Morgunblaðið - 07.04.2002, Page 10
10 B SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sælkerar á sunnudegi
Steingrímur Sigurgeirsson Hanna Friðriksdóttir Áslaug Snorradóttir
LAX er meðal þeirra fiska sem hvaðmest innihalda af omega-3-fitusýr-um sem vernda taugafrumur okk-ar og flýta fyrir upplýsingaflæðiþeirra. Aminósýrur og vítamín
sem finna má í laxi, koma við sögu ýmissa
efnasambanda sem spyrna gegn þunglyndi
og bæta næmi skynjunar. Eftirfarandi árbít-
ur kemur manni ljúflega á bragð gleðinnar og
góða skapsins.
LAXAMÚS
(FYRIR TVO)
75 g reyktur lax
1 msk. ólífuolía
1 msk. lint smjör
30 g rjómostur
salt og pipar
1 msk. sítrónusafi
½ knippi ferskur graslaukur
150 g laxafilet
4 grófar ristaðar brauðsneiðar
2 msk. hvítvín
Skerið reykta laxinn í stóra bita og setjið í
lítinn pott ásamt hvítvíni og látið krauma í 2
mín. Blandið því næst ólífuolíu saman við
ásamt ostinum, ögn af salti, pipar og 1 msk. af
sítrónusafa. Skerið ferska laxastykkið í smá
bita og steikið í 2–3 mín. upp úr smjörinu við
vægan hita. Hrærið öllu saman og bætið fínt
söxuðum graslauknum út í að síðustu.
Smakkið til með salti, pipar og sítrónusafa.
Geymið blönduna í kæli þar til hún skal borin
fram. Ljúfur dögurður á sunnudagsmorgni
ofan á vænar, glóðvolgar ristaðar brauðsneið-
ar. Það er upplagt að hræra músina saman
kvöldið áður þannig að ekkert þurfi að gera
nema smyrja henni á brauðið með bros á vör.
Eftirfarandi drykkur ýtir enn frekar undir
hina léttu lund.
2 greipaldin
2 appelsínur
1 lime
1 tsk. hunang
1 cm rifin engiferrót
Pressið safann úr sítrusávöxtunum, bland-
ið hunangi saman við ásamt engiferrót og
hellið í há glös.
Borðum vel og brosum breitt.
Margar kryddjurtir hafa jákvæð áhrif á
andann og saffran getur t.a.m. hjálpað til við
að auka á lífsgleði á meðan kanill og múskat
hífa upp móralinn. Hinn sykraði ilmur vanill-
unnar leysir endorfín úr læðingi sem aftur á
móti stuðla að almennri vellíðan.
Mikið er talað um að kaffi ýti undir stress
og viðkvæmir skuli forðast það í lengstu lög.
Það er nú hins vegar svo að 1–2 sterkir kaffi-
bollar á dag skerpa hugann og kalla fram
skýrari hugmyndir auk þess sem kaffið gefur
orku og eflir sjálsftraust. Kaffi hefur styrkj-
andi áhrif á virkni hormónanna, dópamíns og
noradrenalíns. Ofneysla kaffis hefur hins
vegar þveröfug áhrif og henni fylgir jafn-
framt taugaveiklun og skjálfti.
Kakóduft hefur að geyma ótal mjög virk
efnasambönd sem sefa órólegar sálir og fólki
í ástarsorg verður einnig gott af hóflegu
súkkulaðiáti allt með því að örva skynjunina.
Teóbrómín örvar t.d. miðtaugakerfið, fenílet-
ílamín hefur hvetjandi áhrif á serótónín og
skapar þannig ánægju og léttir lundina. Til
þess að súkkulaði hafi tilætluð áhrif þarf það
að vera sem sem dökkast, þ.e. með sem mest
kakóinnihald og sem minnst af sykri. Um
magnið skal ekki segja, en hafa ber í huga að
best er að borða súkkulaði rólega í litlum
skömmtum. Þessi súkkulaðimús kórónar
sunnudagsmorguninn og framkallar vor í
hjartanu.
SÚKKULAÐIMÚS MEÐ KARDIMOMMUM
FYRIR TVO
100 g dökkt súkkulaði
2 tsk. instant-espressokaffiduft
2 msk. kaffilíkjör
½ tsk. kardimommuduft
1 egg
75 g rjómi
1 msk. sykur
½ tsk. vanillusykur
Bræðið 90 g af súkkulaðinu í heitu vatns-
baði (hitaþolin skál ofan í potti). Á meðan því
fer fram, leysið þá kaffiduft upp í 2 msk. af
sjóðheitu vatni og bætið svo líkjörnum út í
ásamt kardimommunni. Aðskiljið hvítu og
rauðu eggsins og blandið rauðunni saman við
sykurinn, vanillusykurinn og 1 msk. af volgu
vatni þannig að úr verði kremkennd blanda,
algerlega hnökralaus. Blandið súkkulaðinu
varlega saman við kaffiblönduna. Stífþeytið
eggjahvítuna og hrærið varlega saman við.
Komið búðingnum fyrir í tveimur desertglös-
um, þekið með loki eða álpappír og setjið í
kæli í a.m.k. 2 tíma (enn betra yfir nótt). Rífið
afganginn af súkkulaðinu og stráið yfir. Berið
fram ásamt ferskum berjum, t.d. jarðarberj-
um, og góðu kaffi.
Hanna Friðriksdóttir
Tvær mýs á sunnudagsmorgni
Morgunblaðið/Áslaug
ahf@mbl.is
HVÍTVÍN frá Ítalíu og Kali-forníu og rauðvín frá Ítalíu,Ástralíu og Suður-Afríku
eru vín vikunnar að þessu sinni.
Öll eiga þau það sameiginlegt að
vera í reynslusölu hjá ÁTVR þessa
stundina.
Fontanafredda Gavi 2000 (1.310
kr.) er hvítvín frá Norður-Ítalíu.
Ilmur grösugur og þéttur, ferskur
með angan af grænum berjum.
Vínið hefur góða fyllingu er
sýrumikið, þétt með beiskum
lakkrís í munni undir lokin.
Carlo Rossi California White
(890 kr.) einkennist af mjúkum og
sætum ávaxta- og blómailm. Sum-
arlegt yfirbragð, appelsínur og
blóm í nefi. Einfalt bragð og ein-
kennalítið, enda ódýrt vín, sýrulítið
með smá sætu. Þetta vín þarf að
kæla vel fyrir neyslu.
Hið rauða Boscaini Valpolicella
Classico San Cirico 1999 (1.270 kr.)
er einnar ekru Valpolicella Class-
ico og vekur strax athygli fyrir fal-
legar umbúðir. Ítalir kunna þá list.
Vínið er eikað aldrei þessu vant af
Valpolicella að vera, sem kemur í
ljós strax í nefi. Í staðinn fyrir
hinn unga kirsuberjamikla ávöxt,
sem yfirleitt einkennir þessi vín, er
dökkt kaffi í aðalhlutverki. Í munni
þétt, stamt og langt.
Þetta er mjög fínt matarvín en
vissulega ekki „Valpolicella“ í þeim
stíl sem flestir kannast við. Mjög
góð kaup.
Einn þekktasti víngerðarmaður
Barossa í Suður-Ástralíu er Peter
Lehmann. Vín hans Barossa Cab-
ernet Sauvignon 1999 (1.560 kr.) er
skotheldur Ástrali. Dökkur ávöxt-
ur, krydd, mynta og kaffi í nefi.
Myntan er áfram fyrirferðarmikil í
bragðinu ásamt dökkum ávext-
inum. Hreinasta sælgæti.
Suður-Afríka er farin að sækja í
sig veðrið á íslenska markaðinum
og hingað streyma frambærileg vín
frá Höfðanum. Eitt þeirra er Spice
Route Andrew’s Hope Cabernet
Sauvignon Merlot 1999 (1.290 kr.).
Ilmurinn dökkur og berjamikill,
minnir helst á krækiberjasafa í
bland við angan af rauðum rósum.
Vínið er nokkuð áfengt, sem gefur
því þyngd og fyllingu, öflugt og
flott.
Steingrímur Sigurgeirsson
Morgunblaðið/Golli
Vín vikunnar