Alþýðublaðið - 22.08.1972, Síða 5

Alþýðublaðið - 22.08.1972, Síða 5
alþyðu| aðið I Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig- hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjóm- ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666. Blaðaprent h.f. „50 MILIIR A0 SJÁ1FSÖ60U" Á fundi þingflokks Alþýðuflokksins, sem hald- inn var eftir hádegi s.l. föstudag — strax eftir að rikisstj. hafði greint landhelgisnefndinni frá dómsuppkvaðningu Alþjóðadómstólsins i Haag varðandi landhelgismálið — var rætt um dóms- uppkvaðninguna og málsatvik i þvi sambandi. Sendi þingflokkurinn frá sér fréttatilkynningu um málið, þar sem m.a. segir svo: „Þingflokkur Alþýðuflokksins er á einu máli um, að mótmæla beri úrskurði Haag-dómstóls- ins. Þingflokkurinn telur sérstaklega ámælis- vert, að dómstóllinn skuli ákveða erlendum þjóðum tiltekið veiðimagn á tslandsmiðum. Enn fremur er það skoðun þingflokksins, að reglu- gerðin um stækkun landhelginnar eigi að sjálf- sögðu að koma til framkvæmda 1. september, þrátt fyrir úrskurð dómsins.” í þessari ályktun felst afstaða þingflokks Al- þýðuflokksins til málsins. Hann mótmælir úr- skurði Alþjóðadómstólsins m.a. á þeirri for- sendu, að dómstóllinn hefur enn engan úrskurð fellt um, hvort hann hafi nokkra lögsögu i þessu máli. í öðru lagi vitir þingflokkurinn þá afstöðu dómstólsins, að hann skuli ætla að ákveða er- lendum þjóðum tiltekið veiðimagn á íslands- miðum. Sérstaklega er þetta vitavert þegar það er haft i huga, að dómstóllinn hefur, eins og áður segir, enn ekki fjallað um lögsögu sina i málinu. í þriðja lagi lýsir þingflokkur Alþýðuflokksins þvi svo yfir, að íslendingar eigi að sjálfsögðu að láta landhelgisútfærsluna koma til fram- kvæmda á tilsettum tima, þrátt fyrir úrskurð dómsins. Þetta eru meginatriðin þrjú i afstöðu Alþýðuflokksins til dómsuppkvaðningarinnar og framhaldsins i málinu. RÉTTMÆTAR ÁHYGGJUR í viðtali við Alþýðublaðið s.l. föstudag greindi dr. Gylfi Þ. Gislason, formaður Alþýðuflokks- ins, frá þessari niðurstöðu þingflokksins. í við- talinu sagði hann nokkru nánar frá umræðunum i þingflokknum og þeim viðhorfum, sem þar komu fram. Þar var, eins og eðlilegt er, fjallað nokkuð um vinnubrögð rikisstjórnarinnar i landhelgismálinu og látnar i ljós skoðanir á þeim. Um þá hlið málsins fórust Gylfa Þ. Gisla- syni svo orð i viðtalinu við Alþýðublaðið. ,,Hins vegar voru i þingflokknum látnar i ljós áhyggjur út af þvi, að rikisstjórnin virðist ekki hafa haldið eins vel á málum og æskilegt hefði verið. í þvi sambandi var t.d. bent á, hversu lengi dróst að stinga upp á framhaldsviðræðum við Breta og að enginn málflutningur skuli hafa verið hafður i frammi gagnvart Alþjóðadóm- stólnum i Haag til þess að skýra málstað Islend- inga”. Þær áhyggjur, sem þingflokkur Alþýðuflokks- ins hefur vegna þeirra atriða, sem Gylfi Þ. Gislason vikur að, eru bæði eðlilegar og á rökum reistar. LANDBðNADARMÁUN ENN TIL UMRÆDU Siöast liöinn mánudag flutti ungur hagfræöingur, Björn Matt- hiasson, erindi um daginn og veg- inn i útvarpiö. i þvi erindi kom hann viöa við eins og venja er. Meöai annars nefndi hann land- búnaöarmálin i nokkrum setning- um og gat i þvi sambandi örfárra talna. Þessar örfáu setningar hag- fræöingsins um landbúnaðarmál hafa orðið tilefni mikilla skrifa. Aöstoðarmaöur landbúnaöarráö- herra, Jónas Jónsson, hefur ritað heilsiöugrein i Timann á móti hagfræöingnuni. Blaöafulltrúi bændasamtakanna, Ingi Tryggvason, hcfur ritað aðra. Að- alritstjóri Timans, Þórarinn Þór- arinsson, hefur ritað þá þriðju. Annar hvor leiðarahöfunda Tim- ans skrifaði um málið heilan leiö- ara. Kjördæmisblöö Framsókn- armanna sé ég yfirleitt ekki og veit þvi ekki, hvort eitthvað hefur þar vcrið skrifað. Simtöl land- búnaðarráðherra heyri ég ekki og veit þvi ekki með vissu, hvað þar var skrafað. Hins vegar er ljóst af þeim viðbrögðum, sem vitað er um, að mikið hefur þótt við liggja að mótmæla hinum fáu orðum hagfræðingsins, sem hann leyfði sér að viöhafa um landbúnaðar- mál. Árásir á atvinnuveginn Sá furðulegi m iss kilningur virðist hafa komizt inn i höfuðið á öllum þeim, sem einhverri ferð þykjast ráða i landbúnaðarmál- um á islandi, að öll gagnrýni á la ndbúna ðarSTEF N UN A — meira að segja allar meinlausar ábendingar um, hvcrt verið sé að fara — séu árásir á landbúnaðinn scm atvinnuveg og bændur, sem fólk. Allir, sem leyfi sér að hafa aðrar skoöanir á landbúnaðar- málum en svonefndir forystu- menn i landbúnaði á islandi, séu óvinir landbúnaðarins og fjand- menn bændastéttarinnar! Svei mér þá ef þetta cru ekki sömu sjónarmið og hjá cinræðisherr- um, sem eins og allir vita, eru sannfærðir um að allir þeir, sem séu á öndverðum meiði við þá, séu óvinir rikisins og fjandmenn fólksins. En nógum það að sinni. Með tuttugu dálkum i Timanum, forystugrein og kannski simtölum ' ,,að ofan” er nú vcrið að kenna Birni Matthiassyni lexiu, sem fjölmargir aðrir hafa verið látnir nema, sem hreyft hafa við land- búnaöarmálum á islandi. Þeir trúa þó á sjálfa sig! Auðvitað er það út af fyrir sig ánægjulegt, að forystumenn land- búnaðarins, bæði á hinu pólitiska og hinu faglega sviöi, skuli lifa i slikri fullvissu um eigin óskcikul- leika, að aldrei skuli læðast að þeim minnsti efi um réttmæti þeirrar stefnu, scm þeir eru að framkvæma. Því furðulegra cr þetta, þegar tekið er mið af þvi, að þrátt fyrir það, að hið opinbera veiti i beina og óbeina styrki vegna landbúnaðarins upphæð, sem nemur helmingi allra brúttó- tekna bænda, þá eru bændur tvi- mælalaust tekjulægsta stéttin i þjóöfélaginu. Það er áreiðanlega satt og rétt, að sárfátækt fólk má nú hvergi finna á islandi, nema innan bændastéttarinnar. Þetta á sér stað á sama tima og styrktar- framlög hins opinbera til landbúnaðarins nema næstum einum þriðja af brúttótekjum bænda. Samt standa engar áhyggjur þeim fyrir svefni, sem mótað liafa stefnuna i land- búnað^rmálunum á islandi, — samt sækir enginn efi að þeim. i þágu hvers? Auðvitað er hægt að halda þvi fram, eins og þeir forsvarsmenn landbúnaðarins gera, sem skrifa i Timann, að niðurgreiðslur á landbúnaðarvöruverði innan land's, sem á s.l. ári munu hafa numiö nokkuö yfir 1600 m.kr., séu ekki til styrktar landbúnaði, heldur neytendum. Þannig séu raunverulegar styrkveitingar hins opinbera til landbúnaðarins ekki nema lítill hluti af þeim upphæðuin, sem ég nefndi hér opinberu fé i niðurgreiðslur, útflutnings uppbætur og önnur gjöld. EFTIR HELGINA Sighvatur Björgvinsson skrifar: En hvar væri islenzkur land- búnaður á vegi staddur, ef þessar niðurgreiðslur úr rikissjóði væru ekki inntar af hendi? Hversu mikiö smjör myndu islenzkir ncytendur kaupa ef þeir þyrftu að borga fyrir kilóið röskar 400 krón- ur, eins og hið raunverulega smjörverð myndi vera, ef niöur- greiðslurnar væru felldar niður. Og hvcrsu mikil mjólk yrði drukkin ef fólk þyrfti að greiða u.þ.b. JO krónur fyrir literinn, eins og vcra myndi, ef engar niðurgreiðsiur væru? Það eru til vörur, sem geta komið i stað smjörs, eins og hefur sýnt sig, þegar smjörvcrð hefur verið hátt til kaupenda og niður- greiðslur verið litlar. Og tslend- ingar geta dregið mjög við sig mjólkurneyzlu án þess að biða skaða af, cf verðlag á mjólk yrði óheyrilega hátt. En hvar myndi landbúnaðurinn standa ef hætt yrði að greiða niður vöruverðið úr rikissjóði? Myndi hann þola slikt áfall? Og liver cr það, sem stcndur undir kostnaðinum af niður- greiðslunum? Auðvitað almenn- ingur með skattgreiðslum sinum. Og stærstur hluti skattgreiðenda cru einmitt neytendur land- búnaðarvara. Þannig eru það þeir, sem i rauninni standa undir megninu af niðurgreiðslunum. Þeir borga tvöfalt verð fyrir um- ræddar afurðir. Fyrst búðarverð- ið. Svo niðurgreiðsluverðið, sem tekið er af þcim i sköttum. Hvernig i ósköpunum er þá liægt að halda þvi fram, að niður- greiðslurnar séu eingöngu i þágu neytenda, cn ekki- framleiöenda? Eru það ekki neytendurnir, sem þurfa að bera kostnaðinn af þess- um niðurgreiðslum að langmestu lcyti? Hvernig getur slikt verið i þágu þeirra? Og eru það ekki framleiðendurnir, sem yrðu fyrir mesta áfallinu, ef niöurgreiðsl- urnar væru afnumdar? Hvernig getur þá verið, að það sé ekki á nokkurn hátt þeim i hag, að niðurgreiöslan skuli látin halda sér? Of litil framleiöni. Vandamáliö i landbúnaðinum er auðvitaö það sama hér og viða annars staðar, — framleiðni hans er of lltil. Það vinnuafl, sem starfar við hann og það fjármagn, sem til hans er varið, skilar ein- faldlcga of litlum arði. Þannig er framleiðni i landbúnaði hérlendis ekki nema 59,7% af meðalfram- leiðni þjóðarbúsins alls og u.þ.b. helmingur af framleiðni i sjávar- útvegi. Þetta er vandi landbúnaðarins. Þcss vegna er svona erfitt að tryggja bændum mannsæmandi kjör. Og það verður ekki gert til frambúðar með þvi að bæta þessa lágu framleiðni upp með styrkj- um úr rikissjóði. Það er ekki hægt að halda mikið lengra áfram á þessari braut. Vanda landbúnaðarins verður að leysa með öðrum ráðum. Það veröur að auka framleiðni hans, -gera hann samkeppnishæfari og sjálfstæðari. Slikt verður ekki gert nema með þvi að breyta algerlega um stefnu I málefnum atvinnugreinarinnar. Tvær krónur fyrir eina. i lokin er svo rétt að nefna nokkrar tölur um útflutnings- verzlun með landbúnaðarafurðir rétt til þess að sýna fram á h versu viðsjárverð sú verzlun er og hvcrsu langt er frá þvf að við get- um selt slikar afurðir úr landi mcð nokkrum hagnaöi. Arið 1959—1960 tóku giidi ákvæði um verðábyrgð rikissjóðs ' vegna útfluttra landbúnaðaraf- urða. Það ár námu slíkar útflutn- ingsuppbætur 25,8 milljónir króna. A s.l. ári munu útflutn- ingsuppbæturnar hins vegar hafa numið röskum 400 milljónum króna, — eða 17 sinnum hærri upphæð. Og hvað fáum við svo fyrir vör- una, sem við erum að flytja út. Nýjustu sundurliðuðu tölurnar um það eru fra verðlagsárinu 1969—1970. Það ár fluttum við Út fryst dilkakjöt fyrir 552.765 þús. kr. cn vcrðábyrgð rikissjóðs (útflutningsuppbæturnar) með þcssum útflutningi námu 245.480 þús. kr., eða 44,4% af heildar- verðinu. Vcrðlagsárið 1967—1968 var hallinn á þessum útflutningi þó cnn mciri. Þá þurfti rikissjóð- ur að grciða i útflutningsupp- bætur 151.144 þús. kr. á móti 60.598 þús. kr., sem hinir erlendu kaupendur borguðu fyrir fryst dilkakjöt frá islandi. Þá borgaði rikissjóður sem sé tvær krónur með útflutta kjötinu á móti hverri einni, sem hinir crlendu kaup- endur borguðu. Stærsta vandamálið. Tökum annað dæmi. A verð- lagsárinu 1969—1970 fluttum við út mjólkurost fyrir 66.011 þús. kr. Hvorki meira né minna en 47.775 þús. kr. af þessari upphæð komu úr rikissjóöi sem útflutnings- uppbætur, en aðeins 27,6% verðs- ins frá hinum erlendu kaupend- um. Hlutfallstalan fyrir útflutt nýmjólkurduft var svo enn óhag- stæðari okkur. Þar borguöu hinir erlcndu kaupendur ekki nema 22,8% verðsins, en 77,3% varð rikissjóöur islands að inna af höndum i útflutningsbætur. Fyrir hverja eina krónu, sem við feng- um frá erlendum kaupendum þessarar afurðar, urðum við sjálfir að greiða þrjár! Heldur nokkur heilvita maður, að þetta sé eðlilegt og æskilegt ástand? Vandamál landbúnaðarins eru mörg. Það sem er þó hans stærsta og mesta vandamál er, að þeir menn, sem til forystu hafa ráðist um málefni atvinnugreinarinnar, vilja alls ekki sjá vandann eins og hann raunverulega er heldur eitt- hvað allt annað. Þess vegna gengur svo stirt og illa að greiða úr og tryggja bændum sambæri- leg kjör við aðrar stéttir, þvi fyrsta og stærsta atriðið við lausn vandamála er auðvitað það, að skynja og skilja hver vandinn raunverulega er. Fyrr er ekkert hægt að gera. s Þriöjudagur 22. ágúst 1972

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.