið í sjóbirt-
ingsám í námunda við Klaustur,
helst að Geirlandsá hafi gefið reyt-
ingsveiði. Þá hafa einnig fiskast góð-
ir birtingar úr Hörgsá neðri og Eld-
vatni á Brunasandi. Reytingur hefur
verið í Varmá, mest smár fiskur, en
lítið hefur veiðst í Soginu. Enginn
fiskur tvo fyrstu dagana í Ásgarði og
lítið ef nokkuð í Bíldsfelli. Menn urðu
þó varir, en fiskur tók grannt og náð-
ist ekki.
Eftir sæmileg hlýindi síðustu daga
má búast við að veiði glæðist á næst-
unni. Enn hefur ekki frést af stærri
birtingi en 14 pundara sem veiddist á
Skaftársvæðinu, í Landbrotinu,
fyrsta veiðidaginn.
Hópið til SVFR
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hef-
ur tekið Hópið í Húnavatnssýslu á
leigu. Þetta er mikill fengur fyrir fé-
lagsmenn SVFR, þ.e.a.s. skuldlausa
félagsmenn SVFR, því ætlunin er að
þeir geti veitt frítt í vatninu gegn
framvísun félagsskírteina. Hópið er
mjög gott veiðivatn, en nauðsynlegt
er fyrir menn að þekkja veiðistaði.
Gríðarlega mikil sjóbleikja er í vatn-
inu, einnig staðbundinn fiskur og
reytingur af sjóbirtingi, enda farleið
hins mikla grúa göngusilungs sem
gengur í Víðidalsá. Best er Hópið á
vorin og snemma sumars. Bleikjan
hefur verið mælimerkt í Hópinu og
hefur komið í ljós, að á umræddum
árstíma liggur bleikjan á aðeins um
tveggja metra dýpi mjög nærri
landi. Það er því gott að ná til henn-
ar, en eins og áður sagði er nauðsyn-
legt að vita um staðina.
Bændur bjóða
Nokkrir bændur innan Ferða-
þjónustu bænda hafa tekið sig til og
boðið stangaveiðimönnum gistingu í
vor gegn ókeypis veiðileyfum. Riðið
er á vaðið með samvinnu við SVFR
og fyrstir til að bjóða eru bændur í
Keldudal í Skagafirði sem bjóða
ókeypis vorveiði í Hólmavatni og
Urriðavatni. Urriði er í þessum vötn-
um og tekur hann einmitt vel á vorin.
Elliðaárnar
missa aðdráttaraflið
Stangaveiðimenn hafa brugðist
við slakri veiði í Elliðaánum síðustu
sumur með því að missa áhugann á
ánum. Eftir fyrstu úthlutun SVFR
til félagsmanna sinna er aragrúi
veiðileyfa laus í ánum. Hún er seld út
í hálfum sögum og kostar dagshlut-
inn 8.300 til 9.400 sem er ekki mikið
miðað við verðlag á laxveiðileyfum
nú til dags. Áhugaleysið hefur verið
að aukast síðustu ár, en til þessa hef-
ur þó besti tíminn, í júlí, selst upp.
Að þessu sinni er einnig mikið af
lausum leyfum í júlí. Segja má að á
þennan hátt fái árnar á óbeinan hátt
þá vernd fyrir veiði sem laxastofn ár-
innar virðist þurfa á að halda.
Veiðin fer ró-
lega af stað
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiðin fer rólega af stað í þeim ám þar sem veiði er hafin. Myndin er tekin á sjóbirtingsslóðum.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is