Alþýðublaðið - 22.08.1972, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 22.08.1972, Blaðsíða 9
ERLENDUR NYTTI ROKID - KASTADI 60,82 METRA AÐEINS VIKU FYRIR OL! iMtðTTIR 2 Valssigur í 10. sinn í röð! Valsstúlkurnar tóku við lslandsbikarnum i útíhand- knattleik á sunnudaginn. Þær eru þvi ekki óvanar, þetta var nefni- lega 10. sigur Valsstúlknanna i röð i sumarm'ótinu utanhúss. Af sliku afreki getur karlalið FH einungis státað. 1 úrslitunum sigruðu Vals- stúlkurnar Fram með miklum yfirburðum 18:7. Úrslitaleikur mótsins fór eiginlega fram á föstudagskvöldið, þegar Valur Framhald á bls. 4 A laugardaginn setti Erlendur Valdimarsson ÍR nýtt glæsilegt islandsmet i kringlukasti, 60,82 metra. Er þetta góðs viti, aðeins viku fyrir ólympiuleikana. Ef Erlendi tekst að ná þar 60 metra kasti, er hann nokkuð öruggur um að ná langt. Mjög hvasst var á Melavellin- um á laugardaginn, þegar Er- lendur vann afrekið. Nýtti hann sér vindinn til hins ýtrasta. Átti Erlendur tvö gild köst, metkast- ið 60,82 metra og 60,40 metra kast. Aðrir keppendur I kringl- unni náðu ekki sérlega góðum árangri, Hreinn Halldórsson HSS varð annar með tæpa 50 metra. Afrekið vann Erlendur á inn- anfélagsmóti ÍR. Keppt var i fleiri greinum, en ekki náðist umtalsverður árangur i þeim. Stigunum skipt bróðurlega milli Vals og ÍA EYJAMENN RETT„MORÐU” SIGUR GEGN KR-INGUM Eyjamenn eru teknir til við að þoka sér upp stigatöfluna. Á sunnudaginn sigruðu þeir KR 2:1 i Eyjum. Leikurinn bar öll ein- kenni vallarins, sem var eins og dý eftir miklar stórrigningar und- anfarna daga. Við slfkar aðstæð- ur er knattspyrnan ekki upp á marga fiska, og leikurinn allur stórkallalegri en ella mætti búast við af jafn léttlcikandi liðum og þarna mættust. Þaö kom fljótlega i Ijós, að KR- ingar léku upp á jafntefli i þess- um leik. Tengiliðirnir drógu sig verulega aftur, er ÍBV sótti, og fengu miðjumenn iBV mikið rými til að athafna sig. En þeim tókst þó ekki sem skyldi að notfæra sér þetta. Fyrri hálfleikur var jafn, og skoraði hvort liðið um sig eitt mark, sem telja verður litið eftir gangi leiksins svona yfirleitt þessar fyrstu 45 minútur. Bæði liðin áttu góö fækifæri á fyrstu minútunum. Haraldur og örn áttu góðar leikfléttur fyrir fBV og Atli Þór fór illa með opið færi á 14. minútu. A 23. minútu var KR i sókn, en Þórður Hallgrimsson náði boltan- um og sendi góða sendingu út i vinstra hornið þar sem Ásgeir Sigurvinsson hljóp af sér tvo varnarmenn KR. Ásgeir sendi siðan vel fyrir markið og Tómas Pálsson skoraði með glæsilegu innanfótar skoti. KR-ingar létu engan bilbug á sér finna, og þeir jöfnuðu metin á 35. minútu. Gunnar Gunnarsson lék upp að endamörkum og gaf velfyrir markið. Einar Friðþjófs- son náði boltanum, en mistókst gjörsamlega að ná valdi yfir honum og Atli Héðinsson kom að- vifandi, náði boltanum af Einari og skoraði auðveldlega. Fleiri urðu mörkin ekki i hálfleiknum, þrátt fyrir góð tækifæri, og staðan var þvi 1:1. Seinni hálfleikur var mun siðri, og lengi framan af þrautleið- inlegur á að horfa. Rangar send- ingar og ótimabær skot eitthvað út i loftið einkenndu leik beggja liða, og þó voru KR-ingar heldur skárri aðilinn. En vegna varnar- veggsins var ekki nægilegur mannafli frammi til þess að fylgja eftir. Bæði liðin áttu einstaka mark- tækifæri, en hálfleikurinn silaðist áfram og allt virtist benda til jafnteflis. En siðustu minúturnar rifu Eyjamenn upp húmorinn, og tóku að sækja mjög stift, stað- ráðnir i að knýja fram sjgur, og það tókst með baráttunni. Á 87. minútu náði örn Öskarsson bolt- anum við miðlinu. Og brunaði af stað i áttina að markinu. Fjórir KR-ingar komu á móti, en með sinni alkunnu hörku og staðfestu braust örn i gegnum ofureflið, al- veg upp að endamörkum. Hann Framhald á bls. 4 Forysta IBA eykst Akureyringar juku forystuna I 2. deild á laugardaginn I þrjú stig, þegar þeir unnu Hauka i Hafnarfirði 3:1. Þau stig voru ekki auðsótt, því Haukarnir börðust eins og Ijón. Haukarnir höföu yfir i hálfleik 1:0, en i seinni hálfleik skoruðu þeir Kári Árnason, Eyjólfur Ágústsson og Magnús Jónatans- son, og innsigluðu þar með sigur ÍBA. A Melavellinum sigraði Ár- manu Völsung á sunnudaginn 3:1, og var sigurinn verðskuld- aður. Jón Hermannsson (viti), Bragi Jónsson og Sigurður Leifsson skoruðu mörk Ár- manns, en Hermann Jónsson mark Völsungs. Valur og Akranes skiptu með sér stigunum á Laugardalsvellin- um á sunnudaginn i mesta bróð- erni. Lokatölurnar urðu 2:2, og verða þau úrslit að teljast sann- gjörn. Var allur annar bragur á leik Vals i þetta sinn, og er greini- legt að liðiö er að ná sér á strik eftir slaka frammistöðu i undan- förnum lcikjum. Valur sótti af miklum eldmóði i byrjun leiksins á sunnudaginn, og þurfti Jóhannes Guðjónsson bak- vörður að verja knöttinn tvivegis á línu á fyrstu minútunum. Vals- menn héldu áfram sókninni, og skoruðu eftir 10 minútna leik. Upphófust mikil læti við mark tA, og að endingu tókst Þóri Jónssyni að skjóta, og boltinn þaut i netið af varnarmanni 1A. Enn héldu Valsmenn áfram sóknaraðgerðum sinum, en upp úr miðjum hálfleik fóru þeir að- eins að gefa sig, og Skagamenn komust nær og nær Valsmarkinu. A 36. minútu lék Eyleifur upp að endamörkum vinstra megin, gaf knöttinn siðan fyrir markið á Teit sem tókst að skora framhjá Sigurði Dagssyni. En sú dýrð stóð ekki lengi hjá Skagamönnum, þvi Herði Helgasyni markverði tókst ekki að halda föstu langskoti Jó- hannesar Edvaldssonar á 43. minútu, og Alexander Jóhannes- son, sem fylgt hafði skotinu vel eftir, náði að renna knettinum i netið. t byrjun seinni hálfleiks sóttu Valsmenn enn, en brátt fóru þeir að missa tökin á leiknum, eins og svo oft hendir þá i siðari hálfleik. Byrjuðu Skagamenn nú að sækja af krafti, og ekki munaði nema hársbreidd að þeim tækist að skora á 23. minútu, þegar Eyleif- ur átti skalla i þverslá, og Sigurð- ur varði vel skot Karls Þórðar- sonar úr tækifæri sem skapaðist upp úr þessu. Og á 30. minútu jöfnuðu svo Skagamenn. Var Eyleifur þar að verki, með eitt fallegasta skot sumarsins. Hann fékk knöttinn frá Teiti hægra megin, og við- stöðulaust þrumuskot hans hafn- aði i þverslánni og þaðan beina leið i netið. Var skotið af tæplega 25 metra færi. Valsliðið var óþekkjanlegt frá fyrri leikjum, nema hvað það datt Framhald á bls. 4 MYNDIRNAR Knötturinn er á leiðinni i netið á báðum myndunum. Hér að ncöan skorar Þórir Jónsson fyrsta mark Vals, og á siðunni við hliðina sést Eirikur Þorsteinsson skora fyrsta mark Víkings gegn Breiðabiiki. Þriöjudagur 22. ágúst 1972 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.