Morgunblaðið - 07.04.2002, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 7. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vinstri krókur æfður
N
ÁLÆGT 300 manns á landinu æfa
hnefaleika, þar af 150–200 manns á
höfuðborgarsvæðinu. Mikill áhugi
virðist hafa vaknað fyrir íþróttinni eft-
ir að ástundun hennar var leyfð með
landslögum á ný. Í Ræktinni á Sel-
tjarnarnesi eru æfingar hjá Hnefa-
leikafélagi Reykjavíkur, jafnt fyrir þá sem eru
lengra komnir og nýliða. Síðastliðinn miðvikudag
voru æfingar fyrir barna- og unglingaflokk og í
beinu framhaldi af því fyrir eldri nýliða. Yngsti þátt-
takandinn á fyrri æfingunni var átta ára gamall en
menn eru enn að stunda íþróttina komnir á níræð-
isaldurinn.
Sigurjón Gunnsteinsson var að þjálfa nýliðana
þegar blaðamenn bar að garði. Hann segir að gömlu
boxararnir séu enn þá að. Menn eins og Guðmundur
Arason, 84 ára, sem æfir þrisvar í viku, og Þorkell
Magnússon, sem voru í fínu formi þegar hnefaleikar
voru bannaðir með lögum hér á landi 1956.
Létt upphitun
Nýliðaæfingin byrjaði með léttri upphitun með
sippi og þótt sippubandið léki ekki beinlínis í hönd-
unum á öllum er greinilegt að menn taka íþróttina
alvarlega og sumir ætla sér langt. Þarna voru tíu
manns og þar af tvær ungar og áhugasamar konur.
Það er þó ekki fyrr en eftir nokkra mánuði sem æf-
ingarnar taka á sig þá mynd að slegist er í hringn-
um og þá eru settar upp höfuðhlífar.
Hnefaleikafélagið er nú að byggja upp nýja að-
stöðu í leiguhúsnæði í Faxafeni. Félagið hefur keypt
keppnishring að utan eins og þeir gerast bestir, sem
þar verður settur upp og stefnt er að því að hefja
þar æfingar í næsta mánuði. Þangað til verður að-
staðan í Ræktinni að duga, en Sigurjón segir að þar
hái plássleysi starfseminni og sömuleiðis vantar
fleiri tæki. Þetta stendur þó allt til bóta í nýju að-
stöðunni og þar verður líka hægt að halda lítil mót.
Keppnishringurinn er færanlegur og þess vegna
hægt að setja hann upp annars staðar þar sem hægt
er að halda stærri mót.
Sama tíma að ári
Hnefaleikafélagið hefur sótt um aðild að Íþrótta-
bandalagi Reykjavíkur og þegar aðildin er orðin
fullgild verður rekstur félagsins settur í fastari
skorður. Sigurjón er í hnefaleikanefnd Íþrótta-
sambands Íslands og á hennar vegum er unnið að
undirbúningi að stofnun Hnefaleikasambands Ís-
lands.
Íslendingar vilja láta kveða að sér í hnefaleikum á
erlendri grund. Það sýndi utanför 13 hnefaleika-
manna til Bandaríkjanna fyrir rúmu einu ári þar
sem þeir þóttu standa sig framar vonum gegn
þrautþjálfuðum boxurum. Keppnisharkan og líkams-
burðirnir fleyttu þeim langt í þeim viðureignum.
Sigurjón kveðst eiga von á því að fyrsta Íslands-
mótið í hnefaleikum síðan 1954 verði haldið að á
sama tíma að ári, þ.e. vorið 2003, 49 árum eftir að
hnefaleikar voru bannaðir með lögum. Nokkrir box-
arar, sem voru upp á sitt besta um miðja síðustu
öld, eru enn á lífi og í fullu fjöri og eiga meira að
segja ennþá Íslandsmeistaratitil að verja.
Sigurjón segir að ekki sé grundvöllur fyrir því að
halda Íslandsmót fyrr en þetta. Fyrst þurfi þeir,
sem eru lengra komnir, að ná upp betra formi því,
eins og eðlilegt má teljast, höfðu íslenskir hnefaleik-
arar ekki að miklu að stefna meðan íþróttin var
bönnuð og æfingar fóru fram í kyrrþey.
Ómissandi við upphitun og þrekþjálfun; sippubandið.
Einbeittar stallsystu
Fyrst eru það vafningarnir og síðan hanskarnir.
Slegist í
sátt við
landslög
Um 300 manns á landinu æfa
hnefaleika í fullri sátt við lands-
lög. Guðjón Guðmundsson og
Kjartan Þorbjörnsson ljósmynd-
ari litu inn á æfingu hjá nýliðum í
Ræktinni og komust að því að
stefnt er að því að halda Íslands-
mót í ólympískum hnefaleikum
vorið 2003, það fyrsta í 49 ár.
Lamið í teygjuboltann óútreiknanlega.