Vísir - 26.06.1980, Page 4
VISIR Fimmtudagur 26. júni 1980.
29. JÚNÍ
Pétur J.
Thorsteinsson
Aðalskrifstofa stuðningsfólks
Péturs J. Thorsteinssonar í
Reykjavík er á
Vesturgötu 17, símar:
28170-28518
Utankjörstaðaskrifstofa símar
28171 - 29873
Allar upplýsingar um forsetakosningarnar.
Skráning sjálfboðaliða.
Tekið á móti framlögum í kosningasjóð.
Hverfaskrifstofur
stuöningsmanna
Péturs J. Thorsteinssonar
Nes- og Melahverfi Vesturgötu 3
Vestur- og Miðbæjarhverfi Símar 2-86-30 og 2-98-72
Austurbæjar- og
Norðurmýrarhverf i
Hlíða- og Holtahverfi
Laugarneshverfi
Langholtshverfi
Háaleitishverfi
Bústaða-, Smáíbúða og
Fossvogshverfi
Árbæjar- og Seláshverfi
Bakka- og Stekkjahverfi
Fella- og Hólahverfi
Skóga- og Seljahverfi
Opið 17.00 til 22.00
Grensásveg 11
Símar 3-69-44, 3-73-78 og
3-73-79
Opið 17.00 til 22.00
Fremristekkur 1
Sími 7-70-00
Opið 17.00 til 22.00
Nú fylkir fólkið sér um
Pétur Thorsteinsson.
Stuðningsfólk Péturs.
Iðnaðarhúsnæði
óskum að taka á leigu ca. 300 ferm. húsnæði á
götuhæð fyrir hreinlegan iðnað, helst í Holta-
eða Múlahverfi.
Uppl. í síma 26474
Staða skrifstofustjóra
Hitaveitu Reykjavíkur er laus til umsóknar,
laun skv. kjarasamningum starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar. Skriflegar umsóknir
er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf,
sendisttil Hitaveitu Reykjavíkur fyrir 10. júlí
n.k.
Laus staða.
Staða safnvarðar i Þjóðminjasafni islands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt iaunakeríi starfsmanna rikisins.
Starfið er einkum fólgið I umsjón og eftirliti með viðgerðum og
varöveislu gamalla bygginga safnsins, svo og annarra bygginga,
sem safnið hefurmeðað gera.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi menntun f þjóðháttafræöi
eða fornieifafræöi eða hafi sérhæft sig á annan hátt í bygginga-
rannsóknum.
Umsóknir meö ýtarlegum upplýsingum um námsferii og fyrri
störf skulu hafa borist Menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavik, fyrir 25. júli n.k.
Menntamáiaráðuneytið, 24. júni 1980.
HÓTEL VARÐÐORG
AKUREYRI
SÍMI (96)22600
Góð gistiherbergi.
Verð frá kr. 10.55—17.500.
Morgunverður
Kvöldverður
Næg bílastæði
Er í hjarta bæjarins.
--------------------------------------
örtölvubyltingin hefur náð til kúnna. Hér er kýr frá Bridgets-rannsóknarbúgaröinum með sendi um
hálsinn.
Ortölvukýr og
karlöllutölva
Við lifum á skrýtnum timum. A æ
fleiri sviðum nær tæknin yfir-
höndinni og maðurinn er smam
saman að verða númer i risastóru
tölvukerfi nútimans. Menn hugga
sig þó við það, að enn er viðast
hvar hægt aö losna úr tölvustress-
inu með þvi að aka á meira og
minna tölvuvæddum bilnum upp i
sveit og njóta náttúrunnar. En
hvað veröur það lengi?
Nú er verið að gera athuganir
með tölvuvæddar kýr! Tækni nú-
tímans ber nefnilega enga virð-
ingu fyrir óspilltri náttúru.
A Bridgets rannsóknarbúgarð-
inum nálægt Winchester i
Hampshire i Englandi er verið að
gera tilraunir meö tölvuvæddan
mjólkurbúskap. 260 kýr eru not-
aðar við rannsoknir á þvi, hvern-
ig sjálfvirkni og tölvubúnaöur
getur aukiö afköst hversdags-
legrar mjólkurkýr.
Hjörðinni er stjórnað i gegnum
sendi, sem hangir um háls kúnna
eins og hálsband. Þessi senditæki
gefa hvert um sig frá sér merki,
sem t'diva i stjórnstöð nemur. A
þann hátt er hægt að fylgjast með
hverri kusu fyrir sig, hversu mik-
ið hún étur er stjórnað af
tölvunni, en hún er mötuð á sér-
stöku mataræði. Mjólkurmagn-
inu, sem kýrin gefur af sér, er
einnig stjórnað af tölvunni á svip-
aðan hátt.
Stjórnstöðin er i litlu herbergi
við hliða mjólkurbúsins. Skermar
við hvern bás eru tengdir tölv-
unni, þannig aö kúahirðirinn get-
ur fengið upplýsingar um ástand
hverrar kýr, mataræði og hvað
hún mjólkar mikið. Þá er á þenn-
an hátt einnig hægt að fá upplýs-
ingar um hugsanlega lyfjameð-
ferö og efnagreina sýnishorn af
mjólkinni.
Þessum upplýsingum er öllum
safnað saman i linurit, sem sýna
ástand hverrar kýr yfir daginn,
vikuna og mánuðinn.
Og það eru ekki bara kýrnar,
sem verða tölvuvæddar i framtið-
inni. Nú er veriö að gera rann-
sóknir á þvi hvernig megi auka
uppskeruna. Ekki þannig þó, að
sérstakir sendar séu hengdir á
hvert grasstrá. Sérstakt tæki,
mælir hita og raka loftsins og
vætu yfirborðs jarðarinnar á 20
minútna fresti og mælir siöan út
hættuna á sjúkdómum i uppsker-
unni, svo sem korni, kartöflum og
baunum, og spáir fyrir um
uppskerumagnið.
Við þurfum ef til vill ekki að ótt-
ast örtölvubyltingu I náttúrunni
alveg á næstu árum, en það er þó
ljóst, aö tæknilega séð er ekkert
sem kemur i veg fyrir hana. Enn
eru tækin of dýr fyrir venjulega
bændur og bændur eru oft frekar
ihaldssamir þannig að enn gætu
liðið mörg ár þar til landbúnaður-
inn yrði tölvuvæddur að einhverju
gagni.
Það skyldi þó aldrei fara svo að
menn rækjust einhvern tima á
skilti við nýsleginn og fallega
grænan haga, þar sem á stæði:
„Bannað að ganga á
transistorunum!!
VÍSI erlu dauðurl
Kaupsýslumaöur i Perú,
Eduardo Sotelo, fær ekki að kjósa
og getur ekki tekið peninga sina
út úr banka þar sem hann getur
ekki sannað að hann sé á lifi.
Eduardo Sotelo skýrði kvöld-
blaðinu Ultima Hora frá erfið-
leikum sinum nýlega og tilraun-
um til að fá dánarvottorðið numiö
úr gildi, en þaö hefur engan
árangur borið enn sem komiö er.
Lögregluyfirvöld segjast álita
að Sotelo sé talinn dauður, þar
sem nafnskirteini hans fannst á
manni, sem lést i umferðarslysi
fyrir tveimur mánuðum.
Kínverjar safna
kornblrgðum
Kinverjar hafa keypt enn eina
kornsendinguna frá Bandarikjun-
um, að þessu sinni um 259 þúsund
tonn.
Kinverjar hafa þvi keypt um
2,78 milljón lestir af korni á þessu
uppskeruári, sem hófst 1. júni.
Siðasta salan þýðir, aö kornkaup
Kinverja á þessu uppskeruári eru
þegar oröin milljón tonnum meiri
en á öllu siöasta uppskeruári.
Fréttaskýrendur telja að mikil
kornkaup Kinverja stafi af upp-
skerubresti i Kina vegna
óhagstæörar veöráttu. Þeir segja
einnig, að þessi miklu kaup geti
verið vegna hagstæðs heims-
markaðsverðs og mikillar
áherslu, sem kinversk stjórnvöid
hafa lagt á aö safna kornbirgðum.
Auk kaupanna I Bandarikjun-
um hafa Kinverjar keypt stórar
sendingar af kanadisku korni og
munu gera einhver kornkaup i
Efnahagsbandalagslöndunum I
sumar.
Jökull hamlar
sigiingum
Hætta er á þvi, að jökull i
Alaska muni springa og breytast i
fjölmarga borgarisjaka, sem
myndi eyðileggja siglingaleiðir
oliuskipa um þetta svæði.
Til þessa hafa isjakar ekki
valdið teljandi vandræöum á
Prince William-sundi, en um það
hafa oliuskip flutt meira en eina
milljón tunna af oliu daglega.
Jöklafræðingar segja, aö hinn
65 kflómetra langi Columbia jök-
ull sé „sérstaklega ótryggur þar
sem hann sé siðasti jökulhnn I N-
Ameriku, sem slúti yfir og fylli
djúpan fjörð.
Ekkl dauður
úr öilum...
Fred Astaire, sem er oröinn 81
árs gamall, er greinilega ekki
dauður úr öllum æðum. Fred og
vinkona hans, Robyn Smith, 35
ára gömul, hafa nefnilega fnegið
leyfisbréf, sem þýöir að þau ætla
að eigast innan tiöar.
Ungfrú Smith og Fred Astaire
hafa sést mikið saman undanfar-
in ár, og koma þessar fréttir
greinarhöfundum i Hollywood þvi
Htið á óvart.
Fred missti konu sina, sem hét
Ava, árið 1954, og áttu þau tvö
börn. Robyn Smith hefur aldrei
gifst áöur.